Morgunblaðið - 01.08.2000, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 47
MINNINGAR
GESTUR
PÁLSSON
+ Gestur Pálsson
fæddist í Mýrar-
koti á Álftanesi 5.
nóvember 1911.
Hann lést á elli- og
hjúkrunarheimilinu
Grund 21. júlí síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru þau Páll
Stefánsson, sjómað-
ur í Mýrarkoti og
Iljallakoti á Álftanesi
og síðar í Reykjavík,
f. 26. júní 1863, d. 10.
ágúst 1935, og Ólöf
Jónsdóttir, f. 24. júní
1873, d. 8. október
1948. Systkini voru alls sjö auk
fósturbróður og er aðeins ein
systra hans á lífi, Guðbjörg. Látin
eru Þjóðbjörg, Ingveldur, Guð-
mundur, Guðný, Jóhanna og fóst-
urbróðirinn Július.
Gestur kvæntist 6. mars 1936
Jórunni Ellu Ólafsdóttur frá Vest-
mannaeyjum, en hún lést 15. aprfl
1942. Þau eignuðust eina dóttur,
Ólöfu, f. 24. júní 1937.
Gestur kvæntist aftur 6. nóv-
ember 1943 Elínu Vilborgu Jó-
hannsdóttur, f. 30. júní 1911, en
hún lést 14. ágúst 1986. Börn
þeirra eru Páll, f. 4. júní 1944, og
Fríður, f. 4. október 1950, en fyrir
átti Elín son af fyrra
hjónabandi, Jóhann
Löve, f. 30. júlí 1935.
Gestur hóf
prentnám í Félags-
prentsmiðjunni 1. jú-
lí 1926, lauk sveins-
prófi 1930 og
öðlaðist meistara-
réttindi 1936. Hann
vann í Félags-
prentsmiðjunni til
1942 þegar hann
gerðist setjari og
síðar verkstjóri í
prentsmiðunni Hól-
um. Árið 1966 var
honum falið að taka við rekstri
prentsmiðjunnar og gegndi hann
því starfí til ársins 1975.
Frá 1975 starfaði hann í Borg-
arprenti, en lét af störfum 1990
vegna aldurs. Hann gegndi ýms-
um trúnaðarstörfum á starfsferl-
inum og má þar nefna; í stjóm
Hins íslenska prentarafélags
1946-1948 ásamt að sitja í fast-
eignanefnd félagsins sama tíma.
Prófdómari í setningu 1946-1965
og fulltrúi í Iðnráði 1962-1966.
Útför Gests fer fram frá Ás-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Elsku pabbi, um leið og ég kveð
þig í hinsta sinn langar mig að þakka
þér íyrir það sem þú varst mér, bæði
góður faðir og vinur.
Þau voru ófá skiptin sem við fór-
um saman í bíó, einkum þegar
mamma var á spítala.
Mér er minnisstæður einn dagur
þegar ég var tíu ára gömul. Við fór-
Nú samvist þinni ég sviptur er
- ég sé þig aldrei meir!
Ástvinimir, sem ann ég hér,
svoallirfaraþeir.
Ég felldi tár - en hví ég græt?
Því heimskingi ég er!
Því minning hún er sæl og sæt
ogsömuleið égfer.
Hann lést á Elliheimilinu Grund
föstudaginn 21. júlí síðastliðinn eftir
langvarandi veikindi, hniginn að
aldri.
Mér er í fersku minni er ég hitti
hann fyrsta sinni. Þáverandi yfir-
maður minn í Landsbankanum, ein-
stakur nákvæmnismaður og kröfu-
harður um vönduð vinnubrögð, sendi
mig í Prentsmiðjuna Hóla vegna
prentunar á sparisjóðsbókum. Hann
lagði ríkt á við mig að tala við Gest
Pálsson, verkstjóra í setjarasal.
Honum væri best treystandi til að
verkið færist vel úr hendi. Eg fór
sem leið lá í Hólaprent í Þingholts-
stræti og spurði eftir Gesti Pálssyni.
Mér var vísað á góðlegan mann,
þéttvaxinn, meðalháan á vöxt. Hann
tók erindi mínu ljúfmannlega og
verkinu var skilað með ágætum á til-
settum tíma.
Þetta segir nokkuð um það álit
sem Gestur naut í sínu fagi. Hann
var álitinn einstaklega fær og
smekkvís setjari og voru fáir sem
stóðu honum þar á sporði. Hann
lærði setningu í Félagsprentsmiðj-
unni, en vann lengstum í Prentsmiðj-
unni Hólum. Fyrst sem setjari, þá
sem verkstjóri og að lokum sem for-
stjóri prentsmiðjunnar. Að loknu
starfi í Hólaprenti vann hann um
nokkurt skeið í Stimplagerðinni hjá
öndvegishjónunum Aðalheiði Maack
og Óðni Geirssyni. Luku þau miklu
lofsorði á störf hans.
Er fundum okkar bai- saman fyrst
grunaði mig ekki að þar hitti ég fyrir
tengdaföður minn tilvonandi, pabba
hennar Lóu minnar. En svo varð, og
vil ég er leiðir skiljast þakka honum
fyrir lífsblómið.
Gestur ólst upp í Reykjavík með
foreldrum sínum í fjölmennum
systkinahópi, við gott atlæti þótt
ekki væru efnin mikil. Af systkinum
hans er nú aðeins eftirlifandi systirin
Guðbjörg. Ungur giftist hann Jór-
um niður í bæ eftir að hafa heimsótt
mömmu, við enduðum í Hafnarbíói,
og það var ákveðið að sjá mynd með
Sherlock Holmes kl. 17. Eftir sýn-
inguna gengum við niður Laugaveg
og litum við í Gamla bíói til að þú
gætir séð hvaða mynd þeir væru að
sýna, það var að byrja sýning á
Borgarljósunum með Chaplin, hann
var þitt uppáhald, þú hafðir séð
þessa mynd áður, en þegar ég sá
færast bros á andlit þitt, vissi ég að
við færum inn hvað sem tautaði, sem
við og gerðum, og sáum við þá sýn-
ingu kl. 19. Að lokinni þeirri sýningu
vildir þú ganga framhjá Nýjá bíói, á
leiðinni heim, aðeins til að sjá útstill-
ingarnar, það varð ekki aftur snúið,
viti menn, þeir voru að byrja að sýna
mynd með James Bond kl. 21., annað
uppáhald, og við inn.
Svona varst þú, ekkert að velta
hlutunum of lengi fyrir þér, lifðir
einn dag í einu, og ég lifði á poppi og
kóki. Það var ekki bara, elsku pabbi,
að þú hefðir áhuga á kvikmyndum,
þú vissir nafn á hverjum einasta leik-
ara, framleiðanda, stjómanda, höf-
undi o.s.frv., þú varst ótrúlegur í
þessum efnum svo og öðrum. Þessi
saga er bara brot af því hvernig þú
varst og þetta var bara eitt af þínum
mörgu áhugamálum.
Elsku pabbi minn, ég hefði ekki
getað hugsað mér betri föður. Takk
fyrir allt.
Formáli
mirming-
argreina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, er fædd-
ur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka
og börn, skólagöngu og störf
og loks hvaðan útför hans fer
fram.
Ætlast er til að þessar upp-
lýsingar komi aðeins fram í
formálanum, sem er feitletrað-
ur, en ekki í greinunum sjálf-
um.
Já, sömu leið! En hvert fer þú?
Þighyljasééggröf
- þar mun ég eitt sinn eiga bú
of ævi svifinn höf.
Enerþínsálasigrikætt
ogsæiabúinþér?
Eg veit það ekki! - sofðu sætt!
En sömu leið ég fer.
(Kristján Jónsson.)
Þín
Fríður.
Nú er genginn til hinstu hvílu öð-
lingurinn Gestur Pálsson prentari.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþjónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
i Eitiarsson Sverrir
útfararstjóri, Olsen
sími 896 8242 1 útfararstjóri.
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
J
Vesturhlíð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst aila þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
meg þjónustu allan
sólarhringinn.
.7*
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
\
'GAUÚ"
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
unni Ellu Ólafsdóttur frá Strönd í
Vestmannaeyjum. Þau eignuðust
saman dótturina Ólöfu. Fljótlega
veiktist Jórunn Ella af berklum og
dvaldist löngum á Vífilsstöðum eftir
það. Dótturina ungu urðu þau að
setja í fóstur til foreldra Jórunnar
Ellu í Vestmannaeyjum. Jórunn Ella
andaðist árið 1942. Nokkru síðar
giftist Gestur Elínu Vilborgu Jó-
hannsdóttur ættaðri úr Eyrarsveit á
Snæfellsnesi. Saman ejgnuðust þau
tvö böm, Pál og Fríði. Ólöf fluttist til
föður síns og stjúpmóður og fyrir átti
Elín Vilborg soninn Jóhann Löve úr
fyn'a hjónabandi. Elín Vilborg átti
löngum við vanheilsu að stríða og dó
árið 1986.
Eins og fyiT er getið var Gestur
álitinn með færustu mönnum í sinni
stétt. Hann var maður prýðilega gef-
inn, glaðlyndur og dagfarsprúður,
gjarnan með glettniorð á vörum þótt
á móti blési.
Að leiðarlokum þakka ég honum
fyrir samverustundir okkar og óska
honum blessunar á eilífðarbraut.
Ragnar Gunnarsson.
Elsku afi Gestur, nú kveðjum við
þig og minnumst margra góða
stunda með þér, þú varst stór þáttur
í lífi okkar á æskuárum. Þú varst
alltaf kátur og skemmtilegur og allt-
af var jafn gaman þegar þú komst í
heimsókn, sem var oft. Við minn-
umst þess hversu duglegur, drífandi
og lífsglaður þú varst. Þú hafðir
aldrei tekið bílpróf og fórst flestra
þinna ferða fótgangandi. Það kom
oftar en ekki fyrir að við systurnar
hittum þig á röltinu í bænum þar
sem þú bjóst lengst af. Við fórum
með þér á hinar ýmsu skemmtanir
og í ferðalög, sem er okkur mjög
minnistætt. Þegar aldurinn færðist
yfir þig fórum við systurnar að þrífa
heima hjá þér. Við urðum fljótt varar
við hversu nákvæmur og skipulagð-
ur þú varst, þú vildir hafa alla hluti á
sínum stað. Við hentum oft gaman að
þessari nákvæmni þinni, en kom-
umst svo seinna að því að við erum
ekki ólíkar þér í þessum málum. Þú
varst alltaf hjá okkur á jólunum, þá
var mikið spilað og hlegið svo ekki sé
minnst á allar mynda- og krossgátS
umar sem þú réðst yfir hátíðamar.
Þú varst sérfræðingur í þeim efnum.
Þetta vora bæði yndislegar og
ógleymanlegar stundir. Eftir að þú
fluttir á Gmnd og heilsu þinni hrak-
aði fækkaði komum þínum til okkar.
Fyrstu jólin án þín vom tómleg því
það fylgdi þér alltaf góður andi og
gleði. Minningarnar um þig og
stundirnar með þér fylgja okkur alla
tíð. Guð geymi þig, elsku afi okkar.
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki
breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Dyljá, Eva og Eyþór.
TILKYNNINGAR
RSK
RÍKISSKATTSTJÓR!
Auglýsing
um álagningu opinberra gjalda
á árinu 2000
í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981
um tekjuskatt og eignarskatt er hér með aug-
lýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 200i
er lokið á alla einstaklinga, sem skattskyldir
eru samkvæmt framangreindum lögum sbr.
1. kafla laga nr. 75/1981.
Álagning tryggingagjalds og álagning gjalda
á lögaðila mun liggja fyrir síðar og verður aug
lýst sérstaklega.
Álagningarskrár með gjöldum einstaklinga
verða lagðarfram í öllum skattumdæmum
mánudaginn 31. júlí 2000. Skrárnar liggja
frammi til sýnis á skattstofu hvers skattum-
dæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra
í hverju sveitarfélagi dagana 31. júlí til 14.
ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Álagingarseðlar er sýna álögð opinber gjöld
2000, vaxtabætur og barnabætur hafa verið
póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda,
vaxtabóta og barnabóta, sem gjaldendum hef
ur verið tilkynnt um með álagningarseðli 2000
þurfa að hafa borist skattstjóra eða umboðs-
manni hans eigi síðar en miðvikudaginn
30. ágúst 2000.
Reykjavík, 31. júlí 2000.
Skattstjórinn í Reykjavík,
Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi,
Sigmundur Stefánsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi,
Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi,
Sigríður B. Guðjónsdóttir.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra,
Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra,
Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi,
Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi,
Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum,
Ingi T. Björnsson.