Morgunblaðið - 03.08.2000, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
••
Okukennarar telja brýna þörf á aksturskennslusvæði á höfuðborgarsvæðinu
Góð reynsla erlendis stað-
festir þörfina hérlendis
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Guðbrandur Bogason, formaður Okukennarafélags íslands, og Arnaldur Árnason, öku-
kennari.
Lagt til að Langi-
rimi verði opnað-
ur fyrir almennri
umferð
Grafarvogur
ÖKUKENNARAFÉLAG ís-
lands hefur um langt skeið
unnið að undirbúningi akst-
urskennslusvæðis, en slík
svæði eru víða orðin lög-
bundinn þáttur í ökunámi á
Norðurlöndum. Guðbrandur
Bogason, formaður Öku-
kennarafélags Islands, telur
að nú hilli loks undir gerð
slíks svæðis, en félagið á nú í
samningaviðræðum við
Reykjavíkurborg um afnot af
landi í Gufunesi undir slíkar
framkvæmdir, í stað lóðar
sem félagið hafði fengið út-
hlutað á horni Vesturlands-
vegar og Suðurlandsvegar.
Að þeim samningum loknum
segist Guðbrandur hafa trú á
því að menn séu tilbúnir að
hefjast handa.
Umræður um gerð akst-
urskennslusvæðis hófust hér
á landi um 1970, en að sögn
Guðbrands var fyrst farið að
vinna í þeim málum upp úr
1983. Hann segir að brýnt sé
orðið að notkun á aksturs-
kennslusvæði sé tekin upp
hérlendis og verði lögbund-
inn hluti ökunámsins, rétt
eins og ökuskólar eru nú
orðnir hluti af náminu. Er-
lendis er komin góð reynsla á
rekstur slíkra svæða, þar
sem fram hefur komið að æf-
ingar ökunema á slíkum
svæðum skila sér í fækkun
umferðarslysa.
Draga mætti úr
aftanákeyrslum
Samkvæmt rannsókn sem
gerð var í Danmörku á veg-
um Rádet for Trafiksikker-
hedsforskning er reynslan af
aksturskennslusvæðum í
Danmörku góð og hefur skil-
að áþreifanlegum árangri. Á
tíu ára tímabili, frá 1984 til
1994, fækkaði slysum öku-
manna á aldrinum 18-19 ára
stöðugt; árið 1984 voru slysin
956 en árið 1994 hafði þeim
fækkað í 517.
Guðbrandur segir að
markmiðið með slíku svæði
sé fyrst og fremst að þjálfa
ökunema í að skilja hvernig
bifreiðin hegðar sér við mis-
jafnar aðstæður og gefa
nemanum tækifæri á að upp-
lifa og skilja hversu langa
vegalengd ökutæki þarf til að
stöðvast á tilteknum hraða.
Með því móti er hægt að
koma í veg fyrir að ökumenn
fari of hratt við vafasamar
aðstæður. Auk þess mætti
með þessu móti draga úr aft-
anákeyrslum, en slík óhöpp
eru algeng hér á landi meðal
ungi;a ökumanna.
„Ég er ekki frá því að
þetta sé hluti af vandamál-
inu, stóra vandamálinu, sem
við erum að eiga við. Við er-
um með um 4.000 ungmenni
á ári sem taka bflpróf og á
þessu svæði eru um 2.500
ungmenni. Ef við gætum
byrjað á því að bæta kennsl-
una hjá þessum hópi væri
það verulegur ávinningur,"
segir Guðbrandur.
Læra að takast
á við hálkuna
Aksturskennslusvæði má
skipta upp í tvo hluta; akst:
ursgerði og akstursbrautir. í
Danmörku hefja t.d. nem-
endur ökunám með því að
aka bíl í afmörkuðu aksturs-
gerði og kynnast bflnum áð-
ur en þeir fara út á göturnar.
í akstursgerðinu æfir öku-
neminn sig í að taka af stað,
bakka, leggja í stæði og aka í
þrengslum. Þegar nem-
andinn hefur náð tökum á
bifreiðinni í akstursgerðinu
fer námið svipaða leið og hér
á landi og felst í samfléttun
bóklegs og verklegs öku-
náms.
Að því loknu lýkur öku-
neminn náminu á aksturs-
brautum þar sem hann kynn-
ist bílnum og viðbrögðum
hans. Veggripið er minnkað
með því að bleyta brautirnar
og gera þær hálar og þannig
þurfa nemendur að kljást við
að hafa stjórn á bifreiðinni
við erfiðar aðstæður.
Arnaldur Árnason öku-
kennari segir að neminn sé
þá einn í bflnum og kennar-
inn hafi samband við hann í
gegnum talstöð. Neminn get-
ur ekki spurt kennarann og
tekur einungis við fyrirmæl-
um.
„Þetta er mikilvægur und-
irbúningur fyrir það að nemi
fari einn út í umferðina. Það
er ákaflega merkileg upplif-
un að horfa á svona æfingar
á hálkubraut þar sem fólk
kemur í fyrstu tímana og
keyrir fyrstu hringina og
missir allt út úr höndunum á
sér, þvers og kruss og í
hringi fram og til baka. Og
síðan sér maður það gerast
að með hverri ferðinni ná
þau betri og betri tökum á
akstrinum og enda á því að
keyra hálar beygjur á til-
teknum hraða án áfalla,“ seg-
ir Ai'naldur.
Ekkert kemur í staðinn
fyrir slíka kennslu
Hann segir það jafnframt
mikilvægt að nemendur
komist í aðstæður þar sem
hægt er að koma þeim í
skilning um hversu langa
vegalengd þarf til að stöðva
bíl á tilteknum hraða. Öku-
kennarar sjá að það tekur oft
langan tíma að kenna nem-
endum að meta hemlunar-
vegalengd ökutækis, en slíkt
væri hægt að kenna betur á
slíku svæði og ýmsar aðferð-
ir til þess.
„Þetta er mjög lærdóms-
ríkt og þetta er eiginlega
ekki hægt að gera í dag
vegna aðstöðuleysis. Það
kemur ekkert í staðinn fyrir
slíka kennslu, þótt reynt sé
að sýna nemendum þetta
með útskýringarmyndum og
tölum,“ segir Arnaldur.
Hægt er að gera margvís-
legar æfingar á slíkum svæð-
um auk þess sem svæðið
myndi nýtast í námi til auk-
inna ökuréttinda. Síðan er
veruleg þörf á aðstöðu til
kennslu og próftöku á bif-
hjólum hér á landi, en akst-
urskennslubrautir væru til-
valinn vettvangur til slíks.
Heildarkostnaður við gerð
aksturskennslusvæðis er
áætlaður um 130 milljónir en
Guðbrandur segir að ekki
þurfi að byggja allt upp í ein-
um áfanga. „Það eru aðilar
tilbúnir að vinna þetta með
okkur. Samband íslenskra
tryggingafélaga er tilbúið að
koma að þessu, Vegagerðin
er mjög jákvæð og dóms-
málaráðuneytið er jákvætt.
Við teljum okkur því eygja
möguleika á að fjármagna
þetta, og gott væri að fleiri
aðilar væru til í að leggja
þessari vinnu lið,“ segir
Guðbrandur.
FULLTRÚAR Sjálfstæðis-
flokks hafa lagt fram tillögu í
borgarráði um að Langirimi,
milli Rósarima og Hrísrima,
verði opnaður fyrir almennri
umferð, núverandi þreng-
ingu í götunni gegnt Mið-
garði verði haldið og há-
markshraði milli Rósarima
og Hrísrima verði 20 km.
Auk þess var lagt til að sett-
ar yrðu tvær umferðaröldur í
götuna til að takmarka um-
ferðarhraða enn frekar. Til-
lögunni var vísað til skipu-
lags- og umferðarnefndar.
Inga Jóna Þórðardóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks, segir Langarima lok-
aða götu samkvæmt gömlu
skipulagi og þar sé aðeins
umferð strætisvagna leyfð.
„Reynslan hefur hins veg-
ar sýnt okkur að þetta hefur
verið mjög erfitt í fram-
kvæmd og fyrir nokkru var
opnuð hjáleið um bílastæði
við leikskóla sem er beint á
móti Miðgarði, til að bæta úr
því ófremdarástandi sem
hefur ríkt,“ segir Inga Jóna.
„Við teljum að þessi lausn sé
óforsvaranleg og bjóði upp á
hættur.“
Inga Jóna segir mikla um-
ferð foreldra og barna vera
yfir á leikskólann og að ekki
sé lengur hægt að hafa göt-
una lokaða. Þess í stað eigi
að opna hana almennri um-
ferð og reyna að ná niður
umferðarhraðanum eins og
kostur sé, að sögn Ingu Jónu.
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Ný göngubrú
komin yfir
Miklubraut
NY GONGUBRU yfir
Miklubraut var sett á
undirstöður í gær, en
brúin liggur frá Grundar-
gerði yfir í Skeifu. Ýmis
frágangur er eftir áður en
gangandi vegfarendur
geta gengið yfir brúna, en
vinna við undirstöður fór
fram á síðasta ári. Brúin
var flutt í heilu lagi í
fyrrinótt á lokastað og var
Miklubraut lokað að hluta
frá miðnætti til sex í gær-
morgun á meðan brúin
var sett upp.
Göngubrúin nýja er 60
metra löng og þriggja
metra breið, en heildar-
kostnaður við brúna nam
um 60 milljónum króna.
Nýja göngubrúin tengist
annars vegar göngustíg
sem nú liggur á milli
Miklubrautar og Sogaveg-
ar og hins vegar göngu-
stíg sem liggja mun frá
Skeifunni að Alfheimum.
Ibúi við Tjörnina
segir umhirðu
ábótavant
Tjörnin
ÍBÚI við Tjörnina, sem gefið
hefur fuglunum reglulega,
segir að mjög hafi þrengt að
fuglalífinu þar á síðustu ár-
um. Hann segir fuglana
svelta á vetuma eftir að
borgaryfirvöld hættu að
fóðra þá árið 1997.
„Ég tel þetta ómenningu á
menningarborgarári að
svelta fugla á Reykjavíkur-
tjörn og láta veiðibjölluna
hirða upp ungana,“ segir
Friðbert Njálsson, íbúi við
Tjarnargötu.
Friðbert telur æskilegt að
borgaryfirvöld fóðri fuglana
og nefnir að mikið sé um
afgangsbrauð í bakaríum.
Jafnvel megi hugsa sér að
komið verði upp nokkurs
konar brauðkistum við
Tjörnina, þangað sem veg-
farendur geti sótt brauð og
tekið að sér að gefa fuglun-
um eitthvað í svanginn.
Vargfugli fjölgað við
Tjörnina
Einnig heldur Friðbert því
fram að veiðibjöllum, sem
eru yfirlýstur vargur í lands-
lögum, hafi fjölgað mjög við
Tjörnina, og þar sem ekki sé
skotið á vargfuglinn geri
hann sig heimakominn.
Þá segir Friðbert að and-
arungum stafi mikil hætta af
köttum í kringum Tjörnina.
Hann telur mikilvægt að
Morgunblaðið/Ásdís
Friðbert Njálsson, íbúi við Ijörnina, telur að vargfugli hafi fjölgað þar mjög undanfarin ár.
kettir séu með góðar og
hljómmiklar bjöllur fuglum
og annarri bráð þeirra til
viðvörunar.
Umhirðu við Tjörnina tel-
ur Friðbert ábótavant. Þrátt
fyrir að gangstígar séu
hreinsaðir reglulega sé
Tjörnin sjálf aldrei hreinsuð,
að því er virðist. í Tjörninni
sé að finna ýmiss konar rusl
sem hafi legið þar lengi. Til
að bæta úr þessu segir Frið-
bert nauðsynlegt að ráða
umsjónarmann með Tjörn-
inni sem fylgist jafnt með
fuglalífinu sem umhverfi
Tjarnarinnar.