Morgunblaðið - 03.08.2000, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 03.08.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ________________________________FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000 33 LISTIR I myrkrinu ERLEIYDAR BÆKUR Spennnsaga LOKUÐBÓK „A Closed Book“ eftir Gilbert Ada- ir. Faber and Faber 2000.256 síður. GILBERT Adair heitir breskur rithöfundur og blaðamaður sem skrifað hefur margs konar bækur um ævina, skáldsögur, sagnfræði, barnabækur og ljóðabók eina hefur hann samið. Nýjasta saga hans er spennusaga sem heitir „A Closed Book“ eða Lokuð bók í beinni þýð- ingu, sem út kom fyrir skemmstu í vasabroti hjá Faber og Faber-út- gáfunni. Hún er ágætlega samin saga um tvo menn sem vinna að stóru ritverki en annar þeirra er blindur. Sagan er stutt aflestrar, persónur ekki aðrar en mennirnir tveir og sögusviðið stórt hús á landsbyggðinni. Adair tekst að búa til úr því spennufrásögn sem á auð- velt með að fanga athygli lesandans. Þaulreynt form Hugmynd hans er ekki ný af nál- inni og fellur kannski betur að leiksviði en skáldskaparforminu. Hann gengur óhikað í smiðju leik- skálda eins og Anthony Shaffers, sem skrifaði „Sleuth", og Eric Emmanuel Schmitt, sem skrifaði Abel Znorko býr einn (Ira Levin notaði sömu kringumstæður í „Deathtrap"), þegar hann sviðsetur frásögnina. Aðeins tveir menn koma við sögu eins og áður sagði. Þeir sitja gegnt hvor öðrum fjarri byggð og það er eitthvað á milli þeirra, örugglega úr fortíðinni, sem veldur því að innan stundar fer allt í háa- loft. Adair tekst bærilega að notfæra sér hugmjmdina í skáldsögu sína þótt stundum megi greina í henni leikritstóninn. Sagan er sjálfsagt einkar hentug til dæmis í snaggara- legt útvarpsleikrit. Það þarf að út- lista margt fyrir blinda manninum sem orkar eins og óþarfar umhverf- islýsingar fyrir lesandann en það eru líka í sögunni þættir sem aðeins geta virkað í bókaformi; sumt er hægt að fela í texta sem ekki er hægt að fela á sviði. Adair fær lesandann til þess að finna auðveldlega fyrir innilokunar- kenndinni og einangruninni og í til- felli blinda mannsins hversu varnar- laus hann er gagnvart náunganum, hversu auðveld bráð hann er. Hvernig myrkrið umlykur hann. Aðstoðarmaðurinn Húseigandinn er heimsfrægur rithöfundur sem unnið hefur Book- er- verðlaunin og jafnvel verið orð- aður við Nóbelinn. Fyrir nokkrum árum lenti hann í hörmulegu um- ferðarslysi sem gerði hann illilega afmyndaðan í andliti og blindan að auki. Síðan hefur hann dregið sig al- gerlega frá skarkala heimsins, lok- að sig inni á landareign sinni með ráðskonu, sem sér um daglegar þarfir hans. Núna vill hann hins vegar láta að sér kveða á ný og skrifa það sem kalla mætti heimspekilega ævisögu sína. Hann auglýsir eftir aðstoðar- manni til þess að hjálpa sér við skriftirnar og ræður ungan mann sem hefur góð áhrif á hann, virkar iðjusamur og er kurteisin uppmál- uð, tillitssemin geislar af honum og hann er sæmilega greindur að auki, kann á tölvur. Þeir eiga auðvelt með að tala saman og maðurinn leiðir blindingjann varlega um götur þorpsins í nágrenninu og lýsir því sem fyrir augu ber. Er augu hans. Okkur fer ekki að gruna neitt fyrr en í miðju kafi að aðstoðarmaðurinn byrjar að ljúga að rithöfundinum staðreyndum sem hann notar síðan í verk sitt, sitt mikilvæga lokaverk. Eins og því að Tony Blair hafi orðið að segja af sér sem forsætisráð- herra þegar kom í ljós að hann væri með alnæmi! Það er ekki spurning hvort held- ur hvenær og með hvaða hætti sannleikurinn kemur í ljós í kring- umstæðum sem þessum og Adair spinnur skemmtilega, litla hroll- vekju í kringum hann sem gengur upp að flestu ef ekki öllu leyti. Arnaldur Indriðason Stökktu til Benidorm 22. ágúst M k, 32.955 Síðustu sætin til Benidorm í ágúst. Flug til Benidorm þriðjudagirm 22. ágúst og þú getur valið um 1, 2 eða 3 vikur í sólinni. Benidorm er einn vinsælasti áfangastaður íslendinga og hér getur þú notið sumarleyfisins við frá- bærar aðstæður. Þú bókar núna, 4 dögum fyrir brottför hringjum við í þig og segjum þér hvar þú gistir. Að sjálf- sögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verðkr. 32.955 M.v. hjón mcð 2 böm, 2-11 ára, 7 mctur mcð sköttum. Verðkr. 44.990 M.v. 2 { studio/íbúð, 7 nætur, m. skött- um. Ferðir til og fra flugvcili, kr. 1600. HEIMSFERÐIR Austurstraeti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Sýning helguð Jóni úr Vör YFIRLITSSÝNING um ævi og verk Jóns úr Vör verður opnuð í Fé- lagsheimili Pareksfjarð- ar í dag, fimmtudag, kl. 18. A menningarvöku í tengslum við opnunina mun Hjalti Rögnvalds- son lesa Þorpið og Ólöf Kolbrún Harðardóttir syngja samnefnt verk eftir Þorkel Sigur- björnsson við undirleik Jónasar Ingimundar- sonar. Að sögn Hauks Más Sigurðarsonar er sýn- ingin fjórskipt: ævi skáldsins, æskustöðvar, ljóðabækur og myndaherbergi þar sem m. a. verða spiluð viðtöl við skáldið. Nýlega var haldið ljóðakvöld þar sem lesin voru ljóð Jóns úr Vör, en þetta er fyrsta samfellda yfirlitssýn- ingin um verk hans. „Jón er mjög mikils metinn hér og í uppá- haldi,“ sagði Haukur Már aðspurður. Vinarhús Undirbúningur sýningarinnar hófst áður en skáldið lést og er hún unnin í sam- vinnu við hann og Bryndísi, ekkju hans. Menn hafa hug á að finna hús í þorpinu sem ætlunin er að kalla Vinarhús eftir einni ljóða- bóka Jóns og á að vera dvalarstaður fyrir rithöfunda. Húsið á að tengjast með einhverjum hætti lífi Jóns, en hús frá bernskuárum skáldsins eru ekki til. Þess má geta að við höfnina á Patreksfirði er steinn með áletr- uðu ljóði eftir Jón. Haukur Már er nú að vinna að heimasíðu um skáldið á vefnum þar sem m. a. má fræðast um ættir og uppruna og lesa gagnrýni um bækur hans. Mikill áhugi er á sýningunni og hafa margir lagt henni lið með ýmsum hætti. Sýningin á Patreksfirði stendur til 13. ágúst. Hugmyndin er sú að hún verði farandsýning og standa vonir til að hún verði næst sett upp í Kópavogi þar sem Jón úr Vör bjó lengst. Verkefnið er samstarfsverkefni Vesturbyggðar og Menningarborg- ar. Jón úr Vör Bach o g Vivaldi hljóma í Skálholti í Skálholti munu verk Bachs og Vivaldis hljóma um verslunar- mannahelgina. Að- gangur að tónleikunum er ókeypis og er boðið upp á barnagæslu á meðan á tónleikunum stendm-. og Sif Tulinius á fiðlu og Sigurður Halldórs- son á selló. Um kvöldið kl. 21 mun Jörg Sond- ermann leika valda kafla úi’ Fúgulistinni eftir Bach á orgel Skál- holtskirkju sem nýlega hefur verið endurbætt. Laugardagur í Skálholtsskóla kl. 14 flytur Jaap Schröder erindi sem ber yfirskriftina Tónlist Bachs: Brauð lífsins. Tónleik- ar Bachsveitarinnar í Skálholti hefj- ast kl. 15. A efnisskránni eru vel þekktir konsertar og kammerverk eftir Jóhann Sebastían Bach. Einleik- arar á tónleikunum eru Peter Tomp- kins á óbó, Elín Guðmundsdótth' og Helga Ingólfsdóttir á sembal auk Jaap Schröder, sem leiðir sveitina. Á efnisskrá tónleika Bachsveitarinnar sem hefjast kl. 17 eru verk eftir Vi- valdi. Fæst verkin hafa heyrst hér- lendis. Einleikai-ar á þessum tónleik- um ei"u Peter Tompkins og Gunnar Þorgeirsson á óbó, Jaap Schröder, Rut Ingólfsdóttir, Lilja Hjaltadóttir Sunnudagur Bachsveitin í Skálholti endurtekur tónleika sína með verkum Vivaldi kl. 15 á sunnudag. Kl. 16.40 mun Jörg Sondermann flytja nokkra kafla úr Fúgulistinni, fram að messu sem hefst kl. 17. Það munu þættir úr tón- leikum helgarinnar í flutningi Bach- sveitarinnar vera leiknir. Auk þess mun Magnea Gunnarsdóttir sópran- söngkona flytja stólverk úr söng- handriti við ljóð sr. Hallgríms Péturs- sonar. Sr. Egill Hallgrímsson messar og organisti er Kári Þormar. Mánudagur Jörg Sondermann endurtekur tón- leika sína á Fúgulistinni eftir Bach kl. 15. JL^e, ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR Babinnréttingar í miklu úrvali Verödæmi (sjá mynd): 120 cm innrétting, sem samanstendur af 5 skápum, höldum, Ijósakappa með 3 halogenljósum, boröplötu og spegli. TILBOÐSVERÐ m/20% afsl. aöeins kr. 57.865.- Friform www.mbl l.is Hlutabréfarabb Kvöldkaffi meðVÍB og Súfistanum bókakaffi í Máli og menningu, Laugavegi 18. í kvöid: 3. ágúst kl. 20:30 - 21:30 Hlutabréf á netinu — Internetið er spennandi heimur sem ^árfestar geta nýtt með góðum árangri við uppbyggingu eigna og fjárfestingu í Iilutabréfum. Margrét Sveinsdóttir, forstöðumaður einstaklingsþjónustu VÍB. Sjáumstl VÍB er hluti af Íslandsbanka-FBA hf. Kirkjusandi • Sími 560-8900 • www.vib.is • vib@vib.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.