Morgunblaðið - 03.08.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000 4^
FRAMHALDSSKÓLINN Á HÚSAVÍK
Námsráðgjafar
Vantar enn námsrádgjafa í hálft starf sem
gæti einnig kennt sálfræði 12 tíma á viku.
Þá vantar einnig kennara og deildarstjóra
í stærðfræði.
Launakjör og yfirvinna eru samningsatriði og
í samræmi við þá neyð sem blasir við í mörg-
um framhaldsskólum þegar nær dregur hausti.
Ekki er nauðsyn að sækja um á sérstökum eyð-
ublöðum. Upplýsingar veittar í símum
464 1344 og 862 3995, Guðmundur Birkir Þor-
kelsson, skólameistari.
P E R L A N
Starfsfólk óskast
Okkur vantar hresst og duglegt starfsfólktil
starfa hjá okkur í kaffiteríu Perlunnar í vetur
í 100% starf. Um vaktavinnu er að ræða. Þarf
að geta byrjað fljótlega.
Vinsamlegast hafið samband við Kötlu eða
Karen í síma 562 0210 eða mætið í kaffiteríu
Perlunnar á milli kl. 10 og 17, 3. og 4. ágúst.
Laugarnesapótek
Lyfjatæknir eða hjúkrunarfræðingur
óskast sem fyrst í fullt eða hálft starf, við vinnu
í lyfseðilsafgreiðslu og lyfjaþjónustu. Um er
að ræða skemmtilegt og krefjandi starf, mjög
góða vinnuaðstöðu og þægilegt starfsum-
hverfi. Góð kjör í boði fyrir hæfa starfskrafta.
Upplýsingar í s. 893 3141. Skriflegar umsóknir
ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist merkt „starfsumsókn" til Laugarnes-
apóteks ehf., Kirkjuteigi 21, 105 Reykjavík.
A
KOPAVOGSBÆR
Digranesskóli
Okkur í Digranesskóla sem er 500 barna
skóli með góðri starfsaðstöðu vantar
kennara fyrir komandi skólaár í eftirfarandi:
• Umsjónarkennara á yngsta stig og
miðstig.
• Myndmenntakennara
• Tónmenntakennara
• Sérkennara í sérdeild einhverfra
Launakjör skv. kjarasamningum KÍ, HÍK og
Launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2000.
Einnig eru eftirtalin störf laus til umsóknar:
• Umsjónarmaður Dægradvalar.
Fullt starf.
Umsjónarmaður ber m.a. ábyrgð á skipu-
lagningu allrar daglegrar starfsemi í Dægra-
dvöl og stjórnar starfi deildarinnar. Æskilegt
er að viðkomandi búi að menntun á sviði
uppeldis eða umönnunar og reynslu á þessu
sviði. Umsjónarmaður þarf að vera gæddur
skipulags- og samstarfshæfileikum sem
gera honum kleift að reka flókna og marg-
þætta starfsemi.
Ráðið verður í starfið frá 15. ágúst.
Launakjör skv. kjarasamningum Starfsmanna-
félags Kópavogs og Kópavogskaupstaðar.
• Ræstir
50 % starf frá 15. ágúst.
Launakjör skv. kjarasamningum Eflingar og
Kópavogskaupstaðar.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2000.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Sveinn Jóhannsson
eða Einar Long Siguroddsson aðst.skólastj., i
síma 554 0290 eða 851 1036.
Starfsmannastjóri
J
Dönskukennara
vantar
Við Menntaskólann á ísafirði er laus heil (eða
hálf) kennarastaða í dönsku. Ódýrt húsnæði
er í boði. Kennsla á að hefjast 24. ágúst nk.
Upplýsingar veita skólameistari og aðstoðar-
skólameistari í símum 456 4540, 456 4119,
456 4640 eða 861 1419.
KNICKERBOX
Starfskraftur óskast
í fullt starf (100%)
Þarf að geta byrjað strax (eftir helgina). Þeir
sem hafa áhuga á starfinu vinsamlega mætið
í viðtal á skrifstofu okkar að Laugavegi 178,
3. hæð á morgun, föstudaginn 4. ágúst milli
kl. 10 og 12.
Nánari upplýsingar gefur Jakobína, sími
898 4170.
KNICKERBOX
Á ÍSLANDI
Kennara vantar
Menntaskólann að Laugarvatni vantar kennara
í þýsku, fullt starf, fyrir næsta skólaár.
Skólinn býður kennurum góða starfsaðstöðu
og ódýrt íbúðarhúsnæði.
Hafið samband við skólameistara í síma
486 1156,486 1121 eða 899 5421 eða aðstoðar-
skólameistara í síma 486 8904 sem allra fyrst.
augl@mbl.is
Sparaðu þér umstang og tíma með því að
senda atvínnu- og raðauglýsingar til birtingar
í Morgunblaðínu með tölvupósti.
Notfærðu þér tæknina næst.
TIL LEiGU BI KENNSLA
Skrifstofuhúsnæði í mið-
borginni
Til leigu ca 30 fermetra skrifstofuhúsnæði á
götuhæð. Sérinngangur — laust strax.
Upplýsingar í síma 561 6960.
Til leigu
Gott 75 mz skrifstofuhúsnæði við Suðurlands-
braut í Reykjavík.
Laust strax.
Upplýsingar í símum: 893 3585 eða 898 2817.
FÉLAGSSTARF
HEIMOALLUR
Aðalfundur
Heimdallar f.u.s.
f • u s
Aðalfundur Heimdallar f.u.s. verður haldinn í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
fimmtudaginn 10. ágúst nk. og hefst hann kl. 20.00.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar lagðirfram.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar, og tveggja endurskoðenda og eins til vara.
5. Önnur mál.
Framboðum til stjórnar ber að skila til stjórnar eigi síðar en tveimur
sólarhringum fyrir fundinn.
Stjóm Heimdallar.
FERÐAMÁLANÁM
Alþjóðlegt
IATA-UFTAA nám
Síðasti dagur innritunar!
Innritun í lata-Uftaa nám skólaárió 2000-2001
lýkur 10. ágúst 2000.
Alþjóólegt7 mánaðanám.
• Markmið námsins er að þjálfa einstaklinga til starfa á
söluskrifstofum ferðaskrifstofa og flugfélaga.
• Kennsla hefst í september.
• Kennt er frá 17:30-21:30
FERÐAMÁLASKÓLINN
í KÓPAV0GI
Menntaskólanum í Kópavogi v/Digranesveg
Sírni: 544 5520
DULSPEKI
Miðlun — spámiölun
Skyggnst inn í fortíð, nútið
og framtíð.
Tímapantanir og upplýsingar í
síma 561 6282, Geirlaug.
FÉLAGSLÍF
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MöfíKINNI 6 -SlMI 568-2533
Skógarganga í kvöld með
Skógræktarfélagi íslands og
Skógræktarfélagi Kjósar-
sýslu. Rútuferð frá Mörkinni 6
kl. 20.00.
Enn er hægt að komast í
Laugavegsgöngur, hraðganga
um verslunarmannahelgina.
Sumarleyfisferðir f ágúst:
Arnarfell hið mikla - Þjórsárver,
Strandir, Lónsöræfi.hálendið
norðan Vatnajökuls, Fjörður,
Fjallabak og Þjóðlendumörk í
Gnúpverjahreppi.
Skrifstofa Fl er opin fró
9.00-18.00, s. 568 2533.
www.fi.is. textavarp RUV, s. 619.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
Lækningarsamkoma í kvöld
kl. 20.00.
Katrín Magnúsdóttir predikar.
Ailir hjartanlega velkomnir.
www.vegurinn.is
Fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Samverustund í umsjá Áslaugar
Langgárd o.fl.
Hugvekja: Ingibjörg Jónsdóttir.
Allir velkomnir.
S5/
Somhjólp
Samkoman í kvöld fellur niður.
Hvetjum alla til að skunda á Kot-
mót. _
www.samhjalp.is.