Morgunblaðið - 03.08.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000 5V
UMRÆÐAN
Vímulausa versl-
unarmannahelgi
ÞAU ánægjulegu
tíðindi bárust fyrir
skömmu að rannsóknir
bentu til að heldur
hefði dregið úr vímu-
efnaneyslu ungs fólks.
SÁÁ varar að vísu við
of mikilli bjartsýni enn
sem komið er og sjúkl-
ingar þeh- sem leita eft-
ir meðferð greina
þennan samdrátt ekki
enn sem komið er. Hins
vegar er ljóst að bar-
áttuhugur er í flestum
þeim er vinna að for-
vörnum um þessar
mundir. Lögreglan
hefur gert meira magn
fíkniefna upptækt en nokkru sinni
fyrr. Stöðugt er knúið á um fleiri
meðferðarúrræði. Síðast en ekki síst
Vímuvarnir
Hvenær ætti að reyna
að grípa í taumana, spyr
*
Anna Olafsdóttir
Björnsson, ef ekki þessa
helgi þegar mest hætta
stafar af unglinga-
drykkju og annarri
vímuefnaneyslu?
er unnið ötullega að því að nýta þá
þekkingu sem safnast hefur saman á
undanfömum misserum, læra af
mistökum og nýta það sem vel hefur
gefist.
Nú er lag
Verslunarmannahelgin er fram-
undan. Því miður er það viðhorf allt
of oft ríkjandi að það þýði ekkert að
reyna að stemma stigu við neyslu
áfengis og annarra fíkniefna þessa
mestu skemmtanahelgi ársins. En
hvenær ætti að reyna að grípa i
taumana ef ekki þessa helgi þegar
mest hætta stafar af unglinga-
drykkju og annarri vímuefnaneyslu?
Anna Ólafsdóttir
Björnsson
I fámenni landsins hef-
ur oft tekist að vinna
þrekvirki á skömmum
tíma. Hvernig stendur
á því að svo margir
leggja árar í bát þegar
mest á reynir? Það má
treysta því að lukku-
riddarar sem ætla að
hagnast á því að selja
lögleg og ólögleg vímu-
efni til ólögráða ung-
menna munu ekki slá
slöku við. Þeir hafa oft
haft erindi sem erfiði.
En nú ætti að vera lag
fyrir þá sem vilja snúa
þessari þróun við. For-
eldrar eru hér í lykil-
hlutverki. Þeir sem velkjast í vafa
um hvort óhætt er að senda korn-
unga krakka á útihátíðir ættu að
taka mark á reynslu fyrri ára. Allt of
mörg ungmenni eru enn að glíma við
afleiðingar einnar helgar gáleysis og
eru hætt að geta stjórnað neyslu
sinni. Og þessi helgi er oftar en ekki
verslunarmannahelgi.
Dýrmæt reynsla foreldra
Stundum er það svo, að ef ungling-
ur hefur þegar ánetjast vímuefnum
halda engin bönd þegar verslunar-
mannahelgin nálgast. Þá er nauð-
synlegt að leita stuðnings til að grípa
í taumana. í Foreldrahúsinu, sem
Vímulaus æska og Foreldrahópur-
inn reka í Vonarstræti 4b í Reykja-
vík, er hægt að fá stuðning, ráðlegg-
ingar og hjálp við nauðsynlegt
inngrip til að afstýra því að í óefni
komist. Neyðarsíminn 581 1799 er
mikið notaður þegar þannig stendur
á og gagnast fólki hvar á landinu sem
er. Löng og ströng reynsla foreldra
hefur oftar en ekki falið í sér lausnir
sem duga vel. Allir foreldrar og aðrir
forráðamenn, vinir og velunnarar
barna og unglinga geta leitað stuðn-
ings hvenær sem er sólarhrings. Það
eru til úrræði, það er engin ástæða
til að gefast upp þótt viðfangsefnið
sé erfitt. Það veit það ágæta fólk sem
starfar í Foreldrahúsinu manna
best.
Höfundur er formaður
Vímulausrar æsku.
OSTUR I SALATIÐ
Kitlaðu bragðlaukana!
fierskt, nýsprottið salat með grœnmeti og osti er endumœrandi
sumarmáltíð sem þú setur saman á augabragði.
Taktu lífinu létt ( sumar — og njóttu þess í botn!
Ostur x allt sumar
ÍSLENSKIR W
OSTAIt,
^llNASfy
www.ostur.is
pm m a\il.ilt mmmim
tilboðin slógu f gegn og J?vf höfum við ákveðið að framlengja þeim fram í ágúst
ævinnar i ruminu:
SONY
a betra sjónvarp
verði
í BT
Morgun-
matinn
Einnig fylgir öllum einbreiðum,
stillanlegum rúmum 20” sjónvarp frá BT í ágúst.
Slappað af
Unnið
áfflF
)
l&m0m §mmm &B §§Smm §9§B
Faxafeni S • 108 Reykjavik • Sími S88 8477
Opið: Mán. - fos kl. 10-18