Morgunblaðið - 03.08.2000, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ
60 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000
«r__________________________
Dýraglens
Grettir
Ljóska
JHR.BA6UR
BLOMSTURBfjRG?
pettaei^bobo
1 HJAPOST-
VERJSLUNINNI...
,PU ERTEKKI
BUINN A6 BOR6A
VÖfURNAR, SEM
PUPANTAÖIR
Ferdinand
Smafolk
UIHATEVER.. I '
UIA5 M0PIN6 IT
UOASONTV,
SOIUJOULPNT
HAVETOREAPIT
YOU RE
A REAL
5TUPENT,
AREN'T
YOU?
15 TE55 0F
THE LUMO?"
ON TV
TONI6MT?
I HAVE A 6REAT FEAR OF
BEC0MIN6 OVERLY EPUCATEÚ.
Er “Þura í
einhverju” í
sjónvarpinu í
kvöld?
“Þuraí
Þaraþorpum”
Hvað sem það nú er..Ég
var að vona að það væri
í sjonvarpinu svo ég
þyrfti ekki að lesa bókina
Þú er alvöru
nemandi, er
það ekki?
Ég er hrædd um að verða of mikið lærf
gltotpnMóit
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Póst-„þj ónusta“
- eða hvað?
Frá Jóhannesi Proppé:
ÞEGAR ég var ungur drengur fór ég
oft með föður mínum í „boxið“ á
gamla pósthúsinu við Pósthússtræti,
ég man enn númerið, 207. - Einnig
var ýmis póstur borinn heim, að mig
minnir, 2svar á dag.
Er ég fór að vinna fyrir mér, var
ég vanur að ná í póstinn, á sama póst-
hús. Þar var unnið við að setja í hólf-
in allan daginn eftir því sem póstur
barst að. Svo flutti ég sjálfur, nokkr-
um sinnum, skipti um vinnu en alltaf
kom pósturinn með beztu skilum,
bæði sá sem átti að koma á vinnustað
og sá sem átti að koma heim. Þá var
póstur sá er var borinn út ávallt kom-
inn löngu fyrir hádegi, en þó aðeins
einu sinni á dag. Voru þeir sem báru
út í sérstökum einkennisbúningum.
I 25 ár bjó ég við Sæviðarsund, á
póstsvæði Á-4, og fékk ég mér póst-
hólf í útibúinu við Kleppsveg, hafði
minn eigin lykil og gat ráðið því hve-
nær ég sótti póstinn. Var þetta að-
eins gert vegna erlendra vina minna
því „Æ“ og „Г eru erfiðir stafir.
Mikill póstur var einnig borinn heim
til mín og gekk þetta allt snurðulaust
að mestu leyti.
Fyrir átta árum flutti ég í Hæðar-
garð, svona (H)eldri-manna blokk,
en ákvað að halda póstboxinu. Allt
var í góðu lagi, reglulega farið í boxið
og annar póstur kom reglulega í
póstkassann minn héma í Hæðar-
garði, og alltaf fyrir hádegi.
Svo kom áfallið. Pósturinn „há-eff-
aður“. Pósthúsið á Kleppsvegi flutt
að Grensásvegi en ennþá A-4. Lykill-
inn að boxinu tekinn af mér, enda
boxið horfið, og mér úthlutað ein-
hverskonar „bili“ í grind og þarf allt-
af að spyija starfsfólk hvort ég eigi
nú ekki bréf. En það sem verra var,
„útburðurinn" á póstinum hríðversn-
aði.
Fyrst kom pósturinn í kassana í
Hæðargarði svona undir hádegi, svo
fór það að dragast fram yfir hádegi
og allt fram á seinnipartinn (og er
svo í dag). Síðan kom ýmislegt annað
óvænt uppá. Enginn póstur einn
daginn en svo 2ja daga póstur seint
um kveld þar næsta dag, allur póst-
urinn fyrir 42 íbúðir skilinn eftir ofan
á póst-kössunum í einum bunka, með
teygju utanum að vísu, okkur hkleg-
ast ekki of gott að sortera hann sjálf,
eða hvað? Við höfum orðið vör við að
bréf hafa ekki komið fram.
Bréf sem vom örugglega send af
stað, en slíkt er alltaf vont að sanna,
en sterkur granur, enda fannst sl.
vetur póstburðarpoki í snjónum und-
ir tröppunum héma og vora nokkur
bréf í pokanum, þó ekki í þetta hús.
Húsvörður skilaði pokanum næsta
dag í A-4.
Stundum gekk maður fram á póst-
burðarpoka úti á hitaveitustokki,
enginn „útburður11 nálægur, pokinn
skilinn eftir við húsgafl, vonandi sótt-
ur seinna. - „Útburðurinn“ liggjandi
í sólbaði með elskunni sinni og póst-
urinn látinn biða á meðan, og svo
skeði það núna fyrir helgina, að alveg
gekk fram af okkur. Þá tók einn af
íbúum hér í Hæðargarði eftir því, að
póstburðarpoki liggur á eldhúsgólf-
inu í Þjónustumiðstöðinni, var sagt
að „útburðurinn“ hefði fengið að
geyma hann þar aðeins. Nú skeði það
að Þjónustumiðstöðinni er lokað eins
og venjulega og þegar átti að sækja
pokann var allt lokað og læst, enda
kom enginn póstur þennan dag en
óvenjulega mikill póstur mánudag-
inn31.júlí.
Einn af íbúum hringdi í pósthúsið
A-4, spurði hver væri ábyrgur ef eitt-
hvað glataðist og var svarað með því
að segja að þetta kæmi íbúanum ekk-
ert við, þetta væri ekki hans mál.
Hveijum kemur það þá við? spyr ég.
Ég las um það í blöðunum, í vetur,
að ef póstbílar stæðu einhversstaðar
fastir í ófærðinni, upp á heiðum, eða
að flæða í einhverjum vatnavöxtum,
þá má bflstjórinn ekki yfirgefa bif-
reiðina fyrr en póstinum hefur verið
bjargað, fyrst pósturinn, síðan bfl-
stjórinn. Hér virðist það vera undir
hæhnn lagt hvort við fáum yfirleitt
nokkum póst. - Það liggur við að við
óskum eftir gömlu og góðu en ör-
uggu opinbera þjónustunni.
Svona í lokin, starfsfólkið í af-
greiðslunni á A-4 er flestallt elsku-
legt og kurteist, það er eitthvað að
þama á bakvið. -1 Guðanna bænum
komið þessu í lag strax svo við þurf-
um ekki að búa lengur við þetta óör-
yggi, „kemur bréfið sem ég átti von á
eða ekki?“
JÓHANNES PROPPÉ
Hæðargarði 33, íbúð 307,
Reykjavík.
Til umhugsunar
og iðrunar
Frá Ellerti B. Schram:
KÆRI Gunnar Sveinsson.
Ég hef ekkert nema gott um það
að segja þótt þú takir upp hansk-
ann fyrir kirkjuna. Ekki heldur
hef ég neitt við það að athuga þótt
einhverjir geti ekki verið sammála
mér um allt það sem ég hugsa
upphátt á sunnudögum í Mogga.
En til að fyrirbyggja misskilning:
1. Skoðanir mínar á ólíkum og
óskyldum málum hafa ekkert
með íþróttahreyfinguna að gera
eða störf mín sem forseti ISI.
2. Ég er ekki andsnúinn kirkjunni.
Þvert á móti. Ég vil henni vel.
En það þýðir ekki að kirkjan sé
hafin yfir gagnrýni.
3. Ég biðst afsökunar ef ég hef
verið vondur við framsóknar-
konur.
ELLERT B. SCHRAM,
forseti ÍSÍ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.