Morgunblaðið - 03.08.2000, Qupperneq 68
68 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Filmundur efnir til kræsilegrar bíöveislu í Háskólabíói dagana 3.-14. ágúst
Oskar
frændi í
heimsókn
FILMUNDUR
verður í sérlegu
hátíðarskapi nú
rétt fyrir, um og
eftir verslunar-
mannahelgina.
Efnt verður til
sannkallaðrar
gala-veislu íyrir
unnendur gæðamynda þar sem á boð-
stólum verða myndir sem allar eiga
það sameiginlegt að hafa unnið
Óskarsverðlaunin margfrægu og
virtu í flokki erlendra mynda. Margh’
eru þeirrar skoðunar að handhafar
yþessara verðlauna eigi hinar einu
sönnu „bestu“ myndir árs hvers -
mun fremur en handhafar hinna
„stóra“ verðlauna óskarsverðlauna-
hátíðarinnar, verðlaunanna sem nær
eingöngu eru veitt myndum á ensku.
Nær undantekningarlaust hefur ósk-
arsverðlaunaakademían útnefnt
gæðamyndh- sem með tíðinni hafa
orðið sígildar - myndir sem bíóunn-
endur hafa unun af að endurnýja
kynni sín við reglulega, ekki síst ef
færi gefst á að sjá þær í upprunaleg-
um heimkynnum þeirra - á hvítu
* breiðtjaldi myrkvaðs bíósalar. Film-
undur hefur tekið saman lítinn kon-
fektkassa með sex gómsætum
óskarsverðlaunamolum sem opnaður
verður í Háskólabíói í dag og tæmist
ekki fyrr en að rúmri viku liðinni.
Þetta eru dönsku myndimar „Babett-
es Gæstebud" og „Pelle Erobreren",
ítalska myndin „Cinema Paradiso",
spænska myndin ,3elle Époque",
franska myndin „Indochine" og
tékkneska myndin „Kolya“.
Konfekt fyrir augu og maga
Gestaboð Babettu fékk Óskarinn
árið 1988 og varð þar með fyrsta
danska myndin til að hreppa verð-
launin eftirsóttu. Þetta er sannkölluð
* sælkeramynd gerð eftir sögu Karen-
ar Blixen og er að
mörgu leyti óður
til matargerðar.
Leikstjórann Ga-
briel Axel þekkja
margir lands-
menn eftir að
hann gerði
„Rauðu skikkj-
una“ hér á landi á sjöunda áratugn-
um. Danir gerðu það ekki endasleppt
og hrepptu annan Óskar að ári liðnu
og enn var það fyrir mynd sem gerð
var eftir sígildu dönsku skáldverki.
Nú var röðin komin að myndgerð
Bille August á meistaraverld Martins
Andersen-Nexö um Pelle sigurveg-
ara. August hafði fram að því gert
nokkrar aldeilis magnaðar myndir í
heimalandinu, þar á meðal tvær upp-
vaxtarsögur Bjarne Reuters,
„Zappa“ og „Tro, Háb og Kærlighed"
en Pelle sigurvegari kom honum end-
anlega á alþjóðlega kvikmyndakortið
þar sem hann hefur starfað síðan við
góðan orðstír.
Það er mörgum trúlega sérstakt
gleðiefni að fá að sjá Cinema Paradiso
eftir ítalska leikstjórann Giuseppe
Tomatore á hvíta tjaldinu á ný því
bíóunnendur eru gjarnir á að nefna
hana meðal allra bestu kvikmynda
sögunnar og hún hefur verið ofarlega
á listum sem kvikmyndatímarit hafa
tekið saman um bestu kvikmyndir
tuttugustu aldarinnar. Þessi ljúfsára
saga af Sikileyingnum Toto litla, ást-
arsambandi hans við kvikmyndimar
og vináttu við sýningarmanninn Al-
fredo hefur heillað fólk um allan heim
upp úr skónum. Auk Óskarsverðlaun-
anna 1990 féllu henni í skaut dóm-
nefndarverðlaunin í Cannes og á
Evrópsku kvikmyndaverðlaunahátíð-
inni, bresku BAFTA-verðlaunin,
bandarísku Golden Globe-verðlaunin
og franski Césarinn - geri aðrir bet-
ur.
Andrej Chalimon heillaði bíóunnendur upp úr skónum sem Kolya.
Það er ekki oft sem Óskar gamli hefur
fallið gamanmyndum í skaut sem gef-
ur til kynna hversu sérstök myndin er
í raun enda má telja næsta ómögulegt
að nokkur maður sé með skeifu á
munni eftfr að hafa horft á hana.
Nýjasta Óskarsverðlaunamyndin
sem Filmundur býður upp á í þessum
fríða flokki er ekki af verri endanum
því þar fer tékkneska myndin Kolya
eftir Jan Sverák sem hreppti Óskars-
verðlaunin sem besta erlenda myndin
árið 1997. Vinsældir myndarinnar
urðu afar langvinnar hér á landi,
reyndai' Ukt og allra hinna Óskars-
verðlaunamyndanna er hér hafa verið
nefndar. Myndin segir líka einkar
magnaða sögu af sambandi úrills og
miðaldra piparsveins og fimm ára
drenghnokka, Kolya, sem pipar-
sveinninn neyðist til að taka að sér.
Snáðinn Andrei Chalimon vann
áhorfendur algjörlega á sitt band með
næmri og skemmtilegri túlkun á
Kolya htla og munu eflaust margii'
vilja endumýja kynni sín við hann.
Sex myndir, sex Óskarsverðlaun
fyrir bestu erlendu myndina - auk all-
ra hinna verðlaunanna sem allt of
langt mál er að telja upp hér. Það er
því gleðitíð framundan. Ekki einungis
með varðéldi, gleði og gítarglamri úti-
hátíðanna heldur einnig með bíó-
veislu í boði Filmundar og Óskars
frænda.
árið 1993. Þetta er epísk
stórmynd eftir Régis
Wargnier sem gerist á
fjórða áratugnum á síð-
ustu árum franskrar
byggðar á yfirráða-
svæði Frakka í Indó-
kína, er náði yfir stór
landílæmi um og í
kringum Víetnam.
Franska stórleikkonan
Catherine Deneuve
fékk mikið lof fyrir leik
sinn í aðalhlutverkinu
og var m.a. titnefnd til
Oskarsverðlauna sem
besta leikkona og vann
franska Césarinn árið
1993.
Spánargleði og
tékknesk vinátta
Max Von Sydow og Pelle Hvenegaard fara á
kostum í Pelle sigurvegara.
Franskar myndir hafa oft unnið til
Óskarsverðlauna sem bestu erlendu
myndimar og var Indókína sú níunda
í röðinni þegar hún hreppti hnossið
Ári síðar, eða 1994,
var röðin komin að
Spánverjum og leik-
stjóranum Femando
Traeba. Hin léttleikandi
og rómantíska gleði-
mynd hans, Belle
Époque, vann þá hug og
hjörtu bandarísku Osk-
arsverðlaunaakademíunnar líkt og
gerst hafði einnig heima fyrir þar sem
myndin sópaði að sér nær öllum
Goya-verðlaunum sem í boði vora.
I NGÓLFSSTRÆTI 5 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 5 5 1 5080