Morgunblaðið - 03.08.2000, Page 76

Morgunblaðið - 03.08.2000, Page 76
MORGUNBLAÐID, KRINGLUNNI 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Hitar síðustu vikna hafa haft góð áhrif á kornrækt víða um land - Búist við mik- Íllí uppskeru ... , , ... Morgunblaðið/Arnaldur Bifreioin er mikio skemmd eftir veltuna. UPPSKERUHORFUR í kornrækt eru mjög góðar á landinu öllu og hafa hitar síðustu vikna haft jákvæð áhrif á ræktina, að sögn Ólafs Eggerts- sonar, formanns Landssambands kornbænda og bónda á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum, þar sem stunduð hefur verið kornrækt samfleytt í 40 ár. Ólafur sagðist búast við mikilli uppskeru um næstu mánaðamót, þar sem sumarið væri búið að vera eitt ^það albesta sem hann myndi eftir fyrir kornrækt. „Síðasta sumar var frekar slakt á Suðurlandi, þar sem töluvert mikið rigndi og júní var kaldur en fyrir norðan var uppskeran góð,“ sagði Ólafur. „Nú er þetta aftur á móti mjög gott og jafnt um allt land. Ef ágúst verður í meðallagi og ekki kemur næturfrost býst ég við því að uppskera verði mikil á landsvísu.“ Ölafur sagði að í kornrækt væri fyrripartur sumars viðkvæmasta ^►tímabilið og að þegar júm' og júlí væru liðnir væri mesta hættan yfir- staðin. Hann sagði kornið þrífast best á heitum sumrum en gott væri Islensk- ameríska og Innnes kaupa Frón ÍSLENSK-AMERÍSKA verslunar- félagið ehf. og Innnes ehf. hafa keypt allt hlutafé Kexverksmiðjunar Fróns 1 "*ehf. af Eggerti Magnússyni og fjöl- skyldu. Egill Ágústsson, framkvæmda- stjóri Islensk-ameríska, segir að markmiðið með kaupunum sé að styrkja stöðu Íslensk-ameríska og Innness á íslenskum kexmarkaði og nýta þekkingu fyrirtækjanna til enn frekari markaðssetningar á vörulín- um Fróns. Verksmiðjan verður flutt af Skúlagötunni í Reykjavík en ekki hefur verið ákveðið hvert. Egill segir að þekking innan Islensk-ameriska og Innness í að byggja upp vörumerki muni nýtast vel í markaðssetningu á framleiðslu Fróns og fyrirhugað sé að auka fjölbreytni verksmiðjunnar. Eggert Magnússon, stjómarfor- " -"inaður Kexverksmiðjunnar Fróns, segir að reksturinn hafi gengið mjög vel, það hafi vædð og dafnað að undan- fömu en aðstæður á markaði séu þannig að stækka þurfi þessa einingu. ■ Markmiðið/Bl Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason Aukin fíkniefna- löggæsla um helgina LÖGREGLAN hefur undirbúið aukna fíkniefnalöggæslu um kom- andi verslunarmannahelgi. Lög- reglustjórar um allt land hafa gert sérstakar ráðstafanir og Ríkislög- reglustjóri hefur lögreglumenn og leitarhunda tiltæka til aðstoðar þar sem þörfin verður mest á landinu. Embætti Ríkislögreglustjóra sendir á vettvang þrjú teymi tveggja lögreglumanna sem verða staðsett á Suður- og Austurlandi, Norður- og Vesturlandi og í Vestmannaeyjum, alls sex lögreglumenn og þrír fíkni- efnaleitarhundar. Tollgæslan mun jafnframt veita liðsinni þar sem þörf krefur með mannskap og leitarhund- um. ------M-*------- Bíll valt við Reykja- nesbraut BÍLVELTA varð við Reykjanes- braut á fjórða tímanum í gær. Bif- reiðin var á suðurleið þegar ökumað- ur missti stjóm á henni. Bifreiðin lenti utan vegar þar sem hún valt. Slysið varð á bæjarmörkum Hafnar- fjarðar og Voga. Ökumaðurinn var einn í bflnum og var hann fluttur á slysadeildina í Fossvogi. Meiðsl hans eru ekki talin alvarleg en bifreiðin er mikið skemmd. 110 konur á neyðarmóttöku vegna nauðgunar síðasta ár Rúmlega 70% á aldrinum 18-22 ára YFIR eitt hundrað og tíu einstak- lingar, nær allt konur, leituðu til neyðarmóttöku fyrir þolendur kyn- ferðislegs ofbeldis á síðasta ári. Þar af leituðu um eitt hundrað til neyð- armóttökunnar á Landspítalanum í Fossvogi en rúmlega tíu til neyðar- móttökunnar á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Flestar þeirra sem þangað leituðu em konur á aldrinum átján til tuttugu og tveggja ára eða nær sjötíu prósent. Þá voru lagðar fram samtals 65 nauðgunarkærur til lögreglunnar á síðasta ári, flestar þeirra til lög- reglunnar í Reykjavík en í því um- dæmi vom flest brotanna framin. Eyrún Jónsdóttir, umsjónar- hjúkmnarfræðingur á neyðarmót- tökunni í Reykjavík, metur það svo að rúmlega helmingur þeirra sem leita til móttökunnar vegna nauðg- unar leggi fram kæru í kjölfarið. Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmað- ur, sem einnig hefur verið skipaður réttargæslumaður nokkurra brota- þola í kynferðisafbrotamálum, segir það sömuleiðis reynslu sína að þeir sem verði fyrir nauðgun veigri sér við að leggja fram kæm. Segir hún ástæðuna einkum þá hve rannsókn- in á málinu sé erfið fyrir þolandann. „Það vakna alltaf upp öðmvísi spurningar í kynferðisbrotamálum en öðrum málum. Þegar einstak- lingur er rændur spyr enginn við- komandi hvort hann hafi aðstoðað við ránið en þegar um kynferðis- brot er að ræða beinist rannsóknin mikið að brotaþolanum sjálfum og hvað hann hafi verið að gera.“ Mest um nauðganir á sumrin í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag um nauðganir kemur m.a. fram, að flestar nauðganir eru yfir sumarmánuðina. Reynslan sýnir að ekki sé meira um nauðganir um verslunarmannahelgina frekar en aðrar helgar sumarsins. Þá kemur fram að gerendur nauðgunar séu í flestum tilfellum vinir eða kunn- ingjar þeirra sem nauðgað er og að nauðganir tengist gjarnan skemmt- unum og áfengisneyslu. Algengast er að glæpurinn sé framinn heima hjá geranda en næstalgengast að hann sé framinn heima hjá þolanda. Þá eru dæmi þess að nauðganir fari fram inni á skemmtistöðum, í bílum og í fáförnum húsasundum. Fram kemur að fæstar þær kær- ur sem lagðar eru fram í nauðgunarmálum leiða til þess að opinbert mál sé höfðað á hendur meintum brotamanni. Samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkissak- sóknara voru fimm ákærur lagðar fram í nauðgunarmálum á síðasta ári. Fjórar þeirra leiddu til sakfell- ingar en ein þeirra til sýknu. I umfjölluninni um nauðganir segja þrjár ungar stúlkur, sem hef- ur verið nauðgað, frá sárri reynslu sinni og þeim afleiðingum sem of- beldið olli þeim. ■ Flestar/18 að hafa rakt vor. Kornrækt er stunduð víða um land en helstu ræktunarsvæðin eru Borgarfjörður, Skagafjörður, Eyjafjörður, Þingeyj- arsýsla, Fljótsdalshérað, Austur- Skaftafellssýsla, Mýrdalur og Suð- urland. Ólafur sagði að í sumar væri korn ræktað á um 1.200 til 1.400 hekturum á landinu öllu. íslenskt sáðkorn lofar góðu Ólafur sagði að bændur hefðu mest notast við sáðkorn frá Norður- löndum en að nú væri nýtt íslenskt afbrigði að ryðja sér til rúms. „Rannsóknarstofnun landbúnað- arins hefur unnið að því síðustu 10 til 15 ár að kynbæta korn fyrir íslensk- ar aðstæður. Nú er svo komið að búið er að þróa afbrigði sem er fljót- þroskaðra og þolir íslenska veðráttu betur en önnur. Þessu korni var sáð nú í vor og mér sýnist það um hálfum mánuði fljótara í þroska en aðrar tegundir. Ég geri ráð fyrir að ís- lenskir bændur muni nota það í rík- um mæli á næstu árum og að þeim muni fjölga.“ Vatn hækkað í Gengissiginu LÓN í Kverkfjöllum, sem gengur undir nafninu Gengissigið, hefur breytt um ásýnd og er orðið vatns- meira en það var í fyrra. Haukur Grönly, skálavörður í Kverkfjalla- skála, segir að þarna sé jarðhiti og í fyrra hafí verið hvít strönd með hverum umhverfis vatnið. Vatns- borðið hefur nú hækkað og strönd- in er horfin. Haukur segir að tals- vert sé um að ferðamenn skoði lónið og hefur fslenskum ferðamönnum Qölgað mest. Vatnið sjálft er í stöð- ugri kælingu vegna íshruns í það. :> E R E □ , 1 5 Slys í Vatns- fellsvirkjun VINNUSLYS varð í Vatns- fellsvirkjun í gærkvöldi. Maður slóst þar utan í víravirki og hlaut áverka á hálsi og höfði. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að sækja mann- inn kl. 7.50. Maðurinn er þó ekki talinn mikið slasaður en öruggara þótti að flytja hann undir læknishendur með þyrl- unni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.