Morgunblaðið - 12.08.2000, Side 4
4 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ofnæmis-
tilfelli
vegna Orku-
mjólkur
TVÖ ofnæmistilfelli hafa
komið til kasta lækna vegna
Orkumjólkur Mjólkursamsöl-
unnar segir Björn Árdal,
barnalæknir og sérfræðingur
í ónæmis- og ofnæmissjúk-
dómum á Landspítalanum.
Skýringin er sú að Orku-
mjólkin inniheldur egg sem
viðkomandi aðilar, í báðum
tilfellum börn, hafa ofnæmi
fyrir.
„Það kemur fram í inni-
haldslýsingu, að Orkumjólkin
inniheldur egg, en með smá-
um stöfum. I báðum tilfellum
var um varkára foreldra að
ræða, sem passa upp á allt,
en grunaði ekki að í drykkn-
um leyndust egg því hann
heitir Orkumjólk." Björn er
þeirrar skoðunar að merkja
þurfí Orkumjólkina betur.
„Þetta er augljós áhætta, fólk
áttar sig ekki á að það eru
egg íþessu."
Orkumjólkin var sett á
markað í byrjun júlí. Einar
Matthíasson, markaðs- og
þröunarstjóri Mjólkursamsöl-
unnar, hafði ekki heyrt af til-
fellunum þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann. Ein-
ar telur ekki nauðsynlegt að
merkja Orkumjólkina betur,
fram komi í innihaldslýsingu
að egg eru í drykknum. „Það
er nú yfirleitt þannig að þeir
sem eru með ofnæmi nýta sér
innihaldslýsingar. Það er ekki
hægt að sérmerkja alla vöru
sem er með ofnæmisvaldandi
innihaldi því fólk hefur of-
næmi fyrir svo mörgu.“ Einar
segir töluvert algengt að egg
séu í evrópskum mjólkur-
drykkjum þótt Orkumjólkin
sé fyrsti mjólkurdrykkurinn
sem inniheldur egg og Mjólk-
ursamsalan sendir frá sér.
Kug-gur kærir Félag fasteignasala til Samkeppnisstofnunar
Kaup hugbúnaðarins Hús-
vaka sögð skilyrði fyrir aðild
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Kuggur ehf.
hefur kært Félag fasteignasala til Samkeppnis-
stofnunar. Ástæða kærunnar er ákvörðun
stjórnar Félags fasteignasala að gera að skil-
yrði fyrir aðild að félaginu kaup á hugbúnaðin-
um Húsvaka, sem er í beinni samkeppni við
kerfi Kuggs, Húsval. „Ekki verður séð að nein-
ar hlutlægar ástæður liggi að baki skilyrðum
stjórnar Félags fasteignasala," segir í kærunni.
„Nefnt skilyrði fyrir inngöngu í félagið er til
þess eins fallið að hindra samkeppni og stuðla
að fákeppni á viðkomandi markaði.“
I kærunni kemur fram að bæði tölvukerfin,
Húsvaki og Húsval, geti innt af hendi sömu að-
gerðir og þau séu bæði í almennri notkun hjá
fasteignasölum í landinu. Þar segir einnig að
mikil samkeppni sé á milli tölvukerfanna og
framleiðenda þeirra.
„Fasteignasölum sem öðrum mönnum á að
vera frjálst hvar þeir kaupa sinn hugbúnað og
þeim á að vera frjálst að vera aðilar að Félagi
fasteignasala að uppfylltum almennum hlutlæg-
um skilyrðum," segir í kærunni. „Það að setja
fasteignasölum stólinn fyrir dyrnar um hvaða
hugbúnað þeir nota, er til þess fallið að minnka
samkeppnishæfni þeirra og ýtir jafnframt undir
verðsamráð og takmarkar val neytandans. Hér
er verið að gera tilraun til að gera fasteignasala
að einslitum hópi manna og fækka samkeppnis-
þáttum í þeirra þjónustu."
Morgunblaðið/Arnaldur
Vandvirkni í Vesturbænum
MENN eru misvandvirkir þegar
þeir eru að mála grindverk, sumir
nota málningarrúllur og hugsa
fyrst og fremst um að drífa verkið
af, en síðan eru til aðrir sem taka
sér lítinn pensil f hönd og ímynda
sér að þeir séu að mála listaverk,
eins og þessi maður gerði við Ægi-
sfðuna á dögunum. Þegar menn eru
ekki að flýta sér getur verið gott að
fá sér koll á hjólum og seljast niður
í rólegheitum og láta hugann reika
um leið og pensilinn er mundaður.
Þannig slá menn tvær flugur í einu
höggi, þeir njóta útiverunnar og
vinna þarft verk. Það getur líka
verið gott að hafa góð drykkjar-
föng við hendina ef heitt er í veðri,
en passa skal innihaldið - það má
ekki koma niður á vandvirkninni.
Hópur fólks feijaður yfír Skaftá ásamt bflum og búnaði
Komust lieim eftir
að hafa verið inn-
lyksa í tæpa viku
HÓPUR fólks sem varð innlyksa í
Skaftárdal vegna hlaups í Skaftá
komst til síns heima í gær. Bflar
þeirra og búnaður var ferjaður með
vörubíl yfir ána.
Alls voru um 70 manns í dalnum
þegar hlaupið í Skaftá hófst laugar-
daginn 5. ágúst. Stærstur hluti hóps-
ins komst þó fljótlega úr dalnum en
27 manns voru þó ihnlyksa allan tím-
ann. Þau voru flest á fólksbifreiðum
en í hlaupinu fór vegurinn í sundur
og þar með varð ófært úr dalnum
fyrir fólksbíla.
Bflar settir á vörubflspall
Jóhannes Ragnarsson dvaldi sam-
tals í dalnum í 10 daga. Hann var þar
á ferð ásamt svokölluðum Suður-
landshóp en í honum eru skipsfélag-
ar af Suðurlandinu sem sökk árið
1986. Þeir fara árlega í ferðalag
ásamt fjölskyldu og vinum. Jóhann-
es segir að ekkert hafi amað að hópn-
um. Þau höfðu talsverðar birgðir
með sér, en þegar þær fóru þverr-
andi kom Sigurður Pétursson, bóndi
á Búlandi, þeim til hjálpar og færði
hópnum bæði mjólk og kjöt og annað
sem á þurfti að halda. Jóhannes seg-
ir að dvölin í dalnum hafi yfirleitt
lagst vel í menn. „Sumir þurftu að
komast til vinnu en aðrir tóku því
bara rólega,“ sagði Jóhannes. Hóp-
urinn notaði dagana vel og stóð m.a.
fyrir hreinsunarátaki í dalnum.
. Bflarnir settir á vörubfl
í gær sendi Vegagerðin vörubíl
inn í Skaftárdal en þá hafði nokkuð
sjatnað í Skaftá. Um hádegið í gær
var hafist handa við að koma bflum
Morgunblaðið/Jónas
Hlaupið í Skaftá er nú í rénun en minnkar þé hægt.
og tjaldvögnum upp á vörubflspall-
inn. Vörubíllinn ók síðan með bfla og
búnað yfir ána. Alls tók þetta um sex
klukkustundir. Jóhannes segir að
ferðin hafi í heild verið ánægjuleg en
menn séu þó fegnir að vera loks
komnir heim.
Rennsli Skaftár hefur minnkað af-
ar hægt undanfama daga og því ekki
líklegt að vegurinn verði opnaður í
bráð. Þegar vatnið minnkar kemur
leirinn sem áin hefur borið með sér í
ljós. Dæmi eru um að búfé hafi fest
sig í leirnum og drepist.