Morgunblaðið - 12.08.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Rannsókn á „leynireikningahneykslinu^ heldur áfram
Milljarðar frá Elf sagðir
hafa runnið til milliliða
Berlín. AP.
ÞÝZKUR kaupsýslumaður, sem
grunaður er um að hafa þegið vafa-
samar greiðslur í tengslum við sölu
þýzka ríkisins árið 1992 á austur-
þýzkri olíuhreinsunarstöð til
franska olíurisans Elf Aquitaine,
heldur fram sakleysi sínu og að hann
muni sýna fyllsta samstarfsvilja við
rannsókn málsins.
Franskir saksóknarar tilkynntu í
fyrradag, að þeir hefðu gefið út al-
þjóðlega handtökuskipun á hendur
manninum, Dieter Holzer. í viðtali
við hina þýzku ATÍD-sjónvarpsstöð á
fimmtudagskvöld sagði Holzer
handtökuskipunina vera „farsa“ og
vísaði því á bug að hann hefði reynt
að leika á franska rannsakendur
málsins.
Holzer vísaði því jafnframt á bug,
að hann hefði látið fé renna til
þýzkra stjórnmálaflokka, Kristilega
demókrataflokkinn (CDU) þar með
talinn, sem á þessum tíma var við
stjómvölinn í Þýzkalandi, undir for-
ystu Helmuts Kohls.
í tengslum við rannsóknina á
leynireikningahneyksli CDU, sem
hófst eftir að Kohl viðurkenndi í des-
ember sl. að hafa tekið við sem svar-
ar um 75 milljónum króna í leynileg
framlög í sjóði flokksins á fyrstu ár-
um tíunda áratugarins, hafði nafn
Holzers komið upp sem eins hugsan-
legra gefenda þess fjár sem Kohl
tók við en hefur staðfastlega neitað
að segja hvaðan kom. Gengu vanga-
velturnar út á að þessar meintu
leynigreiðslur Holzers væru hluti
fjár sem honum áskotnaðist fyrir
milligönguhlutverk við söluna á
Leuna-olíuhreinsunarstöðinni, sem
áður tilheyrði austur-þýzka ríkinu,
en Elf, sem þá var enn í eigu franska
ríkisins, keypti. í frönskum fjölmiðl-
um hefur verið fullyrt að fé að and-
virði milljarða króna hafi runnið til
milliliða sem hjálpuðu til við að
tryggja Elf samninginn um Leuna-
stöðina. Hefur því einnig verið
fleygt að Holzer hafi verið í tengsl-
um við þýzku leyniþjónustuna.
Leuna-málið er eitt af kjarnavið-
fangsefnum sérskipaðrar rannsókn-
arnefndar þýzka þingsins, sem hef-
ur það meginhlutverk að komast að
raun um hvort tengsl hafi verið milli
leynilegra greiðslna í sjóði CDU og
umdeildra ákvarðana ríkisstjórnar
Kohls.
Þjóðveij-
ar mestu
brauðæt-
urnar
Bcrlín. AFP.
ÞJÓÐVERJAR neyttu allra
Vestur-Evrópuþjóða mest af
brauði á „kornárinu“ 1999-
2000, eftir því sem fram kemur
í nýrri skýrslu korn- og fæðu-
stofnunarinnar GMF.
Alls var brauðneyzla í Þýzka-
landi 84,8 kg á hvem íbúa
landsins í fyrra, sem samsvarar
1.500 brauðsneiðum eða 350
rúnnstykkjum. Engin þjóð í
Vestur-Evrópu er eins brauð-
kær, en að sögn GMF er meðal-
brauðneyzla á hvem íbúa þó
enn hærri í sumum löndum
Austur-Evrópu, svo sem í
Úkraínu.
Reuters
Uppreisnarleiðtoginn George Speight veifar hér til stuðningsmanna
sinna er hann er fluttur burt frá dðmshúsinu í Suva í lögreglubfl.
Speight og stuðningsmenn hans hafa verið kærðir fyrir landráð.
Speight
ákærður fyr-
ir landráð
Suva. AFP.
UPPREISNARLEIÐTOGINN
George Speight var í gær ákærður
ásamt nokkmm stuðningsmanna
sinna fyrir landráð gegn ríkisstjóm
Fídjí-eyja að því er greint var frá á
netmiðli fréttastofu BBC. Speight
og stuðningsmenn hans héldu
Mahendra Chaudhry, fyrmrn for-
sætisráðherra eyjanna, ásamt fjölda
annarra stjórnmálamanna í gíslingu
í þinghúsinu í höfuðborginni Suva í
sjö vikur nú fyrr í sumar.
Tólf menn vom kærðir fyrir
landráð, samsæri um landráð eða
aðild að landráði auk Speight og
söfnuðust um 300 stuðningsmenn
Speight saman fyrir framan dóms-
húsið í Suva er ákærurnar vom
lesnar upp í gær. Speight hafði áður
verið fluttur við stranga öryggis-
gæslu frá langelsi sínu á eyjunni
Nukulau. Yngri bróðir hans var
meðal hinna ákærðu, sem og Ilisoni
Ligaira öryggismálaráðgjafi
Speight, Joe Nata fjölmiðlaráðgjafi
hans og Tomoci Silatolu sem gegndi
hlutverki pólitísks ráðgjafa.
Á Fídjí-eyjum em viðurlög við
landráði dauðarefsing, en henni hef-
ur ekki verið beitt frá því Fídjí hlaut
sjálfstæði frá Bretum árið 1970.
I ákæmnni á hendur Speight er
hann sagður hafa ætlað að heyja
stríð á hendur Kamisese Mara, for-
seta eyjanna, sem sagði af sér em-
bætti í kjölfar þess að herlögum var
komið á. Þá er Speight sagður hafa
tekið ríkisstjórnina í gíslingu og tek-
ið að sér stjórn eyjanna með vopna-
valdi, auk þess sem hann hafi notað
vopnaðar sveitir til að steypa lög-
giltri ríkisstjóm. Ákæmatriðin
verða lesin upp á ný fyrir hæstarétti
Fídjí-eyja að tveimur vikum liðnum,
en þá verður ákveðið hvenær réttar-
höld hefjast.
Gíslamálinu lauk nú í júlí er her-
stjórnin skrifaði undir samkomulag
þess efnis að Speight og stuðnings-
menn hans yrðu ekki sóttir til saka
fyrir gíslatökuna. Embætti sak-
sóknara á Fídjí hefur þó í kjölfar
þess sagt samningin ógildan þar
sem Frank Bainimarama, yfirmaður
hersins, hafi skrifað undir sam-
komulagið undir harðræði. Sak-
sóknaraembættið segir uppreisnar-
menn þá einnig ekki hafa látið öll
vopn sín af hendi þó slíkt hafi verið
sett sem skilyrði í samningnum.
Clinton ræðir Lewinsky-málið á prestaráðstefnu
Segist vera þakklátur
þeim sem iyrirgefa
BILL Clinton Bandarikjaforseti
iðrast þess mjög að hafa átt í ást-
arsambandi við lærlinginn Mon-
icu Lewinsky en jafnframt er
hann afar þakklátur þjóðinni fyr-
ir að hafa að vissu marki fyrir-
gefið sér afglöpin. Þetta kom
fram er forsetinn var gestur á
fundi um 4.500 presta í South
Barrington í IUinois á fimmtudag,
að sögn AP-fréttastofunnar.
Forsetinn sagði að með fram-
hjáhaldinu hefði hann gert
„hræðileg mistök“ en nefndi ekki
Lewinsky á nafn. Skömmu eftir
að Clinton viðurkenndi að hafa
átt mök við Lewinsky fékk hann
andlega ráðgjöf hjá þrem prest-
um og ákváðu þeir að láta ekki
uppi hvað rætt var á fundum
þeirra með forsetanum. Sjálfur
hefur hann heldur ekki tjáð sig
um ráðgjöfina en sagt að málið
hafí valdið miklum vanda í sam-
skiptum sínum við eiginkonuna
Hillary og dótturina Chelsea.
„Ég er mun sáttari við sjálfan
mig en áður,“ sagði Clinton.
Hann sagði að hann hefði haft á
tilfínningunni að hann gæti ekki
framar leynt neinu og þessi til-
fínning hefði með undarlegum
hætti gert sig hæfari til að sinna
skyldum sínum.
„Ég fann til óviðjafnanlegrar
þakklætiskenndar. Ég lærði einn-
ig mikið um fyrirgefninguna,"
sagði hann og fullyrti að 60%
Bandaríkjamanna hefðu stutt við
bakið á sér.
BBC segir að Clinton hafi oft
virst þurfa að halda aftur af tár-
unum á samkomunni með prest-
unum. Hann gaf í skyn að ef ekki
hefði komist upp um hann væri
ekki víst að hann hefði tekist af
einlægni á við afleiðingar gerða
sinna.
Hann reyndi að styrkja A1
Gore, varaforseta og forsetaefni
demókrata, með því að segja að
enginn gæti með sanngirni bendl-
að Gore við Lewinsky-málið sem
hann, Clinton, bæri sjálfur ábyrgð
á. Andstæðingar Gore hafa reynt
að draga úr trúverðugleika hans í
siðferðisefnum með því að minna
á að hann sé búinn að vera náinn
samstarfsmaður Clintons undan-
farin átta ár.
Var Tútankamon
með erfðasjúkdóm?
London. Daily Telegraph.
SVO kann að vera að egypski faraó-
inn Tútankamon hafi verið haldinn
erfðasjúkdómi sem fylgdu óvenju
breiðar mjaðmir samkvæmt rann-
sókn á fötum faraósins sem staðið
hefur yfir sl. átta ár. Sérfræðingar
hafa nú lokið við að rannsaka fatnað
Tútankamons sem komið var fyrir í
grafhýsi hans fyrir um 3.300 árum.
Grafhýsið fundu þeir Howard
Carter og Camarvon lávarður árið
1922 og hafa þeir skrautlegu munir
sem í grafhýsinu fundust æ síðan
viðhaldið áhuga almennings jafnt
sem fræðimanna á ævi og dauða
hins unga faraós.
Meðal munanna voru 450 flíkur,
þar af 150 lendaskýlur sem mældar
hafa verið og rannsakaðar af hópi
hollenskra og breskra sérfræðinga.
Rannsókn þeirra leiddi í ljós að
faraóinn var perulaga í vexti sem er
mun algengara meðal kvenna en
karla. Sömu breiðu mjaðmirnar er
þó að finna á styttum og myndum af
föður hans, Ákhenaton, og telja
sérfræðingar í egypskum fræðum
því að svo kunni að vera að fjöl-
skyldan hafi þjáðst af erfðasjúk-
dómi sem nefnist Marfan-heil-
kenni. Eru þeir sem greinst hafa
með heilkennið yfn-leitt óvenju há-
vaxnir, grannir, með langa fingur
og breiðar mjaðmir.
Að sögn Gillian Vogelsang-East-
wood, sérfræðings í egypskum
fræðum við háskólann í Leiden í
Hollandi, er ekki að sjá á beina-
Reuters
Gestir virða hér fyrir sér grafkistu faraósins Tútankamons, sem nú
er talinn hafa verið með erfðasjúkdóm.
grind Tútankamons hver orsök
perulagsins sé, fitusöfnun á mjöðm-
um sé líklegri ástæða. „Akhenaton
var eins í laginu samkvæmt stytt-
um af honum sem er áhugavert og
bendir til erfðafræðilegra tengsla,"
sagði Vogelsang-Eastwood.
Valdabarátta frekar en offita
Zahi Hawass, hátt settur sér-
fræðingur í egypskum fræðum,
hefur látið hafa eftir sér í egypsk-
um fjölmiðlum að hann hafi nú hug
á að leysa ráðgátuna um lát hins
unga faraós en Tútankamon var að-
eins 18 ára er hann lést. Að mati
Hawass er valdabarátta þó líklegri
ástæða en offita og segir hann kom-
inn tíma til að leysa ráðgátuna með
aðstoð nútímatækni. Röntgenmynd
af múmíunni hefur stundum valdið
vangaveltum um hvort banamein
hans hafi verið höfuðhögg, að sögn
fréttastofu BBC. Nasry Iskander,
egypskur vísindamaður, segir þó
einungis DNA-rannsókn á vefjum
faraósins geta veitt svarið við þeirri
gátu. Tútankamon var við völd á ár-
unum 1333-1323 f.kr. en munir og
klæðnaður úr grafhýsi hans eru
þessa stundina á sýningarferð um
Evrópu.