Morgunblaðið - 12.08.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.08.2000, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 > .. ......... 1 ' ' MINNINGAR KJARTAN DA VÍÐ HJARTARSON + Kjartan Davíð Hjartarson fædd- ist á Hornafirði 9. mars 1994. Hann lést af slysforum 6. ágúst siðastliðinn. Foreldr- ar hans eru Hjörtur Ragnar Hjartarson símvirki, f. 16.3. 1958, og Nanna Unn- ur Gunnarsdóttir, f. 26.5. 1961. Systir hans er Hjördfs Klara, f. 9.2.1984. Útför Kjartans Davíðs fer fram frá Hafnarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku, elsku hjartans vinurinn okkar, það er svo sárt að kveðja þig, við eigum engin orð til þess. En við viljum þakka þér fyrir að hafa feng- ið að kynnast þér og hafa séð fallega brosið þitt. Takk fyrir allt elsku vin- urinn okkar. Við biðjum Guð að blessa mömmu, Pabba og Hjördísi Klöru, ömmu, afana og alla ástvini þína. Ó blíði Jesús, blessa þú það barn, ervér þérfærum nú, tak það í faðm og blítt það ber, með bömum Guðs áörmum þér. (Ó. Guðmundsson.) Við biðjum Guð að geyma elsku litla frænda okkar um alla eilífð. Kveðja, Guðjón og Kristjana. Maður trúir ekki að elsku litli frændi okkar sé dáinn. Þetta er svo sárt og svo ósanngjarnt, því í ósköp- unum er svona lítill drengur tekinn frá þeim sem elska hann, því var honum ekki ætlað lengra líf hér á jörðu? Þessari spurningu fáum við aldrei svar við, hversu oft sem við leitum þess. Sú minning kemur strax í hugann þegar við mættum honum í bflnum og hann að hjóla á gangstéttinni, alltaf var hann bros- andi út að eyrum, veif- andi og kallandi á okk- ur, þá skrúfaði ég niður og við spjölluðum lengi saman, alltaf heilsaði hann hvar sem við hitt- um hann og hafði alltaf frá svo mörgu að segja, eins á fótboltaleik hjá Sindra, þá var hann mættur galvaskur að bjóðast til að passa Helgu Valdísi og ef hún var að gera eitthvað sem hún mátti ekki, kom Kjartan litli á harða spretti og sagði „Hegga Vaddís er að fara eitthvað, það verður að ná í hana“. Það var alltaf mikið líf og fjör í kringum hann hvar sem hann var. Á stundu sem þessari kemur best í ljós hvað fjölskyldan er stór og samhent og er það hennar styrkur í þessari miklu sorg. Við munum geyma þær dýrmætu minningar sem við eigum um yndislegan dreng í hjörtum okkar um aldur og ævi. Það er með sárum söknuði sem við kveðjum þig á þessum sorgardegi í lífi okkar. Elsku Hjörtur, Nanna og Hjördís Klara, megi góður Guð vernda ykk- ur og styrkja á þessum erfiðu tím- um. Við biðjum Guð að geyma og varð- veita elsku litla drenginn okkar. Nú legg ég augun aftur, ó Guð þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ virst mig að þér taka, méryfirláttuvaka þinn engil svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Kveðja, Guðrún Ragna, Helgi og Helga Valdís. + Sonur minn, GUNNAR VIÐAR ÁRNASON, Lindasmára 3, Kópavogi, lést í flugslysi þriðjudaginn 8. ágúst. Fyrir hönd foreldra minna og annarra aðstandenda, Árni G. Frederiksen. Frændi okkar, ÓLAFUR TRYGGVI ÓLAFSSON fyrrv. bóndi á Skála við Berufjörð, síðast til heimilis í Hulduhlíð, Eskifirði, lést sunnudaginn 6. ágúst síðastliðinn á Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað. Jarðsett verður frá Beruneskirkju laugardaginn 12. ágúst nk. kl. 14. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Antoníusdóttir, + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Svalbarði, sem lést þriðjudaginn 8. ágúst, verður jarðsungin .frá SvalParðskirkju þriðjudaginn 15. ágúst kl. 14.00. Bjarni Hólmgrímsson, Margrét Bjarnadóttir, Geir Árdal, Sesselja Bjarnadóttir, Guðmundur Bjarnason, Kristín Sólveig Bjarnadóttir, Hólmgrímur Bjarnason, Þórður Ólafsson, Anna S. Jónsdóttir, Haukur Eiríksson, Guðný Margrét Sigurðardóttir og barnabörn. Elsku litli frændi, okkur langar að kveðja þig með nokkrum orðum. Hvað getur maður sagt þegar svona hörmulegir atburðir gerast, þú varst aðeins sex ára og allt lífið fram- undan, sumri farið að halla og þú Kjartan minn að byrja í skólanum í haust og varst farinn að hlakka svo mikið tfl. En vegir Guðs eru okkur hulin ráðgáta. Minningin þín mun lifa í huga okkar allra. Vertu nú yfir og allt um kring með eilífðri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginn yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku Hjörtur, Nanna, Hjördís og allir nánustu aðdáendur. Við vottum okkar dýpstu samúð og biðj- um við Guð að styrkja ykkur á þess- ari sorgarstund. Kveðja, Kristján, Inga, börn og barnabörn. Elsku litli frændi okkar, ekki er hægt að finna nein orð yfir sorgina sem helltist yfir okkur þegar okkur bárust þau hörmulegu tíðindi að þú hefðir látist af slysförum fyrr um daginn. Það er ekki nema vika síðan við vorum á ferðalagi á Höfn og þú lánaðir okkur herbergið þitt. Við fórum í bíltúr út á fjörur að Horna- fjarðarósi, þá var nú margt spáð og spekúlerað hjá iitlum karli. Þú varst alltaf brosandi og svo fal- legur strákur. Þú komst á hjólinu þínu og kvaddir okkur á bensínstöð- inni, aðeins að spjalla og fylgja okk- ur úr hlaði. Algeng spurning frá þér var „með hvaða liði heldur þú?“ Þú varst Liverpool-aðdáandi alveg eins og Gunnar frændi þinn, Hjördís systir þín hélt með Arsenal, svo sett- ir þú upp undrunarsvip og glottir þegar við sögðum að Sindri væri okkar uppáhald. Við munurn ætíð minnast þín sem litla stráksins sem var alltaf upptekinn og fullur af orku. Við er- um öll mjög þakklát að hafa fengið að kynnast þér og öllum þeim tíma sem við fengum með þér á þinni stuttu ævi. Mikil er sorg Hjördísar stóru systur, mömmu þinnar og pabba. Stefaníu ömmu og Gunnars afa þar sem þú varst oft í góðu yfir- læti. Tár okkar era lítilfjörleg þegar hugsað er um sorg þeirra. Við biðj- um Guð að styrkja þau og aðra að- standendur í sorg sinni og vonum að tíminn hjálpi þeim þótt hann lækni engin sár. Elsku Kjartan Davíð, við þökkum þér innilega allar samverastundirn- ar, þú munt ætíð lifa með okkur í minningunni. Við trúum því að Gunna amma þín hugsi vel um þig. Megi Guð geyma þig og vernda um alla eilífð. Lítill drengur með litla sál hann átti sitt eigið tungumál setti upp glott og striðnissvip tók í mann með fast grip. Maður sér engil bjartan einnig lítinn stríðnispúka sem ber nafnið Kjartan. (Berglind.) Kveðja, Ingibjörg, Ingvar, Berglind og Hrönn. Eyrún og fjölskylda. Ingdlfur og Ylfa Rds. Elsku Kjartan Davíð. Við vildum bara kveðja þig með örfáum orðum og þakka þér fyrir allar stundirnar sem þú áttir með okkur. Það er mik- ill sjónarsviptir að þér en eitthvað hlutverk hefur Guð sennilega ætlað þér á æðra sviði. Vaktu minn Jesú, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki, þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesú, í þína hönd. Síðast þegar sofna fer sitji guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Elsku Nanna, Hjörtur, Hjördís Klara og aðstandendur. Guð veri með ykkur og veiti ykkur styrk í sorg ykkar. Starfsfdlk á leiksktílanum Lönguhtílum. Þó að kali heitur hver, hylji dalijökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei mun ég gleyma þér. (Skáld-Rósa.) Þinn vinur, Andri. Kæri Kjartan. Mig langaði að þakka þér fyrir hvað þú varst góður vinur. Við ætl- uðum að byrja saman í skóla í haust en nú verður allt breytt. Ég trúi því varla að þú sért ekki lengur hérna. Megi góður Guð vera með þér. Astarfaðir himinhæða, heyr þú bama þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðar faðm mig tak. (Þýð. Stgr. Thorst.) Þinn vinur, Sævar. FELIX ÞORS TEINSSON + Felix Þorsteins- son fæddist í Tjarnarkoti í Þykkvabæ 30. ntív- ember 1912. Hann lést á Landakotsspít- ala 21. júlí síðastlið- inn og ftír útför hans fram frá Seltjarnar- neskirkju 31. júlí. Sunnudaginn 30. júlí sl., knúði ég dyra að Ytri-Grund, Sel- tjarnamesi. Erindið, að hitta vin minn Felix Þorsteins- son, kvabba á honum, fá að rista borðplötu. Dóttir Felixar kom til dyra, hún tjáði mér að Felix væri látinn. Það kom mér reyndar á óvart og þó ekki, brá reyndar, en þetta eru þessar ísköldu stað- reyndir að enginn er eilífur á þess- ari jörð, ekki einu sinni Felix. Kynni mín við Felix hófust er ég ákvað að reisa hús á Skólavörðu- stíg 42. Leitaði ég til hans sem húsasmíðameistara og hitti ég hann í fyrsta sinn á verkstæði hans á Ytri-Grund. Maðurinn var ljúfur og einlægur. Byggingameistarinn tók í nefið og snýtti sér í eldhúsrúllu. Strax fékk ég þessa tilfinningu að þetta væri rétti maðurinn, blátt áfram venju- legur. Það voru ekki mistök, mað- urinn var hinn traustasti. Felix tók Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri því vel að verða mér innan handar að reisa húsið, en bað mig að- eins að bíða því hann þyrfti að gefa hænum morgunverð. Löbbuðum við á bak við verkstæðið, þar hafði byggingarmeist- arinn hænsnfugla og jarðeplagarð, þetta fannst mér vera al- vöru maður. Eftir að hænsnfuglamir höfðu verið fóðraðir og kálgarðurinn skoðaður var samningur okkar handsalaður. Fyrsti áfanginn var reistur á 90 dögum og var þá hæf- ur til notkunar, allt stóðst sem Fel- ix sagði um hraða framkvæmd- anna. Felix var þessi 100% maður af alvöruskólanum, kunni á klukku og dagatal sem svo fáir kunna á nú á dögum. Gegnum árin hef ég notið hæfileika Felixar, við framkvæmd- ir, glugga smíði innréttingar, fyrir utan öll þau góðu ráð sem Felix hefur veitt mér í sambandi við hvernig eigi að gera hlutina þegar smíðað er og byggt. Mér er ógleymanleg ferð sem við fórum austur fyrir fjall að skoða sumar- hús sem Felix hafði reist á bílast- æðinu á Ytri-Grund og síðan flutt í Grímsnes, tókum við okkur dag í það og fórum einnig heim til mín og sýndi ég honum hús það sem bróðir minn Auðunn hafði reist fyr- ir mig þar. Þetta var góður dagur fyrir okkur báða, kaffi, tekið í nef- ið, snýtt sér og síðan meira kaffi. Nú hin síðari ár hefur Felix ver- ið að tala um að hjartað í honum væri eitthvað klikk og hefur hann samkvæmt mínum skilningi verið slappur vegna þessa. Felix sagði mér er ég innti hann eftir því hvers vegna hann færi ekki í hjarta- skurðaðgerð „það væri í tísku núna að láta gera svokallaða „by pass“ aðgerð“. Læknarnir vilja ekki skera svona gamla kalla, sagði Fel- ix. Síðustu árin hef ég verið í sam- bandi við Felix og hitt hann á heimili sínu eða verkstæðinu. Hann var þessi athafnamaður, ávallt að smíða, stiga, glugga, allt sem nöfnum kann að nefna úr trjáviði, aðallega í gömul hús. Ég tel Felix hafa verið athafnaskáld, trélistamann. Þessir gömlu kallar sem alltaf era að, aldrei slegið af, ætíð að hafa eitthvað fyrir stafni, alltaf til- búnir að redda, aldrei sagt nei allt- af já, eru ekki margir eftir, í nú- tímanum er orðið lítið um svona þjóna, nú hangir allt á krók í plastpoka í kippu úti í skemmu eða í hillu og fáir vita nokkuð ef spurt er, sem misvitrir unglingar af- greiða í strikamerktu plasti, þjónar eins og Felix eru ekki margir eftir. Ég minnist Felix sem trausts trésmíðaskálds, mannsins sem allt- af var tilbúinn að vera öllum innan handar. Nafn daganna skipti ekki máli, sunnudagur eða miðvikudag- ur, ávallt tilbúinn, eitt sinni skáti alltaf skáti. Blákaldar staðreyndir eru þær að allir deyja, og fara til himnarík- is, þar sem æðri máttur er, þar dvelur Felix núna við betri heilsu, enginn efi er, þar hefur Felix feng- ið góðar móttökur, Felix er mann- blepdinn, hress og jákvæður. Ég votta fjölskyldu Felixar inni- lega samúð mína, megi æðri mátt- ur gefa afkomendum Felixar styrk í sorg þeirra eftir athafnatrésmíða- skáldið Felix Þorsteinsson. Ragnar Guðtnundsson, Minni-Völlum. Skólavörðustíg 12, á horni Bcrgstaðastrætis, síini 551 9090. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi að- eins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálf- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.