Morgunblaðið - 12.08.2000, Side 46
iQ LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Tilboðsverð til Keflavíkur
TIL eru leigubíl-
stjórar sem hafa
óskaplega mikla löng-
un til að koma fram í
fjölmiðlum. Þeir liggja
á hurðinni hjá frétta-
mönnum með alls kon-
ar rangfærslur sem
þeir vilja koma á
framfæri við alþjóð.
Það kemur fyrir að
þeir sleppa í gegn,
einkum þegar sumara-
fleysingamenn eru á
fjölmiðlunum, því
--•ílestir hinir reyndari
átta sig á því að yfir-
leitt er ekki fótur fyrir
því sem þessir menn segja. Þegar
þeir sleppa í gegn megum við
leigubílstjórar una því að hlusta á
fréttir um störf okkar þar sem öllu
er snúið á hvolf og flestu logið.
Þessar fréttir eru yfirleitt svo vit-
lausar að fáir nenna að elta ólar við
að bera þær til baka og auk þess
eru fjölmiðlarnir ekki fúsir til að
bera svona fréttir til baka.
Svona atburður átti sér stað í
síðustu viku Sleipnisverkfallsins.
Þá tróð einn leigubílstjóri upp hjá
Ríkissjónvarpinu og hélt því fram
að bifreiðastjórum á Hreyfli væri
uppálagt að aka án
þess að nota gjald-
mæli þegar þeir fara á
svokölluðu tilboðs-
verði á flugvöllinn í
Keflavík. Þetta eru
hrein ósannindi en
staðreyndin er sú að
bifreiðastjórum er
uppálagt að fara á því
gjaldi til Keflavíkur
sem Hreyfill auglýsir,
en ekki fara á fullu
verði. Hvergi kom
fram í fréttinni að hér
væri um afsláttarverð
að ræða heldur var
greinileg ætlun frétta-
manns, viljandi eða óviljandi, að
koma þeim skilaboðum til landans
að hér væri verið að pretta við-
skiptavini.
Þetta í sjónvarpinu var hálfur
sannleikur notaður til að plata fólk.
Hins vegar á sama tíma í Ríkisút-
varpinu kom frétt þar sem frétta-
maður fór með hrein ósannindi.
Hann fullyrti að inni í gjaldi því
sem tekið er fyrir að aka fólki til
og frá flugvellinum í Keflavík
greiddi fólk í raun fyrir báðar leið-
ir. Þó við tækjum fullt gjald skv.
gjaldmæli þá er langur vegur frá
að og fólk greiði fyrir báðar leiðir.
Aðalatriðið er þó það að fyrrgreint
tilboð sem boðið er upp á hjá öllum
bifreiðastöðvum á höfuðborgar-
Leiguakstur
Mér er ómögulegt að
skilja, segir Sigfús
Bjarnason, hvað vakir
fyrir fréttastofum
ríkisfjölmiðlanna þegar
þær eru með þessar
illsakir í garð okkar
leigubílstjóra.
svæðinu þá er verðið mjög sam-
bærilegt við innanbæjargjald. Ekki
má heldur gleyma því að þetta til-
boðsverð er það sama þó viðskipta-
vinir í sömu ferð séu sóttir á marga
staði. Það er alltaf sama gjald 6.200
kr. fyrir lítinn bíl og 7.900 kr. fyrir
stærri (5-8 farþega).
Mér er ómögulegt að skilja hvað
vakir fyrir fréttastofum ríkisfjöl-
miðlanna þegar þær eru með þess-
ar illsakir í garð okkar leigubíl-
stjóra. Virðist sem keppni hafi
hafist á milli fjölmiðlanna að koma
með sem grófustu fréttirnar af
leigubílstjórum. Það virðist vera
aukaatriði hvort það sem sagt er sé
í samræmi við raunveruleikann eða
ekki.
Athyglisverð er þátttaka fram-
kvæmdastjóra Samtaka ferðaþjón-
ustunnar í þessari umræðu. Virðist
henni ekkert leiðast að koma ill-
sökum á leigubílstjóra og leiða
þannig sjónir manna frá því klúðri
sem Sleipnisverkfallið er. Athyglis-
vert er að þrátt fyrir allar þessar
sögusagnir um hátt verð hefur eng-
inn leigubílstjóri verið tekinn fyrir
þetta alvarlega afbrot. Við leigubíl-
stjórar leggjum mikla áherslu á að
svona mál séru umsvifalaust kærð
til lögreglu og send til viðkomandi
umsjónarnefndar sem getur svift
viðkomandi bifreiðastjóra réttind-
um til að aka. Greinilegt er að þeir
hjá Samtökum ferðaþjónustunar
eru hrifnari af „Gróu á Leiti-að-
ferðinni". Þá heldur framkvæmda-
stjórinn því fram að svæðaskipting
sú sem gildir hjá leigubílstjórum sé
úrelt. Greinilegt er að þessi orð eru
ekki sögð eftir að málið hafi verið
Sigfús Bjarnason
skoðað, heldur bara kastað fram.
Svæðaskiptingin eins og hún er í
dag hefur sína galla og sína kosti.
Einungis hafa verið dregnir fram í
fjölmiðlaumræðunni undanfarið
gallar við svæðaskiptinguna í því
ástandi þegar verkfall er hjá
Sleipni. Nú er lag til að skoða
þessa svæðaskiptingu og nauðsyn-
legt er að velja þá leið sem tryggir
neytendum sem besta þjónustu á
sem bestu verði.
Við leigubílstjórar erum að sjálf-
sögðu mjög sárir yfir þessari nei-
kvæðu umræðu um okkur í þessu
verkfalli. Það er þó einn ljós punkt-
ur. Nú var dregið fram svart á
hvítu hversu nauðsynlegt það er að
hafa hámarksgjald á þjónustu
leigubíla.
Höfundur er leigubifreiðastjóri í
Reykjavfk.
Úhreinsunin
gsm897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
|
A R
Iðnaðar-
og viðskiptaráðuneytið
Starfsþjálfun
hjá Endurreisnar- og
þróunarbanka Evrópu
Iðnaöar- og viðskiptaráðuneyti auglýsir lausa
til umsóknarstarfsþjálfun hjá Endurreisnar-
og þróunarbanka Evrópu (EBRD). Um erað
ræða 2 ára starfsþjálfun sem hefst í lok janúar
2001.
"iVlarkmið starfsþjálfunarinnar er að gefa innsýn
í starfsemi bankans, m.a. í mat á lánsumsókn-
um og hlutabréfum, fjármögnun verkefna, svo
og upplýsinga- og samningatækni. Að starfs-
námi loknu á viðkomandi kost á starfi hjá End-
urreisnar- og þróunarbankanum.
Umsækjandi þarf að hafa háskólamenntun í
viðskiptafræði, hagfræði, lögfræði eða aðra
sambærilega menntun. Þá er nauðsynlegt að
viðkomandi hafi fullkomið vald á ensku og sé
ekki eldri en 28 ára.
Skrifleg umsókn, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist iðnaðar- og við-
skiptaráðuneyti, Arnarhvoli, 150 Reykjavík fyrir
j20. ágúst nk. á ensku.
s G GA jrj
FÉLAGSLÍF
Sunnudagsferð 13. ágúst
kl. 9.00: Gljúfurá - Jafna-
skarð - Bifröst. Skemmtileg
'*ÍTm 5-6 klst. ganga í Borgar-
firði meðfram Gljúfurá. Verð
2.000 kr. f. félaga og 2.200 kr.
f. aðra. Fararstjóri: Steinar Frí-
mannsson. Brottför frá BSÍ.
Miðar í farmiðasölu.
Afmælishelgi í Básum 25.-
27. ágúst, helgarferð og
dagsferð. Pantið tímanlega.
Sjá heimasíðu: utivist.is.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SÍMI 568-ZS33
Göngudagur F.í. og Spron
sunnudaginn 13. ágúst.
Gengið milli eyðibýla á Þing-
völlum f fylgd Þórs Vigfús-
sonar, kennara á Selfossi.
Flressing að göngu lokinni.
Verð kr. 800.
Laugavegsgöngur 16. og 18.
ágúst. Helgarferð um Dalina
og Breiðafjarðareyjar 25. - 27.
ágúst með Árna Björnssyni.
www.fi.is, textavarp RUV bls.
619, sími á skrifstofu 568 2533.
Verkamenn!
Vantar duglega verkamenn í hellulagnir og
vinnu við steypu á gangstéttum. Mikil vinna.
Upplýsingar gefur Guðmann í síma 894 3808.
Fjölverk — verktakar ehf.
Vesturbyggð
óskar eftir að ráða skrifstofustjóra og bókara
á skrifstofu bæjarsjóðs. Upplýsingar gefur
undirritaður í vinnusíma 450 2300 og heima-
síma 456 1480.
Umsóknir um störfin berist til undirritaðs fyrir
25. ágúst nk.
Vesturbyggð 10. ágúst 2000
Bæjarstjórinn í Vesturbyggð,
Jón Gunnar Stefánsson.
JHorounblatiiti
Blaðbera
vantar í afleysingar
• í Garðabæ
• í Vesturbæ, Reykjavík
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaöinu starfa um 600 btaðberar á
höf udborgarsvæöinu
TIL SÖLU
Hótel Selfoss
Til sölu
dagana 12. og 13. ágúst kl. 13—20
Málverk — langhengd en ódýr þó —
eftir Grétar Þ. Hjaltason.
Notið tækifærið.
LAIMDBÚNAÐUR
Óska eftir fólki í sveit
Eldri maður óskar eftir ungu fólki, sem hefur
áhuga á halda heimili í sveit.
Upplýsingar í síma 478 8981.
L I li
11I I. 111 B 1 I I i ðsssssseasas sassBg&sssas H 1 H H 1 | 1 ■ 1 1 | 1 1B111!IIIIII S ! 161! S1811 ð
Frá Háskóla slands
IMýjar diplóma-námsleiðir
við Háskóla íslands
í haust bætast eftirtaldar eins og hálfsárs
diplóma-námsleiðir við í Háskóla íslands:
í lagadeild:
Lögritarar, aðstoðarfólk lögfræðinga.
í viðskipta- og hagfræðideild:
Reikningshald.
í félagsvísindadeild:
Menntun leiðbeinenda í uppeldis- og
félagsstarfi.
í heimspekideild:
Hagnýt danska fyrir atvinnulífið*
Hagnýt enska fyrir atvinnulífið*
Hagnýt þýska fyrir atvinnulífið*
Hagnýt spænska fyrir atvinnulífið*
Þýðingar
*Arsnám (30 ein.) í þessum greinum getur nýst
sem aukagrein til B.A. eða B.S. prófs.
Nánari lýsingar eru á heimasíðu Háskóla Islands http:// http://
www.hi.is/ heimasíðu viðskipta- og hagfræðideildar http:/ / hag.hi.is/
diplom og heimasíðu lagadeildar http://www.hi.is/nam/laga/
Skráning ertil 18. ágúst hjá Nemendaskrá Há-
skóla íslands, aðalbyggingu. Opið kl. 10-15.
Skrásetningargjald kr. 28.750.
Aðrar diplóma-námsleiðir við Háskóla íslands:
í viðskipta- og hagfræðideild: Hagfræði,
markaðs- og útflutningsfræði, rekstrarstjórnun,
reksturfyrirtækja og tölvunotkun, viðskipta-
tungumál.
í heimspekideild: Hagnýt íslenska.
í verkfræðideild: Rekstur tölvukerfa.
í rauvísindadeild: Ferðamálafræði.