Morgunblaðið - 12.08.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000 53
reikningana í staðinn. Einnig var að
íinna reikninga frá Radíóþjónustu
Bjarna og Stillingu þar sem númeri
var breytt úr G-1149 í R-10816.
★ Þar að auki lét Steingrímur
Rannsóknarráð borga bensín á
Scoutinn sinn og borga 91 þúsund
krónur fyrir Scoutinn samkvæmt
kílómetrataxta ríkisins. Þá leigði
hann Rannsóknarráði Scoutinn á
bílaleigutaxta og leigði Surtseyjarfé-
laginu einkabílinn margumrædda í
þrjá mánuði þetta sama ár fyrir 73
þúsund krónur.
★ Bensínkostnaður skráður á
Chevrolet-bílinn var 322 þúsund
krónur. Samtals voru það 5.792 lítrar
af bensíni eða 16 lítrar að meðaltali á
dag.
★ Símakostnaður Rannsóknar-
ráðs var mikill og athygli vöktu
reikningar vegna fjölmargra símtala
og símskeyta til Vestfjarða (kjör-
dæmi Steingríms). Ríkisendurskoð-
un gerði athugasemd við 105 sím-
reikninga að upphæð 120 þúsund
krónur.
Aðeins eitt ár
af 20 rannsakað
Hér að framan er aðeins stiklað á
stóru í athugasemdum dr. Þorsteins.
Vegna athugasemda hans óskaði þá-
verandi menntamálaráðherra eftir
gagngerri athugun ríkisendurskoð-
anda á reikningum ráðsins vegna
ársins 1969. Ríkisendurskoðun úr-
skurðaði að ýmislegt í bókhaldi
stofnunarinnar væri á annan hátt en
vera ætti og gerði fjölmargar aðrar
athugasemdir, t.d. vegna óheimilla
aukagreiðslna, m.a. til Steingríms
Hermannssonar, vegna ferðakostn-
aðar og risnu. Ferðakostnaður og
risna hjá Rannsóknarráði nam fimm
milljónum króna eða 10% af heildar-
útgjöldum ráðsins. Sama ár var
ferðakostnaður og risna fjármála-
ráðuneytisins lægri eða 4,8 milljónir.
Hjá flestum ráðuneytum var þessi
tala mun lægri.
Eins og að íraman greinir var gerð
athugasemd við 105 símreikninga að
upphæð 120 þúsund krónur. Stein-
grímur féllst á að 69 reikningar til-
heyrðu sér og bauðst til að endur-
greiða 34 þúsund krónur.
Ríkisendurskoðun féllst á þá upp-
hæð.
Ríkisendurskoðun virðist því ekki
hafa verið sammála Steingrími um að
sökin lægi hjá mistækum bókara
Rannsóknarráðs. Ríkisendurskoðun
Svipað er að segja um grænu
baunimar frægu. Því var ómótmælt,
að þær voru keyptar fyrir Surtseyj-
arfélagið og fóru í hús þess í Surtsey
og reikningurinn var þannig rétt
merktur. Af einhverjum ástæðum
var reikningurinn færður á bifreið
Rannsóknarráðs. Flestir hentu af
þessu gaman enda er sjaldgæft að
setja grænar baunir á bifreið. Aðrir
gerðu úr þessum mistökum stórmál.
Það hentaði þeim betur.
Þessar athugasemdir eru orðnar
lengri en ég ætlaði. Við nánari lestur
greinar Þórðar kemur í ljós, að hún
er svo full af rangfærslum, að ótrú-
legt er. Því getur varla hroðvirkni ein
valdið. Hvað býr að baki?
Þórður byrjar grein sína með
miklu skjalh um ævisöguritarann
Dag og jafnvel mig. Það þykir mér
oft grunsamlegt, enda kemur fljót-
lega í ljós að annað býr undir. Þórður
leitast við að gera Dag tortryggileg-
an. Þórður segir Dag „hafa verið ná-
inn samstarfsmaður sonar Stein-
gríms úr pólitísku starfi til margra
ára“. Mér er ekki kunnugt um, að
sonur minn, Guðmundur, hafi verið í
nokkrum pólitískum flokki, né Dag-
ur, að því er ég best veit. Ef til vill á
Þórður við það, að þeir störfuðu í tvö
ár saman í Röskvu, þegar þeir voru
við nám í Háskóla Islands, og þeir
voru báðir formenn stúdentaráðs.
Langt þykir mér seilst til að koma
höggi á Dag. Mér er tjáð að Þórður
sé Heimdellingur og er hann, að
sjálfsögðu, engu verri fyrir það. Lík-
lega er hann lítt hrifinn af Röskvu,
sem hægri menn í Háskólanum hafa
þurft að láta í minni pokann fyrir í
meira en tíu ár, og kann það að skýra
tortryggnina í garð Dags.
Höfundur er fyrrverandi for-
sætisráðherra og seðlabankastfdri.
staðfesti að Steingrímur hefði fært
til gjalda hjá ráðinu reikninga fyrir
varahlutum og bensíni á einkabfl sinn
en Steingrímur kvað „mistök hafa
valdið gjaldfærslunni“ eða þá að
hann hefði þurft að nota einkabflinn í
þágu stofnunarinnar. Steingrími var
gert að endurgreiða varahlutareikn-
inga en „eftir atvikum“ var fallist á
skýringar Steingríms vegna bensín-
reikninga. Ríkisendurskoðun úr-
skurðaði þó að Steingrími hefði verið
óheimilt að leigja Rannsóknarráði
einkabíl sinn á bflaleigutaxta og úr-
skurðaði að hann skyldi endurgreiða
þann reikning. Samtals var Stein-
grími gert að endurgreiða 113.105
krónur, en vert er að hafa í huga að
allar skýringar hans um réttmæti
ferðalaga, innan lands sem utan, og
þar með kflómetragjald, bensín,
kaup á farseðlum og fleira, voru
teknar til greina. Skýrslu Ríkisend-
urskoðunar má einnig skoða í því
ljósi að þar er aðeins fjallað um eitt
ár en Steingrímur var framkvæmda-
stjóri Rannsóknarráðs frá árinu
1957-78 eða í rúma tvo áratugi.
Lofsvert frumkvæði
Steingrúns
Allir hljóta að vera sammála um að
úttekt dr. Þorsteins og skýrsla Rflds-
endurskoðunar feli í sér alvarlegar
ásakanir, sérstaklega þegar haft er í
huga hversu veigamiídum embætt-
um Steingrímur átti eftir að gegna.
Það skal tekið fram að það er engan
veginn ætlun greinarhöfundar að
fella dóm í þessu máli, heldur aðeins
að benda á að þetta er ekki svo einfalt
mál að hægt sé að afgreiða það sem
pólitískt klámhögg. Eftir að Ríkis-
endurskoðun gerði athugasemdir
sínar, og blaðaskrif fylgdu í kjölfarið,
óskaði Steingrímur hinn 9. júní 1971
eftir því við saksóknara ríkisins að
fram færi opinber rannsókn á starfi
sínu hjá Rannsóknarráði ríkisins.
Einnig sagðist Steingrímur vera að
velta því fyrir sér að höfða meiðyrða-
mál á hendur dr. Þorsteini Sæ-
mundssyni fyrir ærumeiðandi um-
mæli og aðdróttanir og kvaðst í
blaðaviðtali vera ákveðinn í að fylgja
málinu fast eftir (Vísir, 9. júní 1971).
Aldrei var þó höfðað meiðyrðamál á
hendur Þorsteini.
Þetta mál hefur fylgt Steingrími
um þriggja áratuga skeið. Það var
lofsvert er Steingn'mur sjálfur opn-
aði fyrir umræðu um þetta mál í
Morgunblaðsviðtalinu hinn 21. júní
1998. Orð ævisöguritarans, sem vitn-
að er til í upphafi þessarar greinar,
um að ekki yrði um neina hetjusögu
að ræða, lofuðu jafnframt góðu um að
tekið yrði á þessu máli á hlutlausan;
heiðarlegan og gagnrýninn hátt. I
því Ijósi var kaflinn í öðru bindi, sem
fjallaði um málið, nokkur vonbrigði.
Enn hefur þó hinn ungi ævisöguritari
tækifæri til að komast að hinu sanna í
þessu máli, því um næstu jól er von á
þriðja bindi ævisögunnar. Þar getur
Dagur B. Eggertsson tekið málið
upp aftur og fjallað um það af hlut-
leysi því sem hann lofaði í inngangi
fyrsta bindisins. Ævisöguritarinn
ætti því að nota tækifærið og leita
sjálfur, á gagnrýninn og hlutlægan
hátt, svara við ýmsum ósvöruðum
spumingum og upplýsa ef rétt er en
kveða niður ef rangt er.
Höfundur stundar nám f stjórnmáln-
fræði við Kaupmannahafnarbáskóla.
Opið í Faxafeni 5 og nýja útibúinu
í Hlíðarsmára 15 laugardag 10-14
Kíktu við og taktu bækling
eða kíktu á netið www.plusferdir.is
M
i * -
VfSA
Urnbodsmenn Plusferda um alll land
Akranes* S: 431 4884
Blönduós • S; 4524168
Borgarnes'S: 437 1040
Dalvík»S 4661405
isafjörður • S: 456 5111
Sauðárkrókur • S: 453 6262/896 8477
Akureyri * S: 462 5000
1450
Htífn • S: 4781000
Egilsstaðir • S: 471 2000
Selfoss • S: 482 1666
Vestmannaeyjar • S: 481
Ketlavík'S: 421 1353
Grindavik • S: 426 8060
Söluskrifstofur Plusferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavik og Hlíðasmara 15 • 200 Kopavogur
Sinií 535 2100 • Fax 535 2110 *Netfang plusf@plusfertlir is • Veffang www plusferdir.is
Sól, skemmtun og verslun
Verðdæmi: 4. okt. Innifalið flug, gisting í 1 viku á
Pil Lari Playa, ferð til og frá flugvelli og allir
flugvallaskattar. Miðað er við að 2 fullorðnir og 2
börn 2-11 ára ferðistsaman.
Pvt'VJSJlll 'SÓ-ÚIUj-
í sól og sumaryl
Verðdæmi: 5 sept Innifalið erflug gisting á
Garden Choro í 1 viku, miðað við að 2 fullorðnir
og 2 börn 2-11 áraferðistsaman. Innifalið er
flug, gisting, ferð til og frá flugvelli og allir
flugvallaskattar.
Fróðleikur, verslun og skemmtun
Verðdæmi: 27. október. Innifalið erflug, gisting í
tveggja manna herbergi í 3 nætur,
morgunverður, flugvallaskattar.
Sólríkar og hlýjar
Verðdæmi: 6. desember. Innifalið erflug, gisting
í 2 vikur á Aloe ferð til og frá flugvelli og allir
flugvallaskattar. Miðað er við að 2 fullorðnir og 2
börn 2-11 ára ferðistsaman.
Sólríkt og freistandi
Verðdæmi: Tilboðssæti. Innifalið erflug og
flugvallaskattar í beinu leiguflugi til Miami.
Miðað er við að 2 fullorðnir og 2 börn 2-11 ára
ferðist saman.
Jlnjiíij'jaíru'j'