Morgunblaðið - 12.08.2000, Side 62
62 LAUGARDAGUR 12. ÁGÚST 2000
fréttir
beint í símann þinn
SMS fréttir frá mbl.is
Allir vilja vera fyrstir með fréttirnar. Nú geta
viðskiptavinir Símans-GSM fengið nýjustu
fréttirnar á sínu áhugasviði sendar með SMS um
leið og þær berast. Hver sending kostar aðeins
6 kr. Hægt er að velja fréttir úr fjölda efnisflokka
eftir áhugasviðum.
Pantaðu SMS fréttir strax
á mbl.is eða vit.is!
• Stórfréttir
• Innlent
• Erlent
• Viðskipti
• Tölvur og tækni
• Enski boltinn
• Landssímadeild karla
• Landssímadeild kvenna
• Stoke-fréttir
• Formúla 1
SÍ MINN-GSM
clKIAv t ílVttJ D5IOM
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Karl Berndsen hannar hár og förðun á Futurice
Morgunblaðið/Sverrir
Karl Berndsen kann sitt fag.
Rammíslenskur
heimsborgari
Karl Berndsen förðunarmeistari veit að
heimur tískunnar er harður og fólk sem
hyggur á frama innan hans þarf að hafa
sterk bein auk hæfíleika á sínu útvalda
sviði. Jóhanna K. Jóhannesdóttir hitti
manninn með penslana.
ÞÆR STUNDIR koma stundum á
lífsleiðinni þegar jafnvel ókunnugt
fólk getur í einni hendingu og af eigin
geðþótta gjörbreytt starfsferli
manns, ýmist til hins betra eða verra.
Það er þá sem reynir hvað mest á þol-
rif þess sem stendur í eldlínunni þvi
það er hans að sanna sig og laða gagn-
rýnendur inn í ævintýraveröld sína.
Karl Bemdsen eða Kalli eins og
hann er alltaf kallaður stendur á þess-
um tímamótum í lífi sínu núna. Að-
standendur Futurice fengu hann til
að hanna alla förðun og hárútlit á sýn-
ingunni og bættist hann því í raun við
glæsilegan hóp fatahönnuðanna og
hlaut tækifæri til að koma hugverk-
um sínum á framfæri við heimspress-
una. Nú skal brett upp á ermamar og
kasta töfraþulu á alla viðstadda, fólkið
sem getur mtt framabrautina eða
lagt óbifanlega tálma í veginn.
Kalli hefur verið búsettur í mekka
tískunnar, London, undanfarin þrjú
og hálft ár þar sem hann hefur unnið
við auglýsingar, tískusýningar, tón-
listarmyndbönd, tímarit og reyndar
flest það sem krefst handbragðs förð-
unar- og hárgreiðslumeistara.
Kántríhátíð heima á Islandi
Til að koma sér með hraði inn í ís-
lenskan veruleika fór hann í ferðalag
á heimaslóðimar, Skagaströnd, og
tók þátt í kántríhátíðinni hjá kúrek-
um norðursins. Hátíðin tók greinilega
sinn toll af röddinni, Kalli er hás en
afskaplega hamingjusamur og hlakk-
ar til að takast á við það stóra verk-
efni sem Futurice er.
Undirbúningur fyrir hátíðina hefur
staðið yfir í tæp tvö ár. Fyrir mánuði
kom Kalli til landsins til að hitta ís-
lensku hönnuðina, sjá verk þeirra og
undirbúa hugmyndavinnu að sjálfri
sýningunni. ,Að hanna útlit sýninga
byggir auðvitað á góðri samvinnu við
hönnuðina. Ég skoða fatalínu hönnuð-
anna og vinn svo hugmynd út frá
henni sem hönnuðurinn þarf svo að
samþykkja. Það er nú oft upp og ofan
hvemig það gengur en íslensku hönn-
uðimir vom mjög Ijúfir og gott að
vinna með þeim. Hugmyndin er
stundum kynnt á lítilli polaroid-mynd
og því þarf hönnuðurinn að nota
ímyndunaraílið ofurlítið til að geta
séð hvemig þetta kemur til með að
líta út í raunveruleikanum á iyrirsæt-
unum svo það er nauðsynlegt að sýna
útlitshönnuðinum fullt traust.“
Þar sem Kalli sér einn um hár og
förðun er ábyrgð hans mikil, bæði
hvað snýr að hugmyndavinnunni og
ekki síður framkvæmdinni sjálfri.
Það er hann sem tekur við hrósinu en
líka hrakyrðunum.
„Mér leist ekkert á þetta í upphafi
því það er mjög sjaldgæft að einn og
sami maðurinn hanni og hafi yfiram-
sjón með hári og förðun. Það hvarflaði
heldur aldrei að mér að umfang þess-
arar sýningar yrði jafn mikið og raun
bar vitni eða jafn fagmannlega að
henni staðið," segir Kalli og brosir að
minningunni. „Það er líka mikil
áskomn að vera með sex ólíkar sýn-
ingar í röð og með sömu 24 fyrirsæt-
unum því það þarf að gera öllum jafn
hátt undir höfði og byrja frá gmnni
eftir hverja sýningu því hver hönnuð-
ur er með sitt „look“. Ég hef reyndar
ekki áhyggjur af að það gangi ekki
upp því ég er með einvalalið hár-
greiðslufólks og förðunarfræðinga til
að vinna þetta með mér og þetta er
bara spuming um að reka fólkið
áfram,“ segir hann en orðin skiljast
vart fyrir hláturrokum og blaðamað-
ur fær á tilfinninguna að þeirri stjórn-
semi verði ekkert erfitt að taka.
Rauðamöl og mosi
Kalli segist mikið nota óhefðbundin
efni með hefðbundnum vömm til að
ná fram útliti og áhrifum sem hafa
aldrei sést áður. „Sumum finnst vinn-
an mín vera svolítið á brúninni því ég
skapa útlit sem getur á stundum verið
fjarlægt „maskara og gloss“ ímynd-
inni. Ég vil vinna að „trendum“ og
nota jafnvel sag, sand eða leir við
vinnu mína og hef til dæmis notað
mulda rauðamöl og mosa í myndatök-
um. Aðalmálið í tískuheiminum er að
koma á óvart, vera ferskur í hugsun
ogvera á undan straumnum."
Ótal vinnustundir em að baki en
með samvinnu allra aðila og jákvæðu
hugarfari hefur vinnan alltaf verið
skemmtileg og Kalli segist vera stolt-
ur af að vera hluti af hinni stóm loka-
mynd. Allir þekkja sinn stað og leggja
metnað í viðburðinn.
„Til þess að förðunin og fötin geri
sig þarf fyrirsætan lika að geta borið
það þannig að stór hluti þess að sýn-
ing verði eftirminnileg er að hafa góð-
ar fyrirsætur svo ábyrgð þeirra er
líka mikil. Á Futurice sýnir rjómi ís-
lenskra fyrirsætna þannig að allfc er í
góðum höndum.“ Þær stúlkur sem
sýna þurfa líka að þola ýmislegt því
Kalli ætlar að nota efni úr náttúm
Bláa lónsins, möl og sitthvað fleira, til
að ná fram sterkum áhrifum. „Ég
vildi reynar ekki sýna Futurice sem
eitthvert rammíslenskt fyrirbæri því
sýningin er hugsuð á alþjóðavísu og
það þarf að spinna inn í vinnuna. Því
verður þó náttúrulega ekki neitað að
ég er sjálfur íslenskur inn að hjarta-
rótum og það eitt hlýtur að skila sér í
öllu sem ég geri.“