Morgunblaðið - 29.08.2000, Side 1

Morgunblaðið - 29.08.2000, Side 1
STOFNAÐ 1913 196. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Danmörk og EMU Bankarnir svartsýnir Kaupmannahöfn. AFP. NÍU af tíu stærstu bönkum Dan- merkur óttast að meirihluti Dana muni hafna evrunni þegar gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið hinn 28. september nk. Kemur þetta fram í niðurstöðum könnunar sem danska blaðið Jyllandsposten birti í gær. Bankarnir hafa dregið úr fjárfest- ingum í því skyni að takmarka eftir megni þau áhrif sem þeir reikna með að verði af vaxtahækkun í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar, eftir því sem blaðið segir. A fóstudaginn varaði danski seðla- bankastjórinn Bodil Nyboe Ander- sen landa sína við því að hafna aðild að myntbandalaginu (EMU). Gengi Danmörk ekki til liðs við evru-svæð- ið myndi það knýja ríkisstjórnina til að herða enn á efnahagsstýringar- aðgerðum sem væri þróun sem kæmi efnahagslífínu í landinu ekki til góða. ■ Óttast neikvæð áhrif/26 --------f-ð-*----- Bandarísk könnun Bush fram úr Gore Washington. Reuters. NÝ skoðanakönnun Gallups, sem birt var í gær, gefur til kynna að forsetaframbjóðandi repúblikana, George W. Bush, sé aftur kominn yfir aðalkeppinautinn, AJ Gore varaforseta. Forsetaefni græningja, Ralph Nader, var með 3% en hægrisinn- inn Pat Buchanan 1%. Könnunin var gerð íyrir USA Today og CNN og hlaut Bush stuðning 46% að- spurðra en Gore 45%. Skekkjumörk eru 4% og munurinn á frambjóð- endunum því ekki marktækur, að sögn fréttavefjar CNN-sjónvarps- stöðvarinnar. Gore var í síðustu viku með 47 af hundraði en Bush 46. Svínslíffæri í menn? Washington. Reuters. VÍSINDAMENN við líftækni- fyrirtækið BioTransplant í Bandaríkjunum greindu frá því í gær að þeim hefði tekizt að rækta afbrigði af svíni sem virðist ekki smita veirum í mennskar frumur og sögðu að þetta gæti opnað fyrir mögu- leikann á að flytja með áhættu- litlum hætti dýrslíffæri í menn. Sögðu vísindamennirnir að veirur sem fyndust í venjuleg- um svínum væru líka í nýrækt- aða afbrigðinu en af einhverj- um ástæðum smituðust veirumar ekki úr svínafrumun- um í mennskar frumur þótt það gerðist iðulega þegar venjuleg- ar svínafrumur ættu í hlut. Vonast BioTransplant-menn nú til að geta ræktað nýja svínsafbrigðið þannig, með að- stoð líftækninnar, að hægt verði að flytja líffæri úr slíkum svínum í menn án þess að mannslíkaminn hafni þeim. Umbótasinnar og harðlínumenn í Iran Þrálát átök fylkinga Teheran. Reuters, AFP. STUDENTAOEIRÐIR í vestur- írönsku borginni Khoramabad skildu einn lögreglumann eftir í valnum og nokkra særða og slasaða, eftir því sem íranskir ríkisfjölmiðlar greindu frá í gær. Ekkert lát virðist um þessar mundir ætla að verða á ofbeldisfullum árekstrum í íran milli mótmælenda, sem krefjast umbóta í landinu, og harðlínumanna sem hindra vijja allar breytingar í frjálsræðisátt. Samkvæmt heimildum Reuters- fréttastofunnar höfðu um 10.000 manns komið saman til útifundar í Khoramabad á sunnudag og haft uppi mótmæli gegn tilraunum stjómvalda til að hindra að stærstu samtök um- bótasinnaðra námsmanna héldu landsfund sinn í borginni. „Oeirðir breiddust út á sunnudag og héldu áfram allan daginn. Tugir særðust og voru handteknir," hefur Reuters eftir heimildarmanni sínum, lækni sem ekki vildi láta nafns síns getið. Harðlínublaðið Kayhan greindi frá því, að lögregluvarðstjóri hefði látið lífið og fjórir lögreglumenn aðrir særzt í árás múgs á lögreglustöð. Oeirðimar höfðu staðið í fjóra daga er lögregla náði stjóm á ástandinu í gær. Kveikjan að átökunum var sú, að á fimmtudag vom tveir þekktir gagn- rýnendur klerkastjómarinnar hindr- aðir í því að komast frá flugvellinum í Khoramabad en til hafði staðið að þeir ávörpuðu námsmennina. Um 150 manna hópur umbótaandstæðinga reyndi að hleypa upp fundinum. Óháð þessu fréttist af því að annar hópur stuðningsmanna klerka- stjórnarinnar hefði numið sex náms- menn á brott, barið þá til óbóta og skilið þá síðan eftir íyrir utan borgina. Vegfarendur hefðu síðan komið þeim undir læknishendur. Sprengjum varpað á herstöð Þá greindi INRA-rfldsfréttastofan frá því í gær, að fjórar sprengjur úr sprengjuvörpu hefðu lent í fyrrver- andi herbúðum í austurhluta Teher- an. Enginn hefði þó skaðazt í árásinni. Mujahideen Khalq-hreyfingin, sem berst gegn klerkastjóminni og hefur bækistöðvar í Irak, lýsti ábyrgðinni á hendur sér. Samningamiðlun Líbýumanna á Jolo-eyju skilar árangri Gíslar látnir lausir I fallhættu eftir stórbruna og flogið til Líbýu Cebu, Jolo á Filippseyjum. AFP. Reuters Tveir hinna frelsuðu gísla, s-afrísku hjónin Monique og Carel Strydom, ásamt líbýska samningamanninum Abdu Rajab Azzarouk (t.h.) í' gær. SEX gíslar sem múslímskir öfga- menn hafa látið lausa héldu í gær áleiðis til Trípólí í Líbýu með líbýskri flugvél og lauk þar með fjög- urra mánaða fangavist þeirra á Suð- ur-Filippseyjum. Enn em sjö gíslar í haldi hjá Abu Sayyaf-uppreisnar- mönnum á Jolo-eyju. Fimm vom látnir lausir á sunnudag og sá sjötti í gær. Sexmenningamir stigu um borð í glæsilega Iljúsín-þotu sem var áður fyrr í eigu Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta og Líbýustjórn hefur á leigu. Lá leiðin frá Filipps- eyjum til Trípólí þar sem gíslarnir áttu að hitta Múammar Gaddafí Líbýuleiðtoga áður en þeir myndu halda ferðinni áfram hver til síns heima. Vélin millilenti í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær- kvöldi, þar sem gíslarnir fyrrverandi áttu að fá að njóta næturhvíldar áður en áfram yrði haldið til Líbýu. Auk Gaddafís og háttsettra fulltrúa stjórnvalda í heimalöndum gíslanna munu fjölskyldumeðlimir þeirra taka á móti þeim er þeir lenda á Trípólíflugvelli í dag. Tveir hinna frelsuðu era frá Suð- ur-Afríku, einn frá Þýskalandi og þrír em franskir. Hafa ríkisstjórnir allra þessara landa ákveðið að senda ráðherra til Trípólí og að þakka Líbýumönnum miðlunina. Uppreisnarmenn tóku 21 gísl á malasískri ferðamannaeyju á páska- dag, 23. apríl, og fluttu þá til Jolo- eyjar. í síðasta mánuði tóku upp- reisnarmennimir svo þrjá gísla til viðbótar. Hinir gíslarnir að líkindum lausir eftir viku Líbýa hefur tekið frumkvæði að því að binda endi á fangavistina og segja stjómarerindrekai- að með því vilji Líbýumenn ávinna sér betri ímynd á alþjóðavettvangi eftir að hafa eiginlega sætt útskúfun síðan Lockerbie-sprengjutilræðið var framið 1988. Einn Filippseyingur, tveir Finnar og þrír Frakkar em enn í haldi á Jolo. Samningamenn segja að þeir verði að líkindum látnir lausir eftir viku. Heimildamenn sem höfðu afskipti af samningaviðræðum um lausn gíslanna segja að Líbýu- stjóm hafi samþykkt að borga alls um eina milljón dollara, andvirði um 80 milljóna króna, fyrir lausn hvers gísls og auk þess að standa straum af kostnaði við þróunarverkefni á fá- tækum svæðum á Suður-Filippseyj- um. Líbýumenn hafa neitað því að hafa borgað lausnargjald fyrir gíslana en filippseyskur embættismaður viður- kenndi í gær að það „kunni að vera“ að peningar hafi verið greiddir. MOSKVUBÚAR fylgjast hér með eldsvoðanum sem upp kom á sunnu- dag í Ostankino-sjónvarpsturninum í Moskvu, öðrum hæsta turni heims. Rúman sólarhring tók að ráða niðurlögum eldsins sem tekist hafði að slökkva um hálfsexleytið í gær að staðartíma. Að minnsta kosti tveir menn létu lífið í brunanum en þeir hröpuðu með lyftu úr u.þ.b. 300 m hæð niður til botns. Yfírvöld óttast enn að tuminn, sem lokið var við að reisa árið 1967 og var áður talinn gott dæmi um tækniþekkingu Sovétmanna, kunni að hrynja og sagði Vladimír Pútfn Rússlandsforseti að bruninn væri til vitnis um slæman efnahag landsins. „Þetta síðasta slys sýnir hversu viðkvæmur tækjabúnaður okkar er sem og landið f heild sinni. Við megum ekki láta hjá lfða að gera okkur grein fyrir þeim mikla vanda sem liggur að baki þessu slysi, né heldur megum við gleyma því hlut- verki sem efnahagsaðstæðurnar leika,“ hafði /nterfax-fréttastofan eftir Pútín. „Það eru efnahagsað- stæðurnar sem stjórna því hvort svona slys muni eiga sér stað í framtfðinni. Við verðum að berjast af krafti fyrir auknum hagvexti." Ekki lá enn fyrir hvort nauðsyn- legt reynist að rífa hinn 537 m háa turn sem er mikið skemmdur eftir brunann. ■ Ástæða eidsvoðans/28 MORGUNBLAÐIÐ 29. ÁGÚST 2000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.