Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 55

Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 55 HESTAR Kynbótasýning á Gaddstaðaflötum Fethryssurnar einokuðu yngri flokkana Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Efstu sex vetra hryssur, frá vinstri: Bi-ynjar Jón á Iðu, Jakob á Kviku, Freyja á Sunnevu, María á Hnotu og Þórður á Urði sem stóð efst. ÞAÐ telst ávallt til tíðinda þegar stóðhestar eru sýndir með afkvæm- um á síðsumarsýningum. Það bai- svo við í síðustu viku þegar Platon frá Sauðárkróki mætti með sex af- kvæmi sínum og tryggði sér fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi. Platon var sýndur með afkvæmum fyrir fjórum árum en hlaut þá önnur verðlaun. Þá vakti hann sjálfur mikla athygli og skyggði mjög á niðja sína. Nú var þetta jafnari leikur og af- kvæmin komu prýðilega fyrir enda ekki spurning að hann gefur ágætis reiðhross. Þrír stóðhestar voru sýndir sem einstaklingar en aðeins einn þeirra, Bráinn frá Oddhóli, náði gömlu ætt- bókarmörkum 7,75, en hann er fjög- j urra vetra gamall með 8,0 fyrir öll at- riði hæfileika nema skeið þar sem hann hreyfir ekki einkunn. Þá er | hann með 8,04 fyrir sköpulag og virðist hér á ferðinni hestur sem ætti að geta bætt sig á næstu tveimur ár- um. En það voru hryssurnar sem báru uppi sýninguna á Gaddstaðaflötum og mátti þar sjá þær margar prýðis- góðar. Sautján hryssur náðu aðaleinkunn yfir 8,0 og var Hlín frá Feti þar efst með 8,23, en hún er aðeins fimm vetra gömul. Fær hún 9,0 fyrir stökk og 8,5 fyiir tölt, brokk, vilja og geðs- lag og fegurð í reið. Hún fær 8,36 fyrir hæfileika og 8,02 fyrir sköpu- lag. Hlín var sýnd á landsmótinu þar sem hún hlaut 8,43 fyrir hæfileika og er hún því heldur að lækka nú. En það voru fleiri hryssur frá Feti sem létu verulega að sér kveða á Gaddstaðaflötum. Bóndinn þar á bæ, Brynjar Vilmundarson, átti þrjár efstu hryssurnar í fjögurra vetra flokki og allar voru þær sýndar á landsmótinu. Tvær þeirra eru að hækka og Framtíð frá Feti mest, sem fer úr 7,95 fyrir hæfileika í 8,31. Surtsey sem varð í öðru sæti hækk- aði úr 8,06 í 8,25 fyrir hæfdeika. Bára frá Feti sem varð í þriðja sæti lækk- ar hinsvegar frá landsmóti úr 7,85 í 7,78 fyrir hæfileika. En þær tróna þarna á toppnum þessar dömur og má segja að enn ein skrautfjöðrin sé komin í hatt Brynjars bónda. Kirkjubæjarhryssur komu einnig nokkuð við sögu á þessari sýningu. Ein þehra, Rut frá Kh-kjubæ, stóð efst í flokki sjö vetra hryssna og eldri, en hún er undan þeim frægu hryssu Rakel frá Kirkjubæ sem gerði garðinn frægan á landsmótinu á Þingvöllum 1978 er hún stóð efst hryssna sex vetra og eldri. Rut minnir mjög á móður sína í fasi og framgöngu. Allar einkunnir utan fets, réttleika og hófa eru yfir 8,00 og fær hún til dæmis 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og fótagerð. Þá bar það til tíðinda á sýningunni nú að tvær hryssur fengu 9,5 fyrir háls, herðar og bóga. Voru það Þykkja frá Hólum sem er undan þeim umdeilda hesti Vafa frá Kýr- holti og gæðahryssunni Þrennu frá Hólum. Hlaut hún 8,52 fyrir sköpu- lag en 9,0 fyrir prúðleika. Líkt og hjá föður hennar eru hæfileikarnir ekki eins ríkulega skammtaðir og fegurð líkamsbyggingar en hún fær 7,75 sem er í góðu lagi. Hin hryssan sem hlýtur 9,5 fyrir frambyggingu er Stund frá Stekkum og hlýtur hún 8,53 fyrir sköpulag. Hún er undan Páfa frá Stekkum sem var undan Galdri frá Sauðárkróki. Stund er eins og Þykkja ekki mjög atkvæðamikil í hæfileikum, fær, 7,36 en hún er skeiðlaus. En það er alltaf áhugavert þá sjaldan að dómarar flagga 9,5 fyrir frambyggingu. Þá vekur það athygli hversu lítið af lélegum hrossum kom nú fyrir dóm. Aðeins þrjú hross hlutu ein- kunn undir 7,0 fyrir hæfileika sem þykir merkilegt á tímum aukinnar teygni í einkunnagjöf. Einkunnir efstu hrossa eru birtar undir liðnum hestar á íþróttavef á mbl.is. Tvær hryssur náði þeim ágæta árangri að fá 9,5 fyrir háls og herðar og var önnur þeirra Þykkja frá Hólum sem hér fer ásamt knapanum Magnúsi Bene- diktssyni. KIRKJUSTARF djl 1 I Hallgrímskirkja Safnaðarstarf Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænarefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Fella- og Hólakirkja. Samverustund með litlu börnunum kl. 10-12. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn, Strand- bergi, kl. 17-18.30. Frfkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára börn. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. TTT, tíu-tólf ára starf, alla þriðjudaga kl. 17- 18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15-19. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn- ir. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á þriðjudögum kl. 10-12. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu- skóli í kvöld kl. 20. Platon frá Sauðárkróki sem nú er kominn með fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi fer hér (lengst til vinstri) ásamt hópnum sínum. I I I Olympíumótið hafíð í Maastricht Góð byrjun hjá íslenska liðinu BRIDS Maastricht ÓLYMPIUMÓTIÐ Ólympíumótið í brids er haldið í Maastricht í HoIIandi dagana 27. ágúst til 9. september. fslendingar taka þátt í opnum flokki. Hægt er að fylgjast með mótinu á Netinu, m.a. á slóðinni: www.bridge- olympiad.nl ÍSLENSKA landsliðið byrjaði vel á Ólympíumótinu í brids sem hófst á sunnudaginn. Liðið vann Afríkuríkið Botswana í fyrsta leikn- um, 25-0, vann síðan Nýja-Sjáland í annarri umferð, 25-5, og Kínverja í þeirri þriðju, 18-12. Þetta voru mikilvægir sigrar því Nýsjálend- ingar og Kínverjar eru Iíklegir til að berjast við íslendinga um eitt af fjórum efstu sætunum í riðlinum og þar með sæti í 16 liða úrslitum. Þar er raunar við ramman reip að draga því í riðli íslendinga eru einnig Evrópumeistarar Itala, Norðmenn, Kínverjar, Búlgarar og Argentínu- menn en þessar þjóðir tóku þátt í síðustu keppni um Bermúdaskálina í janúar sl. Eftir þrjár fyrstu umferðirnar voru ítalar efstir í riðli íslendinga með 69 stig. íslenska liðið kom næst með 68 stig, Marokkó hafði 61 stig; Argentína 60 stig og Noregur 55.1 gær spilaði íslenska liðið við Taí- land og Tyrkland. Guðmundur Páll Arnarson fyrir- liði landsliðsins lét þá Magnús Magnússon, Þröst Ingimarsson, Matthías Þorvaldsson og Þorlák Jónsson spila fyrsta leikinn. Þeir spiluðu hann feikivel, að sögn Guð- mundar því þótt Botswana sé ekki í hópi bestu bridsþjóða heims, kunnu liðsmennirnir í Maastrict ágætlega að spila. Þeir lentu þó í spaugileg- um misskilningi í þessu spili, þar sem Þröstur sýndi fram á að það þarf ekki að spila slemmu á hætt- unni til að skora 1430: Suður gefur, enginn á hættu Noj-ður * A9 v 6 * K652 * A98432 Vestur Austur * KDG3 * 8754 v K10973 »842 ♦ 108 ♦ D9 *KD + G765 Suður ♦ 1062 VÁDG5 ♦ ÁG743 *10 Við annað borðið voru sagnir ekki langar. Þröstur í suður opnaði á 1 tígli, vestur doblaði, Magnús í norð- ur redoblaði og það var lokasamn- ingurinn! AV lentu í algengum mis- skilningi um þýðingu pass austurs. Sumir nota pass í þessari stöðu til að sýna að þeir séu tilbúnir til að spila 1 tígul redoblaðan en aðrir að viðkomandi hafi ekki frá neinu sér- stöku að segja. Austur var greini- lega af síðari skólanum en vestur af þeim fyrri þótt margir í sömu stöðu hefðu nú væntanlega flúið í 1 hjarta. Vestur spilaði út spaðakóng sem Þröstur tók með ás. Hann tók nú hjartaás og spilaði hjartadrottn- ingu og henti spaða í borði þegar vestur lét lítið. Næst tók hann laufaás, trompaði lauf, tígulás og tígulkóng, tromaði lauf, trompaði spaða í borði, trompaði lauf og átti síðan eftir eitt tromp í blindum sem innkomu á frílaufin. 13 slagii' og 1430. Eins og sést er hálfslemma góður samningur og alslemman vinnst ef hún er sögð og fyrir hana fengjust 1440. Þröstur var því nokkuð spenntur þegar kom að samanburð- inum en í Ijós kom að við hitt borðið spiluðu NS 3 grönd sem í raun hengu á mjóum þvengjum en unn- ust samt; en íslendingar græddu 14 stig. Varist á opnu borði Guðmundur Páll ákvað að treysta á dagsform fjórmenninganna sem spiluðu leikinn við Botswana og lét þá því halda áfram gegn Nýja-Sjá- íandi. Þetta reyndist farsæl ákvörð- un því leikurinn vannst, eins og áð- ur sagði, 25-5. Magnús og Þröstur virtust spila vörnina í þessu spili á opnu borði: Austur gefur, enginn á hættu Vestur Norður * DG103 » DG * 5865 * Á83 Austur * 87542 * K6 »Á10 ¥ 97432 ♦ Á74 ♦ G1093 * K62 * G4 Suður * Á9 v K865 * K2 * D10972 Þeir Magnús og Þröstur nota nokkuð óagaðar opnanir á 2. sagn- stigi og í samræmi við það opnaði Þröstur með austurspilin á 2 veik- um hjörtum; engin ósannindi þar! Eftir tvö pöss enduropnaði norður, Steven Henry, á dobli og suður, Steven Blackstock, stökk í 3 grönd sem varð lokasamningurinn. Magnús treysti opnun Þrastar greinilega takmarkað því hann spil- aði út spaðafjarkanum. Sagnhafi lét þristinn í borði, Þröstur stakk upp kóng og ásinn átti slaginn. Þetta virtist ekki vera góð byrjun fyrir vömina en annað átti eftir að koma í ljós. Sagnhafi fór nú í laufið, spilaði laufi á ásinn og Þröstur lét gosann undir. Sagnhafi spilaði þá laufi á drottningu og Magnús gaf en tók næsta slag á kóng. Hann spilaði spaða á tíuna í blindum og sagnhafi tók spaðaslagina sem þar voru og henti hjörtum heima og sama gerði Þröstur. Nú þurfti sagnhafi að kom- ast heim þar sem laufslagirnir biðu. Hann spilaði hjartadrottningunni og yfirdrap með kóng, en Magnús drap, tók spaðaslaginn og spilaði sig út á hjarta. Sagnhafi reyndi þá að fara heim á tígulkóng en aftur drap Magnús á ás og spilaði tígli og vörnin var komin með 5 slagi, 50 tii íslands. Nýsjálendingar hafa alltaf haft gaman af því að finna upp óvenju- legar sagnvenjur. Við hitt borðið dró austur eina slíka upp úr örva- mælinum og opnaði á 2 laufum, sem sýndu veik spil, að minnsta kosti 4- lit í hjarta og að minnsta kosti 4-lit í öðrum lit. Matthías í suður hafði ekkert við það að athuga og vestur ákvað að passa einnig frekar en spila e.t.v. 2 hjörtu á 4-2 samlegu. Þorlákur í norður hafði heldur ekk- ert við þennan samning að athuga og því spilaði austur 2 lauf, fékk 4 slagi en Islendingar 200 og græddu 6 stig á spilinu. Guðm. Sv. Hermannsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.