Morgunblaðið - 29.08.2000, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 29.08.2000, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Hjartkær móðir okkar, ÞÓRUNN ÁSGEIRSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést aðfaranótt laugardagsins 26. ágúst. Börn hinnar látnu. + Eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, MAGGÝ I. FLÓVENTSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 45, andaðist á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, í gær, 28. ágúst. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigurður Þ. Tómasson, Ebba Sigurðardóttir, Ólafur Skúlason barnabörn og langömmubörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ÁSDÍS G. JESDÓTTIR, Laugarásvegi 47, Reykjavík, sem andaðist þann 23. ágúst sl. verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 31. ágúst kl. 13.30. Þorsteinn Einarsson, Jes Einar Þorsteinsson, Hildur S. Þorsteinsdóttir, Ágúst Þorsteinsson, Guðni Þorsteinsson, Ásdís Þorsteinsdóttir, Sólveg Þorsteinsdóttir, Guðríður Þorsteinsdóttir, Eiríkur Þorsteinsson, Gísli I. Þorsteinsson, Soffía Þorsteinsdóttir, barnabörn og Ragnhildur Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurðsson, María Hjálmarsdóttir, Elín Klein, Gunnar Valtýsson, Ólafur G. E. Sæmundsen, Hulda Halldórsdóttir Elín V. Hallvarðsdóttir, Daði Guðbjörnsson, barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR H. KRISTINSSON f.v. hitaveitustjóri, Stekkjarflöt 15, Garðabæ, lést á St. Jósefspítala aðfararnótt sunnu- dagsins 27. ágúst. Útför fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 1. september kl. 13.30. Gunnar I. Birgisson, Þórarinn Sigurðsson, Kristinn H. Gunnarsson, Sigrún B. Gunnarsdóttir, Karl Á. Gunnarsson, Guðrún J. Gunnarsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Hafsteinn H. Gunnarsson, Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir, Vigdís Karlsdóttir, María Sif Sveinsdóttir, Elsa Friðfinnsdóttir, Hjörleifur Ingólfsson, Guðlaug Bernódusdóttir, Bjarki V. Guðnason, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN F. HANNESDÓTTIR, Vallargötu 6, til heimilis á Suðurgötu 15—17, Keflavík, lést að morgni 28. ágúst. Guðrún K. J. Ólafsdóttir, Ásgeir Einarsson, Jane M. Ólafsdóttir, Arnbjörn Ólafsson, Guðjón G. Ólafsson, Bára Ólafsdóttir, Sigríður K. Ólafsdóttir, Særún Ólafsdóttir, Reynir Ólafsson, Guðmundur Ólafsson, Jóna Ólafsdóttir, Marin Marelsdóttir, Ellert Pétursson, Guðmundur Ingólfsson, Anna Lilja Gestsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ODDNÝ SOFFÍA INGVARSDÓTTIR + Oddný Soffía Ingvarsdóttir, fyrrverandi borgar- fulltrúi og hús- freyja, fæddist 17. júnf 1903 á Gaul- verjabæ í Flóa. Hún lést í Skógarbæ hinn 19. ágúst sl. Foreldr- ar hennar voru sr. Ingvar G. Nikulás- son, f. 16. oktdber 1866, d. 14. nóvem- ber 1951, prestur í Gaulverjabæ og síð- ar á Skeggjastöðum við Bakkafjörð, og kona hans, Júlía Guðmundsdóttir, f. 4. júlí 1867, d. 29. maí 1934, Brynjólfssonar hreppstjóra á Keldum. Systkini Soffíu voru: Ing- unn Júlfa, prestsfrú á Desjarmýri f. 12. aprfl 1895, d. 19. júní 1982 og Helgi, yfirlæknir á Vífilsstöð- um, f. 10. október 1896, d. 14. aprfl 1980. Soffía Ingvarsdóttir giftist 3. október 1925 Sveinbirni Sigur- jdnssyni magister er lengi var skólastjóri Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar, f. 5. október 1899, d. 26. mars 1990. Foreldrar hans voru Sigurjón Einarsson, bóndi Efra- Sýrlæk, Villingaholts- hreppi, og kona hans, Guðrún ísleifsdóttir. Þau hjónin, Soffía og Sveinbjörn, eignuðust tvær dætur: I.) Júliu, kennara og leiðsögu- mann, f. 29. ágúst 1931, d. 21. október 1984. Hún var gift Baldvini Tryggva- syni, sparisjóðsstjóra, f. 12. febrúar 1926. Þeirra synir eru: A) Sveinbjörn Ingvar rit- höfundur, f. 27. ágúst 1957, kvæntur Jónu Finnsdóttur, framkvæmdastjóra Listaháskóla Islands, f. 5. maí 1955. Börn þeirra eru: 1) Arna Vala, f. 26. september 1980, 2) Baldvin Kári, f. 10. maí 1983, 3) Finnur Sigurjón, f. 13. desember 1991. 2 B) Tryggvi Marteinn, tón- skáld, f. 4. ágúst 1965, kvæntur Vilborgu Rósu Einarsdóttur, kennara, f. 4. febrúar 1964. Börn þeirra eru: 1) Sveinbjörn Júlíus, f. 6. febrúar 1984, 2) Einar Sverrir, f. 23. febrúar 1988, 3) Baldvin Ingvar, f. 8. desember 1991. II.) Guðrúnu viðskiptafræðing, f. 3. október 1937. Hún er gift dr. Arn- Hún Soffía frænka er látin hátt á tírasðisaldri. Hún Soffía var eftirlæt- isfrænkan mín, alltaf svo hress og kát og alltaf að hvetja mann til dáða. Hún var svo jákvæð og sá hlutina alltaf í því Ijósi. Eg minnist þess þegar ég var að stíga fyrstu skrefin mín í Alþýðu- flokknum hvernig hún hvatti mig áfram og gaf sér tíma til að ræða við mig ungan og áhugasaman og eftir að ég var orðinn bæjarfulltrúi þá hringdi hún og spjallaði um heima og geima og hafði mikil áhrif á mig sem jafnaðarmann. Fyrir þá umhyggju verð ég alltaf þakklátur. Soffía var ömmusystir mín og mér er ofarlega í minni þegar ég sá þau síðast öll saman systkinin Ingunni ömmu mína, Helga yfirlækni á Víf- ilsstöðum og Soffíu í boði hjá for- eldrum mínum. Þau voru svo falleg, svo glæsilegir fulltrúar sinnar kyns- lóðar tígulleg á velli og staðföst í lund. Á milli fjölskyldu Soffíu og for- eldra minna voru mjög sterk bönd ekki bara ættartengsl heldur líka pólitísk og þegar við bjuggum á Víf- ilsstöðum komu Soffía og Sveinbjöm oft þangað með stelpurnar Lólí og Gunnu í heimsókn bæði til okkar og fjölskyldu Helga læknis. Við fórum líka oft á Smáragötuna og ógleyman- legar verða stundirnar milli jóla og nýjárs á Smáragötunni þegar spilað var púkk og meðlætið ómælt og allt heimatilbúið, það er fátt í minning- unni sem jafnast á við þær stundir. Þá má ekki gleyma öllum ferða- lögunum sem farin voru í gamla daga en Soffía og Sveinbjörn eignuð- ust bíl á undan foreldrum mínum og buðu okkur oft í bíltúra og var þá farið á Þingvöll og víðar og í sumar- bústaðinn þeirra Múla í Mosfells- sveit og þar var nú gaman að vera. Við systkinin á Vífilsstöðum gleymum heldur aldrei þegar Soffía kom með jólagjafirnar neðan úr Reykjavík, og þegar við vorum lítil þá tengdist Soffía jólunum okkar. Guðrún móðir mín og Soffía voru miklar vinkonur og höfðu náið sam- band fram á síðasta dag og ég veit að það er mikill missir fyrir mömmu að sjá á eftir Soffíu frænku sinni, sem hún mat svo mikils. Með Soffíu er horfínn á braut einn af brautryðjendum Alþýðuflokksins, kona sem var í hjarta sínu jafnaðar- maður. Hvar sem Soffía fór var hún hrókur alls fagnaðar, hún var svo glaðlynd ogjákvæð. Fyrir hönd móður minnar og fjöl- skyldu þakka ég samfylgdina, allar góðu stundirnar og fyrir allan stuðn- inginn í gegnum tíðina. Elsku Gunna og Arnþór, Þrándur, Soffía, Sveinbjörn og Tryggvi við sendum ykkur og fjölskyldum ykkar okkar innilegustu samúðaróskir við fráfall yndislegrar frænku. Ingvar Viktorsson. Soffía Ingvarsdóttir var hug- sjónakona og stjórnmálamaður. Hún starfaði ötullega að félagsmálum og leitaðist þannig við að láta gott af sér leiða fyrir íslenska alþýðu. Það er eðlilegt og rétt að halda slíku til haga þegar fólk er kvatt hinsta sinni. Þessa ósérhlífnu baráttukonu þekkti ég ekki, en það dregur auðvitað ekki úr stolti mínu yfir að teljast til af- komenda hennar. Eg þekkti bara Ommu Soffíu sem alla tíð hafði barnslegt yndi af því að hlæja og bregða á leik og var ekki síður leikfé- lagi minn en barnfóstra þegar ég var strákur. Fullorðið fólk af því tagi er ekki ýkja algengt í heimi bernskunn- ar. Það er því ekkert skrýtið, eftir á að hyggja, að Amma Soffía öðlaðist sess sólarinnar í því kerfí af plánet- um, fylgitunglum, loftsteinum og fjarlægum stjörnum sem venjulega er kallað fjölskylda, ættingjar og vinir. Hús hennar og afa á Smára- götu og garðurinn sunnan við það voru í ýmsum skilningi kjarni, öxull og þungamiðja í lífí okkar frekar fá- mennu stórfjölskyldu. + Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, MÁLFRÍÐUR ERLINGSDÓTTIR, Holtsgötu 27, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugar- daglnn 26. ágúst. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda, Þórey Ragnarsdóttir, Svavar Borgarson, Sólrún Hlöðversdóttir. þóri Garðarssyni prófessor, f. 6. júlí 1938. Þeirra börn eru: Soffía, doktor í líffræði, f. 28. september 1960. B) Þrándur, tölvunarfræð- ingur, f. 18. júlí 1963, kvæntur Álfheiði Ólafsdóttur, grafískum hönnuði, f. 22. febrúar 1963. Þeirra börn eru: 1) Guðni Þór, f. 16. mars 1989, 2) María Rún, f. 28. ágúst 1995. Soffia stundaði nám við Gagnfræðaskólann á Akureyri 1916-1917 og brautskráðist úr Kvennaskólanum í Reykjavík 1921. Hún var húsfreyja í Reykja- vík en lét þjóðfélagsmál sig miklu varða. Hún var borgarfulltrúi í Reykjavík fyrir Alþýðuflokkinn 1938-1946 og varaborgarfulltrúi 1962-1966. Varaþingmaður var hún 1949-1953 og sat um hríð á Alþingi. Soffía var ritari Kvenfé- lags Alþýðuflokksins í Reykjavík frá stofnun 1937 og formaður þess 19431967 og var kjörin heiðursfé- lagi þess. Soffía átti sæti í mið- stjórn Alþýðuflokksins 1938-1967 og gegndi ýmsum öðrum trúnað- arstörfum fyrir flokkinn. Hún sat í stjórn Sjúkrasamlags Reykjavík- ur 1954-1974, í stjórn Kvenrétt- indafélags íslands 1948-1956 og í stjórn Bandalags kvenna í Reykja- vík 1962-1976. Hún ritstýrði kvennasíðu Alþýðublaðsins um skeið og samdi nokkrar smásögur sem birst hafa í tímaritum. títför Soffíu Ingvarsdóttur fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ég þekkti Fíu, Reykjavíkurbarnið með músarhjartað, sem þriggja ára hljóp grátandi inn í bæjarhús austur á Skeggjastöðum af ótta við lamb sem litið hafði til hennar. Það var sama Soffía sem lagði það á sig til að komast hjá því að æfa sig á orgelið í kirkjunni á Skeggjastöðum, að stinga berum fíngrunum í snjóskafl þar til hana verkjaði af kulda, hlaupa svo inn og leggja blákalda puttana á hálsinn á móður sinni svo hún fyndi hvað kalt væri í guðshúsinu og mikil óhæfa að láta barnið fórna heilsunni fyrir nokkra dúrskala. Þessi Soffía sagði sem sagt sögur úr bernsku sinni sem ekki voru endi- lega sveipaðar uppeldislegum ljóma dugnaðar, elju og matarlystar, eða bjuggu yfir lærdómi um varkárni í umgengni við hnífa og skæri. Þær voru þvert á móti um krakka að reyna að fóta sig í tilverunni og hittu algerlega í mark. Ég þekkti Ommu Soffíu sem gerði hverja máltíð manns á heimili hennar að ævintýri með því að leggja á borð með þeim hætti sem sómt hefði sér vel í verki eftir Salvador Dali: Gaffall á stærð við litlafíngur, verklegt skrúfjárn í staðinn fyrir hníf, sleif á stærð við undirskál fyrir ofan diskinn, sem gat þess vegna verið áletraður platti frá Kvenfélagi Alþýðuflokksins. Auðvit- að var svo hápunkturinn á öllu sam- an þegar ég fékk að taka þátt í þessu samsæri ímyndunaraflsins gegn hversdagsleikanum og leggja svona á borð fyrir afa og pískra og hlæja með ömmu frammi í eldhúsi yfir því hvernig honum yrði við, þegar hann settist að snæðingi. Satt að segja held ég, að hefði amma ekki haft þennan húmor og glettni til að bera, hefði Smáragötu- sólkerfið vissulega verið góður samastaður í tilverunni, en fremur þögull og alvörugefinn. Á þeim tíma sem liðinn er frá upp- hafi kunningskapar okkar ömmu, hef ég líkt og aðrir yfirgefið bernskusólkerfið og fundið nýjar sólir og sporbauga. Plánetur hafa breyst í sólir, nýjar stjörnur lifnað, aðrar slokknað. Lengst af hefur þó verið auðvelt að greina gamla sól- kerfið á festingunni, þó ekki væri nema af birtunni frá sólu þess. Nú nýtur hennar ekki lengur og því skýrara en áður að ekki verður aftur snúið. En innra með mér mun ylur- inn lifa, líkt og með öðrum þeim sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Ommu Soffíu. Sveinbjörn I. Baldvinsson. Það eru liðin tæp 50 ár frá þvi að ég smeygði mér inn í líf fyrrverandi tengdaforeldra minna, þeirra Sveinbjarnar Sigurjónssonar og Soffíu Ingvarsdóttur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.