Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 10

Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðherra og hagsmunaðilar ósáttir við skýringar forstjóra Baugs á háu matvöruverði Gagnrýnin stenst ekki nánari skoðun Landbúnaðarráðherra, formaður Félags ís- lenskra stórkaupmanna og talsmaður Eimskips vísa á bug gagnrýni Jóns Asgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs, sem hann setti fram í viðtali í Morgunblaðinu um helgina. Landbúnaðarráðherra segir að frjálsræði og samkeppni í landbúnaði hafí aukist mikið á síðustu árum. GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð- herra er afar ósáttur við þær full- yrðingar Jóns Ásgeirs Jóhannesson- ar, forstjóra Baugs, um að íslenska landbúnaðarkerfið sé stærsta vandamálið sem við er að glíma varðandi verðmyndun á matvöru hérlendis og að rök hans standist ekki við nánari skoðun. í svipaðan streng tekur Haukur Þór Hauksson, stjórnarformaður Félags íslenskra stórkaupmanna, en hann segir að ekki sé hægt að kenna heildsölukerf- inu um háa verðlagningu á matvöru. Þórður Sverrisson, framkvæmda- stjóri ílutningasviðs Eimskips, segir að flutningskostnaður til Islands hafi lækkað verulega síðustu áratugi og að ekki sé hægt að bera saman flutningsverð til og frá Asíu við verð á flutningum innan Evrópu. I viðtali Morgunblaðsins við for- stjóra Baugs í fyrradag kom m.a. fram að hann teldi að með tilliti til verðmyndunar á matvælum hér- lendis væri íslenskur landbúnaður „stærsta vandamálið sem við er að glíma“, og að Islendingar þyrftu að greiða 6,2 milljarða í hærra vöru- verði vegna innflutningshafta. Jón Ásgeir sagði jafnframt að ýmislegt væri gagnrýnivert í landbúnaðar- kerfinu og að skýrsla OECD um landbúnað í aðildarríkjunum sýndi að aðeins 25 kr. af hverjum 100 kr. skili sér til bóndans sem renna til styrkveitinga í landbúnaði hér á landi. Þá benti hann á að innkaups- verð á íslensku lambalæri í Bónusi og Hagkaupi hér á landi væri 400 kr., á meðan hann keypti íslenskt lambalæri í Bónusi í Færeyjum á 150 kr. kg. Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra sagðist í viðtali við Morg- unblaðið vera mjög undrandi á við- talinu við forstjóra Baugs og að ekki stæði steinn yfir steini þegar kafað væri ofan í þær fullyrðingar sem þar koma fram. „Hann er að reyna að láta í veðri vaka að hér sé gamla kerfið ennþá uppi sem var á Islandi fyrir tíu ár- um. Það er búið að breyta hér öllu umhverfinu en hann virðist ekki hafa fylgst það vel með að hann átti sig á því.“ Varan margfaldast í höndum á versluninni Guðni segir að útflutningsupp- bætur á lambakjöti hafi verið aflagð- ar fyrir níu árum og því sé ekki hægt að kaupa íslenskt lambalæri á 150 krónur í Færeyjum. Þegar skrokk- urinn fari frá Islandi sé fob-verðið 230-250 kónur og segir Guðni að þá liggi fyrir að hann fái ekki lamba- lærið á minna en 350-400 krónur í Færeyjum. Að sögn Guðna er það einnig rangt að hér innanlands fái hann lambalærið á 400 krónur því það fari á um 550 krónur. „Þannig að ég skora á hann að sýna okkur út- færsluna á þessu. Ef hann hefur efni á því að gefa Færeyingum íslenskt lambakjöt þá hlýtur hann að vilja gefa sinni þjóð íslenskt lambakjöt." Ráðherra segist hafa rekist á það nýlega að rauðkál væri helmingi ódýrara í Kaupmannahöfn en á Is- landi og ekki hafi íslenskir bændur komið að þeirri verðmyndun. „Við sjáum að sú vara sem þeir flytja hér inn á heimsmarkaðsverði, hún margfaldast hér í höndunum á íslensku versluninni. Ef ég skoða álagninguna hér þá er það enginn vafi að þessi keðja þeirra er að leggja á 40-80% álagningu. Kart- öflubóndinn er að selja sínar kartöfl- ur á 3040 krónur en það er verið að selja kartöflurnar út á 150 krónur. Þannig má áfram telja.“ Að sögn Guðna er það viðurkennt nánast af öllum stjórnmálamönnum í dag að hafi einhvers staðar sést að ríkið hafi sparað sér peninga, þá sé það í íslenska landbúnaðarkerfinu. „Við höfum gengið hér í átt til þess að opna og flytja inn o.s.frv., þannig að hér er bullandi samkeppni hvað það varðar og mikil breyting orðið á síðustu ánjm.“ Ráðherra bendir á að nú sé verið að flytja inn 50% af allri þeirri orku sem neytt sé í matvælum og að stór hluti af því sé fluttur inn tollfrjálst. Hann bendir jafnframt á að Evrópu- sambandið sé með tolla á öllum mat- vörum sem þangað eru fluttar inn, nema það sé sérstaklega um það samið, og að það sé bara barnaskap- ur að gefa í skyn að það sé sérís- lenskt fyrirbæri að ákveðnir vernd- artollar eða verðtollar séu lagðir á til að jafna framleiðslu og framboð og eftirspurn. Brýnt að ljúka við úttekt á verðmyndum matvöru Landbúnaðarráðherra segir að miklar breytingar hafi orðið á síð- ustu árum á landbúnaðarkerfinu og nefnir sem dæmi beingreiðslur til að lækka vöruverð. „Þær renna beint til bænda þannig að ég rengi mjög það sem hann er að fullyrða um að stuðningur fari ekki beint til bænda. Langstærsti hluti þess sem hér rennur í beinum krónum frá ríkinu fer til mjólkurframleiðenda og sauð- fjárbænda og það fer beint til bænd- anna sem lækkar vöruverð til neyt- enda,“ segir Guðni. „Og svo leyfir hann sér að kvarta yfir því að selja mjólkurvörurnar og að verið sé að gefa með þeim. Það var mesta baráttumál kaupmanna fyrir stuttu síðan að fá þetta í sínar hendur, sem þeir fengu eðlilega. En það þarf enginn að segja mér að þeir tapi á því. Ég tel brýnt að ríkisstjórnin ljúki sem fyrst þeirri úttekt sem hún er að gera á því hvernig matvælaverðið verður til. Það held ég að sé mjög mikilvægt, og þá ætti sannleikurinn að koma í Ijós, bæði um innflutt mat- væli og ekki síður það sem hér er framleitt," sagði landbúnaðarráð- herra. Landssamtök sláturleyfishafa sendu Morgunblaðinu tilkynningu í gær vegna staðhæfinga sem fram komu í viðtali við forstjóra Baugs í blaðinu um verð á íslenskum lamba- lærum á íslandi og í Færeyjum. I til- kynpingunni segir: „í viðtalinu kom fram að verð til Færeyja væri 150 kr/kg og 400 kr/ kg hér á landi. Þetta er ekki rétt. Hið rétta er að lægsta söluverð á lærum til Færeyja sem kunnugt er um er 370 kr/kg cif í Færeyjum. Sambærilegt innkaupsverð í magn- viðskiptum hér á landi er um 560 kr/ kg. Hvorutveggja eru tölur án vsk. Verð í Færeyjum hefur lækkað undanfarin ár og hefur útflutningi af þeim sökum verið beint í auknum mæli til annarra markaða sem skila hærra verði. Vegna smæðar mark- aðar og aðstæðna hér á landi geta innlendir framleiðendur ekki keppt í verði einu við verksmiðjubúskap annan-a landa. Rök um matvælalegt sjálfstæði þjóðarinnar og nýtingu innlends hráefnis og vinnuafls styðja vernd gegn óheftum innflutn- ingi. Á það má benda að smásöluálagn- ing nokkurra vöruflokka kjötvara er „rífleg", um eða yfir 40%. Það er því nærtæk leið og fljótleg að lækka verð þessara vara,“ segir í tilkynn- ingunni. Enginn verslar við íslenska heildsala af greiðasemi Forstjóri Baugs sagði í viðtalinu við Morgunblaðið að ein af ástæðum þess að verðlag á matvöru sé hærra hérlendis en víða í nágrannalöndun- um sé ma. dýrt heildsölukerfi, þar sem heildsalar hérlendis hafi verið að taka að sér 12-15% meira til um- sýslu en birgjar erlendis. Hann benti jafnframt á að kostnaður Baugs við að taka innflutta vöru frá skipi og dreifa henni í verslanirnar væri 3-4% samanborið við 15% kostnað hjá birgjum. Haukur Þór Hauksson, stjórnar- formaður Félags íslenskra stór- kaupmanna, segir þessar fullyrðing- ar einfaldlega ekki réttar. Að sögn Hauks er Jón Ásgeir að fara í sama knéfarið og hann hafi gert alla tíð, sem er að kenna öðrum en sjálfum sér um hátt matvöruverð hérlendis. „Heildverslanirnar eru í rauninni bara í samkeppni við heildsölur ann- ars staðar á Norðurlöndum og í Evrópu. Það er enginn að versla víð íslenska heildsala af einhverri greiðasemi. Baugur verslar við þessa heildsala og kaupir af þeim yf- ir 90% af öllum sínum aðföngum, vegna þess að það er hagstætt og hann fær þessar vörur ekki ódýrari. Það er eina ástæðan.“ Haukur segir að íslenskar heild- verslanir í dag markaðssetji vörurn- ar, hafi vöruna á lager og fjármagni hana að stórum hluta og raði jafnvel vörunni upp í hillur í verslunum. „íslenska heildsölukerfið er í sjálfu sér bara ósköp svipað og heildsölukerfi víðast annars staðar, nema hvað að hlutverk þess í þessari keðju frá framleiðanda til neytanda er í rauninni viðameira heldur en er- lendis. Þannig að ég vísa því alger- lega á bug, að heildsala hérlendis hafi meiri áhrif á verðlag en eðlilegt getur talist.“ Flutningskostnaður lækkað um helming á tveimur áratugum Jón Ásgeir sagði jafnframt í við- talinu að flutningskostnaður til landsins væri tiltölulega dýr og benti í því samhengi á að dýrara sé að senda frakt frá Hamborg til Is- lands heldur en á markaði í Asíu og að slíkt skili sér inn í vöruverðið hér- lendis. Þórður Sverrisson, framkvæmda- stjóri ílutningasviðs Eimskips, segir að flutningskostnaður til Islands hafi lækkað mikið á síðustu einum til tveimur áratugum. Hann segir mun eðlilegra að bera saman flutnings- kostnað frá Hamborg til Islands við flutningskostnað til staða innan Evrópu. „Varðandi flutninga til og frá Asíu má nefna að þar nýta menn hag- kvæmni stærðarinnar. Til og frá As- íu er verið að flytja sex til átta þús- und gáma í ferð á meðan stærstu skipin okkar eru að flytja sex til átta hundruð gáma. Einnig má nefna að í flutningum til og frá Asíu er mikið jafnvægi í flutningum, en hér er tals- vert ójafnvægi. Það er mikill inn- flutningur á þurrvöru og síðan mjög sveiflukenndur útflutningur á frysti- og kælivöru og sjávarafurðum, sem veldur því að við erum með allt ann- að flutningaferli heldur en til Aust- urlanda fjær.“ Þórður segir að mikil samkeppni ríki á flutningamarkaðinum í Evr- ópu en að Eimskip séu rekin á ágæt- lega hagkvæman hátt og því sé flutningskostnaður hingað sambæri- legur við það sem gerist víða annars- staðar í Evrópu. „En það er aftur rétt sem Jón Ás- geir segir, að flutningsgjöldin hafa áhrif á vöruverðið og Eimskip hefur lækkað flutningskostnað til landsins á liðnum tveimur áratugum um meira en helming. Það hefur allt komið fram í lægra vöruverði í versl- unum eins og hjá Baugi.“ Forstjóri Baugs sagði í samtalinu við Morgunblaðið að fyrirtækið nyti ekki með eðlilegum hætti afsláttar- kjara hjá Mjólkursamsölunni og Osta- og smjörsölunni, og sagði m.a. að íslensku framleiðsluna skorti til- finnanlega aðhald og samkeppni. Guðlaugur Björgvinsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar, sagðist á þessu stigi ekki vilja tjá _sig um um- mæli Jóns Ásgeirs. í svipaðan streng tók Magnús Ólafsson, for- stjóri Osta- og smjörsölunnar, og sagðist vilja skoða málið nánar áður en slíkum fullyrðingum yrði svarað. Versliinarmið- stöð á Netinu Morgunblaðið/Sverrir Valgerður Sverrisdtíttir opnaði í gær netverslunarmiðstöð. Ásgeir Frið- geirsson fylgist með. VALGERÐUR Sverrisdóttir iðnað- ar- og viðskiptaráðherra opnaði í gær fyrstu íslensku netverslunar- miðstöðina en hún er samstarfs- verkefni íslandsnets og Nýherja. Ásgeir Friðgeirsson, fram- kvæmdastjóri Islandsnets, sagði að meðal netverja mætti líkja opnun- inni við opnun Kringlunnar á sínum tíma. Valgerður sagði að netverslun yrði án efa hluti af hversdagsleika framtíðarinnar. Netverslunarmið- stöðin er hluti af vefgáttinni strik.is en veffangið er verslun.strik.is. Alls hafa 60 fyrirtæki undÚTÍtað samninga um verslunarrekstur á Strikinu. Sveinn Eyland er verslun- arstjóri. Hann býst við að á næst- unni muni enn fleiri fyrirtæki opna þar verslanir. Sveinn segir að ör- yggismál netverslunarinnar séu í mjög góðu horfi. Hún hafi fengið svokallaða SSL-vottun á greiðslu- kerfi sitt og bæði VISA ísland og Europay hafi farið fyrir öryggismál verslunarmiðstöðvarinnar. Greiðslukerfið er með þeim hætti að verslunareigandinn fær aldrei kortanúmer viðskiptavinarins í hendurnar heldur fær senda stað- festingu á því að greiðsla hafi verið reidd af hendi. Islandspóstur sér síðan um að koma vörunum til skila. Hugbúnaður verslunarmið- stöðvarinnar heitir WepSphere Commerce Suite en Nýherji hf. hef- ur að undanförnu unnið að því að ís- lenska hann og aðlaga hann íslensk- um aðstæðum. Verslanir munu aðeins þurfa nettengda eina tölvu til að geta sett upp verslun á strik,- is. Yfirlýsing frá forstjóra Baugs MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni: „I viðtali við undirritaðan í sunnudagsblaði Morgunblað- ins urðu mér á þau leiðu mis- tök að fara rangt með kílóverð á frosnum íslenskum lamba- lærum til verslana okkar í Færeyjum. Upplýsingar þær sem ég hafði undir höndum voru fyi-ir mistök um inn- kaupsverð á nýsjálenskum en ekki íslenskum lambalærum. Þetta breytir þó í engu meginefni gagnrýni minnar á íslenska landbúnaðarkerfið. Virðingarfyllst, Jón Ásgeir Jóhannesson."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.