Morgunblaðið - 29.08.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 13
AKUREYRI
Lokatónleikar Lista-
sumars 2000
Ólöf Sigríð-
ur syngur
við undir-
leik Helgu
Bryndísar
ÓLÖF Sigríður Valsdóttir, sópran,
syngur við undirleik Helgu Bryndís-
ar Magnúsdóttur píanóleikara á síð-
ustu fagurtónleikum Listasumars
2000 í kvöld, þriðjudagskvöldið 29.
ágúst, sem hefjast kl. 20 í Deiglunni.
Á dagskrá eru verk eftir Marcello,
Verdi, Brahms, Fauré, Poulenc,
Rachmaninov, Dvorák, Sigvalda
Kaldalóns, Sigfús Einarsson og Ey-
þór Stefánsson.
Ólöf Sigríður Valsdóttir er fædd
og uppalin á Akureyri. Hún stundaði
söngnám hjá Sigurði Demetz 1990-
1991. Þaðan lá leið hennar til Italíu,
þar sem hún nam í eitt ár við Con-
servatorio dall’Abaco di Verona hjá
Rina Malatrasi. Árin 1992-1994 og
1996 -1997 stundaði Ólöf Sigríður
nám við Chicago Musical College of
Roosevelt University í Chicago og
útskrifaðist þaðan með gráðuna
Bachelor of Music in Voice Perform-
ance. í Chicago kom hún fram á
ýmsum tónleikum, m.a. með Botti
Opera Studio. Sumarið 1997 sótti
hún námskeið hjá International
Institute of Vocal Árts í Chiari á ítal-
íu og söng þar m.a. á tónleikum helg-
uðum Johannes Brahms. Ólöf Sigríð-
ur sækir nú einkatíma hjá Alinu
Dubik í Reykjavík.
Helga Bryndís Magnúsdóttir lauk
píanókennara- og einleikaraprófí frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík. Eft-
ir það fór hún til framhaldsnáms í
Vínarborg og Helsinki. Hún starfar
við Tónlistarskólann á Akureyri og
kemur reglulega fram sem meðleik-
ari og einleikari. M.a. kom hún fram
sem einleikari með Sinfóníuhljóm-
sveit Norðurlands og Sinfóníuhljóm-
sveit Islandssíðastliðinn vetur.
Tónleikarnir eru sem fyrr segir
lokatónleikar Listasumars á Akur-
eyri og verður Listasumri slitið að
þeim loknum.
----------------
Skipulagsbreytingar
hjá MSKEA og MSKÞ
Ellefu manns
sagt upp
I KJÖLFAR sameiningar mjólkur-
samlaganna MSKEA og MSKÞ
verða gerðar skipulagsbreytingar á
starfsemi hins nýja fyrirtækis. Við
það missa ellefu starfsmenn vinnu
sína, tveir á Húsavík og níu á Akur-
eyri. Að sögn Ágústs Þorbjömsson-
ar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins,
miða breytingarnar að því auka fjár-
festingu og framleiðni fyrirtækisins.
Það eru fjórir mjólkurfræðingar
sem missa störf sín og átta iðnverka-
menn. Ágúst segir að uppsagnirnar
taki strax gildi en starfsfólkið hafí
uppsagnarfrest samkvæmt gildandi
kjarasamningum.
Meðal skipulagsbreytinga er einn-
ig að framleiðsla Gouda flyst til Ak-
ureyrar, sérostagerð og smjörlíkis-
gerð flyst alfarið til Húsavíkur og
átöppun vatns verður lögð niður.
Menningarnótt á Akureyri þótti takast vel
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kveikt var á friðarkertum um alla göngugötuna.
Boðið var upp á hlaupahjólakeppni fyrir yngri kyn-
slóðina.
Mikil
stemmn-
ing
í mið-
bænum
Jenný Valdimarsdóttir leirlistakona var að störfum í Listfléttunni og
gat fólk fylgst með störfum hennar inn um gluggann,
MENNINGARNÓTT á Akureyri
var haldin sfðastliðinn Iaugardag
og að sögn Sigurðar Hróarsson-
ar, talsmanns menningarnætur,
tókst vel til og aðsókn var góð.
„Við sem að þessu stóðum er-
um yfír okkur ánægð. Bærinn var
alveg troðfullur,“ sagði Sigurður.
Hann sagði að aðsóknin hefði far-
ið fram úr björtustu vonum að-
standenda menningarnætur. „Eg
kann nú ekki til hlítar þá reikn-
ingskúnst að gefa upp nákvæman
fjölda fólks í miðbænum um
kvöldið, en menn voru að giska á
að þetta væru um fimm þúsund
manns,“ sagði Sigurður.
Fólkið
tók áskorun
Hann sagði að fólk hefði byrjað
að streyma í bæinn um áttaleytið
og um klukkan níu hefði verið
fjöldi manns saman komin í mið-
bænum og notið þar menningar-
nætur allt til miðnættis og sumir
lengur. „Dagskráin var hvorki
feit né þétt, en ég held að fólk
hafi tekið þeirri áskorun að það
væri sjálft aðalskemmtiatriðið,
stemmningin var mjög góð. Fólk
rölti um og naut þeirra skemmti-
atriða sem í boði voru hverju
sinni." Sigurður sagði einnig að
mikið hefði verið um fjölskyldu-
fólk og taldi hann það sérstak-
lega ánægjulegt. „Fólk mætti
með börnin sín og ég held að al-
yngsta kynslóð Akureyringa hafí
Fjölskyldufólk var í miklum meirihluta í miðbæ Akureyrar á menning
arnótt.
verið fjölmenn. Við reyndum líka
að höfða til barna með því að
bjóða t.d. upp á hlaupahjóla-
keppni og hlaupahjólaorm," sagði
Sigurður.
Menningarnótt
að ári
Hann sagði að nýliðin menning-
arnótt væri aðstandendum átaks-
ins mikil hvatning um að gera
þetta að árlegum viðburði. „Á
næstu dögum munum við sem að
þessu stóðum funda um nýliðna
menningarnótt. Þar verður tekið
fyrir hvað var vel gert að okkar
mati og hvað má betur fara fyrir
menningarnótt á næsta ári,“
sagði Sigurður að lokum.
Hrein-
gjörningur
ANNA Richardsdóttir frem-
ur Hreingjörning á lokadegi
Listasumars, þriðjudaginn
29. ágúst kl 15. Anna hefur
ekki eingöngu þrifið göngu-
götuna á Akureyri, heldur
einnig göngugötuna í
Reykjavik, Ósló, Gautaborg,
Kaupmannahöfn og Viljandi í
Eistlandi. Markmið Önnu er
að taka til í öllum heiminum.
Heimir
Freyr sýnir
í Ketil-
húsinu
HEIMIR Freyr Hlöðversson opnar
Audio-Visual sýningu í Ketilhúsinu,
neðri sal, í dag, þriðjudaginn 29.
ágúst, kl. 16. í þessari sýningu notar
Heimh’ nútíma mynd- og hljóðmiðla
á afar framsækinn hátt. Sýningin
verður opin kl. 16-18 fram til laugar-
dagsins 2. september. Aðgangm’ er
ókeypis.
Heimir Freyr Hlöðversson lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri árið 1996. Hann stundaði
nám í tónmenntakennaradeild Tón-
listarskólans í Reykjavík námsárið
1997-98 og í raftónlist við Tónlistar-
skólann í Kópavogi 1998-99.
Heimir Freyr nemur nú við skóla í
Den Haag í Hollandi. Hann er styrk-
þegi Menningarsjóðs KEA og teng-
ist þessi sýning því verkefni.
--------------
Islands-
klukkan
vígð
ÚTILISTAVERKIÐ, íslands-
klukkan, verður vígt í dag, þriðju-
dag, kl 16:30. Athöfnin fer fram við
Háskólann á Akureyri á Sólborgar-
svæðinu.
Á liðnu ári var efnt til opinnar
samkeppni á vegum Akureyrarbæj-
ar um útilistaverk í tilefni aldamót-
anna, þúsund ára kristni og landa-
funda í Norður-Ameríku. AIls bárust
64 hugmyndir og reyndist Kristinn
E. Hrafnsson myndlistarmaður vera
höfundur þess verks sem valið var.
Verkið ber heitið íslandsklukkan.
Vígsluathöfnin fer fram á afmælis-
degi Akureyrarbæjar og hvetur bæj-
arstjórn Ákureyrar bæjarbúa og
gesti til að mæta við athöfnina og
skoða listaverkið.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum.
Bjóðum eitt mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum.
Hafbu samband
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
Bókaðu í sfma 570 3030 og 460 7000
Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is