Morgunblaðið - 29.08.2000, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Skeljungur hf. kaupir um 90% hlutafjár í Hans Petersen hf.
Láta víðar til sín
taka í viðskiptum
SKELJUNGUR hf. hefur keypt
89,98% hlut af heildarhlutafé í Hans
Petersen hf. Fyrir átti Skeljungur
0,07% í félaginu og á því eftir kaupin
90,05% af heildarhlutafé í félaginu.
Nafnverð heildarhlutafjár í Hans
Petersen hf. er 100.823.450 krónur.
Kaupgengi hins selda hlutafjár var
7,35 og kaupverð því samtals 666,8
milljónir króna. Seljendur hlutabréf-
anna var hópur hluthafa undir for-
ystu Hildar Petersen, stjórnarfor-
manns félagsins, og íslands-
banki-FBA. Samanlagt átti Hans
Petersen fjölskyldan u.þ.b. 54%
hlutafjár í fyrirtaskinu en Islands-
banki-FBA um 35%, sem bankinn
keypti nýverið. Bankinn og Hildur
Petersen áttu samvinnu um sölu á
hlutunum til Skeljungs hf., en bank-
inn hafði milligöngu um samninga á
milli aðila. Áætluð ársvelta Hans Pet-
ersen hf. á þessu ári er áætluð 1,1
milljarður króna.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs hf., segir að stjómendur
Skeljungs hafi í ákveðinn tíma velt
því fyrir sér hvemig félagið gæti látið
til sín taka víðar í viðskiptaheiminum
HAGNAÐUR Þróunarfélags íslands
hf. hækkaði um 175% á milli ára og
var 962 milljónir króna á fyrri helm-
ingi þessa árs. Sérstaka athygli vekur
að raunávöxtun hlutabréfasafns Þró-
unarfélagsins á ársgrundvelli var
96,5% á þessu tímabili á meðan félög-
in á Verðbréfaþingi íslands hækkuðu
um 3% að meðaltali. „Hlutabréfasafn-
ið okkar er mjög ólíkt samsetning-
unni á Verðbréfaþingi," segir Andri
Teitsson, framkvæmdastjóri Þróun-
arfélags íslands hf., „við eigum mjög
mikið í tölvufyrirtækjunum, sérstak-
lega í Opnum kerfum. Það félag eitt
og sér vegur um helming af hluta-
bréfasafni okkar og hefur hækkað um
eitt hundrað prósent frá áramótum,
sem er yfir tvö hundruð prósenta
ávöxtun á ársgrundvelli, þannig að
þar er meginskýringin komin. Hin
hlutabréfin okkar skila óverulegum
hagnaði, líkt og vísitalan í heild.“
Skráð hlutabréf eru færð á
markaðsverði og hið sama á við um
skuldabréfin, en 68 milljóna króna
hér á landi. „Við höfum verið að hasla
okkur völl í smávörusölunni með því
að setja upp Select-stöðvamar og
auka vöruúrval og er því verki ekki
lokið. En þegar við heyrðum af því að
hlutabréfin í Hans Petersen hf. gætu
verið til sölu var margt sem gerði það
að verkum að okkur þótti áhugavert
að festa kaup á þeim. Fyrirtækið er
mjög gott og traust og það hefur ver-
ið vel rekið í gegnum tíðina með
ágætis hagnaði. Og eftir að hafa látið
skoða það ákváðum við að láta til
skarar skríða,“ segir Kristinn.
Til að renna fleiri styrkum
stoðum undir reksturinn
í tilkynningu frá Skeljungi hf. seg-
ir að óskað verði eftir því við Verð-
bréfaþing íslands að Hans Petersen
hf. verði tekið af Vaxtalista VÞÍ og að
Skeljungur muni í framhaldinu óska
eftir innlausn annarra hlutabréfa í fé-
laginu. Þá segir í tilkynningunni að
rekstri Hans Petersen hf. verði hald-
ið áfram undir sama nafni með svip-
uðu sniði og verið hefur. Ekki sé gert
ráð fyrir breytingum í mannahaldi
hjá félaginu umfram það sem eðlilegt
tap varð af þeirri eign á tímabilinu.
Samkvæmt fréttatilkynningu nam
gengishagnaður hlutabréfa alls 1.536
milljónum króna og þar af er óinn-
leystur gengishagnaður 1.167 millj-
ónir króna. Oinnleystur gengishagn-
aður nemur 817 milljónum króna af
962 milljóna króna hagnaði fyrir
skatta.
Þau hlutabréf sem Þróunarfélagið
á og skráð eru á Verðbréfaþingi nema
70% af heildareignum og í fréttatil-
kynningu frá félaginu segir að af-
koma á seinni hluta ársins muni því
ráðast að miklu leyti af þróun á inn-
lendum hlutabréfamarkaði.
Bréf Þróunarfélagsins í deCode
teljast í uppgjörinu til óskráðra bréfa,
en í deCODE á Þróunarfélagið
200.000 hluti. Að sögn Andra er
markaðsvirði þeirra bréfa nú um 200
mUljónum króna yfir bókfærðu verði
og ef verð þeirra helst óbreytt eða
hækkar mun gengishagnaður af þeim
hafa töluverð áhrif á afkomu um
næstu áramót.
megi teljast á tómamótum sem þess-
um. Fyrirhugað sé að boða til hlut-
hafafundar í Hans Petersen hf. á
næstunni þar sem félaginu verði kos-
in ný stjóm.
Ekki miklir stækkunarmögu-
leikar á eldsneytismarkaði
Kristinn Björnsson segir að
olíumarkaðurinn sé frekar stöðugur
markaður og ekki sé mikið um
stækkunarmöguleika fyrir Skeljung
hf. á eldsneytissviðinu. Frekar sé
samdráttur í bensínsölu en hitt. Þótt
bílum fjölgi séu þeir að verða spar-
neytnari og svipað eigi við um fiski-
skipaflotann. Margir af stærstu tog-
urum landsmanna séu mikið að veiða
langt í burtu pg þeir taki því ekki
mikið af olíu á Islandi.
Kristinn segir að innan Skeljungs
hafi á undanförnum árum skapast
þekking á rekstri eins og þeim sem
við eigi hjá Hans Petersen hf., eink-
um og sér í lagi vegna þess að Skelj-
ungur reki margar verslanir þar sem
í boði sé mikið af vörum þótt einnig sé
hægt að fá þar eldsneyti. „Við rekum
allar okkar verslanir, hvort sem það
eru Select-verslanir eða annað, sem
sérstakar hagnaðareiningar, þannig
að við teljum að við kunnum þetta og
getum. Og eftir að við fórum yfir það
hvernig reksturinn hefur verið hjá
Hans Petersen hf. sáum við að það er
ekkert ólíkt því sem við erum að gera
hjá Skeljungi. Við teljum því ákveðna
hagræðingarmöguleika hjá okkur
með þessum kaupum. Þá erum við
með umfangsmikla söludeild sem er
bæði í innflutningi og heildsölu alveg
eins og er hjá Hans Petersen hf. og
þarna sjáum við möguleika á að sam-
hæfa og samræma starfsemina," seg-
ir Kristinn Bjömsson.
Vildi stýra í hvaða
hendur fyrirtækið færi
í yfirlýsingu frá Hildi Petersen,
Bætt
afkoma
Baugs
AFKOMA Baugs hf. fyrir afskriftir
og fjármagnsliði batnaði um 82% frá
fyrra ári og var 759 milljónir króna á
fyrri hluta ársins. Hagnaður eftir
skatta jókst minna eða um 42%.
Skýringarnar eru meðal annars þær
að fjármagnsliðir eru mun óhagstæð-
ari nú og að vegna breytinga á upp-
gjöri birgða til samræmis við það
sem þekkist hjá erlendum stórfyrir-
tækjum voru 40 milljónir króna
gjaldfærðar á fyrri hluta ársins.
í samtali við Morgunblaðið sagðist
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, vera sáttur við afkomu félags-
ins og vísaði sérstaklega til afkomu-
bata fyrir afskriftir og fjármagnsliði
og að veltufé frá rekstri hafi aukist
um 96%. „Ahnennur rekstrarkostn-
aður er að aukast um 12 milljónir
króna á milli ára sem þykir gott í
dag,“ sagði Jón Ásgeir, „hins vegar
hefur launakostnaður auldst nokkuð,
bæði vegna þess að við höfum aukið
hlut sérvörunnar en það er dýrara að
veita þjónustu við sérvöru en mat-
vöru og vegna þróunarstarfs út af
komandi verkefnum."
I fréttatilkynningu frá félaginu
kemur meðal annars fram að unnið
sé að uppbyggingu á nýjum sérvöru-
lager sem taki til starfa í byrjun
næsta árs. Með honum skapist nýir
möguleikar í birgðastýringu auk
þess sem hann verði veigamikill þátt-
Þróunarfélag Úr milliuppgjöri fyrir tímal íslai bilið jam íds 1 jar-júní lf. 2000
Rekstrarreikningur 30.06.OO 30.06.99 Breyting
Fjármunatekjur Milljónir króna Fjármagnsgjöld Hreinar fjármunatekjur Rekstrargjöld Hagnaður fyrir skatta 1.570,3 180,1 1.390,2 20,7 1.369,5 601,7 67.4 534,3 15.4 518,9 +161% +167% +160% +34% +164%
Reiknaðir skattar 408,0 169,4 +141%
Hagnaður tímabilsins 961,5 349,5 +175%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 6.601,5 4.821,2 +37%
Eigið fé 3.832,8 3.002,9 +28%
Skuldir og skuldbindingar 2.768,7 1.818,3 +52%
Skuldir og eigið fé samtals 6.601,5 4.821,2 +37%
Kennitölur og sjóðstreymi 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Arðsemi eigin fjár 74% 27%
Eiginfjárhlutfall 58% 62%
Innra virði 3,48 2,73
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 1.502,7 1.085,8 +38%
Opin kerfí skila
Þróunarfélaginu
góðri afkomu
Frá vinstri: Benedikt Jóhannesson, sijórnarformaður Skeljungs hf., Krist-
inn Björnsson, forstjóri Skeljungs hf., og Hildur Petersen, sljórnarformað-
ur Hans Petersen hf.
stjómarformanni Hans Petersen hf.,
segir að Hans P. Petersen hafi stofn-
að fyrirtækið árið 1907 og það hafi
verið undir stjórn þriggja kynslóða
fjölskyldunnar í 93 ár. Fyrirtækið
hafi verið skráð á Vaxtalista Verð-
bréfaþings íslands í lok árs 1998 og
að þá hafi nýir aðilar komið inn í það.
Hans Petersen sé nú með minni fyr-
irtækjum sem séu skráð á Verðbréfa-
þinginu og velta með hlutabréf þess
hafi verið nokkuð dræm. Því hafi
stjórn þess ákveðið fyrir nokkru að
huga að leiðum til þess að stækka
fyrirtækið, en helstu möguleikar til
þess séu samruni við önnur félög eða
sala á meirihluta. Fram kemur í yfir-
lýsingunni að fjölskyldunni hafi fallið
betur seinni kosturinn og hafi talið að
núna væri rétti tíminn til sölu, þar
sem ekki sé gefið að fjölskyldan eigi
meirihluta í félagi sem sé á markaði
til lengri tíma litið. Þegar ákveðið
hafi verið að skrá fyrirtækið á Verð-
bréfaþing Islands hafi verið stigið
fyrsta skrefið í þeirri eðlilegu þróun
að eigendaskipti geti orðið á fyrir-
tældnu. Helsta ástæðan fyrir því að
fjölskyldan hafi valið seinni kostinn
hafi verið að hún vildi stýra því í
hvaða hendur fjrirtækið færi meðan
hún hefði yfir meirihluta í félaginu að
ráða. Það sem skipti fjölskylduna
mestu máli hafi verið að ti’yggja
framtíð starfsfólksins og að fyrirtæk-
ið væri í höndum aðila sem hefðu
góða kunnáttu á heildsölu- og
smásölurekstri.
Pharmaco hf.
Hlutafjár-
aukning
samþykkt
HLUTHAFAFUNDUR Pharmaco
hf. samþykkti í gær að auka hlutafé
félagsins um 240,7 milljónir króna að
nafnverði sem nota á til að greiða
öðrum hluthöfum fyrir hlut þeirra í
Balkanpharma. Auk þess var sam-
þykkt að veita stjórninni heimild til
að bjóða út nýtt hlutafé að nafnvirði
40 milljónir lo-óna. í báðum tilvikum
féllu hluthafar frá forkaupsrétti sín-
um.
í greinargerð með tillögunni sem
lá fyrir fundinum kemur fram að í
reynd gangi tillagan út á að sameina
Pharmaco og Balkanpharma og að
40,4% falli í skaut núverandi hluthafa
Pharmaco en 59,6% verði í eigu ann-
aira hluthafa Balkanpharma. Balk-
anpharma verði eftir þessa breytingu
100% dótturfyrirtæki Pharmaco.
I greinargerðinni segir jafnframt
að með því að gefa út 40 milljónir
króna að nafnverði og að hluthafar
falli frá forkaupsrétti, hyggist stjórn-
in ná því markmiði að tryggja og örva
sölu hlutabréfa félagsins á almennum
hlutabréfamarkaði.
Œ Baugur hf
Úr milliuppgjöri fyrir janúar-júní árið 2000
—g ° Rekstrarreikningur 2000 1999 Breyting
Rekstrartekjur Milljónir króna 11.569 10.707 +8%
Rekstrargjöld 10.810 10.291 +5%
Hagnaður án afskr. og fjárm.gj. 759 416 +82%
Afskriftir 278 147 +89%
Fjármagnsgjöld -89 12
Áhrif hlutdeildarfélaga 20 2
Hagnaður fyrir skatta 412 283 +46%
Skattar 121 78 +55%
Hagnaður af reglul. starfs. 291 205 +42%
Efnahagsreikningur 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Eignir samtals Milljónir króna 10.868 11.268 -4%
Eigið fé 3.642 3.383 +8%
Skuldir 7.226 7.885 -ð%
Skuldir og eigið fé samtals 10.868 11.268 -4%
Kennitölur og sjóðstreymi 30.06.OO 31.12.99 Breyting
Veltufjárhlutfall 1,39 1,08
Eiginfjárhlutfall 33,5% 30,0%
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 461 235 +96%
ur í netverslun. Fram kemur að fé-
lagið ætli sér að spara um 30 millj-
ónir króna á ári með hinum nýja
lager.
Kaupréttarsamningar
fyrir alla starfsmenn
Þá segir í tilkynningunni að í
Bandaríkjunum hafi verið mikill
vöxtur hjá Bónus Dollar Stores en
þar eigi Baugur helming hlutafjár. í
þessari viku muni fimmtánda verslun
félagsins opna og unnið sé að skrán-
ingu á Nasdaq í upphafi næsta árs.
Til standi að auka hlutafé í þessum
verslunum og ætli Baugur að auka
hlut sinn um 4 milljónir Bandaríkja-
dala af 7-8 milljóna dala heildar-
aukningu.
Þá eru uppi áform um það hjá fé-
laginu að taka upp kaupréttarsamn-
inga fyrir alla starfsmenn. Reiknað
er með að 10 milljónir króna að nafn-
virði verði notaðar í þessu skyni.
Þetta mun verða tekið af hlutafjár-
aukningu upp á 110 milljónir króna
að nafnvirði, eða 10%, sem stjórn fé-
lagsins mun á næstunni óska eftir að
hluthafar samþykki. Gert er ráð fyrir
að aukningin verði boðin erlendum
fjárfestum meðal annarra og að hún
muni að mestu leyti fara til uppsetn-
ingar verslana á Norðurlöndum og í
Smáralind.