Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 43

Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 43 MINNINGAR ' Ég fylgdi Júlíu, dóttur þeirra, í fyrsta sinn alla leið heim að kjallara- dyrunum á Smáragötu 12 eftir stúdentadansleik 1. desember 1950. Komum mínum fjölgaði þangað nokkuð hratt og brátt kom að því að kynna mig fyrir fjölskyldunni. Ég kveið þeirri stundu nokkuð, sér í lagi vegna þess að mér var mæta vel kunnugt um að þau hjón tóku virkan þátt í flokksstarfi Álþýðuflokksins, einkum lét Soffía þar að sér kveða. Ég var hins vegar á bólakafi í stúdentapólitíkinni og sat í Stúd- entaráði fyrir Vöku og hafði átt í ein- hverjum útistöðum við krata á þeim vettvangi. Að sjálfsögðu reyndist kvíðinn al- ger hugarburður ungs manns sem haldinn var áráttu pólitískra jafn- aldra á þessum árum, að stjórnmála- skoðanir röðuðu fólki í andstæðar fylkingar með illsættanleg viðhorf. Érá fyrstu samfundum var sú þögla venja mótuð, að tala aldrei heima fyrir í alvöru um ólík pólitísk sjónar- mið, en hnyttin tilsvör og meinhæg- ar sendingar vöktu oft hlátur og græskulaust gaman. Mér var strax tekið af þeirri einlægu alúð og um- hyggju sem mótuðu allt heimilislíf á Smáragötu 12. Þar voru bækur og bókmenntir í miklum hávegum hafð- ar og oft setið löngum stundum og rætt um eldri sem yngri höfunda, skáldskap þeirra og líf. Bæði voru þau hjón einkar vel að sér í íslensk- um skáldskap fyrri og síðari tíma. Sveinbjörn orti nokkuð, einkum sér sjálfum til skemmtunar og hug- arhægðar, enda einn af þeim sem sátu í þeim nafntogaða 4. bekk Menntaskólans í Reykjavík, sextán skálda bekknum sem Tómas Guð- mundsson hefur rómað svo mjög í þjóðfrægu kvæði sínu Austurstræti. Soffía lagði um skeið nokkra stund á skriftir og eftir hana birtust nokkrar smásögur m.a. í tímaritinu Dvöl. Sjálf hafði hún ekki hátt um þessi ritstörf sín, en naut þess ríkulega að lesa sögur og ljóð, einkum yngri höf- unda. Bæði voru þau hjón afar eljusöm og sístarfandi. Sveinbjöm vann að margvíslegum verkefnum er snertu meginlífsstarf hans, kennslu og skólastjórn, en að auki stundaði hann fræðastörf ýmiskonar og má þar frekast nefna mikið ritverk hans um Sigurð Breiðfjörð og til viðbótar kennslubækur í norrænum fræðum og bragfræði. Soffía helgaði líf sitt margvísleg- um félagsmálum, ekki síst á vett- vangi stjórnmálanna. Hún vann ósleitilega að málefnum Alþýðuflokksins og var ritari Kven- félags Alþýðuflokksins frá stofnun þess 1937 og formaður þess 1943- 1967 eða í um 24 ár og í stjóm þess samfellt í 30 ár. í miðstjórn Alþýðu- flokksins sat hún 1938-1967 og gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum flokksins, til að mynda rit- stýrði hún kvennasíðu Alþýðublaðs- ins um skeið og sat í mörgum nefnd- um og stjórnum innan flokksins. Soffía lét málefni Reykjavíkur mjög til sín taka og sat í bæjarstjórn Reykjavíkur (nú borgarstjórn) í tvö kjörtímabil 1938-1946 fyrir Alþýðu- flokkinn en dró sig þá í hlé en féllst á að taka sæti aftur á lista flokksins 1962 og varð þá varaborgarfulltrúi í eitt kjörtímabil. Á árunum 1949- 1953 var hún varaþingmaður Ai- þýðuflokksins fyrir Reykjavík og sat um skeið á Alþingi. Hún ræddi lítið um pólitísk afskipti sín við mig sam- kvæmt heimilisreglunni og þá sjald- an þau bar á góma milli okkar forð- uðumst við að ræða „viðkvæm“ mál eins og efnahagsmál og ýmis félags- mál. Hins vegar voru sjónarmið okk- ar mjög áþekk í flestum viðfangsefn- um utanríkismála og á sviði menn- ingar og fræðslumála. Hún bar mjög fyrir brjósti hag þeirra sem minna máttu sín í þjóðfélaginu og var ein- staklega ræktarsöm við lítilmagna, sem urðu á vegi hennar og hún gat rétt hjálparhönd. Hún naut þess að vinna í garðinum sínum, Smáragötu 12, enda var hann ávallt einkar fal- legur og bar fagurt vitni áhuga hennar og Sveinbjarnar á hvers kon- ar ræktunarstarfi. I samræmi við það beitti hún sér í borgarstjórn fyr- ir að fegra og prýða borgina, og ég held að mig misminni ekki að hún hafi borið fram einhverja fyrstu til- löguna, sem samþykkt var í borgar- stjórn um fegrun Reykjavíkur. Soffía var einstaklega falleg og glæsileg kona, sem sópaði að hvar sem hún kom á mannamót enda ákaflega skemmtileg og gáfuð. Hún bjó yfir afar góðu skopskyni og til- svör hennar og athugasemdir kitl- uðu gjarnan hláturtaugar við- staddra. Langoftast gerði hún gaman að sér sjálfri og sagði skop- sögur af eigin mistökum og tiltekt- um og hló þá þessum kitlandi hlátri sem kom öllum nærstöddum í gott skap. Sem dæmi um gleymni sína og takmarkaðan áhuga á kökubakstri sagði hún frá þegar hún týndi hattin- um sínum fína og fann hann loks eft- ir mikla leit ofan í hrærivélarskál- inni. Soffíu var afar annt um heimili sitt og gætti þess mjög að þrátt fyrir annasöm félagsstörf kæmi það ekki niður á heimilislífinu og uppeldi dætranna, sem hún hugsaði um af stakri nærfærni og ástúð. Það varð henni eins og öllum öðrum í fjöl- skyldunni þungt og sorglegt áfall þegar Júlía, eldri dóttir hennar og eiginkona mín, féll frá 21. október 1984 aðeins 53 ára gömul eftir langa og erfiða baráttu við krabbamein. Þá reyndist Soffía mér og drengjunum mínum svo einstaklega vel að án stuðnings hennar og fjölskyldunnar allrar veit ég hreint ekki hvernig okkur hefði reitt af. Og alla tíð síðan stóð hún eins og klettur að baki okk- ar eins og fjölskyldan öll hefur raun- ar gert frá fyrstu kynnum. Svein- björn, maður hennar, átti við erfiðan heilsubrest að stríða mörg síðustu ár ævinnar og Soffía annaðist hann af þeirri umhyggju og nærgætni sem einkenndi svo mjög allt hennar líf og starf. Nú er þessi kvenskörungur og öndvegiskona fallin frá 97 ára að aldri. Fram á síðasta ár fylgdist hún ótrúlega vel með öllu sem var að ger- ast, ekki aðeins innan fjölskyldunnar heldur og í þjóðfélagsmálunum. Það háði henni mjög að sjónin dapraðist alvarlega síðustu árin, svo að hún gat ekki lesið og fylgst með í blöðum eða bókum, en aldrei heyrðist hún kvarta né glataði hún kímninni og fallega hlýja brosinu. Guðrún dóttir hennar, barnabörnin og fjölskyld- urnar heimsóttu hana og glöddu og starfsfólkið í Skógarbæ annaðist hana af alúð og umhyggju. Og nú er kveðjustundin runnin upp og þakk- arorð verða heldur hljómlítil og til- gangssnauð þegar dauðinn hefur skilið okkur að. Soffía var mér frá upphafi til hinstu stundar sem önnur móðir sem ég gat aldrei fullþakkað hlýjuna og umhyggjuna sem hún umvafði mig. Þegar ég kvæntist Halldóru J. Rafnar, seinni konu minni, tók hún henni opnum örmum og samgladdist okkur af innileik og alúð og var okk- ur til hinsta dags sú ljúfa, góða kona sem við minnumst ævinlega með þökk og hlýju. Baldvin Tryggvason. • Fleiri minningargreinar um Oddnýju Soffiu Ingvarsdrítt- ur bíða birtingar ogmunu birt- astíblaðinu næstu daga. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða Ijóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tviverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali era nefndar DOS-textaskrár. Þá era ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, PÉTUR HAMAR THORARENSEN fyrrverandi sjómaður frá Flateyri, til heimilis að Hrafnistu, Reykjavfk, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut, föstudaginn 25. ágúst. Aníta Thorarensen, John Paleos, Sigurður Hamar Pétursson, Hrund Guðmundsdóttir, Pjetur Hamar, Nikkita Hamar, Hlynur og Þórunn Björk, Ebba Thorarensen, Sigrún Thorarensen, Anna Ragnheiður Thorarensen, Bjarni Páll Thorarensen. + Ástkær faðir okkar og bróðir, HALLDÓR KRISTJÁNSSON frá Kirkjubóli, lést á heimili sínu, Dvalarheimili aldraðra, Dalbraut, laugardaginn 26. ágúst. Fósturbörn, systkini og fjölskyldur. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK SNORRASON WELDING, Fagrabæ 9, 110 Reykjavík, lést sunnudaginn 27. ágúst. Aðstandendur. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BIRGIR ÞÓRÐARSON, Akurgerði 12, Akranesi, andaðist á sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 25. ágúst síðastliðinn. Sigríður Svavarsdóttir, Jónína Birgisdóttir, Þorvaldur Heiðarsson, Anna Sigríður Jóhannesdóttir, Eyjólfur Þór Guðmundsson, Birgir Þór Arnarsson, Þorvaldur Heiðar og Þórður Elí Þorvaldssynir + Innilegar þakkir og guðs blessun til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, FRIÐRIKS VIGFÚSSONAR. Sórstakar þakkir til starfsfólks öldrunar- deildar L-4 á Landakoti. Þorbjörg H. Sigurjónsdóttir, Guðlaug Friðriksdóttir, Ragnar G. Einarsson, María Friðriksdóttir, Grímur Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Útfararstofa fslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.