Morgunblaðið - 29.08.2000, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.08.2000, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, FRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Fjarðarási 9, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar- daginn 26. ágúst. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstu- daginn 1. september kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélagið Bergmál. Sigurgeir Jóhannsson, Jóhann Sigurgeirsson, Sigurður Örn Sigurgeirsson, Guðmunda Birna Ásgeirsdóttir, Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, Kristín Kristjánsdóttir, Gauti Sigurgeirsson og barnabörn. Minningarathöfn um son okkar, sambýlismann, bróður og mág, ALAN STURLU SVERRISSON, Bakkastíg 4, Reykjavík, verður haldin í Seljakirkju í dag þriðjudaginn 29. ágúst kl. 13.30. Bálför hans var gerð í Weeley, Essex, Englandi, miðvikudaginn 16. ágúst sl. Susan Bury, Sverrir Tómasson, Sigríður Dagný Þorvaldsdóttir, Irene Odeny, Snjólfur Richard Sverrisson, Freydis Tevik, Ingigerður Sólveig Sverrisdóttir, Þorvaldur Skúli Björnsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÓLAFUR M. PÁLSSON, Boðahlein 21, Garðabæ, lést laugardaginn 26. ágúst. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún Björnsdóttir, Björn Ólafsson, Jóhanna Guðnadóttir, Gunnhild Ólafsdóttir, Finnbogi G. Kristjánsson, Edda Ólafsdóttir, Ágúst Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Ai Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR EGILSSON, Laugarásvegi 55, lést á Landsþítalanum við Hringþraut laugar- daginn 26. ágúst. Kristín Henriksdóttir, Helga Sigurðardóttir, Guttormur Einarsson, Súsanna Sigurðardóttir, Matthías Pálmason, Ingunn Sigurðardóttir, Egill Vilhjálmur Sigurðsson, Hafdís Sveinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs sonar míns og bróður okkar, GUNNARS VIÐARS ÁRNASONAR, Lindasmára 3, Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Kristrún Halldórsdóttir, Ari Ervin Sigurðsson, Rúnar Örn Eiríksson og aðrir aðstandendur. GUÐRUNANNA ODDSDÓTTIR + Guðrún Anna Oddsdóttir fædd- ist í Vestmannaeyj- um 31.12. 1910. Hún lést á Vífílstaðaspít- ala 19. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Oddur Jónsson, f. 4.3. 1877, d. 27.3. 1927 og Ingi- ríður Ingimundar- dóttir, f. 16.8.1873, d. 17.4. 1959. Bróðir Guðrúnar var Árni Bergmann Oddsson, f. 31.7. 1909, d. 19.3. 1972, maki Kristín Gfsladóttir, f. 14.6. 1914, d 14.5. 1994. Þau eignuðust tvær dætur. Guðrún giftist 16.10. 1937 Sæ- mundi Pálssyni múrara, f. 28.7. 1908, d. 16.4.1984. Foreldrar hans voru Páll Einarsson, f. 6.7.1877, d. 13.6. 1958 og Sigrún Sæmunds- dóttir, f. 2.9. 1875, d. 15.4 1949. Synir Guðrúnar og Sæmundar eru 1. Oddur bifreiðastjóri, f. 9.6. 1939, maki Unnur Jóna Siguijóns- dóttir, f. 28.10. 1938. Börn þeirra eru a) Guðbjörg, f. 20.3.1967, syn- ir hennar eru Elmar Snær Hilm- arsson, f. 2.12.1988 og Sölvi Snær Hilmarsson, f. 12.2. 1996, b) Sæ- Amma okkar lést á Vífilsstöðum laugardaginn 19. ágúst síðastliðinn eftir stutta sjúkrahúslegu. í dag kveðjum við hana hinstu kveðju. Okkur systumar langar að minnast hennar í fáeinum orðum. Hún var fædd á gamlársdag 1910 og hefði því orðið níræð í lok þessa árs. Við vorum svo heppnar að fá að al- ast upp í návist ömmu og afa, en afi lést fyrir sextán árum. Amma var hress og glaðleg og það var gott að koma til hennar. Alltaf átti hún til eitthvað sem okkur þótti gott. Hún var söngelsk og söng mikið fyrir okk- ur bamabömin og þessi lög söng hún næstum fram á síðasta dag þrátt fyr- ir háan aldur og slæma heilsu síðustu árin. Það em ýmis lög sem minna okkur á ömmu og munu gera það alla tíð. Á okkar yngri ámm fómm við oft með ömmu og afa í sumarbústað þeirra á Vatnsenda og einnig vomm við mikið hjá þeim í Byggðarend- anum. Amma og afi höfðu þann sið að hafa fjölskylduna saman á aðfanga- dagskvöld og því vomm við í Byggð- arendanum öll jól. Þar sem amma átti afmæli á gamlársdag vorum við einnig hjá henni þann dag og því verður skrýtið fyrir okkur að halda jól án hennar. Heilsu ömmu fór að hraka fyrir um átta ámm. Hún var svo heppin að fá að vera heima, en það er Páli syni hennar helst að þakka því hann bjó með henni og var hennar stoð og stytta undanfarin ár. Hún veiktist Legsteinar í Lundi viö Nýbýiaveg, Kópavogi Sími 564 4566 v/ PossvogsUipkjugafð Símii 554 0500 í? H h h h h h h h h h h h h h h h 3r IIXIXXXl 11XXXX Xjp Erfisdrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 11XXX XITITXXXII mundur, f. 7.4. 1969, c) Guðrún Anna, f. 21.2. 1972, maki Guðbjörn Sigfús Eg- ilsson, f. 13.12. 1971, dóttir þeirra er Hrefna Rún, f. 8.1. 1997, d) Siguijón , f. 5.7. 1975. 2. Páll, múrari, f. 4.3. 1941. 3. Ingi, bifreiðast- jóri, f. 15.11. 1945, maki Steinunn Bjarnadóttir, f. 20.3. 1945. Börn þeirra eru a) Óskar Bjarni, f. 13.5. 1969, maki Arnþrúður Berglind Árnadóttir, f. 6.3. 1965, synir þeirra eru Ingi Páll, f. 7.6. 1995 og Árni Geir, f. 20.5. 1999, b) Birna Ósk, f. 23.3. 1979, unnusti hennar er Svanur Smárason, f. 18.12.1978. Guðrún ólst upp í Sandprýði í Vestmannaeyjum. Um tvítugt fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún bjó eftir það. Guðrún og Sæmundur bjuggu lengst af á Þor- fínnsgötu 14 en frá 1971 í Byggð- arenda 16. Utför Guðrúnar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavfk í dag og hefst athöfnin klukkan 15. hastarlega nú í lok júlí og varð að leggjast inn á sjúkrahús. Þaðan átti hún ekki afturkvæmt. Blessuð sé minning ömmu okkar. Guðbjörg og Guðrún Anna Oddsdætur. Þegar ég horfi tii baka og hugsa um liðna tíma með þér og afa er ég afar þakklátur. Ég minnist stund- anna með þér og afa í sumarbústað- num ykkar sem þið tókuð okkur bamabörnin með í um helgar. Alltaf tókstu vel á móti okkur systkinunum þegar við heimsóttum þig og jafnað- argeð þitt var með eindæmum og góða skapið aldrei langt undan. Síð- ustu árin voru þér erfið vegna veik- inda en nú eru þau veikindi afstaðin og þú ferð til himna þar sem guð tek- ur á móti þér og þú sameinast afa að nýju- Takk íyrir allt, gamalt og gott, eins og þú myndir sjálfsagt orða það. Sæmundur Oddsson. Elsku amma mín, nú er komið að kveðjustund okkar. Ég bjó í sama húsi og þú frá því ég fæddist og gerði það að verkum að við vorum mjög nánar. Það eru svo ótal margar minningar sem læðast að manni frá þessum tíma. Þú varst alltaf til stað- ar fyrir mig. Þegar ég kom heim úr skólanum tókstu hlýlega á móti mér og gerðum við margt skemmtilegt saman. Fórum í bæjarferðir eða eins og einu sinni þegar við sungum lagið um Utlu fluguna og ég tók það upp á segulband. Einnig fannst mér alltaf mjög gaman að fá að gista hjá þér. Sú minning sem kemur oft í huga mér núna er þegar við sátum saman við eldhúsborðið á síðasta gamlárskvöld og horfðum á flugeldana saman. Ég vil þakka þér fyrir allar þær minningar sem ég á um þig og hve gott það var að koma til þín. Elsku amma mín, þú átt stóran hlut í hjarta mínu og þar mun ég geyma minningarnar um þig því þannig ert þú alltaf hjá mér. Amma mín - hvíl þú í friði. Birna Ósk. Nú ert þú farin, elsku amma mín, og ég kveð þig með hlýjum huga og þakklæti fyrir allt. Við áttum margar samverustundir saman, enda bjó ég í sama húsi og þú í rúm tuttugu ár. Þú gerðir allt fyrir mig, t.d. þegar ég var eitthvað ósátt- ur við fæðið á neðri hæðinni í Byggð- arendanum vandist ég á að koma til þín og fá eitthvað gómsætt, eins og góða brauðsúpu með ís ofaná, og ekki leið sá dagur að þú leyfðir mér ekki að komast í nammidallinn þinn sem var ávallt fullur og svo var lumað á ísblómi á eftir. Seinna leyfðirðu mér að flytja upp í litla herbergið. Það voru góð ár, þá vaktir þú mig í skóla og vinnu með góðum árangri. Þú hugsaðir vel um mig, amma mín, þegar ég bjó uppi hjá þér og þú varst létt í lund og gast hlegið og sungið hverja einustu stund. Ég vona að þér líði vel núna og ég mun ávallt minnast þín sem minnar stoð og styttu og að hafa átt yndis- lega ömmu. Óskar. BJARNIINGIMAR JÚLÍUSSON + Bjarni Ingimar Júlíusson fæddist á Skógum í' Flókadal 13. september 1923. Hann lést í Reykja- vík 16. ágúst síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Frí- kirkjunni í Reykja- vík 24. ágúst. Drottinn mun vemda þig fyrir öllu illu, hann mun vernda sál þína. Drottinn mun varðveita útgöngu þína og inngöngu héðan í frá og að eilífu. (Sálmur 121,7.-8.) Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletrað- ur, en ekki í greinunum sjálfum. Sólin skín ekki eins skært yfir Grímsnesinu og áður. Góður maður er genginn, þar sem Bjarni var. Hann og þau hjónin voru góðir nágrannar og það er betra en nokkur fjár- sjóður. Við þurftum hvorki girðingar né annað til að aðskilja lönd okkar, við áttum svo margt sameigin- legt. Skipst var á blóm- um og öðrum plöntum og glaðst var yfir, þótt ekki væri nema eitt rjúpnahreiður. Kvöld eitt fyrir stuttu birtist okkur dótturdóttir þeirra hjóna á skjánum og maðurinn minn sagði: Er þetta ekki hún Ást- hildur okkar? Það vaknaði alltaf gleði í hjarta okkar þegar jeppinn þeirra renndi í hlað á bústaðnum þeirra. Þá var veifað og glaðst yfir endurfundunum. Bjarni var glaðsinna maður, það var gaman að ræða við hann, raunar bæði í gamni og alvöru. Hann sagði alltaf sína meiningu á hlutunum. Ég þakka Bjarna fyrir öll sporin sem hann áttti til okkar í kaffisopa og spjall, fyrir brosið og alla vinarkoss- ana sem aldrei gleymdust. Nú geng- ur hann á Guðs vegum. Elsku Áslaug og aðrir í fjölskyld- unni, við hjónin vottum ykkur inni- lega samúð. Guð geymi ykkur öll. Ykkar nágrannar í sveitinni, Ágústa og Sigurður í Álfheimum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.