Morgunblaðið - 29.08.2000, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hrundi úr Ós-
hlíð á afmæl-
ishátíðinni
HÁTÍÐARHÖLD í tilefni þess að
50 ár eru liðin frá því að Óshlíðar-
vegur var formlega tekinn í notkun
síðastliðinn laugardag tóku óvænta
stefnu þegar björg tóku að hrynja
úr Óshlíðinni þegar menn voru á leið
frá hátíðarhöldunum. Við Kross, ut-
arlega í Óshlíð á veginum milli ísa-
fjarðar og Bolungarvíkur, féll
grjótskriða og hafnaði stór steinn á
bifreið Halldórs Benediktssonai-
sem starfar hjá Bolungarvíkur-
kaupstað. Einnig lentu tveir staurar
í vamargirðingu undir skriðunni.
Hruflaðist á höfði
Mikil mildi er að ekki skyldu
verða frekari slys á mönnum því
mikil umferð var um veginn þegar
skriðan féll. Halldór kvaðst ekki
gera sér grein fyrir því hvemig
þetta atvikaðist, hann hefði haft í
nógu að snúast að koma sér undan
skriðunni. Tveir vom í bflnum auk
Halldórs. Bflar vom á undan Hall-
dóri og fyrir aftan hann. Hann sagði
að mikið grjót hefði hranið niður úr
hlíðinni en hann kveðst ekki gera
sér grein fyrir því hvort margir
hnullungar hefðu lent á hans bfl.
„Það lenti einn á þaki bflsins og það
gekk niður ofan á höfuðið á mér.
Það komu fleiri hnykkir á bflinn en
hvort það var vegna þess að bfllinn
var að fara yfir gijót eða skorur á
veginum veit ég ekki. Mín hugsun
var að komast sem fyrst út úr
grjóthruninu," sagði Halldór.
Halldór kveðst hafa vankast við
höggið en hann er ekki mikið slasað-
ur. Hann hraflaðist á höfði og
blæddi talsvert úr sári. Hann kveðst
oft hafa farið þessa leið áður en
aldrei lent í neinu slíku fyrr.
Áður en ósköpin dundu yfir hafði
því verið fagnað með formlegum
hætti við Krossinn á Óshlíð að 50 ár
era liðin frá því að vegurinn var tek-
inn í notkun og var nýrri útsýnis-
skífu m.a. komið fyrir í Ósvör. Ámi
Johnsen, formaður samgöngu-
nefndar Alþingis, ávarpaði sam-
komuna, Kvennakór Bolungarvíkur
söng og sóknarpresturinn í Holti í
Önundarfirði, séra Stína Gísladótt-
ir, flutti blessunarorð.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjöms
Eins og sést hefur þakið á bíl Halldórs Benediktssonar dældast mikið í
grjóthruninu.
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðs
Árni Johnsen, formaður samgöngunefndar Alþingis, ávarpaði samkomuna við Krossinn í Óshlíð.
Stjórn Félags íslenskra leikskólakennara
Ahyggjur vegna
ástands í leikskólum
Jafntefli í báð-
um skákunum
JAFNTEFLI varð í báðum skák-
unum í undanúrslitum á Skákþingi
íslands í gær. Stefán Kristjánsson
tefldi við Jón Viktor Gunnarsson og
Þröstur Þórhallsson við Jón Garðar
Viðarsson. Þeir komust allir áfram
í undanúrslit. Stefán lagði Sævar
Bjarnason, D/2-V2, Þröstur lagði
Ágúst Sindra Karlsson, IV2-V2, Jón
Viktor vann Þorstein Þorsteinsson,
2/2-U/2 og Jón Garðar bar sigurorð
af Arnari E. Gunnarssyni, 2/2-1 '/2.
---------------------
Laus úr haldi
HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr
gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir
karlmanni á sextugsaldri sem gran-
aður er um að hafa vísvitandi ekið
niður mann í bílageymslu í Kópavogi
fyrir rúmri viku. Hæstiréttur komst
að þeirri niðurstöðu að almannaheill
væri ekki í húfi þótt maðurinn væri
frjáls ferða sinna og felldi þar með
úr gildi úrskurð héraðsdóms.
STJÓRN Félags íslenskra leikskóla-
kennara hefur sent frá sér ályktun
þar sem stjórnin lýsir áhyggjum sín-
um yfir því ástandi sem skapast hefur
vegna starfsmannaskorts víða í leik-
skólum. „Stjórnin hvetur leikskóla-
stjóra til að standa saman með því að
takmarka innritun nýrra barna og
grípa hiklaust til aðgerða, s.s. lokunar
deilda og að stytta opnunartíma leik-
skólanna þegar ekki verður öðra við
komið,“ segir í ályktuninni.
Bergur Felixson, framkvæmda-
stjóri Leikskóla Reykjavíkur, tekur
undir að ástandið sé bagalegt en segir
að heldur færri starfsmenn vanti nú á
leikskólana en á sama tíma í fyrra.
„Við eram mitt í slagnum núna við
að reyna að fá fólk. Við höfum ekki
tekið inn í öll pláss á ákveðnum leik-
skólum. I fyrra voram við að ráða
starfsmenn fram eftir öllum vetri og
vantaði alltaf nokkra tugi starfs-
manna,“ sagði hann.
Bergur segist búast við að ástandið
verði svipað í vetur og sl. vetur.
í ályktun stjómar Félags íslenskra
leikskólakennara segir að því hafi
margsinnis verið lýst yfir að mann-
ekla sé með öllu óviðunandi fyrir þau
böm og starfsfólk sem fyrir hendi er.
„Slíkt ástand rýrir leikskólastarfið og
hrekur hæft starfsfólk í burtu. Auk
þess skapast veraleg óþægindi og
óöryggi í röðum foreldra.
Stjóm félagsins leggur áherslu á,
að þennan vanda sem upp kemur ár-
lega verði að leysa. Vandinn verður
fyrst og fremst leystur með því að
hækka verulega laun leikskólakenn-
ara og annarra sem í leikskólum
starfa. Þá fyrst verða leikskólar sam-
keppnishæfir við aðra vinnustaði um
starfsfólk. Það er staðreynd sem yfir-
völd verða að viðurkenna nú þegar og
bæta úr er kjarasamningar verða
gerðir um nk. áramót,“ segir í
ályktuninni.
Rúmenska
lögreglan
fann hluta
þýfísins
LÖGREGLAN í Rúmeníu hefur
lagt hald á nokkurt magn skartgripa
sem talið er að rúmenskur skart-
gripaþjófur hafi stolið hér á landi.
Rúmeninn var handtekinn 18. ágúst
sl. en hann hefur nú viðurkennt alls
sjö innbrot, fimm í Reykjavík og tvö
á Höfn í Hornafirði.
Rannsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík sendi lýsingu á skartgrip-
unum sem stolið var til skrifstofu
Interpol í Búkarest. Lögreglan í
Rúmeníu gerði húsleit hjá ættingja 1
mannsins og fann þar talsvert magn
þýfis. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni hefur samstarfið við ‘
Rúmenana gengið vel þótt tungu-
málaörðugleikar hamli rannsókn
nokkuð. Skartgripaþjófurinn rúm-
enski notaði alls fjögur dulnefni,
m.a. eitt ítalskt. Hann mun sitja í
gæsluvarðhaldi til 8. september nk.
Nýr frétta-
stjóri á Skjá |
einum
SÓLVEIG Kristbjörg Bergmann
hefur verið ráðin fréttastjóri hjá
sjónvarpsstöðinni Skjá einum. Hún
tekur við starfinu af Sigursteini
Mássyni. Sólveig hefur verið starf-
andi sem fréttakona á fréttastofu
stöðvarinnar en var boðið starf
fréttastjóra sl. föstudag. Sólveig hef-
ur B.A.-próf í mannfræði og alþjóða-
fræði og stundaði nám í hagnýtri
fjölmiðlun samhliða starfi sínu á
fréttastofu Sjónvarpsins. Þar vann
hún sem skrifta og við textastjórn og
síðasta sumar sem fréttamaður.
Aðspurð um ummæli fyrrverandi
fréttastjóra á þá leið að stjómendur
stöðvarinnar vildu fá fleiri „gular“
fréttir svaraði hún því til að það væri
stefna sem hún kannaðist ekki við.
„Gular fréttir eða slúðurfréttir, það
er eitthvað sem við eram ekki að
fara út í. Fólk á alltaf að geta gengið
að fréttum dagsins vísum hjá okkur.
Og síðan höldum við náttúrlega
áfram að fylgjast með öllu því
skemmtilega sem er að gerast hér í
borginni hvern einasta dag og höld-
um áfram að byggja á þeim góða
grunni sem hér hefur verið lagður,“
sagði nýi-áðinn fréttastjóri Skjás
eins.
----------------
Forseti Alþing-
is frá störfum
vegna veikinda
HALLDÓR Blöndal, forseti Al-
þingis, hefur verið frá störfum um
skeið vegna veikinda. Hann gekkst
undir skurðaðgerð fyrir nokkrum
dögum og er á góðum batavegi.
Áf þessum sökum mun Halldór
Blöndal ekki geta tekið á móti for-
setum þjóðþinga Þýzkalands og
Kína þegar þeir koma hingað í
heimsókn á næstunni.
JT ■ ■ JC ‘*r ■
Serbloð i dag
mmjmi
Á ÞRIÐJUDÖGUM
Heimili
Haukur Ingi ekki brotinn/Bl
Steingrímur með þrennu/B2
ÉlEoiHmfllEL
íÞféntR