Morgunblaðið - 29.08.2000, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Mikil slags-
mál í
Kópavogi
LÖGREGLAN í Kópavogi
þurfti á liðsstyrk að halda frá
nágrannasveitarfélögum til
þess að stöðva slagsmál sem
brutust út milli tveggja hópa
manna við veitingastaðinn
Players Sport Cafe í Bæjarlind í
Kópavogi aðfaranótt sl. laugar-
dags. Að sögn lögreglu brutust
slagsmálin út þegar mennirnir
komu út af veitingastaðnum. Sá
elsti sem var í átökunum er á
sextugsaldri en sá yngsti rétt
rúmlega tvítugur. Ekki er vitað
hvers vegna hópunum tveimur
lenti saman en flytja þurfti sjö
manns á slysadeild með áverka.
Enginn reyndist alvarlega slas-
aður en slegist var með hnefum
og fótum, að sögn lögreglu.
Hópamir tvístruðust þegar lög-
reglan kom á staðinn og var
mikil ölvun meðal manna. Lög-
reglan í Hafnarfirði veitti lið-
sinni með tveimur lögreglubíl-
um og lögreglan í Reykjavík var
í viðbragðsstöðu. Alls tóku um
tíu lögreglumenn þátt í því að
stilla til friðar.
Heilbngðisraðherra um
fyrirhugað útboð sjúkraflugs
Ekkert útilokar
Akureyri
INGIBJORG Pálmadóttir, heil-
brigðis- og tryggingamálaráðherra,
segir að í fyrirhuguðu úboði vegna
miðstöðvar sjúkraflugs á landinu, sé
ekkert sem útilokar Akureyri sem
hugsanlega miðstöð sjúkraflugs.
Bæjarráð Akureyrar gagnrýndi í
síðustu viku útboðslýsingu fyrirhug-
aðs útboðs og taldi að verið væri að
ganga á bak þeirrar ákvörðunnar,
frá apríl síðastliðnum, um að Akur-
eyri yrði væntanleg miðstöð sjúkra-
flugs.
Fag- og byggðalega rétt
„Útboðið hefur verið sent til um-
sagnar margra aðila og nú eru at-
hugasemdir við það að berast okkur.
Það er ekkert í fyrirhuguðu útboði
sem útilokar Akureyri sem væntan-
lega miðstöð sjúkraflugs. Það er mín
sannfæring að það sé faglega og
byggðalega rétt að miðstöðin sé á
Ákureyri en í útboðinu var útilokað
annað en að hafa Vestmannaeyjar
sér,“ sagði Ingibjörg, en meðal þess
sem bæjarráð Akureyrar fann að
fyrirhuguð útboði, var að landinu
skyldi skipt upp í þrjú svæði.
Flókið útboð
Ingibjörg sagði að útboðið væri af-
ar stórt og flókið. Sérstakur vinnu-
hópur færi nú yfir allar þær athuga-
semdir sem ráðuneytinu bærust
vegna útboðsins. „í kjölfar þess vona
ég að unnt verði að bjóða þetta út og
ná samningum um áramót. Það þarf
hins vegar að taka tillit til ýmissa
hluta í svona stóru útboði og m.a.
þurftum við að bjóða þetta út á
Evrópska efnahagssvæðinu vegna
þess að við vinnum þetta með sam-
gönguráðuneytinu."
Um þá gagnrýni bæjarráðs Akur-
eyrar að ekki sé gerð krafa um flug-
vél með jafnþrýstibúnaði í útboðslýs-
ingu, sagði Ingibjörg að ekki væri
gerð krafa til þess en það væri skilið
eftir opið. „Það var mat sérfræðinga
í flugmálum að hafa það mál opið og
vert væri að skoða báða kosti.“
Handleiðslufélag íslands
Handleiðsla -
greinir milli
einkalífs og starfs
Guðrún Einarsdóttir
IVOR var stofnað
Handleiðslufélag ís-
lands. Að stofnun
þess stóðu átján aðilar sem
útskrifuðust 23. júní úr
námi hjá Endurmenritun-
arstofnun Háskóla íslands
í handleiðslu. Formaður
félagsins er Guðrún Ein-
arsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur. Hún var spurð hvert
væri markmið félagsins?
„Markmið félagsins er
að stuðla að þróun og
hagnýtingu handleiðslu í
starfi fagstétta. Einnig að
stuðla að viðhaldi fræði-
legrar og verklegrar þekk-
ingar um handleiðslu. Að
vernda hagsmuni þeirra
sem starfa að handleiðslu
og stuðla að því að þeir
uppfylli fyllstu kröfur um
þekkingu og siðgæði í starfi. Að
stuðla að samheldni félagsmanna
og samstarfi við sambærileg félög
í öðrum löndum."
- Hefur svona félag ekki verið
starfandi fyrr?
„Nei, ekki á íslandi og líklega
ekki á Norðurlöndunum.“
- Er mikil þörf fyrir svona fé-
lag?
„Já. Til þess að gefa þeim sem
starfa nú þegar við handleiðslu
kost á að gerast stofnfélagar að
Handleiðslufélagi íslands er
ákveðið að hafa framhaldsstofn-
fund í haust.“
- Hvað er handleiðsla?
„Handleiðsla er aðferð sem
hjálpar einstaklingi, einum eða í
hópi, til þess að þroskast í starfi.
Með handieiðslu getur einstakl-
ingur nýtt betur hæfni sína í starfi
og handleiðsla tryggir gæði þjón-
ustunnar. Handleiðsla hjálpar
einstaklingi að greina milli einka-
lífs og starfs og beita faglegum að-
ferðum í stað tilfinningasemi. Með
handleiðslu áttar einstaklingur
sig á uppbyggingu, markmiðum
og möguleikum vinnustaðarins.
Handleiðsla leysir úr læðingi
styrk einstaklingsins svo hann
finni lausnir."
-Hvernig er unnið að hand-
leiðslu?
„Gerður er samningur um
ákveðið tímabil og eru vikulegir
tímar eða eftir nánara samkomu-
lagi. Fullur trúnaður ríkir.“
- Fyrir hverja er handleiðsla?
„Hún er fyrir alla sem vilja
þroskast í starfi og bæta starfs-
ímynd sína. Markmið handleiðslu
er að starfsmanni líði betur í vinn-
unni og að hann njóti starfs síns
betur. Að viðskiptavinir stofnunar
eða fyrirtækis fái betri þjónustu.
Að samskipti innan vinnustaðar-
ins gangi betur og að samskipti
við aðrar stofnanir og fyrirtæki
gangi betur.“
- Erþetta trúarlegs eðlis?
„Nei, handleiðsla hefur ekkert
með trú að gera. Hún er fremur í
ætt við félagsráðgjöf og sálar-
fræði. Úr þeim jarðvegi sprettur
handleiðslan."
- Hvers vegna
ákvaðst þú persónulega
að fara í þetta námil
„Vegna góðrar
reynslu af handleiðslu
fyrir sjálfa mig. Hún
hefur styrkt mig í starfi.
Það þykir sjálfsagt á geðdeild að
hafa handleiðslu, starfið er þess
eðlis. Hún er notuð á fleiri deildum
með góðum árangri. Eg þekki
engan sem hefur verið óánægður
með að njóta handleiðslu. Rann-
sóknir sýna að fólk velur fremur
handleiðslu en möguleika á launa-
hækkun eða fríi.“
► Guðrún Einarsdóttir fæddist
30. mars 1951. Hún lauk hjúkr-
unarprófi úr Hjúkrunarskóla Is-
lands. Framhaldsnámi í Nýja
hjúkrunarskólanum og í Kenn-
araháskóla íslands. í vor lauk
hún námi í handleiðslu frá End-
urmenntunarstofnun Háskóla Is-
lands. Hún hefur starfað lengst
af við heilsugæslu og á geðdeild-
um. Nú starfar Guðrún á göngu-
deild geðdeildar Landspítala við
Hringbraut. Hún á fjórar dætur.
- Hversu langt nám erþetta?
„Það er þrjár annir. Það er
byggt upp á fræðilegum fyrir-
lestrum og svo fengum við sjálf
handleiðslu á þessum tíma, við
höfðum hvert um sig einstakling
sem við veittum handleiðslu og
höfðum svo handleiðslu í því
starfi. Það komu einnig erlendir
fræðimenn til þess að halda fyrir-
lestra og einnig var talsvert mikill
lestur náminu samfara.“
- Ur hvaða stéttum er það fólk
sem hefur mest gagn af svona
námi?
„Það eru margar stéttir. í okk-
ar hópi voru fjórir hjúkrunarfræð-
ingar, auk mín þær Hallveig Finn-
bogadóttir, Eyrún Jónsdóttir og
Vilborg Guðnadóttir. Þá voru sál-
fræðingarnir Benedikt Jóhanns-
son, Elín Elísabet Halldórsdóttir
og Halldór Kr. Júlíusson. Fjórir
félagsráðgjafar voru í hópnum,
Björg Karlssdóttir, Ella Kristín
Karlsdóttir, Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir og Olöf Unnur Sigurðar-
dóttir. Einn prestur: Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir. Einn djákni:
Ragnheiður Sverrisdóttir. Einn
sjúkraþjálfi: Arna Harðardóttir,
einn námsráðgjafi: Toby S. Her-
man, einn kennari: .Jórunn Sören-
sen og tveir iðjuþjálfar: Lilja
Ingvarsdóttir og Kolbrún B.
Ragnarsdóttir. Þessir átján ein-
staklingar hafa sem sagt stofnað
félagið Handleiðslu."
- Hvað starfa margir að hand-
leiðslu í viðbót við þá sem hér voru
taldir?
„I kringum íjörutíu.
Það fólk hefur fengið
þjálfun hjá Landspítal-
anum og víðar, einnig
erlendis. Á framhalds-
stofnfundinn í haust
koma vonandi allir þeir
sem stunda handleiðslu hér á
landi.
Hvað starf félagsins snertir þá
byrjum við á að fá Benedicte
Schilling, danskan handleiðara, til
þess að koma hingað og halda fyr-
irlestur. Þessi kona hefur samið
margar bækur um handleiðslu og
starfað lengi við hana.“
Markmiðið er
að starfs-
manni líði bet-
ur í starfi