Morgunblaðið - 29.08.2000, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 31
Borgarleikhúsið
Morgimhlaðið/Halldór Kolbeins
Leikarar Borgarleikhússins æfa Lé konung. Á myndinni má sjá Guðjón
Pedersen leiksljóra, Sigurð Karlsson, Halldór Gylfason, Jóhönnu Vig-
dísi Arnardóttur og Val Frey Einarsson.
Lér konung-
ur á fialirnar
BORGARLEIKHÚSIÐ hóf starfsár
sitt fyrir skömmu með æfingum á Lé
konungi, einum þekktasta harmleik
Williams Shakespeares. Með titil-
hlutverkið fer Pétur Einarsson og
leikstjóri er Guðjón Pedersen. Síðast
var leikritið sett upp í Þjóðleikhús-
inu árið 1977.
í verkinu fléttast sögur tveggja
fjölskyldna saman í blóðugum og
hatrömmum átökum kynslóða. Lér
konungur ákveður að draga sig í hlé
og eftirláta dætrum sínum stjórn
ríkisins. Frekja og yfirgangur jafnt
hinna eldri sem hinna yngri verður
til þess að Lér hrekst upp á heiði í
fylgd hirðfífls, hertoga í dulargervi
og Játgeirs af Glostri sem svikinn
hefur verið af bróður sínum.
Leikendur eru Fnðrik Friðriks-
son, Guðmundur Ólafsson, Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson, Halldór
Gylfason, Halldóra Geirharðsdóttir,
Hlín Hjálmarsdóttir, Jóhanna Vigdís
Arnardóttir, Kristján Franklín
Magnús, Nanna Kristín Magnús-
dóttir, Sigurður Karlsson og Valur
Freyr Einarsson.
Einhver í dyrunum
Fyrsta frumsýning vetrarins
verður um miðjan september á leik-
Óperuaríur
á Seyðisfírði
AUSTURRÍSKUR bassa-
baritón, Florian Keller, flytur
aríur úr óratóríum, óperettum,
óperum, söngleikjum o.fl. annað
kvöld, miðvikudagskvöld, kl.
20.30 á tónleikum í tónleikaröð-
inni „Bláa kirkjan" á Seyðis-
firði. Hann mun syngja tvo
dúetta með Muff Worden,
kontraalt, einnig leikur hann á
píanó með píanóleikaranum
Aiadár Rácz frá Rúmeníu.
Florian Keller stundaði nám i
tónlist í Mozarteum í Salzburg
1964-1982, og framhaldsnám í
leiklist og söng. Hann hefur gef-
ið út 18 hljóm- eða geislaplötur.
Þetta eru fyrstu einsöngstón-
leikar Florians á íslandi.
Aiadár Rácz nam píanóleik
við G. Enescu Conservatory í
Búkarest og stundaði fram-
haldsnám við Tónlistarakadem-
íuna í Búkarest og Búdapest.
Aladái’ hefur haldið tónleika
víða um heim. Hann hefur verið
tónlistarkennari við Tónlistar-
skóla Húsavíkur frá 1999.
Á tónleikunum munu Florian
og Aladár m.a. leika fjórhent á
píanó. Einnig mun Florian leika
einleik á píanó, syngja vinsælar
aríur úr óperum, óperettum,
söngleikjum og flytja dúetta
ásamt Muff Worden, söngkonu
og tónlistarkennara á Seyðis-
firði.
Aðgangseyrir er kr. 1000.
riti Sigurðar Pálssonar, Einhver í
dyrunum, sem forsýnt var á Listahá-
tíð í vor. Kristín Jóhannesdóttir leik-
stýrir verkinu, en Kristbjörg Kjeld
leikur aðahlutverkið. Þetta er í
fyrsta sinn sem Kristbjörg leikur hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Aðrir leik-
endur er Sigurður Karlsson, Björn
Ingi Hilmarsson, Guðmundur Ingi
Þorvaldsson og Edda Björgvinsdótt-
ir. Einhver í dyrunum er á dagskrá
Reykjavíkur menningarborgar Evr-
ópu árið 2000.
Nokkrar sýningar verða á gleði-
leiknum Sex í sveit í september og
verður fyrsta sýningin laugardaginn
2. september. Þetta er þriðja leikárið
sem leikritið kemur á fjalir Borgar-
leikhússins.
Steinunn Þórarinsdóttir
s
Islensk
myndlist
í Bonn
FRAUEN Muscuin Bonn, Listasafn
kvenna í Bonn, opnar sýningu á
verkum Steinunnar Þórarinsdóttur
þann 3. september næstkomandi.
Sýndar verða lágmyndir og
skúlptúrar Steinunnar og stendur
sýningin ( il 10. október. Ingi-
mundur Sigfússon, sendiherra Is-
lands í Þýskalandi, mun opna sýn-
inguna sem er samstarfsverkefni
menningarsjóðs Bonn og íslenska
sendiráðsins.
Steinunn Þórarinsdóttir hefur
starfað við myndlist si'ðan á ungl-
ingsárum. Hún hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga og haldið einka-
sýningar hérlendis sem erlendis
síðan árið 1979. Helstu listasöfn Is-
lands eiga verk eftir Steinunni.
Listasafn kvenna í Bonn var
stofnað árið 1981 af Marianne Pitz-
en. Þetta var fyrsta safnið sinnar
tegundar, sem sýnir eingöngu list
kvenkyns listamanna auk þess sem
það heldur sögulegar sýningar sem
fjalla um stöðu kvenna.
160 listamenn
á Islandsdeginum á
Heimssýningunni
ÞJÓÐARDAGUR íslands á Heims-
sýningunni í Hannover er á miðviku-
daginn. Forseti Islands og mennta-
málaráðherra verða viðstaddir list-
viðbui’ði í tilefni dagsins í íslenska
skálanum og víðar, en fjöldi íslenskra
listamanna kemur fram.
Hver dagui- heimssýningarinnai’ er
tileinkaður ákveðinni þjóð, og er 30.
ágúst þjóðardagur Islands. Dagskrá-
in hefst að morgni með söng Karla-
kórsins Heimis, og í kjölfarið tekur
yfirstjóm EXPÓ 2000 á móti forseta
Islands og fylgdarliði. Opinber hátíð-
arhöld hefjast kl. 10:30 á Plaza-svið-
inu þegar íslenski og þýski fáninn
verða dregnir að húni og þjóðsöngvar
landanna sungnir. Islenskir hestar
koma fram og Bergþór Pálsson flytur
einsöngslög við píanóundirleik.
Ávörp flytja heilbrigðisráðherra
Þýskalands, fulltrúi yfirstjómar
EXPO 2000 og forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson. Þá heimsækja for-
seti íslands og menntamálaráðherra
þýska skálann og þann íslenska og
rita í gestabók heimssýningarinnai’.
Dagskrá íslenskra listamanna
stendur til kvölds á Plaza-sviðinu og
víðar. Tónlistarhópurinn Guitar Is-
lancio ieikur nokkmm sinnum við
skála Islands yfir daginn, þar verður
sýnd stuttmyndin Örsögur úr
Reykjavík og Kammersveit Reykja-
víkui’ og Karlakórinn Heimir halda
hvor sína tónleikana í EXPO
Konzerthauz. I leikhúsinu Schau-
spielhaus Hannover sýnir Þjóðleik-
húsið Sjálfstætt fólk - Bjart og Ástu
Sóllilju, en í anddyri hússins hefur
verið sett upp farandsýning um Hall-
dór Laxness. Fyrir sýningu á fyrri
hluta verksins flytur menntamála-
ráðhema, Bjöm Bjamason, ávarp.
Þá er ónefnd Þýskalandsfrum-
sýning kvikmyndarinnar Englar al-
heimsins eftir Friðrik Þór Friðriks-
son, en opinberri dagskrá lýkur um
kvöldið á Plaza-sviðinu með tísku-
sýningunni Futurice, sýningu Dans-
leikhúss með ekka og tónleikum
hljómsveitarinnar Sigur Rós. Að dag-
skrá lokinni halda menntamála-
ráðherrahjónin miðnæturkvöldverð
til heiðurs listamönnunum, en um 160
íslenskir listamenn taka þátt í menn-
ingardagskránni á þjóðardegi Is-
lands.
Forseti og menntamálaráðherra
halda til Hannover í dag og verða við
kynningu Bláa lónsins og Flugleiða í
íslenska skálanum síðar í dag. Mun
forseti þar flytja stutt ávarp. Á
fimmtudag verða heimsóttir skálar
Norðui’landanna, Eystrasaltsland-
anna og Indlands, auk þess sem for-
seti Islands verður viðstaddur kynn-
ingu orkufyrirtækja í íslenska
skálanum.
«WM-2000
. .' ^judagur 29. ágúst
September-
tónleikar í
Selfosskirkju
Á FYRSTU tónleikum September-
tónleika í Selfosskirkju sem hefjast í
kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30
leikur Glúmur Gylfason organisti
Selfosskirkju.
Tónleikaröð þessi er haldin í
tíunda skiptið og bera allir tónleik-
amir merki Bach-ársins, en í ár em
250 ár liðin frá dauða Johanns Seb-
astians Bach. A.m.k. eitt stórverk
Bachs verður leikið á hverjum tón-
leikanna, en 19. september verða
eingöngu leikin verk eftir J.S. Bach.
Næst leikur Hörður Áskelsson og
í kjölfar hans leika Haukur Guð-
laugsson, Jörg Sondermann og
Hilmar Örn Agnarsson.
hefst 2. sept. nk.
Nuddnámið tekur þrjú ár með
kennslu á kvöldin og um helgar.
Utskriftarheiti er nuddfræðingur.
Námið er viðurkennt af
menntamálaráðuneytinu og
Félagi íslenskra nuddfræðinga.
Upplýsingar í síma 51 1 1085
virka daga frá kl. 13-17.
Hægt er að sækja um í síma^
á staðnum eða fá sent
umsóknareyðublað.
Nuddskóli
Guðmundar
í nýrri aðstöðu á Hólmaslóð 4,
2. hæð, 101 Reykjavík.
r
SÓLBORG - AKUREYRI KL. 17
Útilistaverkið íslandsklukkan
AfhjúpaO verður útilistaverkið
íslandsklukkan eftirKristin Hrafns-
son á Sólborgarsvæðinu á Akureyri
og fer athöfnin fram við göngustíginn
við Háskólann á Akureyri. Verkið hef-
urýmsar tilvitnanir bæði til kristni á
íslandi í þúsund ár og til landafund-
anna í Vesturheimi fyrir þúsund ár-
um. Vígsluathöfnin fer fram á afmæl-
isdegi Akureyrarbæjar og bæjarbúar
oggéstir eru eindregið hvattir til að
mæta við athöfnina og skoða lista-
verkið.
www.akureyri.is.
www.reykjavik2000.is - wap.olis.is.
Kanarí-
veisla Heimsferða
í vetur
frá kr.
Heimsferðir kynna nú glæsilega vetraráætlun sína með spennandi
ferðatilboðum í vetur og stórlækkuðu verði frá því í fyrra. Nú lækkar
ferðin um 10-18 þúsund krónur fyrir manninn um leið og við kynnum
frábæra nýja gististaði á ensku ströndinni.
Beint vikulegt flug alla þriðjudaga í allan vetur. Þú getur valið þá
ferðalengd sem þér best hentar, 1, 2, 3, 4 vikur eða lengur, og nýtur
þjónustu okkar reyndu fararstjóra á meðan á dvölinni stendur.
Aldrei lægra verð
Bókaðu strax og tryggðu þér
16-21% verðlækkun frá því
í fyrra.*
Verðkr. 39.255
Vikuferð, 9. janúar, hjón mcð 2 böm.
Verðkr. 44.755
2 vikur, 9. janúar, hjón mcð 2 bom.
Verðkr. 59.990
2 í íbúð, 2 vikur, Monterey.
* Próscntudæmi er miðað við 3ja vikna
ferð í janúar árið 2001. m.v. 3ja vikna
ferð, árið 2000.
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
39.255