Morgunblaðið - 29.08.2000, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Tvískinnungur í stefnu-
mótun stjórnvalda
A FUNDI aðildar-
ríkja rammasamnings
Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreyting-
ar, sem haldinn verður
í Haag í nóvember,
mun vafalítið takast að
ganga frá öllum
ágreiningsefnum varð-
andi framkvæmd
Kyoto-bókunarinnar
við rammasamninginn.
Bókunin er lagalega
bindandi og felur í sér
að 38 iðnríki skuli
draga úr losun gróður-
húsalofttegunda
(GHL) um 5,2% að
meðaltali á tímabilinu
2008-2012 miðað við það sem var
1990. Bókunin heimilar íslandi að
auka losun um 10% - mest allra
ríkja. ísland var hins vegar eina iðn-
ríkið sem ekki undirritaði bókunina
fyrir tilskilinn tíma, 15. mars 1998.
Stefna ríkisstjórnarinnar er að
afla Islandi undanþágu frá fyrr-
greindu ákvæði, þ.e.a.s. fá mun
rýmri losunarheimildir fyrir stóriðju
en þá 10% aukningu sem Islandi er
heimil. Pessi stefna stjórnvalda
byggist á þeirri röksemd að örsmá
hagkerfi eins og hið íslenska hafi
ekki svigrúm til að byggja upp iðnað
eins og það álver sem fyrirhugað er
að byggja á Reyðarfirði og auka
myndi losun GHL um ríflega 20%.
Þetta sé andstætt því markmiði
rammasamningsins að auka hlutfall
endurnýjanlegrar orku þar eð losun
GHL frá vatnsaflsvirkjunum sé lítil.
Þess vegna beri að veita undanþág-
ur vegna „einstakra verkefna" eins
og álver eru nefnd í tillögu Islands.
Undanþágur skapa hins vegar illt
fordæmi og tillaga Islands er algjör-
lega opin, þ.e.a.s. ekki eru nein efri
Árni
Finnsson
þjóðlegum
mörk eða þak á losun
frá stóriðjuverum hér á
landi. Miðað við upp-
lýsingar frá islenskum
stjórnvöldum myndu
fyrirhuguð stóriðju-
verkefni auka losun um
67,4% miðað við 1990."
Þá eru ekki með talin
þau 10% sem ísland
fékk úthlutað í Kyoto.
Bent hefur verið á að
fyrirtæki á borð við
Reyðarál geti hæglega
mætt þeim vanda sem
felst í losun GHL frá
fyrirhuguðu álveri á
Reyðarfirði með kaup-
um á losunarkvóta á al-
markaði sem skapast
mun í kjölfar þess að Kyoto-bókunin
verður að alþjóðalögum.2’ Sömuleiðis
gæti Reyðarál lagt fé í kolefnisbind-
ingu hér á landi með landgræðslu og
skógrækt. Stjórnarformaður Reyð-
aráls hefur hins vegar hafnað slíkum
hugmyndum þrátt fyrir að mengun-
arbótareglan - að þeim sem mengar
beri að bæta skaðann - sé nú ein af
meginstoðum umhverfisréttarins.
Vísaði hann í því efni til stefnu ríkis-
stjórnarinnar.
Ósamræmd
stefnumótun
Málflutningur stjórnvalda er
býsna mótsagnakenndur því
skömmu fyrir Kyoto-fundinn lagði
sendinefnd íslands fram tillögu um
mismunandi losunarmörk ríkja í
samræmi við nýtingarhlutfall endur-
nýjanlegrar orku í hverju iðnríki.
Samkvæmt þeirri tillögu hefði ís-
land fengið að auka losun um nærri
20%3) miðað við 1990. Sú niðurstaða
sem fékkst - þ.e.a.s. 10% auking -
hefði því getað talist viðunandi.
Kyoto
Það væri borin von
að ná árangri, segir
Árni Finnsson, ef þessir
-----------7-------------
fulltrúar Islands bæru
fram sams konar hug-
myndir og forsætis-
ráðherra hefur látið
í ljós hér heima.
Það skaut því skökku við þegar
forsætisráðherra lýsti því yfir
skömmu eftir Kyoto að ekki kæmi til
greina að undirrita Kyoto-bókunina
fyrir íslands hönd enda hefði ísland
orðið að fá a.m.k. 40-60% aukningu
til að niðurstaðan gæti talist ásætt-
anleg. Aðildarríki rammasamnings-
ins hljóta hins vegar að undrast
hvers vegna ísland gat sætt sig við
20% aukningu skömmu fyrir Kyoto-
fundinn, en vildi skömmu eftir fá
frítt spil fyrir stóriðju.
Þetta ósamræmi í stefnu Islands á
vettvangi rammasamningsins og yf-
irlýsingum forsætisráðherra má
skýra með tvennum hætti: I fyrsta
lagi því að haustið 1997 hófust við-
ræður við Norsk Hydro um bygg-
ingu álvers á Reyðarfirði og í öðru
lagi af því að forsætisráðherra hefur
frá upphafi afgreitt loftslagsbreyt-
ingar og aðgerðir alþjóðasamfélags-
ins til að stemma stigum við þessum
hættulegu breytingum í lífríki jarð-
ar sem einberar bábiljur. Eins konar
loftbólu sem brátt myndi springa.
Þeir sem draga það þunga hlass
að afla tillögu Islands stuðnings á al-
Bæta þarf ástandið
á geðdeildum
Á undanförnum vik-
um hafa átt sér stað all-
nokkur blaðaskrif um
, starfsmannavanda á
geðdeildum Landspít-
ala - háskólasjúkra-
húss. Mikið hefur verið
fjallað um áverkamál
starfsmanna og réttar-
stöðu þeirra sem verða
íyrir áverkum. Þá hafa
launamál ófaglærðra
verið dregin inn í þess-
ar deilur við yfirmenn
geðdeilda.
Við hjá Eflingu-stétt-
arfélagi teljum okkur
skylt að upplýsa hvaða
vinna hefur verið lögð
fram af hálfu félagsins vegna starfs-
mannavanda geðdeilda á undanföm-
um misserum.
• Mjög margir fundir hafa verið
haldnir með yfirmönnum geðdeilda
til þess að fara yfir vandann og koma
á framfæri sjónarmiðum starfsmanna
• Trúnaðarmenn hafa verið boð-
aðir á fund til að fara yfir þessi mál
• Gerð var könnun á vegum Sókn-
ar, SFR og Félags ísl. hjúkrunar-
fræðinga á ofbeldi meðal heilbrigðis-
starfsmanna 1996 þar sem áverkar og
ofbeldi var mest áberandi á geðdeild-
um eða 72,3%
• Gengið hefur verið á fund fjár-
málaráðherra vegna tryggingarmála
r starfsmanna og réttarstöðu þeirra
• Farið var með undirskriftarlista
starfsmanna um úrbætur vegna und-
irmönnunar og örra mannabreytinga
á fund starfsmannastjóra Landspít-
alans sl. vetur og henni kynnt ítarlega
vandamálin.
• ítrekað hefur verið rætt við
launadeild og samninganefndarfólk
: vegna launamáia á geðdeildum.
• í kjarasamninga-
viðræðum við fjármála-
ráðuneytið í vetur og
vor fóru margir fundir í
að íjalla um starfs-
mannavanda geðdeilda
og þau öru mannaskipti
sem þar eiga sér stað.
Fjallað var um vanda-
málin og mikil áhersla
lögð á að leita lausna.
• í nýgerðum kjara-
samningum komu inn
sérstök ákvæði vegna
starfsmanna geðdeilda
og voru tryggingamál
starfsmanna endur-
skoðuð og bætt.
• í kjarasamningum
nú í maílok voru laun verulega bætt
og kemur nú til aukið mat á störfum
og einnig frammistöðu starfsmanna.
Hluti af vanda á geðdeildum er
mikill launamunur milli starfsstétta
sem hefur valdið vaxandi ólgu meðal
starfsmanna þar sem launalqör
sumra hópa hafa verið bundin á öðr-
um tíma. Þennan vanda hefur launa-
skrifstofan og fjármálaráðuneytið
ekki viljað skoða á undanförnum
misserum þrátt fyrir ítarlegar at-
hugasemdir af hálfu Eflingar-stéttar-
félags. Mikil hreyfing á starfsfólki
hefur valdið erfiðleikum og fóru
starfsmannaskipti upp í 70-80% sl.
vetur. Dæmi eru um aukavaktir hjá
starfsmönnum þar sem þeir eru með
15-18 aukavaktir á mánuði vegna
manneklu. í þeim tilvikum hafa hvfld-
artímaákvæði verið margbrotin.
Einnig gerum við hjá Eflingu okkur
fyllilega grein fyrir því að þónokkuð
er um áverka hjá starfsmönnum á
ákveðnum deildum og skortir veru-
lega á úrvinnslu og áfallahjálp þegar
um alvarleg atvik er að ræða.
Geðdeildir
Hluti af vanda á geð-
deildum er mikill launa-
munur milli starfsstétta,
segir Þdrunn Svein-
björnsddttir, sem hefur
valdið vaxandi ólgu
meðal starfsmanna þar
sem launakjör sumra
hópa hafa verið bundin
á öðrum tíma.
Mikið er kvartað um skort á úr-
vinnslu þegar starfsfólk verður fyrir
alvarlegum áverkum. Starfsmenn á
nokkrum deildum hafa jafnvel hætt
að fylla út áverkaskýrslur þar sem
þeir telja að það breyti engu og hjálpi
þeim ekki á nokkum hátt,og þannig
hefur áverkamálum sem skráð eru
fækkað mflli ára. Á þetta hefur verið
bent af Eflingu - stéttarfélagi og við
munum halda áfram að gera okkar til
að auka skflning stjómenda á vand-
anum. Af framansögðu má glöggt sjá
að vandi starfsmanna á geðdeildum
hefur verið og mun verða til vinnslu
hjá Eflingu - stéttarfélagi. Við höfum
lengi bent á að bæta þurfi verulega úr
þessum vanda á geðdeildum, hækka
laun og bæta vinnuaðstæður ásamt
því að hvetja til þess að öryggismál
starfsmanna verði veralega endur-
skoðuð.
Höfundur er 1. varaformaður
Eflingar - stéttarfélags.
Þórunn H.
Sveinbjörnsdóttir
þjóðavettvangi geta hins vegar ekki
leyft sér slíkan málflutning enda
væri það borin von að ná árangri ef
þessir fulltrúar íslands bæru fram
sams konar hugmyndir og forsætis-
ráðherra hefur látið í ljós hér heima.
Forsendur Kyoto-
bókunarinnar
Talsmenn áliðnaðar á íslandi hafa
verið mun klókari í sínum yfirlýsing-
um. í stað þess að draga í efa mikfl-
vægi þess að bregðast við þeim
vanda sem felst í losun GHL hafa
þessir menn fært rök fyrir því að
staðsetning áliðnaðar á íslandi muni
draga úr losun hnattrænt. Það rétt-
læti uppbyggingu virkjana og uppi-
stöðulóna hér á landi.
Vitaskuld má alltaf færa rök fyrir
því að einhverja vöru sé best að
framleiða í ákveðnu landi eða heims-
álfu út frá einhverjum tilteknum
umhverfissjónarmiðum. Á hinn bóg-
inn hefur íslenskum stjómvöldum
ekki tekist að sýna fram á neinn
mælanlegan sparnað í hnattrænni
losun með því að staðsetja stóriðju
hér á landi.
Ein grandvallarforsenda Kyoto-
bókunarinnar - sem samþykkt var á
fyrsta fundi aðildarríkja Ramma-
samningsins í Berlín 1995 - var að á
fyrsta skuldbindingartímabilinu
2008-2012 skyldu þróunarríkin ekki
vera bundin af lagalega bindandi
ákvörðun um samdrátt í losun GHL.
Þetta er þyrnir í augum talsmanna
áliðnaðar á íslandi." Þeir halda því
fram að þar sem Kyoto-bókunin nái
ekki til þróunarríkja, sem nýti
mengandi orku til að knýja ný álver,
sé ekki tekið á kjarna vandamálsins,
þ.e. heildarlosun GHL í heiminum.
Svipuð viðhorf koma fram í mál-
flutningi talsmanna olíu- og kolaiðn-
aðar í Bandaríkjunum, sem nú hafa
gefist upp á að vefengja vísindalegar
niðurstöður um gróðurhúsavandann
og reyna þess í stað að vefengja rétt-
mæti Kyoto-bókunarinnar.
Hin fátækari ríki heims - þróun-
arlöndin - losa nú u.þ.b. 1/3 af magni
gróðurhúsalofttegunda sem berst út
í andrúmsloftið og sögulega séð
miklu minna en iðnríkin. Það var því
eðlileg krafa af hálfu þróunarríkja
að iðnríkin sýni og taki ábyrgð á
þeim vanda sem þau hafa að mestu
leyti valdið á fyrsta skuldbindingar-
tímabilinu.
Hættaá
einangrun Islands
Því miður bendir margt til þess að
Island muni standa utan við Kyoto-
bókunina eftir fundinn í Haag.
Gangi það eftir kann það að ein-
angra Island og valda miklum skaða
fyrir orðspor Islendinga á alþjóða-
vettvangi. Raunar má draga í efa að
Norsk Hydro muni við slíkar að-
stæður fjárfesta í álveri við Reyðar-
fjörð.
1) FCCC/SBSTA/1999/MISC3/Add.l
2) Vonir standa til að fyrir Ríó +10-ráð-
stefnu S.Þ. vorið 2002 muni tilskilinn fjöldi
ríkja (55), sem losa tilskilið magn gróðurhúsa-
lofttegunda (55%) fullgilda Kyoto-bókunina.
3) FCCC/AGBM/MISC.l/Add.6)
4) Sjá grein eftir Jakob Björnsson í Morg-
unblaðinu 30.7. s.l. og Jóhann Má Maríusson í
Lesbók Mbl. Þann 5.8. s.l. Greinar þeirra eru
nokkuð samhljóða
Höfundur situr ístjóm Náttúm-
vemdarsamtaka Islands.
Viltu styrkja
stöðu þína á
vinnumarkaði?
BREYTTAR að-
stæður á vinnumarkaði
kalla á breytt hlutverk
stéttarfélaga. Verslun-
armannafélag Reykja-
víkur leggur nú aukna
áherslu á þjónustu og
beinan stuðning við fé-
lagsmenn. Fræðslumál
eru meðal forgangs-
verkefna félagsins og
veturinn 2000-2001
mun VR bjóða persónu-
lega ráðgjöf og nám-
skeið sem hafa það að
markmiði að styrkja fé-
lagsmenn í starfi.
Menntun er æviverk
Símenntun byggist á nýju viðhorfi
til menntunar, þ.e. að menntun sé
æviverk en ekki bundin við skyldu-
nám, framhaldsskóla eða háskóla.
Nám er ekki lengur stundað einungis
á ákveðnu aldursskeiði og einstakl-
ingar ljúka ekki námi í eitt skipti fyr-
ir öll við útskrift úr skóla heldur líta á
menntun sem hluta af allri lifsgöngu
sinni. í dag er sí- og endurmenntun
hluti af því að vera á vinnumarkaðin-
um.
Ekkí ógn heldur tækifæri
Sí- og endurmenntun er ein for-
senda þess að fólk geti styrkt stöðu
sína á vinnumarkaði. Það er erfitt að
rífa sig upp og byrja að læra aftur
eftir margra ára vinnu á hinum al-
menna vinnumarkaði. En margt af
því námi sem er í boði í dag er ekki
síst ætlað þeim sem hafa ekki sótt
skóla í mörg ár. í dag er nauðsynlegt
fyrir starfsfólk á vinnumarkaði að
afla sér stöðugt nýrrar þekkingar tfl
að heltast ekki úr lestinni.
Ábyrgðin er sameiginleg
Bæði íslenskar og erlendar skoð-
anakannanir sýna að þeir sem era
meira menntaðir og/eða hærra laun-
aðir sækjast frekar eftir endurmenn-
tun en þeir sem minni menntun hafa
og/eða lægri laun. Samkvæmt skoð-
anakönnun á vegum VR hafa tæplega
80% félagsmanna VR
áhuga á endurmenntun
í starfi og skiptir litlu
hver menntun þeirra er
eða staða innan fyrir-
tækisins. Á móti kemur
að einungis hefur verið
lögð áhersla á endur-
menntun hjá 34% fé-
lagsmanna VR, fyrst og
fremst hjá þeim sem
era með háskólamenn-
tun og í stjórnunar-
störfum. Þessu þarf að
breyta. Mikilvægt er að
félagsmenn sýni fram-
kvæði og óski sjálfir eft-
ir endurmenntun því
ábyrgðin er beggja, fé-
lagsmanna og atvinnurekenda.
VR og vika símenntunar
Umræða um námsráðgjöf hefur
hingað til fjallað um aðstoð við fram-
halds- og háskólanema. Símenntun
Endurmenntun
Sí- og endurmenntun er
ein forsenda þess, segir
Alda Sigurðardóttir, að
fólk geti styrkt stöðu
sína á vinnumarkaði.
gerir aftur á móti þá kröfu að starfs-
fólk á almennum vinnumarkaði skoði
sjálft sig og meti bæði styrkleika sína
og veikleika. í viku símenntunar,
dagana 4.-8. september næstkom-
andi, býður VR félagsmönnum sínum
ókeypis námsráðgjöf. Þeim býðst
einkaviðtal við faglærðan námsráð-
gjafa sem aðstoðar þá við að finna
hvaða nám hentar hverjum og einum
og hvaða möguleika þeir hafi til frek-
ari menntunar. Tekið er við pöntun-
um milli kl. 8-16 í síma 5101700.
Höfundur er fræðslustjóri
Verslunarmannafélags Reykjavíkur.
Alda
Sigurðardóttir