Morgunblaðið - 29.08.2000, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2000 59
FRÉTTIR
Ur dagbók lögreglunnar
Mikið um hraðakstur
ungra ökumanna
Dregið í vegabréfsleik Esso
25. til 28. ágúst
Lögreglumenn unnu af miklu
krafti að ýmsum umferðarmálefnum
um helgina til að fylgja eftir góðum
viðbrögðum ökumanna að „slysa-
lausa deginum" sl. fimmtudag.
Mai’gir borgarar hafa haft samband
við lögreglu síðustu daga og til-
kynnt um hvað betur mætti fara í
umferðinni. Gott er að vita af þeim
stuðningi og áhuga sem borgarar
sýna á þennan hátt sem er óneitan-
lega mikil hvatning fyi'ir lögreglu-
menn í sínu starfi. Því miður eru
það alltaf einhverjir ökumenn sem
ekki hafa umferðarreglur í huga við
aksturinn. Þannig voru höfð afskipti
af 141 ökumanni vegna ýmissa um-
ferðarlagabrota. Þar af var 21
stöðvaður vegna gruns um ölvun við
akstur og margir þeirra vegna ann-
arra umferðarlagabrota einnig.
Ekið var á 13 ára pilt í Álfheimum
um kvöldmatarleytið á föstudag.
Hinn slasaði var fluttur á slysadeild.
Um miðjan dag á föstudag var
ökumaður stöðvaður á Hlíðarfæti í
Öskuhlíð vegna ýmissa umferðar-
lagabrota. Lögreglumenn neyddust
til að handtaka ökumanninn og
flytja á lögreglustöð vegna fram-
komu hans. Ökumaðurinn, 17 ára,
hafði ekið bifreiðinni á 104 km hraða
þar sem 50 km er hámarkshraði, án
þess að hafa ökuljós kveikt, ekki
notað bílbelti auk þess að taka ekki
tillit til annarra í umferðinni. Hon-
um var síðan sleppt að loknu sam-
tali.
Á svipuðum tíma var bifreið ekið
á ljósastaur á Höfðabakka. Ökumað-
ur er grunaður um ölvun við akstur.
Ökumaður var fluttur á slysadeild
Aukinn hraðakstur
og ölvunarakstur
Um helgina voru 52 ökumenn
stöðvaðir vegna hraðaksturs. Það
sem af er árinu hafa 3146 ökumenn
verið kærðir vegna hraðaksturs en
þeir voru 2952 á sama tíma í fyrra.
Það er áhyggjuefni lögreglu hversu
mikil þessi fjölgun er á milli ára en
hún er einnig í ölvunarakstri og
akstri án ökuréttinda. Áberandi er
hversu margir þeirra hafa litla
reynslu sem ökumenn og eru jafnvel
nýkomnir með bráðabirgðaökurétt-
indi.
Einn 19 ára mældist aka á 120 km
hraða á Sæbraut á föstudagskvöld.
Annar, 18 ára, á 100 km hraða á
Miklubraut við Skeiðarvog. Einn 19
ára á 106 km hraða á Sæbraut og
einn 17 ára á 110 km hraða einnig á
Sæbraut.
Einn 17 ára ökumaður var stöðv-
aður á Vesturlandsvegi eftir að hafa
mælst aka á 128 km hraða. Hann er
einnig grunaður um ölvun við akst-
ur. 19 ára ökumaður var stöðvaður
fyrir ógætilegan akstur og akstur
gegn rauðu ljósi á Hverfisgötu á
sunnudagsmorgun. Hann er einnig
grunaður um ölvun við akstur. Öku-
maður var stöðvaður eftir að hafa
mælst aka bifreið sinni á 98 km
hraða á Suðurlandsbraut. Hann er
einnig grunaður um ölvun við akst-
ur.
Ekki þarf að taka fram að akstur
allra þessa einstaklinga er langt
umfram það sem er leyfður
hámarkshraði á viðkomandi götum.
Þá var 17 ára piltur stöðvar á bif-
hjóli í Breiðholti aðfaranótt sunnu-
dags réttindalaus og einnig undir
áhrifum áfengis.
Innbrot - þjófnaður
Brotist var inní fýrirtæki á Fiski-
slóð og þaðan stolið tölvu og tals-
verðum fjármunum.
Bifreiðastjóri tilkynnti um að hafa
verið ógnað af farþega sínum í Álf-
heimum aðfaranótt sunnudags. Mun
farþeginn hafa dregið upp hníf þeg-
ar bílstjórinn hafði kvartað undan
framkomu í bílnum. Viðkomandi
farþegi vai' handtekinn af lögreglu
og vistaður í fangageymslu. Aðfar-
anótt sunnudags kom annar bif-
reiðastjóri á miðborgarstöð sökum
áverka sem farþegi hafði valdið hon-
um skömmu áður. Fjórir menn réð-
ust á mann í Tryggvagötu kl 07:30 á
sunnudagsmorgun. Einn árásar-
manna var handtekinn og fluttur á
stöð. Árásarþoli var fluttur á slysa-
deild með áverka á enni og hvirfli.
Fíkniefnamálefni
Lögreglumenn urðu vaiir við
undarlega staðsetningu bifreiðar við
Rauðavatn síðdegis á laugardag.
Þar reyndust tveir karlmenn vera
við hassreykingar. Auk lítilsháttar
af hassi fundust í bifreiðinni ýmsir
hlutir sem reykingarmönnunum
tókst ekki að gefa neinar skýringar
á. Þeir voru báðir fluttir á lögreglu-
stöð til yfirheyrslu.
Lögreglu barst kvörtun vegna
tveggja einstaklinga á Skarphéðins-
götu á sunnudag. Við skoðun lög-
reglu fundust ætluð fíkniefni á öðr-
um manninum.
Lögregla og sjúkralið komu ein-
staklingi til aðstoðar vegna hjart-
sláttartruflana á sunnudag. í ljós
kom að viðkomandi hafði neytt
flkniefna daginn áður og taldi þetta
vera hliðarverkanir af þeim sökum.
Manninum var komið undii- læknis-
hendur.
Brunar
Lögreglu var tilkynnt um reyk
frá íbúð í Álfheimum um hádegisbil
á föstudag. íbúi reyndist hafa
gleymt að slökkva á eldavél. Ná-
granni hafði náð að slökkva eldinn
áður en slökkvilið og lögregla komu
á staðinn.
Þá var tilkynning um reykskynj-
ara í gangi á Leifsgötu um hádegis-
bil á laugardag. Þar reyndist pottur
hafa gleymst á eldavélahellu. Ein-
hverjar skemmdir urðu vegna reyks
og sóts.
í sambandi við almættið
Lögreglu barst tilkynning um
akstur bifreiðar í kirkjugarðinum í
Fossvogi aðfaranótt sunnudags. Til-
kynnt var að ökumaður væri að
blikka Ijósum bifreiðarinnar í sí-
fellu. Haft var tal af ökumanni og
gaf hann þá skýringu helsta að
þetta væri hans aðferð við að reyna
að ná sambandi við „almættið“.
AÐALÚTDRÁTTUR í Vegabréfs-
leik Esso og Ferðamálaráðs ís-
lands fór fram 18. ágúst sl. Um
15 þúsund þátttökuseðlar skiluðu
sér í pottinn og hlaut Arnar
Guðmundsson aðalvinninginn, æv-
intýraferð fyrir tvo með Sam-
vinnuferðm-Landsýn að verðmæti
220 þúsund krdnur. I sumar var
dregið alla föstudaga á Bylgjunni
HINIR árlegu merkjasöludagar
Hjálpræðishersins á íslandi verða að
þessu sinni frá miðvikudeginum 6. til
föstudagsins 8. september.
Merkjasala Hjálpræðishersins er
þýðingarmikil fjáröflunarleið fyrir
starf hans hér á landi. Tekjur af
merkjasölunni eru notaðar til að fjár-
magna barna- og unglingastarfið sem
■ SAMTÖKIN umhverfisvinir hafa
sent frá sér eftirfarandi ályktun:
„Umhverfisvinir lýsa undrun
sinni og vanþóknun á þeim starfs-
aðferðum virkjana- og stóriðju-
sinna á Austurlandi að vinna
skemmdarverk á starfsemi nátt-
úruverndarsamtaka. Slík vinnu-
um fjölmarga vinninga og eru
nöfn allra vinningshafa birt á
heimasíðu Olíufélagisns hf.
www.esso.is. Á myndinni veitir
Arnar Guðmundsson vinningnum
viðtöku og með honum á mynd-
inni eru eiginkona hans Ingibjörg
Símonardóttir og fulltrúar frá 01-
íufélaginu þeir Jóhann P. Jónsson
og Sigurður Sigfússon.
nú er að hefjast að afloknu sumarfríi.
Merkið verður selt á götum
Reykjavíkur og Akureyrar og einnig
verður víða gengið í hús. Verðið er
hið sama og undanfarið ár, 200 krón-
ur. „Það er von okkar að sem flestir
kaupi merki og styrki þannig félags-
og hjálparstarf Hjálpræðishersins,“
segir í frétt frá félaginu.
brögð eru fáheyrð og óviðeigandi í
lýðræðisþjóðfélagi. Umhverfisvinir
leggja áherslu á málefnalega bar-
áttu fyrir því að íslensk náttúra sé
metin að verðleikum og að engin
ákvörðun um nýjar stórvirkjanir
verði tekin fyrr en rammaáætlun
um virkjanir á íslandi liggi fyrir.“
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Merkjasöludagur
Hjálpræðishersins