Morgunblaðið - 01.09.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2Ö00 35
Listamaður frelsisins
í LISTASAFNI Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi, verður í dag opnuð sýning
sem ber heitið „Jörgen Nash, Lis
Zwick og Drakabygget - Frihetens
værksted". Efnt var til sýningarinn-
ar í tilefni af áttræðisafrnæli Jörgens
af heimabæ hans, Silkiborg. Hluti
þeiirar sýningar var svo valinn til
sýningar í Hafnarhúsinu og mun
þaðan fara til Gautaborgar. Auk
verka eftir Nash, eiginkonu hans Lis
Zwick og börn hans, eiga ýmsir lista-
menn verk á sýningunni. Þeir eiga
það allir sameiginlegt að hafa komið
með einum eða öðrum hætti að lista-
mannanýlendu þeirra hjóna, Draka-
bygget í Suður-Svíþjóð.
Ohætt er að segja að Jörgen Nash
sé einn af áhrifamestu listamönnum
Skandinavíu á tuttugustu öld. Hann
fæddist árið 1920 í Danmörku en hef-
ur búið í Svíþjóð meirihluta ævi sinn-
ar og starfað jafnt í báðum löndum.
Jörgen Nash er yngri bróðir Asgers
Jom, eins af frumkvöðlum Cobra-
hópsins, sem Jörgen Nash var einnig
meðlimur í á árunum 1948-51. Árið
1960 festi Nash kaup á sveitabýli á
norðvesturhluta Skánar í Svíþjóð
sem nefnist Drakabygget. Þar stofn-
aði hann listamannanýlendu sem
nefnist Drakabygget - Vinnustofa
frelsisins - og býr þar enn í dag.
Drakabygget varð vettvangur og
uppeldisstöð fyrir marga af helstu
myndlistamönnum Skandinavíu á
síðari hluta 20. aldar og fór þar marg-
vísleg starfsemi fram, meðal annars
gjömingar sem vöktu heimsathygli.
Sumir þeirra sem bjuggu um tíma í
Drakabygget vom í fararbroddi and-
spymumanna gegn borgaralegum
gildum og valdstjórnunar í ýmsum
löndum. Arið 1963 kynntist hann eig-
inkonu sinni, Lis Zwick, sem var
nemandi hans. Hún flutti með honum
í Drakabygget og hefur ekki síður en
hann verið áhrifamikill listamaður og
staðið fyrir þeim vettvangi sem
Drakabygget er. Bæði hafa þau haft
ómæld áhrif á myndlist og mynd-
listamenn Skandinavíu í seinni tíð.
Jörgen Nash og Lis Zwick við brennsluofninn fyrir emaléringar, á
heimili þeirra í Drakabygget.
Jörgen Nash er fjöl-
listamaður og heim-
spekingur. Hann hefur
auk myndlistar fengist
við skiáftir og gefið út 45
bækur sem hafa verið
þýddar á 16 tungumál.
Auk þess hefur hann -
staðið fyi-ir margs konar
gjömingum og upp-
ákomum sem flestum
hefur verið ætlað að
vera ádeila á stjómar-
hætti og h'til framlög
ríkisstjóma bæði Dan-
merkur og Svíþjóðar til
menningar og lista.
Frægastur er Nash þó
eflaust fyrir að hafa sag-
að höfuðið af styttunni
af Litlu hafmeyjunni við
Langelinie í Kaup-
mannahöfn. í seinni tíð
hafa hjónin fengist mik-
ið við emalíeringu og
gert stór slík verk og
málverk sem prýða opin-
berar byggingar í Dan-
mörku og Svíþjóð.
Húsveggur sem hjdnin máluðu árið 1996 í
minningu Sörens Kirkegaards.
Frelsiti Igölll
NOKIA 51 io
Ásamt aukahlutapakka og Frelsiskorti frá Símanum GSM
Handfijáls búnaður, taska, hleðslutæki í bít, mælaborðsfesting, Frelsiskort
13.990
NOKIA321Q
Haílarmúts 2, Rvik,
Austuritrsti 18, Rvik.
Strandgötu 31, Hfj.
Bókvat, Hafnarstrsti 91-93, Ak.
Ásamt aukahlutapakka og Frelsiskorti frá Símanum GSM
Handfijáls búnaður, taska, hleðslutæki í bíl, mælaborðsfesting, Frelsiskort
15.990
Einnig fá nokkrir heppnir einstaklingar sem kaupa ritföng,
ásamt GSM-sima tilboðinu eða frelsis áfyltingu, ritföngin
endurgreidd.
Dregið verður úr lukkupottinum á FM957.
Silkiblússa frá Mark 0'Polo kr. 4.600
Svit er nýtt og byltingarkennt hreinsiefni sem gerir þér kleift að
hreinsa fatnað og annað óhreint tau í þurrkaranum þínum heima.
Það sem áður þurfti að setja í hreinsun með ómældri fyrirhöfn fer
nú í þurrkarann með Svit, og kostnaðurinn er aðeins brot af því
sem gamla hreinsunin kostaði.
Komdu við í verslunum Hagkaups í
Skeifunni eða Smáranum föstudag,
laugardag eða sunnudag og sjáðu
hversu ótrúlega auðvelt er að
þurrhreinsa með Svit.
Einnig kynning
Byggt og búið
Kringlunni
á sama tíma