Morgunblaðið - 05.10.2000, Side 15

Morgunblaðið - 05.10.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 15 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Ibúar við Garðhús 1 Grafarvogi hafa í 9 ár mótmælt lagningu stofnbrautar í gegnum hverfíð Framkvæmdin kærð til um- hverfísráðherra ✓ Arið 1991 var aðalskipulagi Reykja- víkur breytt og í stað tveggja ak- reina tengibrautar neðan við Garð- hús var gert ráð fyrir fjögurra akreina stofnbraut. Þessi breyting kom íbúum í opna skjöldu og mót- mæltu þeir strax. Nú tæpum 10 ár- um síðar hafa mótmælin lítinn árangur borið og hafa íbúarnir því ákveðið að leita réttar síns. Trausti Hafliðason kynnti sér málið. Grafarvogur ÍBÚAR við neðanverð Garð- hús í Grafai’vogi, hafa kært úrskurð skipulagsstjóra rík- isins um lagningu Hallsveg- ai- í Grafarvogi, tveggja ak- reina vegar, sem mun tengja saman Fjallkonuveg og Vík- urveg til umhverfisráðherra. Kæran byggist á því að um sé að ræða hluta af stærri framkvæmd en samkvæmt aðalskipulagi er gert ráð fyr- ir fjögurra akreina stofn- braut á þessum stað, sem mun teygja sig frá fyrirhug- aðri Sundabraut og að Vest- urlandsvegi. Samkvæmt um- ferðarspám er ekki talin þörf á breikkun Hallsvegar í fjór- ar akreinar fyrr en í fyrsta lagi eftir árið 2025. „Framkvæmdaraðili á ekki að komast upp með það að byggja þessa stofnbraut í litlum áföngum þar sem hver áfangi er metinn fyrir sig því þá koma heildaráhrif fram- kvæmdarinnar ekki í ljós fyrr en á lokastigum hennar en þá á er orðið of seint að breyta nokkrum sköpuðum hlut,“ sagði Gunnar H. Sig- urðsson, íbúi í Garðhúsum. Hraðbraut sem klýfur hverfíð í tvennt Að mati íbúanna er verið að leggja hraðbraut, sem kemur til með að kljúfa Grafarvogshverfið í tvennt í framtíðinni. Gunnar sagði að íbúarnir færu fram á að framkvæmdin yrði sett í frekara mat og að þeir hefðu einnig óskað þess að vegur- inn yrði settur í stokk vegna nálægðar við húsin í norðan- verðum Garðhúsum. „Við teljum að þar sem það er verið að leggja fjög- urra akreina stofnbraut í gegnum Grafarvog þá komi það til með að breyta veru- lega búsetuskilyrðum fólks í hverfinu, sagði Gunnar. „Við krefjumst þess skilyrðislaust að þessi framkvæmd frá Vesturlandsvegi og að fyrir- hugaðri Sundabraut fari í mat - heildarmat. Hug- myndin með umhverfismati er sú að menn geri sér grein fyi’ir því hvaða áhrif fram- kvæmdin í heild sinni hefur á umhverfið og það fólk sem þar býr.“ Framkvæmdin er sam- starfsverkefni Vegagerðar- innar og Gatnamálastjóra Reykjavíkur. íbúarnir telja að ef framkvæmdin verður skoðuð í heild sinni þá muni framkvæmdaraðilar vafa- laust komast að þeirri niður- stöðu að fjögurra akreina stofnbraut með tilheyrandi mannvirkjum kemst ekki fyrir á þeim 55 til 60 metr- um, sem eru á milli lóða við norðanverð Garðhús og lóðar kirkjugarðsins. Stofur og svefnherbergi snúa að veginum Gunnar sagði að þegar íbúar við Garðhús hefðu fengið úthlutað lóðum þar, hefði verið gert ráð fyrir tveggja akreina tengigötu norðan Garðhúsa á milli húsa og kirkjugarðsins. Hann sagði að íbúarnir hefðu því byggt hús sín í þeirri trú að ekki yrði breyt- ing á þessu skipulagi og stof- ur og svefnherbergi sneru því almennt í norður ásamt stórum útsýnisgluggum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Kertum fleytt við Tjörnina í Hafnarfirði Hafnarfjörður UM þijúhundruð manns komu saman við Tjörnina við Hafnarfjarðarkirkju í fyrra- kvöld, þar sem kertum var fleytt til að minn- ast þeirra sem látist hafa í umferðarslysum á árinu. Kertafleytingin var liður í umferðarviku grunnskóla Hafnarfjarðar sem nú stendur yf- ir. Hófst athöfnin með bænastund og tónlist- arflutningi í kirkjunni og sfðan var logi af alt- ariskertum borinn út og tendraður á kertum á Ijörninni. Ný stofnbraut í Grafarvogi Geldinganes / f Jr. fc r Gufunes XA Ji Fyrirhuguð tenging við Sunríabraut fLM. Staðahverfi ■Aí co Bhor9a- ^ hverfi ,<£ Spöngin Víkur- '% hverti Borgarholt Engi „Síðan er nýtt aðalskipu- lag kynnt árið 1991 og þá er búið að breyta þessari tveggja akreina tengibraut í fjögurra akreina stofnbraut. Það voru náttúrlega gjör- breyttar forsendur miðað við þær sem við gengum út frá þegar við byggðum húsin. Við mótmæltum þessu strax og vönduðum okkar mál- flutning mjög. Við höfum síðan viðhaldið þessum mót- mælum okkar allt síðan en lítið orðið ágengt.“ Gunnar sagði að síðastliðið vor hefðu framkvæmdar- aðilar verksins kynnt frum- mat á umhverfisáhrifum vegna tveggja akreina vegar frá Fjallkonuvegi að Víkur- vegi. Hann sagði að vegur- inn væri í raun örlítill hluti af væntanlegri fjögurra ak- reina stofnbraut. „Við kynntum okkur um- hverfismatið mjög vel og sá- um að það er að mörgu leyti gallað og ákváðum að senda skipulagsstjóra athugasemd- ir í 21 lið.“ Niðurstaða skipulags- stjóra mikil vonbrigði Skipulagsstjóri felldi úr- skurð sinn hinn 28. júní og féllst á fyrirhugaða lagningu Hallsvegar með því skilyrði að hljóðstig frá umferð um Hallsveg yrði undir 55 db við íbúðarhúsin í norðan- verðum Garðhúsum. Að sögn Jóns H. Sigurðs- sonar, íbúa í Garðhúsum, var niðurstaða skipulagsstjóra íbúum mikil vonbrigði, þar sem aðeins einn liður af 21 var virtur, þ.e. lækkun hljóðstigsins. Jón sagði að fulltrúar íbúa hefðu átt fund með gatna- málastjóra hinn 20. júlí, þar sem ræddar hefðu verið leið- ir til að uppfylla skilyrðin um lækkun hljóðstigsins. Hann sagði að komið hefði í ljós að reisa þyrfti 3 til 3,5 metra háar jarðvegshljóð- manir milli Garðhúsa og Hallsvegar og að fyrir fram- an þriggja hæða fjölbýlishús við Garðhús 1-3 þyrfti að byggja 1,5 metra háan stein- vegg ofan á hljóðmönina. „Heildarhæð hljóðman- anna á þessum stað er því 3 til 5 metrar og búið er að taka útsýnið af fólkinu sem býr á fyrstu og annarri hæð,“ sagði Jón. „Það er að- eins þriðja hæðin í þessu fjölbýlishúsi sem heldur út- sýninu sínu. Svona fram- kvæmd er náttúrlega ekki boðleg í dag.“ Samdóma álit íbúa að kæra I framhaldi af úrskurði skipualgsstjóra og fundinum með gatnamálastjóra héldu íbúar við Garðhús fund, þar sem staða mála var kynnt. Jón sagði að mikil óánægja hefði komið fram á fundinum og að það hefði verið sam- dóma álit allra viðstaddra að kæra úrskurð skipulag- sstjóra til umhverfisráð- herra. Umhverfisráðherra var send kæra hinn 3. ágúst þar sem farið er fram á að úr- skurður skipulagsstjóra verði felldur úr gildi og ráð- herra mæli svo fyrir að framkvæmdin verði sett í frekara mat. Meðal þess sem áskilið er að verði í frekara mati er: 1. að Hallsvegur verði skoðaður í heild, þ.e. fjög- urra akreina vegur frá fyrir- hugaðri Sundabraut að Vest- urlandsvegi; 2. að gerð verði úttekt á þeim möguleika að leggja Hallsveg í stokk; 3. að hljóðstig vegna um- ferðar verði reikna á hverri hæð fyrir sig á fasteignunum við Garðhús; 4. að sérstaklega verði gerð grein fyrir og metin samlegðaráhrif hávaða frá Víkurvegi, Hallsvegi og stórra gatnamóta; 5. að sérstaklega verði gerð grein fyrir því hvernig unnt sé að uppfylla kröfur hávaðareglugerðar nr. 933/ 1999, bæði innan- og utan- húss, og metnar þær ráð- stafanir, sem nauðsynlegar eru til þess og áhrif þeirra á umhverfið; 6. að úttekt verði gerð á sjónmengun vegna hljóð- manar auk annarra áhrifa fyrir umhverfið og afstaða hljóðmanar og hæð hennar sýnd með tilliti til þeirra krafna sem settar eru í reglugerð nr. 933/1999 um hávaða; 7. að útreikningar á dreif- ingu mengunarefna og há- vaða frá umferð á Hallsvegi verði byggðir á vindrós fyrir Grafarvog; 8. að gerð verði sérstak- lega grein fyrir því hvernig lýsingu verði háttað við Hallsveg og áhrif birtu fyrir íbúa nærliggjandi húsa. Til vara er þess krafist að hinum kærða úrskurði verði breytt með því að umhverfis- ráðherra mæli svo fyrir að gatan verði ekki lögð norðan við Garðhús. Verði hins veg- ar fallist á lagningu Halls- vegar frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi er gerð sú krafa að mælt verði fyrir um að vegurinn verði lagður í stokk eða verði einungis tvær ak- reinar. Ennfremur að tryggt verði að hljóðstig frá umferð um Hallsveg -verði ekki hærra en 45 db við íbúðar- hús við Garðhús og 30 db innanhúss. í kærunni er sagt að fyrir- huguð framkvæmd brjóti gegn ákvæðum laga um fjar- lægð gatna frá íbúðarhúsum, sem og reglugerðum um hávaða. Þá er sagt að framkvæmd- in komi til með að gjör- breyta öllum forsendum varðandi framtíð fasteigna á svæðinu og að ef hún nái fram að ganga muni íbúarnir leita aðstoðar dómstóla til að vernda rétt sinn og eignir sínar. Jafnframt er af hálfu þeirra gerður áskilnaður um bótarétt á hendur Reykja- víkurborg af þessu tilefni. Vilja að menn fylgi reglum og vinni faglega Jón sagði að ef menn skoðuðu heildarframkvæmd- ina myndu þeir komast að því að mestu þrengslin væru við Garðhús. „Þetta er í raun flösku- hálsinn og þar af leiðandi knýr þetta á um betri varnir gagnvart íbúum þessa svæð- is. Við viljum því að það verði betur tekið á þessum málum, en gert er í frum- skýrslunni. Við erum ekki á móti brautinni sem slíkri en við viljum að hún verði gerð á þeim forsendum sem eru ríkjandi í dag, t.d. varðandi umhverfisþætti. Við viljum að menn fylgi þeim reglum og reglugerðum sem gilda í landinu og vinni faglega að svona málum, en það hefur alls ekki verið gert í þessu tilfelli. Við áttum fund með um- hverfisráðherra þar sem við fylgdum eftir okkar stjórn- sýslukæru. Við fórum yfir málið með henni og bindum vonir til þess að hún taki faglega á málinu og taki tillit til okkar athugasemda, en vænta má úrskurðar á næstu dögum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.