Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.10.2000, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Málefnaþing SUS á Akureyri HELGINA 6.-8. október nk. mun Sam- band ungra sjálfstæðis- manna halda málefna- þing sitt á Akureyri. Á þinginu munu ungir sjálfstæðismenn um land allt koma saman og marka stefnu sína í öllum helstu málaflokk- um. Yfirskrift þingsins í þetta skiptið verður „Frelsi einstaklingsins - Frelsi þjóðar“. Yfir- skrift þingsins á að endurspegla þau mál- efni sem ungir sjálf- Sigurður Kári Kristjánsson stæðismenn telja að hæst beri á íslandi um þessar mundir. Munu ungir sjálf- stæðismenn m.a. taka svokölluð Evrópumál til gagn- gerrar umfjöllunar á þinginu og gera grein fyrir afstöðu SUS til aðildar ís- lands að Evrópusam- bandinu. Á undan- förnum vikum hefur mikið málefnastarf átt sér stað innan raða SUS og á má- VÉLSTJÓRAFÉLAG ÍSLANDS VELSTJÓRAR VÉLFRÆÐINGAR Fundur íil undirbúnings endurnýjunar kjarasamnings vélstjóra og vélfrœðinga sem starfa íJrystihúsum og verksmiðjum verður haldinn fimmtudaginn 5. október nk. kl. 17.00 að Borgartúni 18, Reykjavík. Sjá heimasíðu: vsfi.is Frelsi Stefna SUS, segir Sigurður Kári Kristjánsson, hefur veg- ið þungt við stefnumót- un Sjálfstæðisflokksins. lefnaþinginu mun afrakstur þess starfs koma í ljós. Mikilvægt tækifæri fyrir ungt fólk Málefnaþing SUS eru opin öllum ungum sjálfstæðismönnum á land- inu. Með þátttöku sinni í hinu þróttmikla málefnastarfi sem þar fer fram fá þátttakendur tækifæri til að hafa áhrif á stefnu sam- bandsins á næstu misserum. Auk þess fá ungir sjálfstæðismenn tækifæri til að inna ráðherra flokksins álits á helstu stefnumál- um sínum og til þess að segja álit sitt á þeim málum sem ríkisstjórn- in hyggst beita sér fyrir á komandi þingi. Forystumenn Sjálfstæðis- flokksins hafa alltaf sýnt mál- efnaþingum SUS mikinn áhuga og er þetta því kjörið tækifæri fyrir unga sjálfstæðismenn til þess að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi við flokksforystuna, nú við upphaf þingstarfa. Stefnumótun framtíðarinnar Á þeim 70 árum sem Samband ungra sjálfstæðismanna hefur ver- ið starfandi hefur stefna Sam- bands ungra sjálfstæðismanna vegið þungt við stefnumótun Sjálf- stæðisfiokksins í landsmálum og sveitarstjórnarmálum. Á málefna- þingi eins og því sem nú er fram- undan móta ungir sjálfstæðismenn stefnu sína til framtíðar sem fram- fylgt verður á næstu misserum, innan Sjálfstæðisflokksins sem ut- an hans. Mikilvægt er að sem flestir ungir sjálfstæðismenn taki þátt í þeirri stefnumótun, svo stefna SUS endurspegli skoðanir ungra sjálfstæðismanna um land allt. Því skora ég á unga sjálfstæð- ismenn að taka þátt í að marka stefnu sambandsins með þátttöku sinni á málefnaþingi SUS á Akur- eyri um næstu helgi. Skráning á þingið fer fram á skrifstofu SUS í Valhöll og allar upplýsingar er hægt að nálgast þar eða á vefsíðu sambandsins, www.sus.is. Höfundur er formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Sameiningar- viðræður Stiklu og Línu.Nets í Morgunblaðinu í gær, 4. október, birtist grein framkvæmda- stjóra Línu.Nets ehf. um nýlegar viðræður vegna hugsanlegrar sameiningar fyrir- tækjanna Stiklu ehf. og Irju ehf., sem bæði hafa sett upp TETRA-farstöðva- kerfi hérlendis. Til þess að lesendur blaðsins hafi rétta mynd af gangi mála verður ekki hjá því komist að upplýsa nánar um forsendur og efni viðræðnanna og helstu niðurstöður. Sameiningar- viðræður Óformlegar viðræður aðila höfðu staðið í tæpa tvo mánuði áður en formlegar viðræður hófust, um miðjan ágúst sl., að fengnu sam- þykki stjórna beggja fyrirtækja, Stiklu og Línu.Nets. í upphafi við- ræðna gerðu eigendur Stiklu Línu.- Neti tilboð sem viðræðurnar skyldu byggjast á og var það tilboð byggt á áður fram komnum munnlegum upplýsingum framkvæmdastjóra Línu.Nets um fjárhagslega stöðu Irju. Lína.Net samþykkti að hefja viðræðurnar á þeim forsendum sem fram komu í tilboðinu. Mikilvægt er að hafa það í huga að fram komnar upplýsingar framkvæmdastjórans um stöðu Irju voru í raun grunnur að tilboði eigenda Stiklu til Línu.- Nets. Ein aðalforsenda sameining- arviðræðna fyrirtækja er að bók- hald beggja fyrirtækja liggi fyrir, aðgengilegt og skýrt, og að ekki leiki nokkur vafi á fjárhagslegri stöðu aðila. Utprentanir úr bók- haldi Stiklu voru lagðar fram í upp- hafi viðræðna, með öllum hreyfing- um í bókhaldi frá því að starfsemi hófst fyrr á þessu ári. Lína.Net gat því í upphafi séð nákvæmlega hver staða Stiklu var, fjárhags- og eigna- lega séð, jafnvel án sérstakrar bók- haldsþekkingar. Lína.Net gat ekki lagt fram hliðstæðar upplýsingar úr bókhaldi Irju, reyndar benti flest til þess að slíkt bókhald væri ekki til, en væri þess í stað að finna innan bókhalds Línu,- Nets. Lesendum er bent á að hér er um að ræða aðskilda lögaðila sem hljóta að þurfa að hafa aðskilið bókhald, og að auki stundar Irja samkeppnisrekst- ur sem hlýtur að auki að krefjast aðskilds bókhalds frá bókhaldi Línu.Nets. Frá því að viðræður hófust og þar til þeim var slitið af hálfu Stiklu voru haldnir nokkrir fundir, og sátu fundina eftir atvikum mismargir aðilar frá hvoru fyrirtæki. Eftir því sem fundunum fjölgaði breyttust áður nefndar grunnupplýsingar framkvæmda- stjóra Línu.Nets um stöðu Irju, þ.e. sífellt komu fram nýjar, hækkandi Fjarskipti Hjá Stiklu erum við ekki í vafa um, segir Guðmundur Gunnars- son, að eitt TETRA- kerfí uppfylli þarfír Islendinga. tölur um þær skuldbindingar sem Lína.Net taldi sig hafa tekist á hendur vegna Irju. Raunar hafði sú upphæð sem nefnd var í upphafi meira en tvöfaldast þegar viðræð- unum var slitið, og átti fram- kvæmdastjóri Línu.Nets reyndar erfitt með að samþykkja þak á sömu upphæð. Mikil óvissa ríkti einnig um önnur atriði, m.a. samn- inga Irju við framleiðanda TETRA- búnaðar síns, Motorola, við notend- ur TETRA-þjónustu Irju o.s.frv. Beiðnum Stiklu um hlutlausar út- skýringar óvissuatriða var svarað á þann hátt að Lína.Net teldi sig vita best hvernig ætti að túlka samn- Guðmundur Gunnarsson Þar sem gæði og gott verð fara saman... Hjá okkur fæst mikið úrval af vönduðum fatnaði á hagstæðu verði. Nýjar vörur vikulega. Einnig rafmagnstæki, sængur, gjafavara, trévörur og margt fleira. 0 Fullt af spennandi opnunartilboðum! Meðal opnunartilboða, Herrafrakkar, hlýfóðraðir: 12.900,- Kuldagallar, barna frá: 3.500,- Grófir Fleece jakkar: 3.900,- Fleece jakkar frá: 2.500,- Gallabuxnabolir: 990,- Benzjakkar: 6.900,- Skyrtur frá: 1.290,- Bolir frá: 750,- Verið velkomin! Opið virka daga 10-18 og á laugardögum 10-16 Kuldagallar- . 7 5oo,- Verð aðems K r.. ONýja markaðstorgið í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.