Morgunblaðið - 05.10.2000, Page 52
52 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
UIVIRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Dvöl - úrræði í
' nútímaþjóðfélagi
HÆGT og bítandi
hafa fordómar gagn-
vart geðsjúkum
minnkað og er það
vel. Það er samt langt
í land með að „fríska“
fólkið vilji kynna sér
sjúkdóminn. Það
hugsar sem svo:
„Þetta kemur mér
ekki við.“ Mér finnst
þessi hugsunarháttur
rangur, hver veit hve-
nær hann sjálfur eða
einhver honum náinn
lendir í hremmingum,
líkamlegum eða and-
legum.
Nú nálgast óðum
alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn
10. október. Því finnst mér það
ekki úr vegi að stinga niður penna
og vekja athygli á Dvöl í Kópavogi
sem verður tveggja ára 9. október.
Dvöl er athvarf fyrir geðfatlaða
en er jafnframt fyrir þá einstakl-
inga sem eiga við tímabundinn
vanda að stríða á einn eða annan
hátt. Athvarfið er í
Reynihvammi 43,
Kópavogi. Húsið er
lítið og snoturt, í eldri
kantinum en vel við
haldið. Þegar inn er
komið finnur maður
fljótlega að það hefur
sál og starfsfólkið er
einstaklega alúðlegt.
Greinilegt er að gagn-
kvæm virðing ríkir
milli gesta og starfs-
fólks. í Dvöl getur
fólk fengið hádegis-
mat og kaffí á góðu
verði.
Athvarfíð Dvöl er
rekið af Rauða kross-
inum í Kópavogi, Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra á Reykjanesi og
Kópavogsbæ. Opnunartími er frá
kl. 9-16 virka daga. Sjálfboðaliðar
sjá um að hafa opið 2-3 laugar-
daga í mánuði frá kl. 13-16.
Margt hefur verið í boði þessi
tvö ár sem athvarfið hefur verið
starfrækt sem fólk getur kynnt
Sigurlaug
Sveinsdóttir
amlokufundur - samlokufundur
Á öndverðum
meiði um
byggðastefnuna?
Samlokufundur verður haldinn
fimmtudaginn 5. október, kl. 12.05
í Verkfræðingahúsi að Engjateigi 9, Reykjavík.
JDagskrá:
Fjallað verður um byggðastefnuna, hver ávinningur
I hennar er og hvert virðist stefna.
Framsögumenn eru Kristinn Gunnarsson, alþingismaður
og formaður Byggðastofnunar og Gylfi Magnússon,
| dósent við Hagfræði- og viðskiptastofnun H.I.
Félagsmönnum VFl og TFÍ verður boðið upp á samlokur
og gos en aðrir geta keypt þær á sanngjörnu verði.
r
iikméi {•iitlrtlliiitilii Itliili
Geðsjúkir
Dvöl er athvarf fyrir
geðfatlaða, segir
Sigurlaug Sveinsdóttir,
en er jafnframt fyrir
þá einstaklinga sem
eiga við tímabundinn
vanda að stríða.
sér ef það hefur áhuga. Það skal
tekið fram að hver og einn kemur
á eigin forsendum. Eg segi fyrir
mig að ég hóf komu mína í Dvöl
sem sjálfboðaliði á vegum Rauða
krossins og mæti alltaf á miðviku-
dögum. Mér finnst svo mannbæt-
andi að skreppa í Dvöl. Tilgangur
með komu minni var að gefa eitt-
hvað af mér til gesta hússins. Það
hefur komið í ljós að ég fæ marg-
falt til baka það sem ég gef bæði
frá gestum og starfsfólki.
Dvöl er þess virði að þið staldrið
aðeins við og hugsið: „Kannski að
ég líti við.“ Starfsfólkið er alltaf
tilbúið til að hlusta og gefa góð
ráð. Kannski viljið þið bara sitja,
hlusta og tilheyra hópnum. Það
gefur góða tilfinningu, maður finn-
ur fyrir öryggi. Presturinn okkar
kemur í heimsókn einu sinni í
mánuði. Þar fyrir utan koma
margir aðrir góðir gestir í heim-
sókn.
Að lokum, komið í heimsókn í
Dvöl og njótið augnabliksins, það
er þess virði.
Höfundur er sjálfboðaliði
oggestur í Dvöl.
UNHVERFISVÆNAR
GÓLFSÁPUR
Ræstivórur
Stangartiyl 4
110 Reykjavik
Simi 501 4141
Við berum
sjálf ábyrgð á
eigin heilsu
ABYRGÐIN á eigin
heilsu er að verulegu
leyti í höndum hvers og
eins. Tæknivæddar
heilbrigðisstofnanir eru
góðar þegar til kasta
þeirra kemur. Ennþá
betra er þó að þurfa
ekki á þjónustu þeirra
að halda.
Stefna Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar
(WHO) á sviði forvarna
er ofarlega á baugi í
heiminum á síðustu ár-
um. Astæðumar eru
ekki síst þessar: Ann- SigrúnGerða
ars vegar síaukinn Gísladóttir
kostnaður við heilbrigð-
isþjónustu í ríkjum hins vestræna
Heilsuvernd
Fólk ræður sjálft miklu,
segír Sigrún Gerða
Gísladóttir, um eigin
heilsu og eigin líðan.
heims. Hins vegar ástandið í þróun-
arríkjunum svokölluðu, þar sem víða
er ekki einu sinni lágmarksþjónusta
fyrir hendi. Þess vegna hafa sjónir
manna beinst að nýjum leiðum til að
stuðla að heilbrigði almennings - leið-
um sem væru í senn árangursríkar og
langtum ódýrari en þær hefðbundnu.
Meðal þess, sem árangursríkast
hefur reynst, er að virkja áhuga og
samtakamátt fólks. Á þeim grund-
velli byggist verkefnið „Heilsubær-
inn Bolungarvík“, sem hófst formlega
í byrjun þessa árs. Samfélagið í Bol-
ungarvík er sérlega hentugt til að
sannreyna slíka stefnu með heilsuefl-
| A L H L 1 Ð A
VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR
• Fjárhagsbókhald
I Sölukerfi
) Víðskiptamanna
kerfi
l Birgðakerfi
) Tilboðskerfi
I Verkefna- og
pantanakerfi
I Launakerfi
I Tollakerfi
Vaskhugiehf. Siðumúla 15-Sími 568-2680
ingar-/þróunarverkefni.
Markmiðið er að fólkið
sjálft vakni til vitundar
um ábyrgð sína á eigin
heilsufari og geri sér
grein fyrir þeim spam-
aði fyrir samfélagið sem
heilbrigðir lifnaðar-
hættir hafa í för með
sér. Með öðrum orðum:
Að almenningur taki
málin í sínar hendur í
stað þess að treysta í
blindni á forsjá kerfis-
ins.
Með þessu er síður
en svo verið að draga úr
gildi hinnar tækni-
væddu heilbrigðisþjón-
ustu. Hins vegar er fjármagnið ekki
ótakmarkað. Heilsuefling hjá fólkinu
sjálfu er einfaldlega árangursrík leið
til þess að peningarnir nýtist betur.
Islendingar eru vel upplýst þjóð og
þess vegna ætti að vera auðvelt að
koma þessum boðskap á framfæri og
í framkvæmd hérlendis. Það er
ánægjulegt hversu vel og ákveðið
bæjaryfirvöld í Bolungarvík styðja
þetta mál. Það mætti verða öðram
sveitarfélögum til eftirbreytni.
Hér er ekki verið að boða neina
skyndilausn. Þvert á móti. Árangur-
inn næst með því að hugarfarið
breytist og fólk temji sér heilsusam-
legri lifnaðarhætti. Ekki bara í dag
og á morgun, ekki með hamagangi í
eina viku og svo búið, heldur til fram-
búðar. Forvamir á þessu sviði skila
sér hægt og sígandi en árangurinn er
varanlegur.
Til þess að forvarnir nái árangri er
ekki nóg að vinna inni á lokuðum
stofnunum. Vinnan þarf að fara fram
úti í samfélaginu, úti á meðal fólksins
- reyndar af fólkinu sjálfu, til þess að
árangur náist. Fólk þarf að taka
höndum saman. Samtakamátturinn
er undirstaða árangurs.
í þessu efni er Bolungarvík alveg
kjörinn staður. Bolvíkingar hafa í
heila öld verið þekktir fyrir samstöðu
og samheldni. Bærinn er hæfilega
stór til þess að hægt sé að ná til allra.
Vissulega er þetta líka hægt í miklu
stærri byggðarlögum en þá væri
e.t.v. æskilegt að einbeita sér að af-
mörkuðum hópum eða samtökum
innan þeirra.
Kjami málsins er sá, að fólk ræður
sjálft miklu um eigin heilsu og eigin
h'ðan. Með því að standa vörð um eig-
ið heilbrigði er jafnframt verið að
greiða götu þeirra sem þurfa nauð-
synlega á þjónustu heilbrigðiskerfis-
ins að halda. Hér er einfaldlega verið
að leggja í sameiginlegan sjóð.
Höfundur er íljúkrun.lrforstjóri
Heilsugæslustöðvar Bolungarvíkur.
strrunn.is
séð da^leiga símnotkun”
Þínarsíðurá siminn.is eru þinn eigin þjónustufulltrúi á Netinu. Þargeturðu
sinnt viðskiptum þínum við Símann ogfylgst með stöðu símreikningsins
heiman frá þér.
Þínar síður - þjónustufulltrúinn þinn á Netinu
FVLCST MED OAGlEGRi SÍMNOTKUN | GREIOSLUYFIRUT j SKOÐA LAUS SÍMANÚMCR } S4EKJA UM VMSA SÉRÞJÓNUSTU OG MARCT FLEIRA
W
• Sl W I N K