Morgunblaðið - 05.10.2000, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 57
SKOÐUN
þjóðavæðingin neyða íslandinga til
að taka upp einhverja heimstungu
vilji þeir búa við sæmileg lífskjör.
En það er alls ekki öruggt að al-
þjóðavæðing haldi áfram. Eins og
frægt er orðið sálaðist alþjóðavæð-
ingin fyrri í kreppunni miklu. Systir
hennar, alþjóðavæðingin síðari, get-
ur leitt til alvarlegrar efnahags-
kreppu ef trúa má þeim George
Soros og David C. Korten. Markað-
j urinn virkar ekki nema til séu skýrt
Iafmörkuð lög sem ríkið eða svipuð
stofnun getur séð um að fylgt sé,
segja þeir kumpánar. Pessu er ekki
að heilsa á hinum alþjóðlega fjár-
málamarkaði og litlar líkur eru á að
til verði alþjóðastofnanir sem geti
komið í stað ríkisvaldsins. Korten
telur lausnina m.a. vera þá að
styðja staðbundin markaðskerfi.
Verði Jjessi lausn ofan á er til lítils
fyrir Islendinga að skipta um mál,
málskipti þjóna engum tilgangi
nema alþjóðavæðingin haldi áfram.
Það er kominn tími til að líta á
hina siðferðilegu hlið þessara mála.
„Margur verður af aurum api“, því
má velta fyrir sér hvort aukin hag-
sæld hafi eflt lífssæld íslendinga.
Islendingar voru örugglega sautján
milljörðum krónum fátækari fyrir
þrjátíu áruri síðan, samt var hægt
að ganga um götur Reykjavíkur án
þess að eiga á hættu að fá hníf í
j bakið. Ekki var eiturlyfjum heldur
' fyrir að fara í neinum mæli og mað-
ur spyr sig „höfum við gengið til
j góðs..“ Svar mitt er ;,nei“ og aftur
„nei“! Ef ástandið á Islandi og öðr-
um Vesturlöndum er á einhvern
hátt afleiðing aukins hagvaxtar þá
ber að berjast gegn honum. þá er
best að vera án þessara milljarða
sem Benedikt heldur að við græð-
um á málskiptunum. Svo má nefna
að til eru verðmæti sem mölur og
ryð fá ei grandað. Að tala hina
fornu tungu vora hefur mikið gildi
| fyrir flesta íslendinga þótt það
| kunni að kosta fé.
Ekki bætir úr skák að hagsæld-
arpælingar að hætti Benedikts
gætu orðið manngildinu hættuleg-
ar. Ef við eigum að meta hina ólík-
legustu hluti, þ.á m. móðurmálið,
með efnahagslegum hætti gætum
við fullt eins farið að meta mannslíf
til fjár. Væri þá ekki réttast að láta
stúta gamlingjum, fötluðum, sjúkl-
ingum og dópistum? þeir eru aug-
ljóslega dragbítar á hagvöxt, ætli
þeir kosti ekki þjóðarbúið svo sem
sautján milljarða króna á ári?
Af ofansögðu má sjá að málskipti
yrðu efnahagslegt og siðferðilegt
glapræði. Staðhæfingar Benedikts
um kostnað af íslensku eru fullkom-
lega út í hött og á mörkum þess að
vera siðlausar. þess utan má hann
skilja að í sérhverju tungumáli er
fólgin heimsmynd og að mannkynið
j getur grætt á því að til séu margar
heimsmyndir því í þeim býr mikil
! þekking. Þekkingin er undirstaða
* atvinnulífsins og við getum ekki vit-
að fyrir fram hvers konar þekking
er hagkvæmust. Hvern hefði grun-
að fyrir nokkrum árum að ætt-
fræðiþekking gæti orðið ábatasöm?
Kanadíski heimspekingurinn
Charles Taylor hefur lög að mæla
er hann líkir mál- og menningar-
heildum við vistkerfi. Fækkun mál-
heilda er skaðvænleg fyrir mann-
kynið allt alveg eins og fækkun
vistkerfa er lífríkinu hættuleg. Þess
vegna gera Islendingar bæði mann-
kyninu og sjálfum sér gagn með því
að varðveita íslenska tungu.
Lokaorð
Vonandi skilja menn ekki orð mín
svo að ég telji Benedikt alls varnað.
Hann heldur vel á penna og kann
góð skil á mörgu. Því er þess furðu-
| legra að hann skuli setja fram svo
| vanhugsaðar staðhæfingar. Helst
I grunar mann að honum sé ekki
I fyllilega alvara, að hann sé að leika
sér að hugmyndum. En hann má
vita að fjöregg þjóða eru ekki leik-
föng nema síður sé.
Fjöregg eru brothætt, allt, allt of
brothætt.
1 Hún birtist í „Greinar af sama meiði
helgaðar Indriða Gíslasyni sjötugum“, rit-
sjórar Baldur Sigurðsson, Sigurður Kon-
ráðsson og Örnólfur Thorsson, Rannsóknar-
I stofnun KHÍ, Reykjavík 1998.
Höfundur kennir heimspeki í
Noregi.
0
U5
0
HELLUSTEYPA JVJ
Vagnhöfða 17
112 Reykjavík
Sími: 587 2222
Fax: 587 2223
Gerið verðsamanburð
Tölvupústur: sala@hellusteypa.is
Sérhönnuð
vatnsglös
Mörkinni 3, sími 588 0640
Opið mán.-fös. frá kl. 12-18
FÖRÐUNARVÖRUR • HRÍSGRJÓNAPÚÐUR
Le Clerc
á Paris depuis 1881
Fimmtudaginn 5. október
kynning í
Hringbrautarapóteki
Líttu við - Fáðu göð ráð
Svanhildur í Silfurtungli kynnir og farðar
Dæmi um gæði .
S7
Sparperur
á tilboði
nú 390 kr. stk.
bæklingur
um lýsingu
óður 590 kr. verð aöeins 190 kr.
Sparperur endast tíu sinnum lengur og eyba Skínandi hugmyndir og leiðbeiningar
80% minna rafmagni en venjulegar perur. um lýsingu á heimili og vinnustaö.