Morgunblaðið - 05.10.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 63
MINNINGAR
hópurinn og samferðamennimir
kveðja einn af öðrum.
Við sem búum hér í litla firðinum
söknum þeirra allra og við munum
sakna Alberts Stefánssonar. Berti
minn, ég vil fyrir mína hönd og bama
minna þakka samfylgdina. í Miðgarð
gátum við alltaf leitað, jafnt í gleði
sem sorg.
Kærar þakkir, elsku Guðrún mín,
böm, tengdaböm og bamaböm. Við
sendum ykkur hugheilar samúðar-
kveðjur.
Sóley Sigursveinsdóttir.
Miðgarður á Fáskrúðsfirði er ekki
bara orðið tómt. Það hús hefur verið
sannkölluð miðja í lífi margra þar
eystra, svo og í lífi mínu og fjölskyldu
minnai’. Þar tóku húsráðendur á móti
okkur örskömmu eftir að við komum
þangað fyrst og hafa reynst okkur
vinir alla tíð síðan og að auki verið
börnum okkar sem afi og amma, eins-
og reyndar fleiri í þeim bæ. Fyrir
slíka vináttu þakkar maður ekki í fá-
umorðum.
í Miðgarði hefur margur þegið
heimboð; ekki bai’a nákomnir fasta-
gestir heldur líka ferðamenn sem leið
hafa átt um þennan fjörð einu sinni
ævinnar eða tvisvar; og allir notið
sömu hlýju og vinsemdar þeirra
hjóna Guðrúnar og Alberts, og
gleyma ekki. í sameiningu hafa þau
gefið gestum sína alla þá ánægju sem
af einni heimsókn má hafa, því auk
veitinga einsog gerast höfðingleg-
astar á íslenskum heimilum er veitt af
viskubrunni einnig; sagðar sögur og
tíðindi úr nútíma jafnt sem frá eldri
tíð, og fróðleikur margskonar um
menn og atburði, og staðinn. Þá töl-
uðu hjónin bæði, ýmist sitt í hvoru
lagi eða tvö í senn, en allt með þeim
hætti að maður vildi ekki af neinu
missa. Þau fjölluðu iðulega um sama
efni hverju sinni enda samrýnd hjón;
en stundum sagði hann frá fjalli en
hún af fjöru og var þá galdur mikill að
greina allt en missa einslds. En ást-
vinir þeirra hjóna láta nú í Ijósi von
um að notið megi frásagna Guðrúnar
langa hríð um leið og við lýsum sökn-
uði okkar yfir þögninni hinumegin
stofuborðsins.
Heimilið að Miðgarði er að sönnu
einsog hnattræn miðja líka, því það
mundi sóma sér sem fyrirmyndar-
heimili í hverri borg í hverju landi.
Það ber vitni miklum kostum þeirra
hjóna beggja; handavinnu og hugar-
vinnu fólks sem kann til allra verka,
og ekki síst ævistarfi húsbóndans
sem fór víða um höf í sextíu ár. Full-
orðna fólkið nýtur sín í björtum stof-
um með fagurri útsýn yfir fjörðinn og
bömin fá sína ævintýramiðju uppá
lofti þar sem er engu minni gleði að
hafa en í skemmtigörðum í útlöndum.
Einnig þar má líta vandað handverk
Alberts og greina þann hug sem skip-
stjórinn bar til hafsins.
Löngu eftir að ég kynntist hús-
bóndanum og gestgjafanum Alberti
og var orðinn einsog einn úr fjöl-
skyldunni að mér fannst réðst ég til
afleysinga sem kokkur undir hans
skipstjóm á Ljósafellið tímabundið.
Þá varð ég áskynja þeirrar virðingar
og væntumþykju sem bátsmenn bám
til hans og ég skildi fljótt hvers vegna;
og lýsa má með einu litlu atviki. Það
var siður á Ljósafellinu og er kannski
víðar að matsveinninn færði skip-
stjóranum kaífi uppí brú að morgni,
enda hefur þá sá fyrmefndi sofið en
hinn staðið sína vakt. Láðst hafði að
fræða mig um þennan part starfans,
en vitaskuld varð enginn var við mis-
brestinn annar en skipstjórinn sjálf-
ur. En það var liðið langt á annan túr
að morgunkaffíþorstinn fékk hann til
að segja undirmanni sínum nýjum frá
þeirri hefð. Og til þess valdi hann orð
og hafði viðmót manns er virðir og
metur sína menn, sem jafningja.
Enda verða þeir um leið ekki bara
undirmenn, heldur vinir, einsog raun
sannar.
Miðgarður verður áfram miðja
meðan húsíreyjan heldur þar um.
Sögum fækkar nú um helming en
andi húsbóndans hverfur ekki því
heimilið verður ávallt vitnisburður
um samhent hjón og farsælt lífsstarf
þeirra beggja.
Megi Guðrúnu og bömum þeirra
Alberts famast sem best í breyttum
Miðgarði; hvar á landi sem er.
Gunnar Þorsteinn Halldórsson.
Orgelstund
í hádeginu
Safnaðarstarf
NÚ í vetur verður boðið upp á orgel-
tónlist í Neskirkju kl. 12 í hádeginu
á fimmtudögum. Þar leika til skiptis
Reynir Jónasson organisti Nes-
kirkju og Jónas Þórir organisti
Mosfellskirkju á hið nýja orgel Nes-
kirkju í u.þ.b. 15 mínútur, en í lokin
er síðan ritningarorð og bæn. í dag
kl. 12 ríður Jónas Þórir á vaðið og
leikur verk eftir ýmsa höfunda.
Kyrrðarstund í
Hallgrímskirkju
Marta G. Halldórsdóttir sópran-
söngkona mun syngja í kyrrðar-
stund í Hallgrímskirkju í dag,
fimmtudaginn 5. október, við undir-
leik Harðar Askelssonar. Á hverjum
fimmtudegi eru kyrrðarstundir í
Hallgrímskirkju kl. 12 á hádegi.
Flutt er tónlist, texti úr ritningunni
íhugaður og að lokinni athöfn í
kirkjunni er boðið upp á léttan máls-
verð á vægu verði. Einu sinni í mán-
uði í vetur verða fengnir einsöngv-
arar eða einleikarar sem leika með
organista til að auka á fjölbreytnina.
Áskirkja Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17.
Háteigskirkja. Jesúsbæn kl. 20.
Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með
handayfirlagningu og smurning.
Langholtskirkja. Kirkjan er opin til
bænagjörðar í hádeginu. Foreldra-
og barnamorgnar kl. 10-12. Svala
djákni les fyrir eldri börnin. Söng-
stund með Jóni Stefánssyni. Endur-
minningafundur karla kl. 13-14.30.
Laugameskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45-7.06. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á
orgel fyrstu 10 mínúturnar. Að lok-
inni samveru er léttur málsverður í
boði í safnaðarheimili. Samvera
eldri borgara kl. 14. Prestshjónin
Katrín Eyjólfsdóttir og sr. Bragi
Friðriksson koma í heimsókn og
segja sögu sína. Kaffiveitingar og
stjórnun er í umsjá þjónustuhóps
Laugarneskirkju, kirkjuvarðar og
sóknarprests. Kósý í kirkju kl.
20.30. Opinn saumaklúbbur.
Neskirkja. Unglingaklúbbur
Nes- og Dómkirkju kl. 20 í kjallara
Neskirkju.
Árbæjarkirkja. TTT-starf 10-12
ára í Ártúnsskóla kl. 17-18.
Breiðholtskirkja. Mömmumorg-
unn föstudag kl. 10-12.
Digraneskirlga. Leikfimi ÍAK kl.
11. Foreldramorgnar kl. 10-12.
Helgistund kl. 11. Kvöldbænir kl.
18. Safnaðarfélag Digraneskirkju
kl. 20. Guðbjörg Hildur Kolbeins,
lektor, flytur erindi um áhrif ofbeld-
is í fjölmiðlum á börn og unglinga.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
11-12 ára drengi kl. 17-18.
Grafarvogskirkja. Foreldra-
morgnar kl. 10-12. Fræðandi og
skemmtilegar samvemstundir,
heyrum guðs orð og syngjum með
t
Faðir okkar og bróðir,
ÁGÚST GRÉTAR JÓNSSON,
Skúlagötu 72,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 6. október kl. 13.30.
Friðrik Ágústsson,
Sigrún Þórey Ágústsdóttir,
og systkini hins látna.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengda-
faðir,
VALUR FANNAR
gullsmiður,
Hlégerði 37a,
Kópavogi,
andaðist á hjartadeild Landspítalans í Fossvogi
að kvöldi sunnudagsins 1. október.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 6
. október kl. 15.00.
Hanna Aðalsteinsdóttir.
Halldór Fannar,
Þór Fannar,
Heimir Fannar,
Valur Fannar,
Hanna Mjöll Fannar,
Fríður Garðarsdóttir,
Guðrún Markúsdóttir,
Cheryl Fannar,
Guðlaug Tryggvadóttir,
Brynjólfur W. Karlsson.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA SÍMONARDÓTTIR MELSTEÐ
frá Vatnskoti í Þingvallasveit,
áður til heimilis
á Rauðarárstíg 3,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstu-
daginn 6. október kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag krabbameins-
sjúkra barna.
Sigursteinn G. Melsteð, Hanna Ingólfsdóttir,
Pétur G. Melsteð,
Jónína G. Melsteð, Gunnar H. Gunnarsson,
Laufey Erla Kristjánsdóttir,
Hrefna Þorbjarnardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
börnunum. Kaffisopi og spjall, alltaf
brauð og djús fyrir börnin.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar.
Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri
borgara í dag kl. 14.30-17 í safnaðar-
heimilinu Borgum.
Kvenfélag Hallgrímskirlgu.
Fundur verður í kvöld, fimmtudag
5. október kl. 20. Gestur fundarins
verður Pétur Pétursson útvarpsþul-
ur. Gestir velkomnir.
Seljakirkja. Fundir fyrir 9-12 ára
stráka kl. 17 í umsjá KFUM.
Hafnarfj arðarki rkj a. Opið hús
fyrir ung börn og foreldra þeirra kl.
10-12 í Vonarhöfn, Strandbergi. Op-
ið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonar-
höfn, Strandbergi, kl. 17-18.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið
hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12. Opið hús fyrir 9-12 ára
krakka kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 10-11.30 foreldramorgnar. Sam-
verustundir foreldra ungra barna.
Fyrsta samvera. Kl. 14.30 helgi-
stund á Heilbrigðisstofnun, dag-
stofu 3. hæð. Heimsóknargestir vel-
komnir. Kl. 17.30 TTT-starfið í
umsjón Ólafs Jóhanns.
Keflavíkurkirkja. Fermingar-
undirbúningur kl. 14.50-17 í
Kirkjulundi.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. TTT-
starf í fyrsta skipti í dag kl. 17 í um-
sjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur.
Þetta starf er ætlað börnum 10-12
ára og verur á fimmtudögum í vet-
ur.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS ÁGÚSTSSON
bifvélavirki,
Dvergabakka 24,
verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 6. október kl. 15.00.
Helga Eiríksdóttir,
Ágúst Magnússon, Sigríður S. Eiríksdóttir,
Lilja Magnúsdóttir, Jóhann Víglundsson,
Jenný Magnúsdóttir, Magnús Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartans þakkir sendum við þeim, sem auð-
sýndu stuðning og samúð við fráfall og útför
móður okkar, ömmu, tengdamóður, systur og
mágkonu,
ERLU GUÐMUNDSDÓTTUR
lögg. skjalaþýðanda og dómtúlks,
Hringbraut 100,
áður Hátúni 25,
Keflavík.
Vilborg Gunnarsdóttir, Thomas Jablonski,
Björk Gunnarsdóttir, Leif Huzell,
Dagmar Gunnarsdóttir, Sigurður Jónsson,
Gunnar M. Gunnarsson,
María Kamál Gordonsdóttir, Guðmundur Emil Jóhannsson,
Jóhanna Guðmundsdóttir, Halldór Magnússon,
Ásthildur Guðmundsdóttir, Garðar Steinsen
og fjölskyldur.
+
Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim, er
sýndu okkur samúð og vináttu við fráfall
og útför elskulegs eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
FRIÐRIKS S. WELDING,
Fagrabæ 9.
Auður Vigfúsdóttir Welding,
Snorri F. Welding,
Viðar F. Welding,
Kristín F. Welding,
tengdabörn og afabörn.