Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 1
234. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Þrír Palestfnumenn skotnir á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu Aukin átök og óvissa um vopnahlé Jcnísalem, Beinít. AP, Reuters, AFP. KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, reyndi í gær að miðla málum milli ísraela og Palestínumanna en vonir um einhvers konar bráða- birgðasamkomulag um að binda enda á átökin dvínuðu er á daginn leið. Var þó fremur kyrrt fram eftir degi en undir kvöld skutu ísraelskir hermenn þrjá Palestínumenn til bana. AP Mikil átök blossuðu aftur upp á Vesturbakkanum og Gaza í gær og urðu fréttir um að þrír Palestínumenn, þar af tveir unglingar, hefðu fallið fyrir kúlum ísraelskra hermanna ekki til að draga úr þeim. Serbíustjórn hótar að beita fyrir sig lögreglunni Stj órnarandstaðan íhugar ný mótmæli Belgrad. AFP, Reuters. RÍKISSTJÓRNIN í Serbíu, sem skipuð er bandamönnum Slohodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgó- slavíu, tilkynnti í gær, að hún hefði aftur tekið við stjórn lögreglunnar og hótaði að beita henni gegn „ofbeldi og ólöglegum aðgerðum“ stjómarand- stöðunnar og stuðningsmanna Voji- slavs Kostunica, nýkjörins forseta. Talsmenn stjórnarandstöðunnar segjast ekki óttast þessar hótanir og hafa lýst yfir, að neiti bandamenn Milosevic að taka þátt í viðræðum um friðsamleg valdaskipti í landinu muni fólkið í landinu rísa upp aftur. Bandamenn Milosevic, fulltrúar Sósíalistaflokks hans og flokks þjóð- ernisöfgamannsins Vojislavs Seseljs, hættu í fyrradag viðræðum um bráðabirgðastjóm í Serbíu og báru fyrir sig óöld í landinu og ofsóknir gegn sér. Serbneska ríkisstjórnin lýsti því svo yfir í gær, að hún hefði tekið við stjóm lögreglunnar og hót- aði að beita henni til að uppræta „of- beldi og lögleysu" í landinu. Þá ætlaði hún sér að vera áfram við völd út kjörtímabilið og virða að vettugi ákvarðanir „hinnar svokölluðu neyð- amefndar", bráðabirgðastjómarinn- ar, sem stuðningsmenn Kostunica hafa skipað. Áhyggjur af afstöðu herforingjanna Óháða útvarpsstöðin B-9‘2 í Belgr- ad hafði einnig eftir Branislav Ivko- vic, talsmanni Sósíalistaflokksins, að ríkisstjómin krefðist þess að fá aftur yfirráð yfir ríkissjónvarpinu, sem stjórnarandstaðan hefði lagt undir sig. Ymsir leiðtogar stjórnarandstöð- unnar sögðust í gær ekki óttast þess- ai- hótanir, þær væra mest „manna- læti“ því að stjórnin réði í raun litlu í landinu. Þeir hafa hins vegar nokkrar áhyggjur af yfirlýsingu æðstu yfir- manna hersins en að loknum fiindi þeiira með Kostunica vöruðu þeir hann við „neikvæðum afleiðingum" þess að hreinsa til í yfirstjórninni. Stuðningsmenn Kostunica sögðu í gær, að bandamenn Milosevic væra að kynda undir ólgu í landinu með því að neita að taka þátt í viðræðum um myndun nýrrar stjórnar en serbn- eskur almenningur væri reiðubúinn að rísa upp aftur ef þörf krefði. Frestur til mánudags Dusan Mihajlovic, einn leiðtoga stjómarandstöðunnar, sagði, að vitað væri, að Milosevic togaði í spottana að tjaldabaki og hefði gefið fyrirskip- anir til stjómarflokkanna um að hætta viðræðum. Annar stjómar- andstöðuleiðtogi sagði, að Milosevic og hans menn fengju frest til mánu- dags. Að þeim tíma liðnum yrði fólkið hvatt út á göturnar. Vestræn ríki era nú að ræða neyðaraðstoð við Júgóslavíu og Ai- þjóðabankinn hefur heitið skjótri hjálp. Er talið einna brýnast til að byrja með að greiða úr erlendum skuldum ríkisins en þær era um 1.200 milljarðar ísl. kr. en gjaldeyrisforðinn ekki nema rúmlega 32 milljarðar kr. ■ Skipt um/28 Talsmaður ' SÞ, Fred Eckhard, sagði í gær, að Annan hefði reynt að fá deiluaðila til að hætta átökunum og setjast síðan að samningaborði í framhaldi af því. Palestínumenn krefjast þess hins vegar, að hafin verði alþjóðleg rannsókn á upptök- um átakanna og mannfallinu og var það haft eftir Javier Solana, sem fer með utanríkismál í framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins, í Kairó í gær, að samkomulag um þetta væri í nánd. Af því varð þó ekki í gær. Segjast ísraelar ekki munu samþykkja rannsókn, sem ætlað sé að skella allri skuldinni á þá. 22 börn og unglingar fallin Leiðtogi F atah-hreyfingarinnar staðfesti í gær, að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, hefði fyr- irskipað, að reynt yrði að forðast átök við Israela en á sama tíma fréttist, að tveir palestínskir ung- lingar hefðu fallið fyrir byssukúlum ísraelskra hermanna og einnig þriðji Palestínumaðurinn, 22 ára gamall. Varð það til að auka á átök- in og leiðtogi Hamas-hreyfingar- innar skoraði á Palestínumenn að halda uppreisninni áfram. Talsmaður barnahjálparsjóðs SÞ sagði í gær, að 22 börn og unglingar undir 18 ára aldri hefðu fallið og meira en 1.000 særst. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, sagði í gær, að hann eða Mad- eleine Albright utanríkisráðherra kynnu að fara til Miðausturlanda til að reyna að bera klæði á vopnin en það væri þó ekki yfirvofandi. Mubarak hafnaði tillögu Clintons Hosni Mubarak, forseti Egypta- lands, hafnaði í gær tillögu Clintons Allmiklar lækkanir á verðbréfavisitölum vestra Hægir á hagvexti .... A 13 New York. AP. ALLMIKIL lækkun varð á bandarískum hluta- bréfamarkaði í gær og einkum á Nasdaq-vísi- tölunni, sem mælir gengi tæknifyrirtækja. Vantaði lítið á, að gengi hennar mældist það minnsta á árinu, en lækkunin stafar af ótta við minni hagnað fyrirtækja. Nasdaq-vísitalan lækkaði um 2,22% og end- aði í 3.168,49 stigum. Er það í annað sinn á ár- inu, sem hún fer niður fyrir 3.200 stig. Hefur hún þá tapað 37,2% af genginu 10. mars sl. Dow Jones-vísitalan, sem tekur til hefðbundn- ari fyrirtækja, lækkaði einnig eða um 1,05%. Ástæðan fyrir lækkuninni er eins og fyrr segir áhyggjur af afkomu ýmissa fyrirtækja, einkum tæknifyrirtækja, og urðu heldur svartsýnar spár um rekstur Lucent Technolog- ies og Motorola á næstu misserum til þess að hrinda henni af stað. Ýmis fyrirtæki, sem þó náðu góðum árangri á þriðja ársfjórðungi, urðu fyrir barðinu á lækkuninni, til dæmis netfyrir- tækið Yahoo, en gengi hlutabréfa í því lækkuðu um 20,9%. Þar skiptu raunar mestu upplýsing- ar um, að auglýsingum á vefsíðu fyrirtækisins hefði fækkað. Hagfræðingurinn Robert J. Bar- bera sagði í gær, að fjárfestar væru augsýni- lega að færa sig frá tæknifyrirtækjum yfir í hin hefðbundnu vegna þeirrar óvissu, sem nú ríkti á markaðinum. Farið væri að hægja á í efna- AP Fylgst með atganginum á Nasdaq í gær en þá lækkaði gengi ýmissa tæknifyrirtækja verulega. hagslífinu og fjárfestar áttuðu sig á, að jafnvel mjúk lending gæti ekki tryggt þær hagnaðartöl- ur, sem markaðurinn hefur vanist. um að fundur hans, Arafats og Bar- aks yrði í Kairó og sagði að fyrst yrðu Israelar að uppfylla ýmis skil- yrði, m. a. um alþjóðlega rannsókn- arnefnd. Barak hefur hins vegar snúist hugur og er nú hlynntur fundi með Arafat en áður hafði hann hafnað honum. Kofi Annan kom til Líbanons í gær til að ræða örlög þriggja ísr- aelskra hermanna, sem Hizbollah- skæruliðar hafa í haldi. Vilja þeir skipta á þeim og föngum í ísrael en ísraelar vilja fyrst fá það staðfest, að hermennirnir séu heilir á húfi. Afsagnar Estrada krafíst Manila. AP, Reuters. JAIME Sin, kardináli og erki- biskup á Filippseyjum, skoraði í gær á Joseph Estrada, forseta landsins, að segja af sér. Sagði hann, að mútuhneykslið, sem hann væri viðriðinn, hefði rúið hann öllu trausti og gert hann ófæran um að gegna emb- ættinu. Sin kardináli, sem er mjög áhrifamikill á Filippseyjum, sagði, að Estrada hefði ekki lengur neinn siðferðilegan rétt til að halda um stjómartaum- ana og því bæri honum af segja af sér. Þá tilkynntu stjórnar- andstöðuþingmenn og ýmis borgaraleg samtök, að þau ætl- uðu að höfða mál á hendur Estrada og krefjast þess, að hann yrði sviptur embætti. Luis Singson, einn héraðs- stjóranna í landinu, heldur því fram, að hann hafi greitt Estr- ada um 730 millj. ísl. kr. á tæp- um tveimur áram fyrir að láta í friði vinsæla en ólöglega veð- málastarfsemi og að auki hafí hann fengið um 240 millj. kr. af skatttekjum héraðsins. Estrada neitar þessum ásök- unum og einn helsti ráðgjafi hans varaði í gær við „efna- hagshruni" yrði þeim haldið til streitu. MORGUNBLAÐH) 12. OKTÓBER 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.