Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 68
38 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK í dag er fimmtudagur 12. október, 286. dagur ársins 2000. Orð dagsins: Sjá ég sendi yður eins og sauði meðal úlfa. Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur. (Matt 10.16.) Skipin Reykjavíkurhöfn: í dag er væntanlegur Mek- hanik Kottsov og út fara Goðafoss og Arn- arfell. _______ Ilafnarfjarðarhöfn: í dag er Gaastborg vænt- anlegt. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14-17. Félag frímerkjasafn- ara. Opið hús laugar- daga kl. 13.30-17. Áheit. Kaldrananes- kirkja á Ströndum á 150 ára afmæli á næsta ári og þarfnast kirkjan mikilla endurbóta. Þeir sem vildu styrkja þetta málefni geta lagt inn á } reikn. 1105-05-400744. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9-12 baðþjónusta, kl. 9-16.30 pennasaumur og búta- saumur, kl. 9.45 morg- unstund, kl. 10.15 leik- fimi.kl. 11 boccia, kl. 13 opin smíðastofa, kl. 13 pútt, kl. 9 hár og fót- snyrtistofur opnar. Aflagrandi 40. Vinnu- stofa kl. 9, boccia kl. 10, hádegismatur ki. 12. Vinnustofa kl. 13, mynd- mennt ki. 13 og kaffi kl. 15. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9-9.45 leik- fimi, kl. 9-12 myndlist, kl. 9-16 handavinna og fótaaðgerð, kl. 13 gler- list, kl. 14 dans. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9 hárgreiðsla og opin handavinnustofan, kl. 13 opin handavinnustofan, kl. 14.30 söngstund. Félagsstarf aldraðra Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9.fótaaðgerð, kl. 10 hársnyrting, kl. 11.10 leikfimi, kl. 13 fóndur og handavinna, kl. 15. Félagsst. Furugerði 1. Kl. 9 aðstoð við böð- un, smíðar og útskurður og glerskurðarnámskeið og leirmunagerð, kl. 9.45 verslunarferð í Austurver, kl. 13.30 boccia. Félagsstarf aldraðar í Garðabæ, opið starf í i Kirkjulundi mánudaga, miðvikudaga og fbstu- daga kl. 14-16. Nám- skeiðin eru byijuð málun, keramik, leirlist, glerlist, tréskurður, bútasaumur, boccia og leikfimi. Opið hús í Holtsbúð 87 á þriðj- ud. kl. 13.30. Rútuferðir frá Álftanesi, Hleinum og Kirkjulundi. s 565-0952 og 565-7122. Helgistund í Vídak'nskirkju á þriðjud. kl. 16. LeMmin er á mánudögum og fimmtu- dögum. Bókmenntir á *'* mánud. kl. 10.30-12. Ferðir í Þjóðmenningar- hús eru á föstud. kl. 13.30. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Húsinu er lokað í dag þar sem rafmagn verður tekið af húsinu vegna framkvæmdanna_ sem þar eru í gangi. Á morg- un verður myndmennt og brids. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga kl. 10-13. Matur í hádeginu. Brids kl. 13. Framsögn kl. 16.15. Uppl. á skrif- stofu FEB í síma 588- 2111 kl. 9-17.. Gerðuberg, félags- starf. sund og leikfimi- æfingar í Breiðholtsiaug kl. 9.30, kl. 10.30 helgi- stund umsjón Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni, djáknanemar í heim- sókn frá hádegi spilasal- ur og vinnustofur opin, ki. 13. börn úr Öldusels- skóla í heimsókn, veit- ingar í kaffihúsi Gerðu- bergs. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan opin leiðbeinandi á staðnum kl. 9-15, kl. 9.30 gler og postulíns- málun, leikfimi kl. 9.05, kl. 9.50 og kl. 10.45, kl. 13 klippimyndir og tau- málun. Gulismári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Mat- arþjónusta er á þriðju- og fostudögum. Panta þarf fyrir kl. 10 sömu daga. Fótaaðgerðastof- an er opin kl. 10- 16,Postulínsmálun kl. 9, yoga kl 10, bridge kl 13. Handavinnustofan opin kl. 13-16. Prjónahópur kl. 13-15. Hraunbær 105. Kl. 9- 16.30 bútasaumur, perlusaumur og korta- gerð, kl. 9.45 boccia, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 14 fé- lagsvist. Hæðargarður 31. Kl. 9-16.30 opin vinnustofa, glerskurður, kl. 9-17 hárgreiðsla og böðun, kl. 10 leikfimi, kl. 13.30 bókabíll, kl.15.15 dans. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 opin handavinnustofa búta- og brúðusaumur, böðun, fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 13 handa- vinna, kl. 14 félagsvist. Norðurbrún 1. Kl. 9 handavinnustofurnar opnar, útskurður kl. 10 leirmunanámskeið kl. 13.30 stund við píanóið. Vesturgata 7. K. 9 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl.9.15—12 að- stoð við böðun, kl. 9.15- 15.30 handavinna, kl.10 boccia, kl. 13-14 leikfimi, kl. 13-16 kóræfmg. Vitatorg. Kl. 9 smiðj- an, kl. 9.30 glerskurð- ur, fatasaumur og morgunstund, kl. 10 boccia, kl. 13 hand- mennt, körfugerð og frjálst spil. Bridsdeild FEBK, GuIIsmára Spilað mánu- og fimmtudaga í vetur í Gullsmára 13. Spil hefst kl. 13, mæting 15 mínút- um fyrr. GA-fundir spilafíkla eru kl. 18.15 á mánu- dögum í Seltjarnames- kirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtud. í fræðsludeild SÁÁ Síðu- múla 3-5 og í Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg á laugard. kl. 10.30. Barðstrendingafélag- ið spilað í kvöld í Konnakoti Hverfisgötu 105 2 hæð kl. 20. 30. Slysavarnardeild kvenna í Reykjavík. Haustferðin verður far- in 14. okt. Faríð verður um Suðurnesin með óvæntum uppákomum. Skráning og frekari upplýsingar hjá Hrafn- hildi Björnsdóttur s:557-1081 og Hrafn- hildi Scheving s: 567- 9794 fyrir 12. okt. Orlofsnefnd hús- mæðra í Kópavogi. Myndakvöld fyrir þær sem dvöldu að Hrafna- gili í júní verður haldið í húsnæði Kvenmfélags Kópavogs Hamraborg 10 í kvöld kl. 20. Kristniboðsfélag kvenna Háaleitisbraut 58-60. Fundur 12. okt. í umsjá Elísabetar Magnúsdótt- ur kl. 17 en kaffi kl. 16. Kvenfélag Fríkirkju- safnaðarins í Reykjavík heldur kvöldverðarfund í safnaðarheimilinu að Laufásvegi 13 í kvöld kl. 20. Sjálfsbjörg, Hátúni 12. Tafl í félagsheimil- inu í kvöld kl. 20. Kiwanisklúbburinn Geysir, Mosfellsbæ, heldur spilavist í kvöld kl. 20.30 í félagsheimil- inu Leirvogstungu. Félagsvist í Húnabúð, Skeifunni 11, í kvöld kl. 20. 2. kvöld i para- keppni. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. Minningarkort Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Lauga- vegi 7 eða í síma 561- 0545. Gíróþjónusta. Barnaspítali Hrings- ins. Upplýsingar um minningarkort Barna- spítalasjóðs Hringsins fást hjá Kvenfélagi Hringsins í síma 551- 4080. Kortin fást í flest- um apótekum á höfuð- borgarsvæðinu. Minningarkort barna- deildar Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Thor- valdsensfélagsins eru til sölu á Thorvaldsens- bazar, Austurstræti 4, s. 551-3509. Minningarkort Stóra- Laugardalssóknar, Tálknafirði til styrktar kirkjubyggingarsjóði nýrrar kirkju í Tálkna- firði eru afgreidd í síma 456-2700. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 669 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, (þróttir 569 1156, i^érblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ~'KlTSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Grafalvarlegt grín MIG langar að benda Mannfræðistofnun háskól- ans á, að kynna sér efni þáttarins Djúpa laugin, sem sýndur er á Skjá ein- um. Þar gæti verið komið verðugt rannsóknarefni, að minnsta kosti ef það fólk sem þar kemur fram er þverskurður af ungu fólki á Islandi í dag. Nið- urlægingin og lágkúran sem krakkarnir láta yfir sig ganga með bros á vör er skelfileg og þáttar- stjórnendum og öðrum stjórnendum stöðvarinnar til háborinnar skammar. Hvar er sjálfsvirðing þessa fólks spyr ég? 101067-3869. Stóri-Sunnan, íslenskt mál, blaðamenn og fréttaritarar í MORGUNBLAÐINU 13. sept. var agnarsmá frétt á bls. 2 sem vakti að- dáun mína. Fréttin var lík- lega frekar ómerkileg að margra mati, fjallaði um veður í Ólafsvík í fimm setningum. Það sem vakti aðdáun mína var að þessar fimm setningar voru svo listilega samansettar af fréttaritaranum að hrein unun var að lesa. Fréttin hafði yfirskriftina Stóri- Sunnan á ferð og var svohljóðandi: „Einstök góðviðri hafa ríkt hér í sumar. Gróðurinn er enn í sæld, kartöflugrös og ber ófrosin með öllu. I dag er svo Stóri-Sunnan hér á ferð og er svipur á þeim gamla. Lækir buna niður hlíðar og fossar rjúka. Fossá er í miklum vexti og er flug í ánni sem litar sjóinn langt út á Vík.“ Væri ekki ráð að fréttaritari Morgunblaðs- ins í Ólafsvík tæki að sér að kenna blaða- og eða fréttamönnum vandaða og hnitmiðaða íslensku? Kveðja, Sesselja Guðmundsd., Urðarholti 5, Mosf. Island og Evrópa HVAÐ eftir annað heyrum við í fréttum sjónvarps og útvarps að fólk talar um að svona sé eitthvað ákveðið hér á Isiandi, en svo ein- hvern veginn öðru vísi í Evrópu. Fólk er að bera saman ísland annars veg- ar og Evrópu hins vegar. Utlendingar sem hér eru og heyra svona frásagnir spyrja ósjálfrátt: Nú, hvað telja íslendingar sig ekki til Evrópu? Og svo spyrja þeir áfram: Telja þeir að Island tilheyri þá Amer- íku? Og þegar þeim er sagt að svo sé ekki spyrja þeir áfram: Telja Islend- ingar þá að þeir séu einir og sér í heiminum? Það er nú það. Hvernig væri að segja að sovna sé eitthvað á Islandi, en svo einhvern veginn öðru vísi í öðrum Evrópulöndum? Magga. Lífeyrissjóðir ÉG GET ekki orða bundist vegna fullyrðingar Péturs Blöndals um að allir hefðu lífeyrissjóð. Ég borgaði í lífeyrissjóðinn Skjöld í átta ár og fæ ekkert, því hann var óverðtryggður. Reglan er sú að þú verður að vera búinn að borga í sjóðinn í tíu ár til þess að fá greitt úr honum. Einnig má benda á, að ríkið hefur skert lífeyrissjóði. Máni Tryggvason. SD-smyrslið MIG langar að koma á framfæri ánægju minni með SD-smyrslið, sem fæst í Lyfju í Hafnarfirði. Ég hef notað það á sveppasýkingu á fótum með góðum árangri. Það hefur verið skrifað mikið um dýr sveppasýkingarlyf, en ég vil benda fólki á þennan áburð sem gerir sama gagn. Guðrún Sæmundsdóttir, Hafnarfirði. Jólakvíði ÉG VIL taka undir það sem lífeyrisþegi ritaði í Velvakanda 10. október sl. Sjálf er ég öryrki og hef ekki getað haldið jól síð- astliðin fjögur ár eða meira. Ég á fimm börn og átta barnabörn og um síð- ustu jól gat ég ekki gefið börnunum jólagjafir leng- ur og enn velti ég mér upp úr því, hvað það var sárt að geta ekki glatt þessi litlu hjörtu. Af matarkaup- um er það að segja, að það var keypt ein lítil hangi- kjötsrúlla og nartað í hana öll jólin. Annað var ekki keypt. Öryrki 310839-4509. Gullhringur tapaðist GULLHRINGUR með hvítri perlu tapaðist 7. okt. sl. Skilvís finnandi hafi samband í síma 557-3475. Kros LÁRÉTT: 1 samþykk, 4 uppgerðar- veiki, 7 sjúga, 8 suð, 9 eyktamark, 11 eyðimörk, 13 vaxa, 14 kynið, 15 hryggð, 17 fiskurinn, 20 bókstafur, 22 hnappur, 23 spottum, 24 skilja eftir, 25 meðvindur. sgata LÓÐRÉTT: 1 ætlast á um, 2 ástríki, 3 spilið, 4 bráðum, 5 tölur, 6 falla í dropum, 10 manns- nafn, 12 fijót að læra, 13 hávaða, 15 gistihús, 16 hundur, 18 regnýra, 19 góð- gæti, 20 hlífa, 21 þrábeiðni. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 frekjudós, 8 álfur, 9 græða, 10 aða, 11 mælir, 13 reist, 15 brons, 18 skart, 21 nýt, 22 renna, 23 artin, 24 gróða- fíkn. Lóðrótt: 2 ræfil, 3 kórar, 4 ungar, 5 ókæti, 6 sálm, 7 hatt, 12 inn, 14 eik, 15 bara, 16 ofnar, 17 snauð, 18 starf, 19 aftók, 20 tonn. Víkverji skrifar... IVIKUNNI slepptu norskir dýra- vinir lausum rúmlega 1.500 mink- um á býli í suðurhluta Noregs í þeim tilgangi að mótmæla loðskinnaiðnað- inum. Þó svo að tekist hafi að hand- sama helming minkahópsins er talið að margir minkar hafi drepist vegna viðbrigðanna, kuldans og hungurs þar sem þeir eru ekki vanir að ganga sjálfala. Dýravinirnir sögðust hins vegar vilja gefa minkunum „hinsta tækifæri til að lifa villtir". Þetta er ekki í fyrsta skipti sem dýravinir grípa til þessa ráðs. Vík- verja er ekki kunnugt um hvort þetta tiltæki hefur aukið samúð með málstað dýravina en Ijóst má vera að þessar sleppingar eru ekki í öllum tilfellum fallnar til að lengja líf dýr- anna. Jafnframt má ljóst vera að þau dýr sem lifa og ná að aðlagast lífinu í náttúrunni geta verið skaðleg fyrir viðkvæmt vistkerfi náttúrunnar. Minkar eru einstaklega grimm dýr og drepa oft mun meira en þeir geta torgað. XXX YÍKVERJI heyrði eitt sinn frá- sögn af baráttu þýskra dýra- vina fyrir því að sjaldgæf fuglateg- und yrði varðveitt. Kjörlendi þessarar fuglategundar er á Balk- anskaga en fuglarnir höfðu numið land í Þýskalandi í takmörkuðum mæli. Fyrir baráttu þýskra dýravina var farið út í allumfangsmiklar að- gerðir til að bæta umhverfi fuglanna þannig að þeir kæmust betur af og viðkoma þeirra yrði meiri. Þessar kostnaðarsömu aðgerðir skiluðu all- góðum árangri og fuglunum tók að fjölga. Þetta varð hins vegar til þess að minkar og refir fengu áhuga á fuglunum og tóku til við að höggva stór skörð í stofninn. Þá vaknaði sú spurning, átti að hefja skipulega fækkun á mink og ref á svæðinu? Fuglarnir gátu vart talist hluti af vistkerfi svæðisins nema fyrir til- verkan mannsins en villidýrin voru hins vegar hluti af vistkerfinu. Ef búa átti fuglunum samastað urðu þá refir og minkar að víkja? Þessi spurning var að sjálfsögðu mjög erf- ið fyrir dýravini. XXX SKEMMTIÞÁTTUR Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur í Ríkis- sjónvarpinu fór ágætlega af stað, að mati Víkverja. Það var vel til fundið hjá Steinunni Ólínu að byrja þáttinn á því að sýna stutt brot úr gömlum skemmtiþáttum jafnframt því sem hún velti því fyrir sér hvernig góður skemmtiþáttur ætti að vera. Þetta sýndi áhorfendum ágætlega að þess- ir gömlu þættir voru flestir ekki ýkja skemmtilegir. Það var hins vegar „kvótaprinsessan" í lok þáttarins sem sló tvímælalaust í gegn. Henni var ekki svarafátt þegar hún var að rökstyðja það að það væri ofureðli- legt að hún, ellefu ára gömul, væri ein ríkasta kona landsins. Það má mikið vera ef það á ekki eftir að heyrast meira frá þessari stúlku í framtíðinni. xxx I* HAUST tilkynnti Reykjavíkur- borg að boðið yrði upp á heitar máltíðir í öllum grunnskólum lands- ins. Þarna var stigið ótvírætt fram- faraspor og má furðulegt heita að það skuli ekki hafa verið stigið fyrir löngu. Börn sem eru stærstan hluta dagsins í skólanum eiga ekki að þurfa að sætta sig við að vera send að heiman með þurra samloku og kókómjólk. Börn sem eru að stækka og þroskast þurfa á kjarnbetri mál- tíð að halda. í sumum skólum í Reykjavík eiga einungis börn í heilsdagsskólanum kost á heitri máltíð og í öðrum skól- um fá bara yngstu börnin heita mál- tíð en ekki unglingarnir. Borgin þarf skilyrðislaust að láta þetta ná til allra barna því fæst börn hafa tæki- færi til að fara heim í hádeginu til að fá heita máltíð. Þetta skref sem stig- ið var í haust er hins vegar vonandi aðeins fyrsta skref í átt til betri þjón- ustu við börn í Reykjavík. Ná- grannasveitarfélögin eiga einnig að fara að dæmi Reykjavíkurborgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.