Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 61 var 22,9 mkr. og hagnaður HAB nam 54,2 mkr. Samtals nam hagnaður veitufyr- irtækjanna þriggja 92 mkr. á síð- asta ári. • Vegna sterkrar sjóðsstöðu greiddi Akranesveita upp lán að andvirði um 43 mkr. á síðasta ári. Nýtt var uppgreiðsluheimild í lánasamningi, en greiðsla þessi var til viðbótar og umfram ákvæði afborgana í lánasamning- um. • Sjóðsstaða Akranesveitu um síð- ustu mánaðamót var um 80 mkr. I undirbúningi var tillaga til stjórnar um að greiða inn á eða upp lán fyrir áramót og hefði sú greiðsla orðið umfram og til við- bótar við umsamdar afborganir af lánum á árinu. • 900 milljón króna öryggisventill- inn hjá HAB framreiknaður til verðlags í árslok 1999 nam 1.038 m.kr, en skuldirnar námu 854 mkr. eins og fyrr getur. Fjármálaráðherra þarf því ekki að hafa áhyggjur af því að út- gjöld ríkissjóðs verði mikil vegna þess að skuldir HAB verði um- fram 900 mkr. markið framreikn- að um næstu áramót enda verða skuldir HAB greiddar niður um 95 mkr. til viðbótar á yfirstand- andi ári. Framlag Akranesveitu til bæjarins í ársreikningum Akranesveitu fyrir síðasta ár nam arðgreiðsla veitunnar til bæjarsjóðs 21 mkr. Hér er um að ræða verkefni, sem Akranesveita annast og kostar svo sem viðhald gatna og gangstétta, rekstur umferðarmannvirkja, snjó- mokstur og hálkueyðingu, hreinsun bæjarlandsins, fjallskil o.fl. Auk þessa leggur Akranesveita fram framlög til bæjarins þótt þau komi ekki fram í reikningum veitunnar og önnur framlög eru lágt metin í árs- reikningi. Þannig er t.d. rafmagns- verð til götulýsingar reiknað á verði sem er undir innkaupsverði veitunn- ar á rafmagni en síðan er allur rekstrar- og stofnkostnaður götu- ljósakerfisins færður á veituna. Mér reiknast til að ef allur slíkur kostn- aður væri reiknaður á sanngjarnan hátt yrði framlag veitunnar á yfir- standandi ári ekki undir 45 mkr. Lækkun á verði heita vatnsins Þegai’ framangreindar niður- stöður eru skoðaðar og bomar sam- an við áætlanir verður að hafa í huga að lækkanir á verði heita vatnsins hafa orðið talsvert meiri en gert var ráð fyrir í áætlunum. Astæða væri því til að ætla að fjár- hagsstaða væri verri sem því nem- ur. Svo er þó ekki eins og að framan er rakið. Lækkanir á verði heita vatnsins hafa orðið umtalsverðar og er nú svo komið að hinn þráláti söngur yf- ir háu verði á heita vatninu heyrist varla lengur. Ég gleðst yfir því að á síðasta stjórnarfundi sem ég sat hjá HAB var samþykkt að lækka heildsölu- verð um 7,5% hinn 1. nóvember nk. Þetta var gert að vandlega athug- uðu máli og í samræmi við mótaða stefnu stjórnarinnar. í áframhaldi var á síðasta stjórnarfundi sem ég sat hjá Akranesveitu samþykkt 7,5% lækkun á verði heita vatnsins frá sama tíma. Rétt er að taka fram að þessi lækkun er umfram það sem áætlanir gerðu ráð fyrir og byggist á því að staðan er betri en miðað var við. Þetta er þriðja lækkunin, sem ekki var gert ráð fyrir í áætlunum og ljóst er að á næstu árum verður áfram hægt að lækka verðið. Starfsmenn fyrirtækjanna hafa því unnið mjög gott starf á þessum tæpu 5 árum frá því sameining fór fram. Árangurinn er þeim að þakka og það er rík ástæða til þess að ég þakki þeim fyrir frábærlega unnin störf. Við starfsmennirnir komum frá þremur fyrirtækjum eða stofn- unum. Eðlilega tók það nokkurn tíma fyrir hópana að samlagast, en allir lögðu sig fram og nú þegar ég hætti störfum ríkir góður starfs- og liðsandi. Akranesi 4. október 2000. Söngnámskeið í Hafnarfjarðar- kirkju SÖNGNÁMSKEIÐ á vegum Hafnarfjarðarkirkju hefst laugar- daginn 14. október. Námskeiðið stendur í 6 laugardaga og er haldið frá kl.12.30-14.00. Á nám- skeiðinu er sérstaklega kennd öndun, raddbeiting og þjálfun í tónheyrn. Námskeiðið er þannig gert að það hentar bæði byrjend- um sem og þeim er lengra eru komnir. Kennt verður í Hásölum safnaðarheimilis Hafnarfjarðar- kirkju. Leiðbeinandi er kórstjóri Hafnarfjarðarkirkju, Natalía Chow. Hægt er að skrá sig á námskeiðið hjá henni í síma 6994613 eða mæta á laugardaginn kemur kl. 12.30. Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald- urshópa kl. 14-17. Biblíulestur í safnaðarheimilinu kl. 20. Háteigskirkja. Jesúbæn kl. 20. Taize-messa kl. 21. Fyrirbæn með handaryfirlagningu og smurning. Langholtskirkja. Kirkjan er opin til bænagjörðar í hádeginu. For- eldra- og barnamorgnar kl. 10-12. Fræðsla: Öryggisbúnaður í bílum. Elva Möller hjúkrunarfræðingur. Svala djákni les fyrir eldri börn- in. Söngstund með Jóni Stefáns- syni. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45-7.06. Kyrrðarstund í há- degi kl. 12.00. Gunnar Gunnars- son leikur á orgel fyrstu 10 mín- úturnar. Að lokinni samveru er léttur málsverður í boði í safnað- arheimili. Neskirkja. Orgeltónlist kl. 12. Reynir Jónasson leikur á hið nýja orgel Neskirkju í u.þ.b. 15 mínút- ur, en í lokin eru ritningarorð og bæn. Unglingaklúbbur Nes- og Dómkirkju kl. 20 í kjallara Nes- kirkju. Félagsstarf eldri borgara. Haustlitaferð um Reykjavík. Kaffiveitingar í Hallgrímskirkju. Lagt af stað frá Neskirkju kl. 14. Skráning í síma 511-1560. Allir velkomnir. Árbæjarkirkja. TTT-starf 10-12 ára í Ártúnsskóla kl. 17-18. Breiðholtskirkja. Bach í Breiðholtskirkju. Sjöttu tónleik- arnir í tónleikaröðinni verður í kvöld kl. 20. Þýski organistinn Jörge Sondermann leikur orgel- verk eftir J.S. Bach. Aðgangseyr- ir rennur til Hjálparstarfs kirkj- unnar. Mömmumorgunn föstudag kl. 10-12. Digraneskirkja. Leikfimi ÍAK kl. 11. Foreldramorgnar kl. 10-12. Helgistund kl. 11. Kvöldbænir kl. 18. Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og bænaStund kl. 12. Léttur há- degisverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Opið hús fyrir full- orðna til kl. 15. Bæna- og þakkar- efnum má koma til Lilju djákna í síma 557-3280. Látið einnig vita í síma ef óskað er eftir keyrslu til og frá kirkju. Starf fyrir 9-10 ára stúlkur kl. 15-16. Helgistund i Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30. Biblíulestur kl. 17.30 í um- sjón sr. Hreins Hjartarsonar. Grafarvogskirkja. Foreldra- morgnar kl. 10-12. Fræðandi og skemmtilegar samverustundir, heyrum Guðs orð og syngjum með börnunum. Kaffisopi og spjall, alltaf brauð og djús fyrir börnin. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7-9 ára kl. 16.30. Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í dag kl. 14.30-17 í safn- aðarheimilinu Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 17. Fyrir- bænaefnum má koma til sóknar- prests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Fundir fyrir 9-12 ára stráka kl. 17 í umsjá KFUM. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra kl. 10-12 í Vonarhöfn, Strand- bergi. Opið hús fyrir 8-9 ára börn í Vonarhöfn, Strandbergi, kl. 17- 18.30. Vídalínskirkja. Bænastund kl. 22. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 10-11.30 foreldramorgnar. Samverustundir foreldra ungra barna. Kl. 17.30 TTT-starfið 10« 12 ára krakka. Ytri-Njarðvíkurkirkja. TTT-starf (10-12 ára) í dag kl. 17 í' umsjá Ástríðar Helgu Sigurðardóttur. Biblíulestrar kl. 20. Fyrirbæna- samvera kl. 18.30. Fyrirbænaefn- um er hægt að koma áleiðis fyrir hádegi virka daga kl. 10-12 í síma 421-5013. íslenski söfnuðurinn í Noregi. Guðsþjónusta verður í Amerísku kirkjunni í Osló kl. 14 sunnudag. Sunnudagaskóli fyrir börnin á sama tíma, tilvalið að rækta trú og tungu með íslenskum Biblíu-’ * sögum, söng og leik. Islenski kór- inn leiðir safnaðarsöng og syngur stólvers undir stjórn Brynhildar Auðbjargardóttur. Kirkjugestum boðið í kaffi í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Sigrún Óskars- dóttir prestur. Hafnarfjarðarkiikja Frikirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir 9- 12 ára krakka kl. 17-18.30. „Það er skrýtið að hugsa til þess að hefðu foreldrar mínir tilheyrt aldamótakynslóðinni, hefði ég hugsanlega ekki eignast systkini. Pabbi greindist með hjartasjúkdóm skömmu eftir að ég fæddist og hefði hann ekki fengið réttu lyfin er ekki víst að hann væri á lífi - og alls óvíst að ég hefði eignast bróður og systur “ Lyf skipta sköpum! Samtök verslunarinnar, stmi: 588 8910 Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf • Lyfjaverslun íslands hf. Medlco ehf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf. Safnaðarstarf Magnús Oddsson veitustjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.