Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Morgunblaðið/Þorkell Frá riístjórnarskrifstofum Politika, þar sem tölvurnar hafa ekki hafið innreið sína á öllum dcildum blaðsins. Skipt um ham Morgunblaðið/Þorkell Slavitsa Cedic, einn settra ritsljóra Politika: „Reksturinn er í rúst, sl. tíu ár hefur ekkert verið hirt um hann, öll áherslan hefur verið á að boða stefnu stjórnvalda. FLÝTIRINN var svo mikill á Dragan Antic þegar hann yfirgaf ritstjómarskrifstof- ur dagblaðsins Politika síðdegis sl. fimmtudag að honum gafst ekki einu sinni tími til að klára úr viskí- glasinu. Klukkustund síðar voru starfsmenn blaðsins komnir aftur inn á skrifstofur þess eftir að hafa tekið þátt í mótmælum gegn Slobodan Milosevie frá hádegi. Skömmu eftir miðnætti var nýju Politika dreift ókeypis til vegfar- enda. Það, eins og raunar landið allt, hafði tekið stakkaskiptum. Hin lýðræðislega bylting sem hefur far- ið eins og eldur í sinu um Serbíu, hafði náð til dagblaðsins sem hafði verið harðlínumálgagn stjórnvalda í ráman áratug. Antic hefur ekki sést í viku og í hans stað eru nú þrir ritstjórar yfir blaðinu, sem ekki hafa gefíð sér tíma til að klára úr flöskunni sem Antic skildi eftir. Þeir eru hluti ell- efu manna ritstjórnar en það er að- eins hluti feiknastórs fjölmiðlafyr- irtækis er rekur sjónvarps- og útvarpsstöð, nokkur dagblöð og vikublöð um ýmis málefni og hefur um 2.000 manns á launaskrá. En flaggskip Politika er engu að síður dagblaðið sem var stofnað ár- ið 1904 og er ein af stofnunum serbnesks samfélags, virt dagblað og vinsælt þar til fyrir þrettán ár- um að afskipti stjórnvalda af rit- stjórnarstefnu blaðsins ýttu óháðri stefnu út af borðinu. Ritstjórarnir horfa nú fram á nýja og betri tíma, þótt því fari fjarri að öll vandamál séu að baki. Fjárhagur blaðsins er í rúst, ekki er sátt á meðal blaðamann- anna um ritstjórnarstefnu þess og eignarhald þess er ekki alveg ljóst. „Nú skiptir þó mestu að koma blaðinu út, við höfum lagt nótt við dag í viku að halda útgáfunni áfram, svo að ekki komi bakslag í seglin," segir Slavitsa Cedic, ritstjóri inn- lendra málefna og viðskiptafrétta. Hún segir að í næstu viku verið skipuð 15 manna framkvæmda- stjórn blaðsins, sem verði mikill léttir, því blaðamenn viti mest lítið um rekstur. „Við viljum halda áfram að skrifa, i þrettán ár höfum við skrifað að vilja stjómvalda, nú viljum við skrifa eins og okkur hef- ur dreymt um allan þennan tíma.“ Grátið af gleði Atburðir sl. fimmtudags voru dramatískir þótt ekki hafi komið til ofbeldis eins og við hús rikissjón- varps- og útvarps, sem var brennt og ráðist á sjónvarpsstjórann. Starfsmenn Politika höfðu gengið út á hádegi til að taka þátt í mót- mælunum gegn Milosevic og Antic og fimmtán manna ritstjórn setið eftir til að koma blaðinu út. Er þeir gerðu sér grein fyrir hvað var að gerast við sjónvarpshúsið, sáu þeir sitt óvænna og flýðu, skildu allt eftir i opna gátt. „Þegar við sáum árásina á sjón- varpshúsið flýttum við okkur að Politika byggingunni tilað verja „Lýðræðisleg bylting“ á sér nú stað í fyrirtækj- um um alla Serbíu. Urð- ur Gunnarsdóttir og Þorkell Þorkelsson heimsóttu fyrrverandi málgagn Milosevic, dagblaðið Politika í Belgrad. hana, þar sem við óttuðumst að hennar biðu sömu örlög. Þegar við sáum ritstjórnarskrifstofurnar yf- irgefnar flýttum við okkur inn, nokkrir tóku að sér að gæta bygg- ingarinnar og öryggisverðir frá stjórnarandstöðunni bættust fljót- lega í hópinn. Þetta var um kl. 18. Antic og hinir fimmtán höfðu út- búið blað sem beið prentunar en við ákváðum að gera nýtt, skiptum liði og kl. eitt um nóttina var búið að prenta nýtt Politika, sem við dreifðum ókeypis. Á forsíðunni stóð stórum stöfum „Lýðræðið kemur til Serbíu“ og Cedic segir stemmninguna hafa verið ótrúlega, gamlir starfsmenn hafi hópast að um kvöldið og er blaðið var tilbúið, hafi menn komið saman og hreinlega grátið af gleði. Daginn eftir beið hins vegar það verkefni að skipa ritstjóra og ræða ritstjórnarstefnuna, sem gekk hreint ekki átakalaust fyrir sig. „Þeii’ voru margir sem vildu alls ekki að Politika yrði sjálfstætt og óháð blað en við sem börðumst fyr- ir því vorum í meirihluta," segir Cedic. Ekki eins hötuð og sjónvarpið Hún kveðst ekki telja að þessi ágreiningur muni valda erfiðleik- um, hún voni að minnihlutinn sjái að sér eða hverfi á braut ella. Sú hafi verið raunin með fyrrum rit- stjórn blaðsins. „Fimmtán manna hópurinn sem réð ritstjórnarstefn- unni fyrir umbreytinguna sneri aft- ur daginn eftir yfirtökuna. í fyrstu sátu þeir sem lamaðir, þeir voru raunar svo hræddir að þegar blaðamaður gekk að einum þeirra og bað um símann hans, átti við númerið, rétti maðurinn henni farsímann sinn orðalaust. Þetta varði ekki lengi, okkur varð fljót- lega ljóst að þeir voru að leggja á ráðin um yfirtöku svo við áttum ekki annars úrkosta en að vísa þeim út í byrjun þessarar viku. Sumir þeirra fóru vandræðalaust en nokkrir höfðu í hótunum við okkur. Það kom þó ekki til þess að bera yrði þá út með valdi. Cedic útskýrir hin hröðu um- skipti á Politika með því að hún, eins og svo margir aðrir hafi verið búnir að bíða eftir þeim í þrettán ár af þeim 22 sem hún hafi verið blaðamaður. Hún hafi oftar en einu sinni íhugað að hætta þegai- henni var skipað að skrifa lygar til að breiða yfir gjörðir stjórnvalda en hún hafi einfaldlega þurft að hafa í sig og á og því hafi hún ákveðið að halda áfram. Það kann að virðast einkennilegt að aðeins ein rúða skuli hafa verið brotin í húsi Politika sama dag og ráðist var að ríkissjónvarpshúsinu með jarðýtu, það brennt og sjón- varpsstjórinn barinn. Skýring Cedic er sú að sjónvarpið hafi verið hataðra en Politika þar sem áróð- urinn hafi einfaldlega verið meiri og verri. Stjórnmálamennirnir hafi haft meira dálæti á sjónvarpinu en blaðinu og að ríkissjónvarpið hafi orðið að tákni stjórnvalda. Reksturinn í rúst Cedic og hinir ellefu í aðalrit- stjórn blaðsins hafa haft í nógu að snúast, því auk þess að halda út- gáfunni áfram reyna þau að átta sig á rekstrinum sem er í molum. Blaðið kom út í um 170.000 eint- aka, þar af var um 100.000 dreift til opinberra stofnana, stjórnvalda og hersins. Stjórn blaðsins vonast til þess að hin nýja ritstjórnar- stefna verði til þess að auka söluna til frambúðar svo hægt verði að rétta fjárhag þess við. „Sl. tíu ár hefur ekkert verið hirt um rekstur- inn, öll áherslan hefur verið á að boða stefnu stjórnvalda." Politika er að meirihluta til í eigu ríkisins. 35% eru almennings- eign og hin 65% skiptast á milli þriggja jafnstórra hópa; starfs- manna blaðsins, einkafyrirtækja og einstaklinga og svo ríkisfyrirtækja. Til stendur að einkavæða 35% fljótlega og segist Cecic ekki telja neina hættu á því að einn aðili komi höndum yfir fjölmiðlasam- steypuna Politika, þar sem reglur fyrirtækisins komi í veg fyrir meirihlutaeign eins aðila. Ekki þarf þó að leita langt á Balkanskaga að dæmum um illvíg átök á dagblöðum, rétt eins og öðr- um fyrirtækjum, þegar fyrrverandi og núverandi starfsmenn takast á um réttinn til að vinna og jafnvel reka fyrirtækið. Þó nokkrir fyrr- verandi blaðamenn hafa þegar bankað upp á hjá Politika, sem hef- ur tilkynnt þeim að þeir verði að sýna þolinmæði. „Eg sé enga hættu í því fólgna að þeir komi aft- ur á blaðið. Hér er rúm fyrir alla,“ segir Cedic, sem er farin að ókyrr- ast, enda þarf að koma út blaði á morgun. „Við höfum ekki enn misst drifkraftinn sem greip okkur sl. fimmtudag, við höfum ekki tíma til þess. Nú síðast lagði Róttæki flokkur Sjesjeljs til að Politika yrði að almenningseign að nýju, það sannar að við verðum að halda bar- áttunni áfram. Árangursmælingar í nýju hagkerfi! - eru aðferðir eins og EVA (Economic Value Added) og Balanced Scorecard úreilar? Námsstefna Stjórnunarfélags Islands • Nýjar aðferðir við að mæla árangur í rekstrí fyrirtækja • Nýjar aðferðir við að mæla árangur starfsmanna • Áhrifytri þátta á árangursmælingar • Hvernig ber að skiigreina árangur? Staður: Hótel Loftleiðir, þingsalur 1 Þriðjudagur, 17. október Tími: 09:00- 12:30 Námsstefnan fjallar um takmarkanir hefðbundinna aðferða við árangursmælingar og nýjar tölfræðilegar aðferðir sem falla betur að hinu "nýja hagkerfi". Farið verður yfir nokkur dæmi um gamlar og nýjar aðferðir. Eru mælistikurnar sem við notum í dag úreltar? Fyrirtæki hafa á undanförnum árum tekið í notkun ýmsar aðferðir við árangursmælingar með mismunandi árangri. Vandamálið felst etv. ekki í mælistikunum, heldur tengist því hvernig mælingar eru framkvæmdar. Nokkur framsækin fyrirtæki hafa nú tekið upp aðferðir sem miða að því að bæta við hinar hefðbundnu aðferðir tölfræðilegum líkönum sem taka tillit til hagkerfisins, markaðsaðstæðna og samkeppni. Stjornunarfélag islands Námsstefnan höfðar til allra fyrirtækja sem vilja ná mælanlegum árangri! Fyrirlesari: Patrick Finegan er frumkvöðull í notkun EVA greiningar við árangursmat. Finegan er framkvæmdastjóri Finegan and Company og fyrrverandi meðeigandi í Stern Stewart and Co. þar sem hann stjórnaði fyrirtækja og markaðsþjónustu ásamt því að leiða rannsóknir þeirra á sviði EVA greiningar. Finegan er með BA gráðu frá Northwester University og MBA próf og JD frá University í Chicago. Skráning hafinl! Stjórnunarfélag íslands, sími: 533-4567 og stjornun@stjornun.is Finegnn hélt fyrirlestur um érnngursmat í fyrirtæk) i nóvemher 1999 og vaktí erindi hans HOTEL LOFTLEIÐIR. Logafold Tveggja íbúða eign. Vorum að fá í einkasölu á frábær- um stað 180 fm efri hæð ásamt tvöföldum 55 fm bíl- skúr og ca 85 fm séríbúð á neðri hæð. Yfir íbúðinni á efri hæð er ca 70 fm óinnréttað risloft sem gefur mikla möguleika. Nýtt glæsilegt baðherbergi, nýjar hurðir og parket. Frábær staðsetning. Hagstæð áhvílandi lán. Verð 23,5 millj. 4574 Kambasel 4ra herb. ( einkasölu glæsileg ca 95 fm íbúð á annarri hæð í glæsilegu tveggja hæða litlu fjölbýli. Sérþvottahús. Parket. Möguleiki að nýta 50 fm óinnréttað ris. Hús og sameign í toppstandi. Hússjóður aðeins 3.500 kr. Verð 11,5 millj. 2447 Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími 588 4477
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.