Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 1
234. TBL. 88. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Þrír Palestfnumenn skotnir á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu
Aukin átök
og óvissa um
vopnahlé
Jcnísalem, Beinít. AP, Reuters, AFP.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, reyndi í gær að miðla
málum milli ísraela og Palestínumanna en vonir um einhvers konar bráða-
birgðasamkomulag um að binda enda á átökin dvínuðu er á daginn leið. Var
þó fremur kyrrt fram eftir degi en undir kvöld skutu ísraelskir hermenn þrjá
Palestínumenn til bana.
AP
Mikil átök blossuðu aftur upp á Vesturbakkanum og Gaza í gær og urðu fréttir um að þrír Palestínumenn, þar
af tveir unglingar, hefðu fallið fyrir kúlum ísraelskra hermanna ekki til að draga úr þeim.
Serbíustjórn hótar að beita fyrir sig lögreglunni
Stj órnarandstaðan
íhugar ný mótmæli
Belgrad. AFP, Reuters.
RÍKISSTJÓRNIN í Serbíu, sem
skipuð er bandamönnum Slohodan
Milosevic, fyrrverandi forseta Júgó-
slavíu, tilkynnti í gær, að hún hefði
aftur tekið við stjórn lögreglunnar og
hótaði að beita henni gegn „ofbeldi og
ólöglegum aðgerðum“ stjómarand-
stöðunnar og stuðningsmanna Voji-
slavs Kostunica, nýkjörins forseta.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar
segjast ekki óttast þessar hótanir og
hafa lýst yfir, að neiti bandamenn
Milosevic að taka þátt í viðræðum um
friðsamleg valdaskipti í landinu muni
fólkið í landinu rísa upp aftur.
Bandamenn Milosevic, fulltrúar
Sósíalistaflokks hans og flokks þjóð-
ernisöfgamannsins Vojislavs Seseljs,
hættu í fyrradag viðræðum um
bráðabirgðastjóm í Serbíu og báru
fyrir sig óöld í landinu og ofsóknir
gegn sér. Serbneska ríkisstjórnin
lýsti því svo yfir í gær, að hún hefði
tekið við stjóm lögreglunnar og hót-
aði að beita henni til að uppræta „of-
beldi og lögleysu" í landinu. Þá ætlaði
hún sér að vera áfram við völd út
kjörtímabilið og virða að vettugi
ákvarðanir „hinnar svokölluðu neyð-
amefndar", bráðabirgðastjómarinn-
ar, sem stuðningsmenn Kostunica
hafa skipað.
Áhyggjur af afstöðu
herforingjanna
Óháða útvarpsstöðin B-9‘2 í Belgr-
ad hafði einnig eftir Branislav Ivko-
vic, talsmanni Sósíalistaflokksins, að
ríkisstjómin krefðist þess að fá aftur
yfirráð yfir ríkissjónvarpinu, sem
stjórnarandstaðan hefði lagt undir
sig.
Ymsir leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar sögðust í gær ekki óttast þess-
ai- hótanir, þær væra mest „manna-
læti“ því að stjórnin réði í raun litlu í
landinu. Þeir hafa hins vegar nokkrar
áhyggjur af yfirlýsingu æðstu yfir-
manna hersins en að loknum fiindi
þeiira með Kostunica vöruðu þeir
hann við „neikvæðum afleiðingum"
þess að hreinsa til í yfirstjórninni.
Stuðningsmenn Kostunica sögðu í
gær, að bandamenn Milosevic væra
að kynda undir ólgu í landinu með því
að neita að taka þátt í viðræðum um
myndun nýrrar stjórnar en serbn-
eskur almenningur væri reiðubúinn
að rísa upp aftur ef þörf krefði.
Frestur til mánudags
Dusan Mihajlovic, einn leiðtoga
stjómarandstöðunnar, sagði, að vitað
væri, að Milosevic togaði í spottana
að tjaldabaki og hefði gefið fyrirskip-
anir til stjómarflokkanna um að
hætta viðræðum. Annar stjómar-
andstöðuleiðtogi sagði, að Milosevic
og hans menn fengju frest til mánu-
dags. Að þeim tíma liðnum yrði fólkið
hvatt út á göturnar.
Vestræn ríki era nú að ræða
neyðaraðstoð við Júgóslavíu og Ai-
þjóðabankinn hefur heitið skjótri
hjálp. Er talið einna brýnast til að
byrja með að greiða úr erlendum
skuldum ríkisins en þær era um 1.200
milljarðar ísl. kr. en gjaldeyrisforðinn
ekki nema rúmlega 32 milljarðar kr.
■ Skipt um/28
Talsmaður ' SÞ, Fred Eckhard,
sagði í gær, að Annan hefði reynt að
fá deiluaðila til að hætta átökunum
og setjast síðan að samningaborði í
framhaldi af því. Palestínumenn
krefjast þess hins vegar, að hafin
verði alþjóðleg rannsókn á upptök-
um átakanna og mannfallinu og var
það haft eftir Javier Solana, sem fer
með utanríkismál í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, í Kairó
í gær, að samkomulag um þetta
væri í nánd. Af því varð þó ekki í
gær. Segjast ísraelar ekki munu
samþykkja rannsókn, sem ætlað sé
að skella allri skuldinni á þá.
22 börn og unglingar fallin
Leiðtogi F atah-hreyfingarinnar
staðfesti í gær, að Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínumanna, hefði fyr-
irskipað, að reynt yrði að forðast
átök við Israela en á sama tíma
fréttist, að tveir palestínskir ung-
lingar hefðu fallið fyrir byssukúlum
ísraelskra hermanna og einnig
þriðji Palestínumaðurinn, 22 ára
gamall. Varð það til að auka á átök-
in og leiðtogi Hamas-hreyfingar-
innar skoraði á Palestínumenn að
halda uppreisninni áfram.
Talsmaður barnahjálparsjóðs SÞ
sagði í gær, að 22 börn og unglingar
undir 18 ára aldri hefðu fallið og
meira en 1.000 særst.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, sagði í gær, að hann eða Mad-
eleine Albright utanríkisráðherra
kynnu að fara til Miðausturlanda til
að reyna að bera klæði á vopnin en
það væri þó ekki yfirvofandi.
Mubarak hafnaði
tillögu Clintons
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, hafnaði í gær tillögu Clintons
Allmiklar lækkanir á verðbréfavisitölum vestra
Hægir á hagvexti
.... A 13
New York. AP.
ALLMIKIL lækkun varð á bandarískum hluta-
bréfamarkaði í gær og einkum á Nasdaq-vísi-
tölunni, sem mælir gengi tæknifyrirtækja.
Vantaði lítið á, að gengi hennar mældist það
minnsta á árinu, en lækkunin stafar af ótta við
minni hagnað fyrirtækja.
Nasdaq-vísitalan lækkaði um 2,22% og end-
aði í 3.168,49 stigum. Er það í annað sinn á ár-
inu, sem hún fer niður fyrir 3.200 stig. Hefur
hún þá tapað 37,2% af genginu 10. mars sl.
Dow Jones-vísitalan, sem tekur til hefðbundn-
ari fyrirtækja, lækkaði einnig eða um 1,05%.
Ástæðan fyrir lækkuninni er eins og fyrr
segir áhyggjur af afkomu ýmissa fyrirtækja,
einkum tæknifyrirtækja, og urðu heldur
svartsýnar spár um rekstur Lucent Technolog-
ies og Motorola á næstu misserum til þess að
hrinda henni af stað. Ýmis fyrirtæki, sem þó
náðu góðum árangri á þriðja ársfjórðungi, urðu
fyrir barðinu á lækkuninni, til dæmis netfyrir-
tækið Yahoo, en gengi hlutabréfa í því lækkuðu
um 20,9%. Þar skiptu raunar mestu upplýsing-
ar um, að auglýsingum á vefsíðu fyrirtækisins
hefði fækkað. Hagfræðingurinn Robert J. Bar-
bera sagði í gær, að fjárfestar væru augsýni-
lega að færa sig frá tæknifyrirtækjum yfir í hin
hefðbundnu vegna þeirrar óvissu, sem nú ríkti
á markaðinum. Farið væri að hægja á í efna-
AP
Fylgst með atganginum á Nasdaq í gær en þá
lækkaði gengi ýmissa tæknifyrirtækja verulega.
hagslífinu og fjárfestar áttuðu sig á, að jafnvel
mjúk lending gæti ekki tryggt þær hagnaðartöl-
ur, sem markaðurinn hefur vanist.
um að fundur hans, Arafats og Bar-
aks yrði í Kairó og sagði að fyrst
yrðu Israelar að uppfylla ýmis skil-
yrði, m. a. um alþjóðlega rannsókn-
arnefnd. Barak hefur hins vegar
snúist hugur og er nú hlynntur
fundi með Arafat en áður hafði
hann hafnað honum.
Kofi Annan kom til Líbanons í
gær til að ræða örlög þriggja ísr-
aelskra hermanna, sem Hizbollah-
skæruliðar hafa í haldi. Vilja þeir
skipta á þeim og föngum í ísrael en
ísraelar vilja fyrst fá það staðfest,
að hermennirnir séu heilir á húfi.
Afsagnar
Estrada
krafíst
Manila. AP, Reuters.
JAIME Sin, kardináli og erki-
biskup á Filippseyjum, skoraði
í gær á Joseph Estrada, forseta
landsins, að segja af sér. Sagði
hann, að mútuhneykslið, sem
hann væri viðriðinn, hefði rúið
hann öllu trausti og gert hann
ófæran um að gegna emb-
ættinu.
Sin kardináli, sem er mjög
áhrifamikill á Filippseyjum,
sagði, að Estrada hefði ekki
lengur neinn siðferðilegan rétt
til að halda um stjómartaum-
ana og því bæri honum af segja
af sér. Þá tilkynntu stjórnar-
andstöðuþingmenn og ýmis
borgaraleg samtök, að þau ætl-
uðu að höfða mál á hendur
Estrada og krefjast þess, að
hann yrði sviptur embætti.
Luis Singson, einn héraðs-
stjóranna í landinu, heldur því
fram, að hann hafi greitt Estr-
ada um 730 millj. ísl. kr. á tæp-
um tveimur áram fyrir að láta í
friði vinsæla en ólöglega veð-
málastarfsemi og að auki hafí
hann fengið um 240 millj. kr. af
skatttekjum héraðsins.
Estrada neitar þessum ásök-
unum og einn helsti ráðgjafi
hans varaði í gær við „efna-
hagshruni" yrði þeim haldið til
streitu.
MORGUNBLAÐH) 12. OKTÓBER 2000