Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 500 manns hið minnsta myndu starfa við byggingu 3. áfanga álverksmiðju Norðuráls á Grundartanga Á sjötta hundr- að myndu starfa í álverinu eftir stækkun Forsvarsmenn Norðuráls hf. hafa farið þess bréflega á leit við íslensk stjórnvöld að mega auka mjög verulega framleiðslugetu álverksmiðjunríar á Grundartanga. Björn Ingi Hrafnsson kynnti sér áform fyrirtæk- isins um risavaxið álver með allt að 300 þús- und tonna framleiðslugetu á ári. MORGUNBLAÐIÐ fékk þetta stað- fest hjá öllum aðilum málsins í gær, en gangi stækkunarhugmyndir Norð- uráls að fullu eftir er um að ræða fimmföldun á núverandi framleiðslu- getu fyrirtækisins, eða 300 þúsund tonn á ári í stað 60 þúsund tonna nú. Gert er ráð fyrir að slík stækkun skapi 250-350 ný störf og hið minnsta 500 manns komi að byggingarfram- kvæmdum. Framkvæmdir standa nú yfii- við stækkun álverksmiðjunnar á Grund- artanga og verður framleiðslugeta hennar 90 þúsund tonn á ári eftir breytinguna, en gert er ráð íyrir að starfsemi í stækkuðu álveri geti hafist af fúllum krafti næsta vor. Bygginga- framkvæmdum vegna stækkunarinn- ar lýkur væntanlega um næstu ára- mót, en gert er ráð fyrir að um 50 starfsmenn verði ráðnir til álversins vegna breytinganna. Fyrir starfa um 170 starfsmenn í álverinu á Grundar- tanga. Áhugi á stækkun hefur legið fyrir Áhugi forsvarsmanna Norðuráls á umtalsverðri stækkun álversins hefur legið iyiir í nokkurn tíma og í febr- úarmánuði 1996 samþykkti Skipu- lagsstjóri ríkisins mat á umhveríís- áhrifum 180 þúsund tonna álsvers. Þriðji byggingaráfangi hefur þannig gert ráð fyrir að ráðist verði í bygg- ingu 90 þúsund tonna kerskála við hlið þess sem fyrir er. Forsvarsmenn Norðuráls hafa hins vegar áformað að ráðast strax í byggingu 150 þúsund tonna stækkunar, þannig að heildar- stærð álversins verði 240 þúsund tonn. Með nýrri tækni, þai- á meðal betri nýtingu á kerum, eru síðan áform uppi um að ná framleiðslu- aukningu til viðbótar upp á 60 þúsund tonn, svo heildarframleiðslugetan verði 300 þúsund tonn. Til samanburðar er álframleiðsla ísals í Straumsvík, stærsta iðnfyrir- tækis landsins, ríflega 160 þúsund tonn á ári. Þar sem leyfi Skipulagsstjóra hljóðar „aðeins" upp á 180 þúsund tonn er hins vegai- ljóst að 150 þúsund tonna stækkun þyrfti að gangast und- ir mat á umhverfisáhrifum. Rekið með hagnaði frá í fyrravor Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðhen-a, staðfesti við Morgunblaðið í gær að Norðurál hefði komið á framfæri ósk um stækkun við íslensk stjómvöld. „Það hefur borist fomleg beiðni um stækkun álversins," sagði Val- gerður. „Það kom í sjálfu sér ekki á óvart, enda gáfu Norðurálsmenn þetta í skyn þegar ráðist var í núver- andi áfanga. En þetta myndi þýða verulega stækkun, það er óhætt að segja.“ Ráðherra vildi ekkert frekar ræða þessi mál, en sagði að fundað yrði með Norðuráli og Landsvirkjun á næstu dögum. Þegar hefur einn fundin farið fram vegna þessa máls, þar sem for- svarsmenn Norðuráls skýrðu sín sjónamið, en eins og fram kom 1 Morgunblaðinu í íyrra mánuði hefur fyrirtækið verið rekið með hagnaði frá því það komst í fullan gang í fyrra- vor. „Það er mjög jákvæð niðurstaða miðað við 60.000 tonna framleiðslu- getu og þá möguleika sem felast í stækkun álversins. Við erum því fullir bjartsýni," sagði Ragnar Guðmunds- son, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs Norðuráls. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, staðfesti að fulltrúar Norðuráls hefðu verið í sambandi við Landsvirkjun vegna þessa máls. „Norðurál hefur óskað eftir fom- \á Súfistanum fimmtudagskvöld 12. október kl. 20 menntakvöld II Gunter Grass: Blikktromman Erlend Loe: Ofurnæfur Milan Kundera: Fáfræðin Aleksis Kivi: Sjö bræður Mál og mennirtg malogmenning.is Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfmi 510 2500 Ljósmynd/Emil Þór Framkvæmdir standa nú yfir við stækkun álversins á Grundartanga úr 60.000 í 90.000 tonna ársframleiðslu. legum viðræðum um stækkun ál- verksmiðju fyrirtækisins á næstu ár- um,“ sagði hann. „Fulltrúar fyrirtækjanna munu hittast í næstu viku til þess að fara yfir þessi mál tæknilega og skoða þá möguleika sem eru í stöðunni." Friðrik bendir á að framkvæmdir standi nú yfir við Vatnsfellsvirkjun og þeim ljúki á næsta ári, en þeirri virkj- un er ætlað að mæta aukinni raforku- þörf Norðuráls vegna stækkunar ál- versins upp í 90 þúsund tonn. „Það er alveg Ijóst að frekari orku er ekki hægt að selja fyrirtækinu án þess að byggja til þess sérstakar virkjanir. Það eru einmitt slík atriði sem ræða þarf við fulltrúa Norðuráls. Við verðum jafnframt að hafa í huga, að Landsvirkjun hefur átt í viðræðum við hóp fjárfesta í Reyðaráli um möguleika á orkukaupum fyrir gríð- arstóra verksmiðju. Það er bráðnauð- synlegt að h'ta á þessi mál í samhengi, verði í þau ráðist," sagði Friðrik. Tómas M. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri tækni- og umhverfis- sviðs Norðuráls, segir fulla alvöru á bak við stækkunaráformin. „Við höfum mikinn áhuga á þessu verkefni og teljum að byggingartím- inn gæti verið 20-24 mánuðir." Tómas telur ljóst að svo stór fram- kvæmd komi sér vel fyrir íslenskt efnahagslíf og hann telur ekki að áform Norðuráls muni raska fyrirætl- unum Reyðaráls um álver í Reyðar- firði. „Framkvæmdir þeirra, verði af þeim, fara ekki af stað fyrr en eftir nokkur ár. Ég tel að framkvæmdir við stækkun verksmiðju okkar gætu þess vegna komið þama á milli og haldið þannig ákveðnu jafnvægi á markaðn- um, öllum til hagsbóta," sagði hann. Að sögn Tómasar má gera ráð fyrir að a.m.k. 500 manns muni fá störf við byggingarframkvæmdir á Grundar- tanga vegna stækkunarinnar, en nú þegar starfi um eitt hundrað iðnaðar- ÞYRLA landhelgisgæslunnar TF- SIF sótti í gær þriggja ára gamlan dreng til Stykkishólms og flutti á Landsspítala - háskólasjúkrahús í Fossvogi í Reykjavík. Drengurinn var með alvarlega höfuðáverka og fór beint í aðgerð. Hann var við leik í leikskólanum í Stykkishólmi þegar hann féll á höfuðið með fyrrgreindum afleið- ingum. Leikskólinn er í sama húsi og St. Fransiskusspítalinn og Heilsugæslustöð Stykkishólms og komst drengurinn því fljótt undir læknishendur. Ákveðið var að flytja drenginn á spítala í Reykjavík og var óskað eftir sjúkraflugvél um kl. 14. Þyrlan var komin í Stykkishólm um klukkutíma síðar og lenti með drenginn í Reykjavík um kl. 16. menn á svæðinu vegna yfirstandandi stækkunar. Hann segir jafnframt ljóst að margfalda þyrfti starfs- mannafjölda álverksmiðjunnar til lengri tíma litið. 250 til 350 ný störf myndu þannig bætast við og alls myndu því vel á sjötta hundrað manns vinna í verksmiðjunni þegai' upp er staðið. Þegar beiðni kom um sjúkraflug hafði stjórnstöð Landhelgisgæsl- unnar þegar hafið undirbúning að leit á sjó með TF-SIF en bátur sem var á veiðum við Hópsnes hafði hætt sendingum í sjálfvirka til- kynningaskyldukerfið og ekki náð- ist samband við bátinn með öðrum hætti. Ákveðið var að Fokker-flug- vél Landhelgisgæslunnar leitaði bátsins en TF-SIF hélt áleiðis til Stykkishólms. Stuttu síðar kom í ljós að báturinn hafði af einhverjum orsökum hætt að senda frá sér boð til tilkynningaskyldunnar en að öðru leyti amaði ekkert að um borð. Þegar beiðni um sjúkraflug barst var sjúkraflugvél til reiðu í Reykja- vík en þar sem flugmenn voru ekki tiltækir á þeirri stundu var ákveðið að TF-SIF færi í sjúkraflugið. Þyrla sótti slas- aðan dreng Páll Magnússon hættir á Stöð 2 og Bylgjunni Tekur við fram- kvæmdastjórn hjá IE PÁLL Magnússon hefur látið af störfum sem fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar og tekur innan tíðar við staríi framkvæmdastjóra samskipta- og upplýsingasviðs íslenskrar erfða- greiningar hf. og móðurfyrirtækis þess, deCODE genetics Inc. Páll seg- ir að það hafi verið ákveðið strax að hann hætti sem fréttastjóri þó svo að hann eigi eftir að vinna þar í eina til tvær vikur. „Þetta er gert til að vemda trú- verðugleika Stöðvarinnar. Það er ekki við hæfi að menn gegni starfi fréttastjóra þegar viðkomandi hefur ákveðið að taka sér annað starf fyrir hendm-,“ sagði Páll. Páll hóf störf sem fréttastjóri Stöðvar 2 við stofnun fyrirtækisins 1986. Frá 1991 til 1994 var Páll for- stjóri íslenska útvarpsfélagsins, 1995-1996 var hann í fyrirsvari þess að koma sjónvarpsstöðinni Sýn á laggh’nar og tók að því búnu aftur við fréttastofunni og hefur verið frétta- stjóri síðan. Áður hafði Páll m.a. verið fréttamaður og aðstoðarfréttastjóri Ríkissjónvarpsins. Hreggviður Jónsson, forstjóri Is- lenska útvarpsfélagsins, sagði að þeg- ar það lá fyrir að Páll hefði ákveðið að taka tilboði um nýtt starf hjá ís- lenskri erfðagreiningu hefði verið tekin sameiginleg ákvörðun um að hann hætti strax störfum hjá íslenska útvarpsfélaginu. Páll hafi fengið til- boð sem hann hafi ekki getað hafnað og enginn getað keppt við. „Við töldum að það gengi ekki að hafa fréttastjóra við störf þegar hann hefði ákveðið að vinna á öðrum vett- vangi og ætti hugsanlega að stýra hér málum sem geta komið upp á borð um þetta ákveðna fyrirtæki. Islensk erfðagreining hefur verið og er enn í mikilli fjölmiðlaumfjöllun og við vor- um sammála um að til að tryggja sjálfstæði fréttastofunnar væri aðeins um það eitt að ræða að hann hætti strax stjórnun á fréttastofunni. Hann verður hins vegar hér áfram að ljúka ákveðnum verkefnum, í það minnsta þessa og næstu viku,“ sagði Hregg- viður. Enginn sérstakur arftaki í sigtinu Hann sagði að varafréttastjóramir tveir, Sigmundur Emir Rúnarsson og Kai-1 Garðarsson, tækju við staifi Páls tímabundið. „Þetta er ákvörðun sem hefur borið mjög brátt og þess vegna báðum við várafréttastjórana að taka við stjóminni þar til við hefðum áttað okkur á málunurn," sagði Hreggviðui' og bætti því við að enginn sérstakur arftaki Páls væri í sigtinu. Ekki stæði heldur til að gera breytingar í fram- haldi af þessu innan fréttastofunnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.