Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.10.2000, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 11 FRÉTTIR Ályktun Áhugahóps um auðlindir í almannaþágu um skýrslu auðlindanefndar Fyrningarleiðin er í takt við framþröun Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Markús Möller og Guðmundur G. Þórarinsson kynna ályktun Áhugahóps um auðlindir í almannaþágu. ÁHUGAHÓPUR um auðlindir í al- mannaþágu tekur undir þá meginnið- urstöðu í nýútkominni álitsgerð auð- lindanefndar að fyrir afnot af auðlindum í þjóðareign þurfi að koma gjald og að slík þjóðareign verði stað- fest með stjórnarskrárákvæði. „Fymingarleiðin ein er í samræmi við öll meginrök nefndarinnar og til- lögur hennar um aðrar auðlindir en fiskinn í sjónum,“ segir m.a. í ályktun hópsins sem var kynnt í gær. Guðmundur G. Þórarinsson verk- fræðingur rifjaði upp að Áhugahópur um auðlindir í almannaþágu hefði lát- ið fískveiðistjómun til sín taka og Markús Möller hagfræðingur gerði grein fyrir ályktun hópsins um fyiTnefnda skýrslu. I nefndri ályktun kemur fram að „hópurinn telur það koma skýrt fram í áliti auðlindanefndar að útboð sé eðlilegasta aðferðin til að útdeila tak- mörkuðum gæðum í þjóðareigu, svo sem nýtingu náttúruauðlinda. Með því tekur nefndin undir ráðandi sjón- armið í þeim i-íkjum, sem hafa lengsta hefð fyrir lýðræði, mannréttindum og markaðsbúskap, eins og m.a. hefur komið fram í nýafstöðnum útboðum á farsímarásum í grannlöndum okkar.“ Markús sagði að skýrslan væri að mörgu leyti merkilegt plagg og í henni kæmi fram grundvallarafstaða sem félli hópnum mjög vel í geð. Eðli- legt væri að taka gjald fyrir auðlindh-, eðlilegt væri að bjóða þær út og rétt væri að veita stjórnmálamönnum ekki endalaust svigrúm heldur bæri að binda svona hluti í stjórnarskrá. „Útboðsleiðin er búin að fá heilbrigð- isvottorð frá þeim sem um þetta fjöll- uðu,“ sagði Markús. Hópurinn ályktar að til lengri tíma tryggi útboðsleiðin jafnan rétt allra til að nýta auðlindirnar, lág- markshættu á spillingu og ójöfnuði við úthlutun, sanngjarna greiðslu þjóðarinnai’ sem sé eigandinn og rétt þeirra sem vilja nýta auðlindirnar, þar sem þeim verði aldrei gert að greiða meira fyiir afnotin en þeir telja sér hagkvæmt á hverjum tíma. „Fyrningarleiðin, sem auðlindanefnd bendir á, veitir auk þess færi á sann- gjarnri aðlögun fyrir útgerðina, ekki hvað síst fyrir þá útgerðarmenn sem hafa þurft að kaupa kvóta af þeim sem áður höfðu ókeypis fengið sam- eign þjóðarinnar til afnota," segir m.a. í ályktuninni. Veiðigjaldsleiðin meingölluð Hópuiinn bendir á, að auðlinda- nefnd víki frá grandvallarreglum, þegar komi að fiskistofnunum, mikil- vægustu náttúraauðlind þjóðarinnar, með því að bjóða upp á veiðigjaldsleið við hliðina á hinni almennu útboðs- leið, fyrningarleiðinni. Sú veiði- gjaldsleið, sem auðlindanefnd lýsi, sé meingölluð, meðal annars vegna þess að hún bindi augljóslega ekki enda á deilur, heldur kalli á endalausa togst- reitu um fjárhæðir og gjaldprósent- ur, með tilheyrandi óvissu íyrir út- gerðir og almenning. Hún viðhaldi misrétti og forréttindum, torveldi áfram aðgengi nýliða að sjávarútvegi og bjóði heim spillingu og fyrir- greiðslu, þar sem makk milli stjórn- málamanna og voldugra hagsmuna- aðila komi í stað þess að nota sjálfvirka farvegi markaðarins. „Fyrningai’leiðin er markaðsleið og þar með í takt við alla plmenna fram- þróun í þjóðlífi og viðskiptum. Gjald- tökuleiðin er i stíl löngu úreltra vinnubragða, í ætt við skömmtunar- kerfi og verðlagseftirlit." Markús sagði að kalla mætti veiði- gjaldsleiðina grátkórsleið. Á fimm ára fresti þyrfti að semja um það hvort útgerðin hefði efni á að borga þetta eða hitt. Þetta væri afturhvarf til gömlu tímanna, þegar samið hefði verið um gengið. Með þessu fyrir- komulagi yrði samið um veiðigjald í staðinn. í ályktuninni kemur jafnframt fram að nú reyni á hvort ríkisstjórnin leggi meiri áherslu á velferð þröngs hóps íyrirtækja og flokksgæðinga eða hagsmuni alls almennings í land- inu, hvort hún vilji ríghalda í úrelta, opinbera forsjá eða beita markaðs- lausnum. Skuldasöfnun Markús sagði að ekki ætti að niður- greiða atvinnugreinar og ef málið snerist um hvort útgerðin borgaði um þriðjung af ríkiskostnaði við sjávar- útveg hefði verið hægt að loka því fyr- ir mörgum áram. Hann sagði að ann- að orð yfir veiðigjaldsleiðina gæti verið skuldasöfnunarleið, því að skuldir útgerðarinnar myndu aukast veralega frá því sem nú er, jafnvel allt upp í 300 milljarða króna innan skamms. „Ég hef ekki enn séð skýr °g óyggjandi rök fyrir því hvers vegna þarf að taka veiðigjald," sagði hann um skýrsluna og bætti við að þau vinnubrögð auðlindanefndar að kalla til sérfræðinga væra til fyrir- myndar. Utanríkisráðherra um tæpt kjör Nor- egs í Oryggisráð SÞ Kostnaður vegna bar- áttunnar veldur áhyggjum HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra fagnar inngöngu Norðmanna í Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna en eftir at- kvæðagreiðslu í fyrradag komst Noregur inn í fjórðu tilraun eft- ir baráttu við Itali um annað tveggja sæta Vesturlanda í ráð- inu. Irland komst inn í fyrstu umferð atkvæðagreiðslunnar. Norðmenn munu sitja í ráðinu til 2002 og árið 2004 verður kos- ið um inngöngu Dana. Ráðgert er að ísland sitji í Öryggisráðinu árin 2009 og 2010 eftir kosningu árið 2008, samkvæmt samkomulagi milli Norðurlandanna. Þetta gæti þó breyst gangi þau áform eftir að fjölga fastafulltrúum í ráðinu. Halldór sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa vitað af því að kjör Norðmanna yrði tæpt. Hann hefði skynjað það í símtali við Thorbjörn Jagland, utanrík- isráðheira Noregs, um síðustu helgi. Breyta þarf fyrirkomulaginu „Þetta hefur verið mjög hörð barátta, og harðari en oftast áð- ur. Hér er um norrænt framboð að ræða og þess vegna höfum við íslendingar stutt það með ráðum og dáð. Við erum að sjálfsögðu afskaplega ánægðir með þessa niðurstöðu. Það sem vekur hins vegar áhyggjur inn í framtíðina, með tilliti til okkar framboðs síðar, er hvað þessi barátta hefur kostað mikla fjár- muni. Ég tek undir með þeim sem hafa rætt þessi mál að nást þurfi samkomulag um breytt fyrirkomulag. Norðurlöndin munu þurfa að hafa sig öll við til að halda sinni stöðu,“ sagði Halldór. Hann benti á að framboð ít- ala hefði komið seint inn í um- ræðuna. Þeir hefðu falast eftir stuðningi Islands en ekki fengið þar sem búið var að heita Ir- landi og Noregi stuðningi. Kalkþörungar í Arnarfírði Þörf á frekari rann sóknum á sýnum Bankastjóri Landsbankans Osanngjörn gagnrýni Dómur Héraðsdóms í máli vegna Blönduvirkjunar Líklegt er að Lands- virkjun- airýi FORSTJÓRA Landsvirkjun- ar sýnist blasa við að áfrýjað verði til Hæstaréttar niður- stöðu Héraðsdóms Reykja- víkur um rétt íslenska ríkis- ins til að krefja Landsvirkjun um endurgjald vegna virkjun- arréttinda í Blöndu fyrir al- mennings- og Eyvindarstaða- heiðar. Friðrik Sophusson, for- stjóri Landsvirkjunar, segir að forsendur héraðsdómsins séu svo veikar að full ástæða sé að áfrýja dómnum og fá niðurstöðu Hæstaréttar í þessu máli. Formleg ákvörðun um áfrýjun verður hins vegar tekin innan tíðar. „Hér er um grundvallar- atriði að ræða,“ sagði Friðrik. FYRSTU niðurstöður rannsókna á kalkþörungum á botni Arnarfjarð- ar benda til þess að magn kalkþör- unga í setlögunum, sem borað var í, sé ekki nægjanlegt til hráefnis- vinnslu. Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða stóð að rannsóknunum og sagði Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri félagsins, við Morgunblaðið að þessar bráðabirgðaniðurstöður væru viss vonbrigði en málinu yrði haldið áfram með frekari rannsóknum á sýnunum sem tekin voru í sumar í firðinum. Finna þarf út hvaða svæði í Arnarfirði, sem könnuð voru, gefa best af sér. Reiknað er með frekari niðurstöðum eftir u.þ.b. mánuð. Vegna rannsóknanna hefur fé- lagið átt samstarf við þörunga- verksmiðju á Irlandi, ekki í Skot- landi eins og ranghermt var í Morgunblaðinu í síðustu viku. Fulltrúi frá fyrirtækinu var stadd- ur hér á landi um helgina og kynnti sér aðstæður í Arnarfirði og fyrstu niðurstöður rannsókna. Hann átti einnig fundi með Ut- flutningsráði og Fjárfestingastof- unni. „Hann sagði að við værum á réttri leið og stæðum rétt að mál- um, en kanna þyi'fti sýnin betur áður en kæmi til einhverra fram- kvæmda. Ef sýnin gefa betri nið- urstöðu hafa Irar fullan hug á að taka þátt í stofnun verksmiðju á komandi árum. Þeir eiga í viðræð- um við mögulega kaupendur hrá- efnis í Bandaríkjunum og ef það gengur upp þurfa þeir meira hrá- efni til vinnslu. Af þeim sökum eru þeir að leita í kringum sig. Þrátt fyrir þessar fyrstu niðurstöður okkar sýna þeir málinu enn mikinn áhuga,“ sagði Aðalsteinn. Renndu blint í sjóinn Hann sagði ennfremur að At- vinnuþróunarfélagið hefði rennt blint í sjóinn með þessar rann- sóknir í sumar. Ekki hefði áður verið borað niður í hafsbotn, til að rannsaka þörungasetlagið, heldur aðeins tekið efsta lagið. Slíkar rannsóknir hefðu bæði farið fram áður í Arnarfirði og á Húnaflóa, og gefið jákvæðar vísbendingar. HALLDÓR J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segist í samtali við Moi’gunblaðið ekki skilja þá gagn- rýni sem stjórnarformaður Byggð- astofnunar, Kristinn H. Gunnarsson, setti fram nýlega á fundi með verk- fræðingum þess efnis að bankarnir sýndu landsbyggðinni áhugaleysi þegar kæmi að fjárfestingum þar og viðskiptum við fyrii’tæki. Bankarnir íjárfestu t.d. frekai’ í hátækni á höf- uðborgarsvæðinu og í útlöndum. Halldór segir þessa gagnrýni Krist- ins ósanngjarna hvað Landsbankann snertir. Halldór segist vilja ítreka það sem áður hafi komið fram frá bankanum að útlánsákvarðanir lúti sömu reglum faglega, óháð búsetu og lögheimili fyrirtækja og annarra viðskiptavina. Hann bendir á að útlán Lands- bankans á Vesturlandi og Vestfjörð- um séu mun hærri en innlán, eða um 8 milljarða útlán á móti 6,5 milljarða innlánum. Nettófjármagnsstreymi til uppbyggingar á þessum svæðum sé því 1,5 milljarðar. „Þessar tölur tala sínu máli og sýna að engin mismunun eða skortur á áhuga er á landsbyggð- inni í Landsbankanum. Mér finnst þessi gagmýni Kristins því ósann- gjörn í okkar garð,“ segir Halldór. Varðandi fjárfestingu Lands- bankans í London bendir Halldór á að bandaiáski bankinn, First Union, hafi staðið fyrir þeirri eiginfjáraukn- ingu sem þörf var á vegna kaupanna í London, sú aðgerð sé hins vegar já- kvæð fyi’ir alla viðskiptavini Lands bankans, einnig á landsbyggðinni. „Fjárfestingar í nýrri tækni era af- ar mikilvægar fyrir Landsbankann til að geta aukið sjálfvirkni og nýta fjarskipti, svo veita megi öllum við- skiptavinum bankans betii þjónustu, ekki síst þeim sem búa fjarri útibúum bankans. Aukin tæknivæðing í fjár- málastarfsemi hefur jákvæð áhrif fyrir þjónustustig bankans um allt land. Ég skil í raun alls ekki þennan þátt í gagnrýni Kristins,“ segii’ Hall- dór.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.