Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
1 1 1
Ljósmyndir/Gísli Sigurðsson
Múrinn, verk Ólafs Elíassonar í Hamburger Bahnhof, nær eftir endilöngum salnum.
S
Olafur Elíasson á sýningu
í Hamburger Bahnhof
UM ÞESSAR mundir og fram til 4.
febrúar 2001 stendur yfir mynd-
listarsýning í Hamburger Bahnhof
í Berlín, gamalli járnbrautarstöð
sem breytt hefur verið í sýningar-
stað. Sýningin heitir Eftir múrinn
og er í tilefni þess að áratugur er
liðinn frá því Berlinarmúrinn féll
og landið sameinaðist að nýju.
Valdir voru fjórir ungir mynd-
listarmenn, tákn þeirrar kynslóðar
sem fram hefur komið eftir fall
múrsins. Þar á meðal er íslenskur
myndlistarmaður, Ólafur Eb'asson,
sem býr og starfar í Berlín og er
orðinn vel þekktur.
Framlag Ólafs er sjálfur múrinn,
þ.e. eftirmynd hans, en Ólafur hef-
ur steypt rúmlega eins metra háan
múrvegg eftir endilöngum sal
Hamburger Bahnhof.
Það vakti athygli blaðamanns
Morgunblaðsins, sem var á ferð-
inni í Berlín og tók myndirnar af
sýningunni, að fréttasjónvar-
psstöðin CNN fjallaði um sýning-
una. Þar var viðtal við Ólaf Eli'as-
son og sýndi hann sjönvarps-
mönnum gryíju þar sem hann
hafði tekið efnið í múrinn. Sagði
hann að sýningunni lokinni yrði
múrinn molaður niður og efnið sett
á upprunalegan stað í gryfjuna.
—
||
THE
WML
H*uptgeb«wde Ott - Qstftugel
M«upt<j«b»Mde West I. £uge
Sammlung Marx
OltgAtcite ■ Hcoplgeblude Weit ErðgvtchoR WeittlUgel
Joseph Bcuys - The secret block
for a sccrct person In Ireland
VVeitllugel 1. f tage
OLAFUR
THA
.RIST,„
DIRK St*?
Norðurljós -
söngtónleikar
HULDA Björk Garðarsdóttir,
sópran, Kristina Wahlin, mezzó-
sópran og Beth Elín Byberg,
píanóleikari, flytja söngtónleik-
ana Norðurljós í Safnaðarheim-
ilinu í Vestmannaeyjum sunnu-
daginn 15. október kl. 15.15 og í
Norræna húsinu í Reykjavík
mánudagskvöldið 16. október kl.
20.
Þetta er samvinnuverkefni
þessara þriggja tónlistarmanna
sem felst í tónleikahaldi í októ-
ber 2000 á íslandi, Noregi og
Svíþjóð. Þær hafa starfað saman
síðan á námsárum sínum við
Royal Academy of Music í
London og haldið meðal annars
tónleika í Englandi og Noregi.
A efniskrá tónleikanna eru
lög eftir norræn tónskáld á borð
við E. Grieg, Alnæs, Stenham-
mer, Rangström, Nyström,
Hjálmar H. Ragnarsson, Sig-
valda Kaldalóns og Jón Þórar-
insson.
í;
Syrgjandi kona Michaelangelos telst merkasta verk listamannsins sem
fundist hefur í langan tíma.
A
Aður óþekkt verk
Michaelangelos
fínnst í Englandi
London. Daily Telegraph.
TEIKNING eftir Michaelangelo
fannst nýlega í Castle Howard á
Norður-Englandi og er teikning
þessa ítalska endurreisnarlista-
manns að mati Sotheby’s merkasta
verk Michaelangelos er fundist hef-
ur í langan tíma. Teikningin, sem
nefnd hefur verið Syrgjandi kona, er
metin á allt að átta milljónir punda,
eða um 960 milljónir króna, og fannst
hún við hefðbundið tryggingarmat á
innviðum Castle Howards.
Talið er að myndin Syrgjandi kona
hafi verið keypt af Henry Howard,
jarli af Carlisle á uppboði í London
árið 1747. Hvorki jarlinn né aðrir
þeir er teikninguna skoðuðu næstu
250 árin gerðu sér hins vegar grein
fyrir að hér væri um verk
Michaelangelos að ræða.
„Þetta er eins og að finna gralinn
helga,“ sagði James Miller, einn af
stjórnarformönnum Sotheby’s.
„Þetta er merkasta verk Michael-
angelos sem fundist hefur í manna
minnum."
Breskum listasöfnum verður
veittur forkaupsréttur á teikning-
unni, sem Michaelangelo-sérfræð-
ingar víðsvegar að úr heiminum hafa
þegar staðfest sem verk listamanns-
ins. Að mati Sotheby’s er verkið um-
átta milljóna punda virði og takist
engu bresku listasafnanna að afla
nægjanlegs fjár til kaupanna mun
teikningin verða boðin upp hjá Soth-
eby’s í London við upphaf næsta árs.
„Þetta er augljóslega teikning sem
hefur mikið gildi þar sem sérfræð-
ingar hafa allir samþykkt hana sem
verk Michaelangelos og sem slík ætti
hún því að vera til sýnis í listasafni
þar sem allir geta notið hennar,“
sagði Simon Howard, eigandi
Howard Castle.
En glöggir sjónvarpsáhorfendur
kynnu að kannast við húseignina
sem ættaróðalið úr þáttunum
„Brightshead Revisited", er byggðir
voru á sögu rithöfundarins Evelyns
Waughs.