Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 35

Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 35 Feðgarnir og frillustóðið KVIKMYJVPIR Háskólabfð ÁTTA OG HÁLF KONA (8»/2 WOMEN) ★★ Leikstjóri og handritshöfundur Peter Greenaway. Kvikmyndatök- ustjóri Sacha Vierny. Aðal- leikendur John Standing, Matthew Delanere, Toni Collette, Vivian Wu, Annie Shizuka Inoh, Barbara Sarafian, Kirina Mano, Amanda Plummer. Sýningartími 120 mín. Bretland. Árgerð 2000. KVIKMYNDflHATIÐ I REYKJflVIK Kvikmyndagerðai-maðurinn Peter Greenaway er jafnan öðruvísi, frum- legur og óskammfeilinn. Ekki alltaf skemmtilegur né viðráðanlegur, hneykslar áhorfendur þegar best lætur, þreytir þá úr hófi fram þegar verst gengur. Sú varð afleiðingin í sumar er 8 Vi kona var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Par trylltist públikum undir sýningunni, hellti ókvæðisorðum yflr kvik- myndasmiðinn og strunsaði út að hætti hússins. Þannig viðtökum er Greenaway ekki óvanur. Myndir hans njóta sjaldnar almenningshylli en hitt. Eina undantekningin nánast The Cook, The Thief, His Wife and her Lover, frá 1989. Kolsvört gam- anmynd, hnyttin og óforskömmuð, með stórleikarana Michael Gambon og Helen Mirren ógleymanleg í fylk- ingarbrjósti úrvals listamanna. Hefði Greenaway viljað almenn- ingshylli, var um að gera að halda sig á sömu braut. Hann hafði allt annað í huga. Næsta mynd á eftir kassa- stykkinu um kokkinn, var Prosperós Books. Aldeilis hrútleiðinleg. Nú siglir Greenaway e.k. ólgusjó um- hverfls og persóna sem eru á mörk- um skáldskapar og raunveruleika. Innblásinn af einu meistaraverki Fellini, 8 'A, rekur hann sögu feðga sem eignast sitt eigið kvennabúr með hálfri níundu konu. Það tryggir ekki neina fullnægingu. Tilurð þess er með þeim hætti að milljarðamær- ingur (John Standing), missir konu sína og lífsförunaut og tekur því þunglega. Einkasonurinn (Matthew Delamere), reynir að gleðja hann og vekja aftur til lífsins. I því skyni fer hann m.a. með karl á 8M>, e. Fellini, til að kanna hvort kvennablómi ítal- ans komi ekki blóðinu á hreyfingu. Uppúr því fæðist hugmyndin að búr- inu, sem þeir koma fyrir á herra- garði við Genfarvatnið. Kostir 8V4 konu er kostulegur hug- arheimur kvikmyndagerðarmanns- ins, þeh- afkimar eru engu líkir og sjón sögu ríkari. Hugmyndaflugið er takmarkalaust, atburðarás og upp- ákomur harla óhefðbundnar. Gerir grín að yfirburðum „sterkara kyns- ins“ svokallaða, dregur fram tak- markanir okkar karla og tilfinninga- legt helsi í samanburði við yfirburði þess „veikara“. Kvennahópurinn er litskrúðugur, þar sem rætast kynferðislegir draumar karla um hið útvalda frillu- stóð; þarna er mellan með gullhjart- að, nunnan, hreina meyjan, osfrv., raunar virðist þó sem Greenaway sé uppteknari af nekt karla. Útkoman verður takmörkuð satíra, öllu frekar kuldaleg og fráhrindandi tilrauna- starfsemi sem finnur ekki tilgang sinn. Sæbjörn Valdimarsson Trúarleg rit ÚT ERU komin tvö rit trúarlegs eðl- is eftir Freddie Filmore í þýðingu Sigrúnar Einarsdóttur er nefnast Með auga tígursins og Þegar Guð hrósar. Höfundurinn, Freddie Fil- more Sr., er forstöðumaður Freedom Ministries kirkjunnar í Apopka í Flórídafylki í Bandaríkjun- um. Hann hefur verið í þjónustu kirkjunnar frá 1979 og forstöðumað- ur frá 1983. Hann hefur þjónustað í Bandaríkjunum, á íslandi, Englandi og á Haiti. Frelsiskallið eru útvarps- og sjónvarpsþættir sem sendir hafa verið út í Bandaríkjunum og einnig á sjónvarpsstöðinni Omega á Islandi. Ritin eru í heftuð í litlu broti, 16 bls., verð kr. 1.000 og 31 bls að stærð verð kr. 1.200. ISBN-9979-60-574-X og ISBN-9979-60-573-1. Prent- vinnsla var í höndum Pennans. Út- sölustaðir eru í verslunum Pennans og Bókabúð Kópavogs. Allur ágóði af sölu rennur til líknarstarfa. ------LM-------- Síðasta sýning á Panodil fyrir tvo SÍÐASTA sýning á gamanleikritinu Panodil fyrir tvo sem sýnt er í Loft- kastalanum verður laugardaginn 14. október kl. 20. Panodil fyrir tvo fjallar um tauga- veiklaðan kvikmyndagagnrýnanda (Jón Gnarr) sem stendur í skilnaði. Hann sækir öll sín ráð um hvernig á að umgangast konur í ímynduð sam- töl við Humprey Bogart enda mikill áhugamaður um kvikmyndir. Leikendur eru Jón Gnarr, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Ingibjörg Stefáns- dóttir og Jón Atli Jónasson. Helgartilboð til London 19. október kr. 24.900 Við höfum nú fengið viðbótarherbergi á Ambassador hótelinu í Kensington á hreint frábærum kjörum. Þægilegt nýuppgert hótel í hjarta borgarinnar, lítil herbergi, öll með baði, sjónvarpi og síma. Rétt við Gloucester Road neðanjarðarstöðina. Morgunverður innifalinn. Beint flug til London fimmtudaga og mánudaga í október og nóvember. Verðkr. 14.900 Verðkr. 19.900 Flugsæti mánudaga tii fimrn- Flugsæti, fimmtudaga til tudags. Skattar kr. 3.790.-, ekki mánudags. innifaldir. Verð kr. 19.900 Skattar kr. 3.790.-, ekki innifaldir. Verð kr. 24.900 Flug og hótel í 4 nætur, helgar- ferð 19. okt. Ferð frá fimmtudegi til mánudags, Ambassador hótelið, Kensington, m.v. 2 í herbergi með morgunmat. Skattar kr. 3.790.-, ckki inni- faldir. Ferðir til og frá flugvclli, kr. 1.600,- HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, simi 595 1000. www.heimsferdir.is Fréttagetraun á Netinu (pmbl.is Benvenuto, gardeur strellsoii LACOSTE BELLINI 50 -70 % AFSLÁTTUR AF MERKJAVÖRU outlet SÍMI 568 9512 SUB URLANDSBRAUT 54 BLÁU HÚSIN VIÐ HLIÐINA Á T0PPSKÓR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.