Morgunblaðið - 12.10.2000, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 63
Snorri Ingimars-
son ráðinn til UVS
DR. SNORRI Ingimarsson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
lækningasviðs líftæknifyrirtækis-
ins Urðar, Verðandi, Skuldar ehf.
Sem framkvæmdastjóri mun
Snorri meðal annars leiða sam-
skipti fyrirtækisins við samstarfs-
lækna þess og heilbrigðisstofnanir.
Snorri lauk læknanámi frá
læknaháskólanum í Stokkhólmi,
Karolinska Institutet, árið 1976 og
framhaldsnámi í krabbameins-
lækningum við Radiumhemmet,
Karonliska-sjúkrahúsinu í Stokk-
hólmi og við Karolinska Institutet
árið 1982 og hlaut sérfræðiviður-
kenningu í Svíþjóð og á Islandi
sama ár. Snorri varði doktorsrit-
gerð sína við Karolinska Institutet
í Stokkhólmi árið 1980 og varð dós-
ent við sömu stofnun 1984.
Snorri starfaði sem sérfræðing-
ur í krabbameinslækningum við
Landspítalann 1982-1984. Hann
starfaði sem sérfræðingur við
Krabbameinsskrána í hlutastarfi
1982-1984, þar af sem staðgengill
yfirlæknis um 6 mánaða skeið.
Snorri var forstjóri Krabba-
meinsfélags íslands 1984-1988 og
sérfræðingur og yfirlæknir við
Heilsuhæli NLFI 1988-1991.
Snorri hefur starfað við geðdeild
Landspítalans frá 1991 og hlaut
sérfræðiviðurkenningu í geðlækn-
ingum á íslandi 1994 og í Svíþjóð
1995 og hefur jafnframt rekið eigin
lækningastofu. Snorri var í vinnu-
hópi 1987-1988 við gerð krabba-
meinsáætlunar Norrænu ráðherra-
nefndarinnar og sat í fram-
kvæmdastjórn verkefnisins frá
upphafi árið 1989 og var formaður
stjórnar árin 1991-1998. Hann hef-
ur verið fulltrúi íslands á fjölmörg-
um vinnufundum um krabbameins-
mál á vegum Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar (WHO) á
undanförnum árum.
Snorri var einn af stofnendum
The European Assoeiation for
Cancer Education árið 1987 og
fyrsti forseti samtakanna. Hann
sat í ritnefnd International Journal
of Cancer Education 1987-1988.
Rannsóknastörf Snorra hafa
flest verið á sviði krabbameins;
grunni'annsóknir, klínískar og
faraldursfræðilegar rannsóknir.
Síðari ár hefur rannsóknasviðið
verið tengsl geðsjúkdóma og
krabbameins og rannsóknir á
heilsutengdum lífsgæðum sjúkl-
inga.
Snorri er höfundur eða
meðhöfundur rúmlega 60 vísinda-
greina, útdrátta og bókakafla í er-
lendum og innlendum ritum og
bókum og hefur haldið fjölda fag-
fyrirlestra á íslandi, austan hafs og
vestan, auk kynningar- og fræðslu-
efnis um krabbamein fyrir almenn-
ing á íslandi í blöðum, útvarpi og
sjónvarpi.
Fræðslufundir Lækna-
félags Reykjavíkur
Offíta og ráð
til megrunar
LÆKNAFÉLAG Reykjavíkur
gengst fyrir fræðslufundum fyrir
almenning.
Fundirnir eru þannig skipulagð-
ir að sérfræðingur heldur erindi
um ákveðið heilsufarsvandamál og
síðan er góður tími til fyrirspurna
og umræðna. Fyrirhugað er að
halda fundi reglulega tvisvar í
mánuði í vetur. Þetta fræðslustarf
er í samvinnu við Fræðslustofnun
lækna. Fundirnir verða á fímmtu-
dagskvöldum kl. 20.30, að jafnaði
tveir í mánuði, og fara fram í hús-
næði læknasamtakanna á 5. hæð,
Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Aðgang-
ur er ókeypis og allir velkomnir.
Fyi'sti fundurinn er í kvöld,
fimmtudaginn 12. október, og fjall-
ar um offitu og ráð til megrunar.
Gunnar Valtýsson, sérfræðingur í
lyflækningum, innkirtla- og efna-
skiptasjúkdómum, sér um fræðsl-
una.
Næsti fyrirlestur verður 26.
október og heitir: Reykingar. Viltu
hafa blóð eða kalkhröngl í þínum
æðum? Stefán Einar Matthíasson
æðaskurðlæknir sér um fræðsluna.
A dagskránni í vetur verða m.a. er-
indi um geðræn vandamál hjá öldr-
uðum, matarsýkingar.vefjagikt og
síþreytu, nýjungar í augnskurð-
lækningum, atvinnusjúkdóma og
nýjungar í baráttunni við brjósta-
krabbamein.
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi sem
varð á gatnamótum Suðurlands-
brautar og Faxafens hinn 7. október
kl.10.55.
Þarna varð árekstur milli rauðrar
Daihatsu Cuore bifreiðar sem ekið
var austur Suðurlandsbraut og
rauðrar Nissan Pathfinder bifreiðar
sem ekið var norður Faxafen.
Agreiningur er um stöðu umferð-
arljósa er óhappið varð. Þeir sem
upplýsingar kynnu að geta veitt um
mál þetta eru vinsamlega beðnir um
að hafa samband við lögregluna í
Reykjavík.
Renoull
logunci
MH
Nýskr. 11.1999, 2000 cc vél,
5 dyra, sjálfskiptur, grænn,
k ekinn 9 þ.
Verð 1.830 þ.
Grjóthálsi 1
Sími 575 1230/00
Ráðinn fram-
kvæmdastjóri
fj ármáladeildar
RÚV
BJÖRN Bjarnason, menntamála-
ráðherra, hefur ákveðið að veita
Guðmundi Gylfa Guðmundssyni,
hagfræðingi, stöðu framkvæmda-
stjóra fjármáladeildar Ríkisútvarps-
ins.
Með auglýsingu menntamálaráðu-
neytisins, dags. 23. ágúst sl., var
staða framkvæmdastjóra fjármála-
deildar Ríkisútvarpsins auglýst laus
til umsóknar.
Umsóknarfrestur um stöðuna
rann út hinn 11. september sl. og
voru alls 6 umsækjendur. Auk Guð-
mundar sóttu um stöðuna Guðmar
E. Magnússon, Haraldur Jónasson,
Hólmfríður Árnadóttir, Ófeigur
Hjaltested og Sigurður H. Helgason.
Eftir lok umsóknarfrests óskaði
menntamálaráðherra eftir umsögn
og tillögum útvarpsstjóra og út-
varpsráðs um veitingu stöðunnar, í
samræmi við lög nr. 122/2000 um
Ríkisútvarpið.
í umsögn og tillögu Markúsar
Arnar Antonssonar útvarpsstjóra og
meirihluta útvarpsráðs, var lagt til
að Guðmundi Gylfa Gumundssyni
yrði veitt staðan og ákvað mennta-
málaráðheira að verða við þeirri til-
lögu.
Handl laugartæki
iGrohe-vatn.og vellíöanl
i l Grohe h með ker r , andlaúgartækin eru amic blöndunarhylki 1 OPIÐ ÖLL KVÖLD TIL KL. 21 > 11 METRO Skeifan 7 • Simi 525 0800
KOSTABOÐ
Allt oð
Friform
afsláttur
Fagleg rábgjöf
Fullkomin tölvuteiknun
Fyrsta flokks hönnunarvinna
HÁTÚNI6A (1 húsn. Fðnix) SlMI: 552 4420
Eg get huggað mig við það
„Sonur minn var að fara í skurðaðgerð og ég er í öngum mínum.
Ég get huggað mig við að svæfingarlyfin verka strax og að hann finnur ekki til á meðan aðgerðin
fer fram. En sú blessun að hann getur sofið á meðan.“
Lyf skipta sköpum!
Samtök verslunarinnar, sími: 588 8910
Fræðsluhópur lyfjafyrirtækja
Austurbakki hf. • Delta hf. • Farmasía ehf. • Glaxo Wellcome ehf. • Gróco ehf. • ísfarm ehf • Lyfjaverslun fslands hf.
Medico ehf. • NM Pharma ehf. • Omega Farma ehf. • Pharmaco hf. • Thorarensen Lyf ehf.
EFLIR / HNOTSKÓGUR LF 307-00