Morgunblaðið - 20.10.2000, Síða 1
STOFNAÐ 1913
241. TBL. 88. ÁRG. FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tony Blair um Efnahags- og myntbandalagið
Myndi ekki greiða at-
kvæði með aðild ntína
Kafbáturinn Kúrsk
Hætt við
björgunar-
leiðangur?
Moskva. AFP, AP.
EKKI er víst að verði af fyrirhug-
uðum leiðangri til að endurheimta
lík þeirra 118 sjóliða sem fórust
með rússneska kjarnorkukafbátn-
um Kúrsk í ágústmánuði. Yfirmað-
ur rússneska flotans, Vladímír
Kúrojedov, sagði í gær að ef rann-
sókn leiddi í ljós að kafararnir yrðu
í lífshættu, ætti hann einskis ann-
ars úrkosti en að gefa skipun um
að hætt yrði við leiðangurinn.
Yfirlýsing Kúrojedovs er sterk-
asta vísbendingin sem fram hefur
komið um að hópur Rússa og Norð-
manna, sem er á leið á slysstaðinn,
muni ekki uppfylla það fyrirheit
sem Vladímír Pútín Rússlands-
forseti gaf skömmu eftir slysið, að
lík allra sjóliðanna yrðu færð í
hendur fjölskyldna þeirra. Nokkrir
háttsettir menn í rússneska flotan-
um hafa undanfarið lýst yfir efa-
semdum um að réttlætanlegt sé að
freista þess að ná líkunum upp og
hafa yfirlýsingar þeirra orðið upp-
spretta vangaveltna um að raun-
verulegt hlutverk norsk-rússneska
leiðangursins sé að endurheimta
leynilegan búnað úr kafbátnum.
Kúrojedov vísaði þessu alfarið á
bug í gær.
Irína Ljatsjína, ekkja skipherr-
ans á Kúrsk, sagði sig í gær úr
nefnd, sem sett var á fót til að
styrkja aðstandendur þeirra sem
fórust með kafbátnum, vegna þess
að hún taldi nefndarmenn hafa
brugðist hlutverki sínu. Nefndi
hún máli sínu til stuðnings að 5.000
rúblum, um 16 þúsund ísl. kr., hefði
verið eytt í að senda þakkarbréf til
þeirra sem lögðu fram aðstoð og að
23.000 rúblur hefðu verið veittar til
ritunar bókar um slysið.
MANNRETTINDANEFND Sam-
einuðu þjóðanna samþykkti á
bráðafundi sínum í Genf í gær for-
dæmingu á ísrael fyrir „víðtæk,
skipulögð og mjög alvarleg brot á
mannréttindum“ og ákvað að efna
til alþjóðlegrar rannsóknar á of-
beldinu undanfarnar vikur á
Vesturbakkanum og Gaza. Full-
trúar Bandaríkjamanna og Frakka
lýstu vonbrigðum sínum með sam-
þykktina. Fulltrúar nítján ríkja af
53, sem eiga aðild að nefndinni,
greiddu atkvæði með ályktuninni
sem borin var upp af arabaríkjum.
Hinir fulltrúarnir voru á móti, sátu
hjá eða voru fjarverandi.
Stjórn ísraels byrjaði í gær að
aflétta í samræmi við friðarsam-
komulagið á þriðjudag hömlum á
samgöngum á Gaza og Vesturbakk-
anum en enn er eftir að leyfa um-
Vilja
frelsi til
veiða
SKOTVEIÐIMAÐUR í Búlgaríu
hrópar slagorð á fúndi með um
3.000 félögum smurn í höfiiðborg-
inni Sofiu í gær.
Mótmælt var nýjum lögum sem
stunda veiðar að vild. Um 120.000
skotveiðimenn eru í Búlgaríu en
þar búa um átta milljónir manna.
Mikið er um hvers kyns villibráð í
fjöllum og skógum iandsins.
ferð milli svæðanna og leyfa íbúun-
um að fara til og frá Israel. Margir
íbúar á sjálfsstjórnarsvæðunum
starfa í Israel en hafa ekki getað
sótt vinnu í nokkrar vikur vegna
samgöngubannsins í kjölfar átak-
anna.
ísraelar og Palestínumenn saka
hvorir aðra um að brjóta gegn
ákvæðum samkomulagsins sem
náðist í Sharm el-Sheikh á þriðju-
dag. Settur var gagnkvæmur,
tveggja sólarhringa frestur til að
hrinda í framkvæmd ákvæðum
samkomulagsins og rennur hann út
síðdegis í dag. Til harðra átaka
kom í gær er um 40 gyðingar úr
röðum landnema á sjálfsstjórnar-
svæðunum fóru, að því er virðist í
leyfisleysi, inn á palestínskt svæði
við fjallið Ebal sem er við borgina
Nablus á Vesturbakkanum. Mun
London, Seoul. Reuters, AFP, AP.
BANKASTJÓRI Seðlabanka
Evrópu (ECB), Wim Duisenberg,
hvatti í gær stjómir aðildarríkjanna
ellefu til að leggja hart að sér við að
koma efnahagsmálunum í gott horf.
Gengi sameiginlega gjaldmiðilsins,
evrunnar, fór í 0,8399 dollara um hríð
á mörkuðum í gær eftir að birt var
fólkið hafa ætlað að sjá grafhýsi
Jósefs sem Palestínumenn stór-
skemmdu fyrir skömmu eftir að
ísraelskir hermenn hættu að halda
þar uppi gæslu en göngufólkinu
lenti saman við vopnaða Palestínu-
menn. ísraelar sendu öflugt herlið,
stutt vopnuðum þyrlum, á vettvang
í gær og tókst að bjarga fólkinu úr
herkví á fjallinu en í hópnum voru
nokkrar konur og böm. Var barist
í fimm stundir samfleytt, einn ísra-
eli og einn Palestínumaður féll en
18 særðust, þar af 15 Palestínu-
menn. Báðir aðilar kenndu hinum
um átökin sem fjöruðu út um sólar-
lag í gær en þá höfðu ísraelar sent
skriðdreka og brynvarða vagna að
úthverfum Nablus.
ísraelar gagnrýndu harðlega að
palestínsk yfirvöld skyldu ekki
leyfa þeim að senda hjálparlið til að
niðurstaða þýskrar könnunar sem
sýndi minnkandi tiltrú manna í at-
vinnulífinu á stöðu efnahagsmála en
hækkaði síðan aftur í 0,84 dollara fyr-
ir lokun markaða. Tony Blair, forsæt-
isráðherra Bretlands, segir að við
ríkjandi aðstæður myndi hann leggj-
ast gegn því að Bretar gengju í Efna-
sinna hinum særðu. „Þetta er mjög
alvarlegt mál og gróft brot af hálfu
Palestínustjórnar,“ sagði Ehud
Barak, forsætisráðherra ísraels.
Starfandi utanríkisráðherra
landsins, Shlomo Ben-Ami, sagðist
ekki sjá að ró væri að færast yfir
sviðið. „Sjálfur sé ég ýmislegt vera
að færast til verri vegar í
Palestínustjórn og það veldur
áhyggjum. Er Arafat við stjórnvöl-
inn?“ spurði Ben-Ami.
Simon Wiesenthal-stofnunin í
Los Angeles vill að SÞ fordæmi
árásir sem gerðar hafa verið á
samkunduhús og önnur húsakynni
gyðinga viða um heim að undan-
förnu. Flestar hafa þær verið í
Frakklandi, nær 60, og segja tals-
menn stofnunarinnar að frönsk
stjórnvöld reyni að gera sem
minnst úr málinu.
hags- og myntbandalagið, EMU, og
tækju upp evruna.
Gengi evrunnar gagnvart dollara
hefur lækkað um tæp 30% síðan
henni var hleypt af stokkunmn í jan-
úar 1999. Akveðið var í gær að breyta
ekki vöxtum á evrusvæðinu þrátt fyr-
ir að staðan gagnvart bandaríska
dollaranum versni stöðugt. Margh-
kenna nú óvarlegum ummælum Duis-
enbergs um slæma stöðu gjaldmiðils-
ins. Duisenberg virtist í blaðaviðtali í
vikunni gefa í skyn að ekki yrði gripið
til nýrra ráðstafana til að styrkja
gjaldmiðilinn.
Aðrir benda á að skipulag bankans
sé þunglamalegt, ekki sé hægt að
taka mikilvægar ákvarðanir án þess
að- spyrja ellefu ríkisstjómir álits.
Einnig veikir það, að sögn bandaríska
tímaritsins Business Week, bankann,
að gjaldeyrisforði hans er lítill.
Tony Blair er staddur í heimsókn í
Suður-Kóreu. Fréttamenn spurðu
hann í gær álits á evrunni og aðild
Breta. „Ahnenningsálitið mun gera
upp hug sinn með tilHti til staðreynda
málsins þegar að því kemur. Ef ég
væri spurður í almennri skoðana-
könnun hvort ég vildi að við tækjum
upp evruna núna myndi ég segja nei,“
svaraði forsætisráðherrann. Tals-
maðui- hans gerði síðar lítið úr um-
mælunum og sagði að Blair hefði ekki
sagt neitt nýtt um stefnuna í málum
evmnnar.
Áður hafði Blair á fundi með
kaupsýslumönnum í Seoul sagt að
breska stjómin vildi aðild en aðeins ef
ákveðin skilyrði væra fyrir hendi í
efnahag landsins.
Verð hækkaði á hlutabréfamörkuð-
um í E vrópu í gær er fregnir bárast af
því að Dow Jones-hlutabréfavísitalan
í Bandaríkjunum hefði hækkað um
1,65% og Nasdaq-vísitalan um 7,78%.
-------*-*-*-------
Einvígið í London
Jafntefli í 7.
skákinni
London. AP.
HEIMSMEISTARINN í skák,
Gam' Kasparov, og áskorandinn
Vladímír Kramnik sömdu um jafn-
tefli í London í gær í sjöundu einvíg-
isskákinni eftir aðeins 11 leiki.
Skákin stóð í 48 mínútur og mun
þetta vera stysta kappskák sem
Kasparov hefur teflt.
Kasparov sagðist ekki vera
ánægður með úrslitin en hann er nú
einum vinningi undir í einvíginu.
Kramnik minnti á að hann hefði ver-
ið með svart og þess vegna ekki haft
„neina ástæðu til að hafna“ jafntefl-
isboði Kasparovs. Næst verður teflt
á morgun, laugardag, en alls verða
skákirnar sextán.
■ Taf Imennska Kasparovs/47
MORGUNBLAÐIÐ 20. OKTÓBER 2000
Reuters
Mannréttindanefnd SÞ gagnrýnir fsraela fyrir ofbeldi
Gagnkvæmar ásakan-
ir um samningsbrot
Genf, Jerúsalem. AP, AFP, Reuters.