Morgunblaðið - 01.11.2000, Side 18

Morgunblaðið - 01.11.2000, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Kdr eldri borgara söng á skeramtuninni. Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason Göð aðsókn var að skemmtuninni. Þessar prúðbúnu dömur létu sig ekki vanta og skemmtu sér konunglega. Eldri borgarar á Snæfellsnesi hittast Stykkishólmi - Félög eldri borg- ara á Snæfellsnesi hafa átt sam- starf undanfarin ár. Það byggist meðal annars á því að vera með eina samkomu á ári fyrir alla eldri borgara á Snæfellsnesi. Komið var að Aftanskini, félagi eldri borgara í Stykkishólmi, að bjóða til skemmtunar. Hún var haldin laugardagskvöldið 21. október í félagsheimilinu í Stykk- ishólmi. Samkoman hófst með borð- haldi. Síðan tóku við skemmtiat- riði þar sem kór eldri borgara söng og túlkaði nokkur þekkt gömul lög. Elsti ieikarinn var Hólmfríður Magnúsdóttir en hún verður 90 ára í lok mánaðarins. Kór Stykkishólmskirkju söng og Emelía Gylfadóttir lék á harmon- ikku. Að lokum var dansað fram yfir miðnætti. Lionsklúbbarnir í Stykkishólmi aðstoðuðu Aftanskin við skemmt- unina. Skemmtunin var vel sótt og mættu um 150 manns frá þéttbýl- isstöðunum fjórum á Nesinu. Það var eftirtektarvert hve góð þátt- taka var í dansinum og hafa ef- laust margir gestanna vaknað daginn eftir með strengi. Mikið var um að vera í 11-11 á Hvolsvelli á opnunardaginn. Sólveig Ottósdóttir verslunarstjóri bauð börnum sælgæti í tilefni dagsins. 11-11-verslun opnuð á Hvolsvelli Sýningunni Nytjalist lokið á Skriðuklaustri Næst sett upp í Stykkis- holmi Geitagerði - Nytjalist úr náttúrunni var yfirskrift listmunasýningar sem staðið hefur á Skriðuklaustri frá 13. til 22. október. Sýningin er framlag Handverks og hönnunar til dag- skrár menningarborga Evrópu árið 2000. Eins og yfirskriftin gefur til kynna er hér um að ræða úrval af listmunum og nytjalist nútímans á íslandi. Efniviðurinn er fjölbreyttur og allur úr náttúrunnar ríki. Á- Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar Á sýningunni voru 45 listmunir eftir 26 listamenn sýndir. formað er að flytja sýninguna næst inguna sem þótti njóta sín vel í hin- til Stykkishólms. um rúmgóðu stofum Gunnars- Talsverður fjöldi gesta kom á sýn- stofnunar. Morgunblaðið/GPV Ærin Krulla hefur verið tekin á hús ásamt lömbunum si'num. Barna- börnin, Katrín Osp Rúnarsdóttir og Elka Mist Káradóttir, með lömbin. Hvolsvelli - Kaupás hefur nú opnað 11-11 verslun á Hvolsvelli. Verslun- in er til húsa þar sem áður var versl- un KÁ. Sólveig Ottósdóttir var afar glöð yfir þeim jákvæðu viðtökum sem verslunin hefur fengið meðal við- skiptavina. Að sögn Sólveigar verður lögð áhersla á að vera með fjölbreytt úrval mat- og ferskvöru í búðinni og sama verð og í öllum 11-11 búðun- um. Einnig verða sömu tilboð og annars staðar, t.d. á matvöru, og svokallaðir nammidagar. Sama starfsfólk verður í nýju 11- 11 búðinni og var í verslun KÁ. Ærín Krulla frjósöm Bar í annað sinn á árinu Grindavík - Það telst sjálfsagt ekki til tíðinda að ær beri í októ- ber en ærin Krulla tók upp á því nú í lok október. Það sem merki- legra er er að hún lét þremur lömbum um miðjan apríl og bar síðan tveimur nú í október. Þau Olver Skúlason og Katrín Káradóttir eru það sem daglega nefnast „hobbíbændur“ og voru nokkuð ánægð með þessa skemmtilegu tilbreytingu í bú- skapinn. „Við misstum 11 lömb og eina á í vor í svokallaðri Hvann- eyrarveiki. Þá lét Krulla þremur lömbum fyrir tímann. Núna var hún hér úti í Nesi í beitarhólfi og enginn vissi raunverulega fyrr en hún var borin. Það er óvíst um faðernið á lömbunum," sagði Öl- ver í léttum tón og hvaðst vera vinnumaður á búinu. Ærin Krulla sem er mjög gæf var ekkert yfir sig hrifin þegar blaðamaður mætti á staðinn, hún stappaði niður löppunum og kumraði. Hún róaðist þó fljótlega og leyfði barnabörnum þeirra Öl- vers og Katrínar að halda á ný- fæddum lömbunum til mynda- töku. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Félagar í Myndlistarfélagi Iiskifjarðar og Reyðaríjarðar sýndu 30 myndir efir tólf félagsmcnn í Rafstöðvarhúsinu. Rafveita Reyðar- fjarðar 70 ára Reyðarfírði -1. apríl 1930 var mikill hátíðisdagur í sögu Reyðarfjarðar en þá voru ræstar vélar rafstöðvarinnar í fyrsta sinn og á nokkrum dögum var allt kauptúnið raflýst. Virkjun Búðarár var stórviki síns tíma, 12. janúar 1929 var borgarafundur þar sem kynntur var möguleiki á því að virkja Búðará. Stífla var byggð ofan við Búðarárfossinn, var hæðin 5,5 m í miðjum árfarvegi. Þrýstivatnspípan er 1.100 m niður að stöðvarhúsinu. Rafveitan tengdist samveitukerfi RARIK 1958 og hefur síðan keypt viðbótarrafmagn eftir þörfum. Raf- veitustjóri er Sigfús Guðlaugsson. I tilefni afmælisins halda félagar í Myndlistarfélagi Eskifjarðar og Reyðarfjarðar sýningu í Rafstöðvar- húsinu á 30 myndum eftir 12 félags- menn, unnið er með vatnsliti, olíu, akryl, pastel og túss. Viðfangsefnin eru fjölbreytt en nokkrar myndimar eru hugleiðingar um Völvuna í Reyð- arfirði og Tyrkjaránið 1627. Þriðja og síðasta sýningarhelgi er 4. og 5. nóvember nk. og er opið frá kl. 14 til 19. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Fær sér gottí gogginn ENN er hægt að finna stelki í Vestmannaeyjum þó svo að far- fuglar séu flestir farnir. Þessi sást þó spóka sig á dög- unum þar sem hann var að fá sér vænan ánamaðk í gogginn. Það telst nokkuð gott að ánamaðkar skuli finnast hér á landi svo síðla hausts.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.