Morgunblaðið - 01.11.2000, Síða 41

Morgunblaðið - 01.11.2000, Síða 41
MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 41 i MORGUNBLAÐIÐ M SOFFÍA GÍSLADÓTTIR + Soffía Gísladdttir fæddist í Suður- Njrjabæ, Þykkvabæ, Rang. 25. september 1907. Hún lést á Elli- heimilinu Grund 20. október síðastliðinn og fdr útför hennar fram frá Grensás- kirkju 30. oktdber. Hún Soffía amma mín fékk hægt andlát föstudaginn 20. októ- ber, 93 ára gömul. Heilsu hennar hafði hrakað mikið undanfar- ið og því hvfldin kærkomin þótt við sem þekktum hana munum ávallt sakna hennar létta lundafars og hjartahlýjunnar. Ég fæddist á afmælisdaginn henn- ar ömmu og var auðvitað skírð í höf- uðið á henni og reyndar líka í höfuðið á Auðunni afa sem lést langt fyrir aldur fram fyrir tæplega 35 árum. Ég var sú fyrsta sem skírð var nafninu hennar en síðan bættust fleiri Soffíur í hópinn enda urðu bamabömin 25 talsins. Hún amma mín eignaðist sjálf átta börn og langömmubömin era orðin 35 og þessi mikli fjöldi afkomenda gladdi hana mjög því hún var alveg einstaklega elsk að bömum. Þegar ellin færðist yfír og ýmislegt vildi gleymast, eins og gengur og gerist, gleymdi hún amma aldrei börnunum; hún spurði frétta af þeim og vissi allt- af upp á hár hvenær von var á nýju barni í fjölskylduna. Það var gaman að vera barn með ömmu Soffíu því hún hafði alltaf tíma til að leika við okkur, ærslast og stríða okkur góðlátlega. Kátína var henni í blóð borin og einnig gat hún verið ísmeygilega stríðin ef sá gállinn var á henni. Sá eiginleiki hefur reyndar verið ættarfylgja lengi og er enn. En þótt ég minnist góðlátlegrar stríðni hennar ömmu minnar og léttrar lundar hennar er það þó hjartahlýja hennar sem sterkast lifír í minninu. Mér finnst því við hæfi að kveðja hana með þessum orðum úr þulu eftir Huldu: Ennþá man ég æsku mína, engu blómi slal ég týna, ennþá finn ég ástarmjúka arma stijúka enni mitt, sem blíðvindi af bládýpi rynni; öll þau hjartans hlýindi heféggeymdíminni. Soffía Auður Birgisddttir. Elsku amma. Þegar ég sest hérna niður við að skrifa þér hellast minn- ingarnar yfir mig. Það vora mér og Auði systur mikil fométtindi að fá að alast upp í ást og umhyggju þinni. Þú varst mér sem önnur móðir og kenndir mér svo margt. Þú varst mjög trúrækin og á kvöldin þegar ég fer að sofa fer ég með bænirnar sem ég lærði af þér. Þegar ég lít til baka sé ég hversu mikils virði þú varst okkur systrum, þú varst alltaf til staðar og gerðir allt sem þú gast fyrir okkur. Mig tók það mjög sárt þegar þú fórst á elliheimili en ég reyndi að koma í heimsókn eins oft og ég gat. I eitt skiptið þegar við Auður voram hjá þér á Grund varstu eitthvað leið og vildir fá að fara með okkur heim. Þá sögðum við þér að ef þú saknaðir okkar þyrftir þú bara að líta á mynd- irnar af okkur fyrir ofan rúmið þitt H því við væram alltaf hjá þér. Þér || þóttimjögvæntumþessiorð. Þegar ég var ófrísk af Hrefnu Kristínu varst þú alveg viss um að ég gengi með stelpu og þú varst mjög spennt yfir henni. Eftir að hún fædd- ist kom ég eins oft og ég gat með hana til þín og þú hafðir óskaplega gaman af því. Mér þótti afskaplega vænt um hvað hún var alltaf spennt yfir að fara til þín á Grund og leika | við þig - með blöðrarnar sínar, skoða s myndir eða bara að fíflast og leika sér. Ég minnist þess sérstaklega fyr- h' ca. tveimur mánuðum þegar við Auður og Hrefna Kri- stín komum til þín og þú sast í hjólastólnum frammi í setustofu. Þið Hrefna Kristín skemmtuð ykkur kon- unglega saman og svo fékk hún að keyra þig í hjólastólnum inn í her- bergið þitt. Daginn áð- ur en þú lést var Hrefna Kristín að minnast á það við mig að hún vildi fara að fá að sjá langömmu sína og keyra þig um í hjóla- stólnum. Ég kom til þín síðast á 93 ára af- mælisdeginum þínum þann 25. sept- ember. Þú sast þá frammi í setustofu. Þú spurðir mig mikið um meðgöng- una og tilkynntir mér að nú myndi ég eignast dreng. Við sátum saman, þú hélst í höndina á mér og við hlustuð- um saman á afmælissönginn og fleiri lög spiluð á píanóið. Fjóram dögum seinna eignaðist ég dreng, Andra Hrafn. Mér þykir það afskaplega sárt að þú fékkst aldrei að sjá hann en ég veit að þú sérð hann núna og að þú munir ávallt vaka yfm okkur. Andri Hrafn fékk aldrei að kynn- ast þér, góðmennsku þinni og ást en þú getur verið viss um að ég mun segja bömunum mínum frá lang- ömmu sinni svo minning þín muni lifa. Þín verður sárt saknað en ég veit að þú ert komin þangað sem þér líður vel og það huggar mig í sorginni. Elsku amma, Guð varðveiti þig og geymi. Þín Helen. Elsku Soffía frænka. Þegar pabbi hringdi til mín síðastliðið fostudags- kvöld og tilkynnti mér andlát þitt fylltist hjarta mitt söknuði, en jafn- framt þakklæti fyrir að hafa átt þig sem föðursystur í rúm fjöratíu ár. Fyrsta minning mín um þig er nánast frá frambernsku. Ég naut þeirra for- réttinda að hafa ömmu og afa á æskuheimili mínu og þar söfnuðust saman systkini, makar og frændfólk við hin ýmsu tækifæri, þar varst þú ætíð til staðar elskan. En svo liðu æskuárin og alltaf hittumst við af og til er þú komst í heimsókn í Suður- Nýjabæ og alltaf var jafn gaman að hitta þig - faðmlag þitt, glettni og hlátur er ljúf minning. Og enn liðu árin, ég verð fullorðin og þú „aðeins“ eldri, ég sest að á Selfossi og þangað komst þú oft í heimsókn til barna þinna og fjölskyldna þeirra. Stund- um komstu þá í heimsókn til mín í Starengið og þar áttum við yndisleg- an tíma saman, mikið hlegið og talað og ekki mátti gleyma að sýna þér nýjustu myndirnar. Oft glugguðum við í gömlu myndimar, hugur okkar hvarf á örskotsstundu tuttugu til þrjátíu ár aftur í tímann. Elsku Soffía frænka, að leiðarlok- um vil ég, Óskar, Margrét og Nína Dóra þakka þér allar yndislegu sam- verustundirnar. Mín hinsta kveðja til þín er bæn sem Guðrúnu ömmu dreymdi: Drottinn blessi mig og mína morgun, kvöld og nótt og dag. Drottinn veiji vængi sína vöm um lífs- og sálarhag. Drottinn jfir lög og láð leggi sína líknamáð. Drottinn allra veri vöm varðveit faðir öll þín böm. Öllum aðstandendum þínum send- um við okkar innilegustu samúðar- kveðjm'. Astarkveðja, Rúna og fjölskylda. Elsku Soffía. í dag kveð ég þig með hlýhug og söknuði og minningarnar streyma um mig. Eg hef svo oft hugsað um hvað ég var heppin að hafa fengið svo góða fósturmömmu eins og þig. Fimm ára gömul kom ég til þín, Auð- uns og barnanna ykkar og dvaldi hjá ykkur í þrjú ár. Á Bjargi.var svo gott að vera, víðáttan, dýrin og stóra hús- ið við Ölfusárbakkann. Aldrei þvæld- umst við krakkamir niður að á, því auðvitað varstu búin að brýna það svo vel fyrir okkur krökkunum. Frekar lékum við okkur með kinda- horn og kjálka á túninu heilu dagana. Á þessum áram man ég mest eftir þér í eldhúsinu með svuntu, að baka eða elda eitthvað gott handa okkur. Það var svo gott að koma inn, alltaf góður ilmur úr eldhúsinu. Þú gafst mér alltaf heitt kakó ef það var kalt úti. Ég man vel eftir búðarferðunum okkar, mér fannst þetta svo langt, það tók örugglega hálftíma að ganga þangað. Ég vildi alltaf að þú héldir á mér hluta af leiðinni, þú sást alltaf við mér, lést mig sýna þér allskonar val- hopp þar til við voram komin alla leið. Soffía, þú varst svo trúuð kona og kirkjurækin og þú kenndir mér að taka þátt í því. Éljótlega eftir að ég kom til þín gafst þú mér mynd af Jesú sem ég held mikið upp á og hef lánað bömunum mínum. Éins kennd- ir þú mér bænirnar sem ég kann enn. Það var svo gott að eiga þig að, þú varst alltaf svo hlý og góð. Aldrei heyrði ég þig hallmæla nokkram manni, frekar dróst þú eitthvað gott fram í manneskjunni. Þetta er mikill mannkostur, finnst mér. Þegar við voram saman fannst þér gaman að gera að gamni þínu og varst pínulítið stríðin og við gátum oft hlegið saman. Mér fannst svo flott við þig hvað þú varst ákveðin að gera hlutina sjálf ef þú gast það en varst hálfmóðguð ef fólk bauð þér aðstoð. Það var svo gaman þegar ég heim- sótti þig, þá varst þú alltaf að sýna mér hvernig þú breyttir fötunum þínum, settir blúndur, kraga og flott- ari tölur, enda fannst þér gaman að vera fín. Við áttum margar góðar stundir saman í lífinu, eftir að ég flutti frá ykkur heimsótti ég ykkur oft á Sel- foss og seinna eftir að ég flutti til Grundarfjai'ðar með fjölskyldunni minni komst þú þangað. Ég man hvað þér fannst fallegt þar og vildir eiga þar heima ef einhver af bömun- um þínum hefðu búið þar. Mér fannst göngutúrarnir svo skemmtilegir, það var svo sjálfsagt þá, en núna finnst mér þessi tími sem við áttum saman svo mikils virði. Vettlingana, sem þú prjónaðir handa bömunum mínum í þessum heimsóknum, held ég enn svo vel upp á og geymi enn. Ég er steinhissa á að þeir hafi ekki týnst eins og allir hinir. Þegar ég byrjaði í sex ára bekk gafst þú mér herðatré fyrir úlpuna mína, sem á stóð „Komdu alltaf beint heim úr skólanum". Mér þykir sér- staklega gaman að láta yngstu stelp- una mína, hana Hrönn, nota herða- tréð því hún á það til að gleyma tímanum. Þú varst svo góð við stelp- urnar mínar og þær minnast þín með hlýhug. Þær minnast þess þegar þær komu í heimsókn og fengu alltaf heit- ar pönnukökur sem vora svo góðar enda varstu flink að búa til bestu pönnukökumar. Ég man hvað ég hlakkaði til að flytja í Grafarvoginn og það var svo stutt til þín í Logafoldina en því mið- ur, sama ár fluttir þú á dvalarheimilið Grand. Ég kom þangað oft í heim- sókn og við fórum stundum í bæinn. Þú varst alltaf svo fín til fara og ég var alltaf svo stolt af þér. Við skoðuð- um skartgripi og föt og fóram á kaffi- hús. Þér fannst svo gott að fá þér köku eða ís en þar sem þú varst með sykursýki og máttir ekki borða syk- ur, svindlaðir þú svolítið og fékkst þér alltaf smávegis af kræsingunum. Ég kveð þig, elsku Soffía, með bæninni sem þú kenndir mér þegar égvar lítil: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring, sængmniyfirminni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku Soffía, takk fyrir allt sem þú kenndir mér og það sem þú gerðir fyrii' mig. Þú átt alltaf eftir að vera í huga mér og fallegar minningar geymi ég í hjarta mínu. Kæra böm, barnabörn og bama- barnaböm, ég votta ykkur innilega samúð mína. Linda Haraldsdúttir. ÁLFHEIÐUR ERLA * * ÞORÐARDOTTIR + Álfheiður Erla Þórðardóttir fæddist á Fossi í Mýrdal 24. maí 1946. Hún lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 22. októ- ber siðastliðinn. For- eldrar hennar voru Þórður Áskell Magn- ússon, f. 29. desem- ber 1922, d. 4. maí 1991, og Hrefna Sig- ríður Bjarnadóttir, f. 21. október 1924, d. 16. febrúar 1989. Systkini Erlu eru Bjarni, Kristín og Magnús. Þórður og Hrefna skildu og fundu sér nýja lífsförunauta. Þórður giftist Sigurlaugu Sigur- jónsdóttur. Börn þeirra eru Sig- urður, Helga, Sigurjón og Ásdís. Hrefna giftist Olafi Krist- jánssyni. Þeim varð ekki barna auðið. Erla giftist Adolfi Steinssyni, lögregluvarðstjóra árið 1966. Synir þeirra eru Ólafur og Steinar Dagur. Erla bjó í Reykja- vík fyrstu ár ævi sinnar en flutti _ á unglingsárum til Ól- afsvíkur ásamt móð- ur sinni og systkin- um. í Ólafsvík kynntist hún eftir- lifandi maka sínum Adolfi Steinssyni. Þau bjuggu í Ólafs- vík þar til í júní síð- astliðnum að þau fiuttu til Reykjavíkur. Erla starf- aði lengst af sem skrifstofumað- ur, fyrst í Hraðfrystihúsi Ólafs- víkur og siðan í Vélsmiðjunni Sindra. Siðastliðna áratugi starf- aði Erla í Sparisjóði Ólafsvíkur eða allt þar til hún flutti til Reykjavíkur. Útför Álfheiðar Erlu fór fram frá Fossvogskirkju 27. október. Églifi’í Jesúnafni, í Jesúnafiii’égdey, þó heilsa’og líf mér hafni, hræðistégdauðannei. Dauðannégóttasteigi afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti’ ég segi: Komþúsælþþáþúvilt (Hallgr. Pét) Elsku amma. Nú ert þú farin frá okkur og við söknum þín. Það er svo sárt að koma til afa og þú ert ekki lengur þar. Þú varst okk- ur alltaf svo góð og okkur þykir vænt um þig. Við vildum að þú værir hér enn hjá okkur, en við vitum að þú munt passa okkur þaðan sem þú ert núna og við vitum að þú munt hjálpa okkur þegar okkur líður illa. Við ætl- um að passa afa vel fyrir þig. Elsku amma, takk fyrir árin sem við feng- um með þér þótt þau væra allt of fá. Svandís Erla og Arnar Steinn. GUÐRÚN HERMANNSDÓTTIR + Guðrún Her- mannsdóttir fæddist í Hrísey 17. júní 1927. Hún var dóttir hjónanna Her- manns Jónassonar og Önnu Maríu Jóns- dóttur. Systkini hennar eru Herner, látinn; Jónas; Dýrl- ey, látin; Laufey, Oskar og Hreggvið- ur. Árið 1948 giftlst hún Guðmundi Þór- arinssyni frá Húsa- tóftum í Garði og bjuggu þau að Gerðavegi 2, Hellu frá árinu 1955. Börn þeirra: 1) Þórarinn, _f. 1948, d. 1974, maki Sigurlín Árnadóttir, börn Mar- grét Birna og Dóra Guðrún. 2) Anna María, f. 1953, maki Sigfús Okkur langar í örfáum orðum að kveðja hana mömmu okkar sem lést 28. september á Landspítalanum í Fossvogi. Það er ekki oft sem maður staldrar við og hugsar um liðna tíð eða velth' fyrir sér hvað manni hefur hlotnast í lífinu, en þegar við sátum hjá henni mömmu á sjúkrahúsinu þá fór hugurinn að reika til æskuáranna og þess tíma þegar hún var í fullu fjöri og full af starforku og alltaf svo h'fsglöð og kát, hugurinn reikaði til jólanna þegar hún saumaði á okkur systkinin öll jólafötin og vann jafn- framt við að salta sfld, einnig era okk- ur minnisstæðar kvöldstundirnar á veturna þegar hún var að lesa fyrir okkur systurnar og stóri bróðir kom og lagðist á gólfið hjá okkur til að hlusta. Við höfum verið lánsöm systk- inin að eiga hana mömmu, sem alltaf var tilbúin að laga allt sem miður fór og viljum við þakka henni fyrir allt það góða sem hún veitti okkur. Elsku mamma, við eigum eftir að sakna þín og vonum að þér Mði betur núna, svo ertu hjá honum Dóra bróður. Allar stundir okkar hér ermérljúftaðmuna. Fyllstu þakkir flyt ég þér fyrirsamveruna (Höf. ók.) Anna Mari'a og Kata. Dýrfjörð, barn Anna Kristín. 3) Katrín, f. 1954, maki Þor- steinn Krisljánsson, börn Ásta Kristín, Guðmundur Þór og Kristján Geir. 4) Hermann, f. 1961, maki Oddný Ingi- mundardóttir, börn Steinar Ingi, Guð- rún Eir og Aðal- steinn Smári. 5) Laufey, f. 1964, maki Kristinn Sig- urjónsson, börn Júlía og Daníel. Guðrún átti þrjú langömmu- börn. Frá árinu 1997 dvaldi Guðrún á Garðvangi í Garði. Utför Guðrúnar fór fram frá Útskálakirkju 3. október. Æ æ elsku mamma mín þetta gekk nú ansi fljótt. Mitóðmunégsaknaþín en það er gott þú hvílir rótt Þúvarstætíðgóðogfin og heima gall oft hlátur. En sorgin náði létt til þín ogoftvarstuttígrátur. Öllu fóltó vel þú vildir seint þeir því munu gleyma. Og ætíð alla vel þú stóldir minningu þína þeir geyma. Petta er kveðjuþoð frá mér sársauka ég fæ í hjarta. Englar nú taka á móti þér þessa haustdagana bjarta. Kveðja, Laufey í Danmörku. Handrit afmælia- og minningargreina skului-L vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að diskl- ingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netf- ang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar-^ nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.