Morgunblaðið - 01.11.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000 45
MINNINGAR
A UÐBJÖRG BRYNJÓLFSDÓTTIR
GUNNAR H. KRISTINSSON
+ Auðbjörg Brynj-
ólfsdóttir fædd-
ist 1. nóvember 1929.
Hún lést 17. janúar
siðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Fríkirkjuimi í
Reykjavík 26. jan-
úar.
Gunnar H. Krist-
insson fæddist 30.
nóvember 1930.
Hann lést 27. ágúst
síðastliðinn og fór
útfor hans fram frá
Fríkirkjunni í
Reykjavík 1. septem-
ber.
Þegar ég sit og skrifa línur til ykk-
ar, afi minn og amma, á afmælisdag
ykkar beggja finnst mér tilveran
vera enn tómari en hún hefur verið
undanfamar vikur og mánuði. Því í
dag hefði afi orðið sjötugur. Það var
huggun harmi gegn þegar amma dó í
janúar að hafa fengið að halda upp á
afmælið með henni, og að sjá fram á
það að geta haldið upp á afmælið
hans afa, en það átti ekki fyrir okkur
að liggja. I afmælisdagabók sem ég á
stendur m.a. við 1. nóvember: „Þú ert
ráðsnjall og úrræðagóður, duglegur
og vandvirkur í störfum og fær um að
mæta hverju sem að höndum ber.
Skapfastur ertu og lætur ekki bjóða
þér allt, og lendir því stundum í and-
stöðu við aðra.“
Því er ekki að neita að þessi orð
lýstu ömmu sérstaklega vel. Því eitt
var á hreinu að hún lét skoðanir sínar
í ljósi og þeim varð ekki breytt. Hún
var skapstór og með miklar skoðanir,
en samt með jafnstórt hjarta og
faðm. Það má í raun segja að hún hafi
verið gull og gijót, eins og skrifað var
um hana. í raun má segja að afi hafi
verið jafnrólegur og amma var
ákveðin. Þau mættu örlögum sínum
af æðruleysi, en ekki endilega sátt.
Afi og amma voru gift í rúmlega 47
ár. Þau áttu stóran hóp af bömum og
enn stærri hóp af bamabörnum. Líf
þeirra saman var oft og tíðum erfitt.
Og óhætt er að segja að þau hafi oft
stigið á tærnar hvort á öðm. En ég
held að þeirra ánægjulegasti tími
saman hafi verið tíminn úti í Edin-
borg. Þá var víst oft mjög glatt á
hjalla. Og ekki ómerkari menn en Óli
Tomm, síðar póst- og símamálastjóri,
pössuðu bömin, er þau bmgðu sér út.
Sögumar af þessari dvöl gátu allt-
af komið af stað brosum og fjarrænu
gleðibliki í augum. Þau áttu sumar-
bústað á Þingvöllum sem mikið var
sótt í á sumrin og vom þau æði mörg,
barnabömin sem kynntust þar veiði-
mennskunni í fyrsta skiptið, þar á
meðal ég hin síðari ár.
í dag er ég þakklát fyrir að hafa átt
ykkur að og eftir að ég fluttist til
Reykjavíkur að hafa kynnst ykkur í
raun upp á nýtt. Ég vil á þessum degi
óska ykkur til hamingju með daginn,
hvar sem þið erað.
Dagný.
Skilafrestur
minningar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: I sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast íyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útranninnc
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna sldlafrests.
ATVINNUAUGLÝSINGA
Verkfræðingur/
tæknifræðingur
Verkfræðistofan Fjarhitun hf., Borgartúni 17,
Reykjavík, óskar eftir að ráða verkfræðing eða
tæknifræðing til starfa við hönnun, einkum loft-
ræsi- og lagnakerfa.
Reynsla æskileg, en ekki skilyrði.
Verkfræðistofan Fjarhitun var stofnuð árið 1962
og eru starfsmenn um 40. Fyrirtækið veitir al-
hliða verkfræðiþjónustu í bygginga- og véla-
verkfræði, en megináhersla hefur verið lögð
á verkefni á sviði jarðhitanýtingar, þ.m.t. hönn-
un hitaveitna og hönnun loftræsi- og lagna-
kerfa í stórbyggingar. Framundan eru stór og
áhugaverð verkefni á því sviði.
Umsóknir skal senda til Fjarhitunar hf., Borgar-
túni 17, 105 Reykjavík, fyrir 10. nóvember nk.
Upplýsingar veita Sigþór Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri, sigthor@fjarhitun.is, og Oddur
B. Björnsson, yfirverkfræðingur,
oddur@fjarhitun.is, sími 562 8955.
FJARHITUNhf
VERKFRÆÐISTOFA
IStarfsmann á
traktorsgröfu
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar eftir að
ráða mann á traktorsgröfu. Upplýsingar gefur Gunnar í
síma 893 4628 eða á skrifstofutíma í síma 562 2991.
BYGGINGAFÉLAG
GYtFA OG GUNNARS EHF.
Borgartúni 31 • S: 562 2991
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. var stofnaó árið
1984. BYGG hefur reist þúsundir fermetra af húsnæði á
höfuðborgarsvæðinu og er nú eitt öflugasta
byggingafélag landsins.
Sölufólk óskast
Vantar dugmikið, metnaðarfullt, starfsfólk til
að vinna við sölu á kynningarefni í sjónvarp.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
sölustörfum og geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefnar hjá:
Zink margmiðlun,
sími 562 9600.
Starfsmenn í
byggingavinnu
Við leitum eftir starfsmönnum tíl starfa nú þegar.
Mikil vinna og góð starfsaðstaða er í boði.
Verkamenn f byggingavinnu.
Verkstaðir:
Lyngháls, upplýsingar gefur Gunnar í síma: 696 8562
Barðastaðir, upplýsingar gefur Þorkell í síma: 861 2966
Naustabryggja, upplýsingar gefur Ómar í síma: 696 8565
Skógarhlíð, upplýsingar gefur Árni í síma: 696 8563
Ársalir, upplýsingar gefur Kristján í sima: 892 1148
Upplýsingar gefur Konráð á
skrifstofutíma i síma 562 2991
BYGGINGAFÉLAG
GYLFA 0G GUNNARS EHF.
Borgaitúni 31 * S: 562 2991
BYGG
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. var stofnað árió 1984.
BYGG hefur reist þúsundir fermetra af húsnæói á
höfuðborgarsvæóinu og er nú eitt öflugasta
byggingafélag landsins.
| Rafyirkjár
Byggingafélag Gylfa og Gunnars ehf. óskar eftir að
ráða rafvirkja f vinnu. Mikil mælingavinna er fram-
undan. Upptýsingar gefur Magnús i síma 892 5586
eða á skrifstofutíma í sima 562 2991.
BYGGINGAFÉLAG
GYLFA OG GUNNARS EHF.
Borgartúni 31 * S: 562 2991
Byggingafétag Gylfa og Gunnars ehf. var stofnað árið
1984. BYGG hefur reist þúsundir fermetra af húsnæói á
höfuðborgarsvæðinu og er nú eitt öflugasta
byggingafélag landsins.
Almenna verkfrædlstofan hf.
Rafmagnsverkfræðingur/
rafmagnstæknifræðingur
Vegna mikilla verkefna er óskað eftir að ráða
rafmagnsverkfræðing eða rafmagnstæknifræð-
ing í fullt starf sem fyrst við hönnun á raf- og
stjórnbúnaði fyrirýmsa viðskiptavini okkar.
Um fjölbreytt verkefni er að ræða, svo sem
hönnun á rafkerfum og stýringum í verksmiðj-
ur, farsímastöðvar o.fl.
Reynsla af hönnun er æskileg en ekki krafa.
Leitað er að dugmiklum og ábyrgum einstakl-
ingi sem getur átt góð samskipti við viðskipta-
vini fyrirtækisins og aðra starfsmenn, og sýnir
sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð. Góðirfram-
tíðarmöguleikar eru fyrir réttan mann.
Á Almennu verkfræðistofunni starfa 60 manns að með-
töldu starfsfólki í útibúum á Akranesi og í Reykjanesbæ.
Fyrirtækið er í eigin húsnæði í Fellsmúla 26 og er mjög vel
búiðtækjum og hugbúnaði.
Almenna verkfræðistofan hf.,
Fellsmúla 26, 108 Reykjavík,
sími 580 8100, fax 580 8101,
www.almenna.is. ^
Kökugallerí
Okkur vantar hresst og duglegt fólk til af-
greiðslustarfa í verslun okkar, bæði á morgn-
ana og eftir hádegi. Einnig vantar yfirmann-
eskju yfir búð. Góð laun í boði fyrir gott fólk.
Upplýsingar gefur Viggó í síma 695 1011.
Kökugallerí, Dalshrauni 13.
/V
SAMBAND (SLENZKRA
V/ KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Samkoma í Kristniboðs-
salnum, Háaleitisbraut 58,
i kvöld kl. 20.30.
Guðlaugur Gunnarsson talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Netfang http://sik.is
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
□ Harnar 6000110119 H.v.
I.O.O.F. 9 = I8IIII8V2 * f"
I.O.O.F. 7 = 18111181/2 -
□ GLITNIR 600011011911
I.O.O.F. 18 = 1811118 [ 9.0*