Morgunblaðið - 01.11.2000, Page 50
,50 MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
BOLUR 1700 kr.
PEYSUR 3300 kr.
JflKK112000 kP.
BUKUR 5900 kr.
BROS KOSTAR EKKERT
BUXUR 4300 kr.
SKYRTfl 3500 kp.
STÍGVÉL 5900 kr.
PILS 3200 kr.
PEYSfl 2700 kp.
SKÓR 5500 kr.
SKÓR 4500 kr.
SASHA
KRINGLUNNI
SÍMI: 568 1440
Bæta þarf aðstöðu
næringurfræðinnar
I LEIÐARA í Morg-
unblaðinu 27. október
sl. var fjallað um að
auka þurfi kennslu í
næringarfræði á öllum
skólastigum. Þetta eru
orð í tíma töluð. Byrja
þarf kennsluna þegar á
fyrstu skólaánmum, og
láta hana vaxa og
*^§tyrkjast með meira
fræðilegu ívafi eftir því
sem nemendur eldast.
Einnig verður að efla
verulega nám og rann-
sóknir í greininni við
Háskóla íslands. Nær-
ingarfræði til meistara-
prófs hefur verið kennd
Inga
Þórsdóttir
efla næringarfræðileg-
ar rannsóknir er skort-
ur á næringarfræðing-
um augljós, en samtals
eru næringarfræðingar
og -ráðgjafar aðeins
um 30 talsins hérlendis.
Við erum meðal annars
minnt á mikilvægi
kennslu og rannsókna í
næringarfræði þegar
umræða um greinina í
fjölmiðlum er á villigöt-
um.
Fræðimenn
sammála
við skólann síðan 1995 og til doktors-
prófs frá 1999. I dag komast mun
færri að en vilja í nám í næringar-
fræði þar sem skortur á aðstöðu háir
greininni verulega. Næringarfræð-
ingar eru allt of fáir hérlendis. Ef
miðað er við áhuga almennings, mik-
ilvægi greinarinnar innan heilsu-
gæslu og spítala, og nauðsyn þess að
Umræða um hollustu
og mataræði í fjölmiðl-
um í síðustu viku var á þann veg að
engu var líkara en fræðimenn greini
alvarlega á um hvað hollt mataræði
er, ekki síst leiðir gegn einu helsta
heilsufarsvandamáli okkar tíma, of-
fitunni. Þetta er mesti misskilningur
því ekki er ágreiningur um aðalatriði
þessa máls af hálfu næringarfræð-
inga og annarra aðila sem starfa að
Næring
Því var haldið fram, seg-
ir Inga Þdrsdóttir, að
matur sem gefur svo-
kallaðan háan glýkem-
íustuðul væri eitraður.
manneldismálum innan heilsugæslu,
á sjúkrahúsum og víðar. Ég vísa í
þessu sambandi til kynningarefnis
Manneldisráðs, Hjartaverndar og
Krabbameinsfélagsins, og alls þess
sem þessir aðilar hafa sent frá sér í
fjölmiðla. Einnig vísa ég til annarrar
umfjöllunar næringarfræðinga um
efnið.
Það sem sumir hafa talið deilu
fræðimanna hefur í raun verið dóm-
greindarleysi og þekkingarskortur
manns á sextugsaldri sem losaði sig
við nokkur kíló með gamalþekktum
aðferðum, sem teljast sumum hópum
hættulegar og öðrum hópum gagns-
litlar til langs tíma litið. Hér fór ekki
fræði- eða vísindamaður á sviði sem
fjallar um heilsu og næringu. Um-
ræðan gaf rangar upplýsingar um
hollt mataræði og leiddi til þess að
rýrð var kastað á Manneldisráð og
næringarfræðinga. Þetta var auðvit-
að óréttmætt bæði vegna slæmra
heilsufarslegra afleiðinga þess mat-
aræðis sem sagt var hollt, og vegna
þess að leggja þarf aukna áherslu
hérlendis á menntun og rannsóknir
næringarfræðinga til eflingar heilsu
og lífsgæða.
Rannsóknir á glýkemíustuðli
Því var haldið fram að matur sem
gefur svokallaðan háan glýkemíu-
stuðul væri eitraður eða óhollur fyinr
fólk sem vill léttast, og að feitur og
próteinríkur matur væri hollur og
góður fyrir þetta sama fólk. Hvað er
óheppilegt við slíka matarkúra? Fyr-
ir það fyrsta þarf að velja vel lista yfir
glýkemíustuðla ef á að nota þá, en vel
valdir slíkir listar gefa sannarlega
upplýsingar um gæði kolvetnaríkra
fæðutegunda. Sá listi sem hefur verið
flaggað nýlega í hérlendu síðdegis-
blaði byggðist á aðferðafræðilega
röngum forsendum og var því ónot-
hæfur. En jafnvel vandaðir slíkir list-
ar eru ekki gallalausir. Hafa má áhrif
á hátt blóðsykursvar, eða háan
glýkemíustuðul fæðutegunda eins og
franskbrauðs, kartaflna, pasta og
hvítra hrísgrjóna, og lækka hann
með því að borða í sömu máltíð græn-
meti eins og rótarávexti og kál.
Grænmetið hægir á meltingunni og
upptöku kolvetna úr meltingarvegi í
blóð. Undirrituð skrifaði doktorsrit-
gerð sem fjallaði meðal annars um
glýkemíustuðul og hefur fylgst vel
með á því sviði síðan.
I annan stað leiðir kolvetnalítið
mataræði, sem er hlutfallslega fitu-
og próteinríkt, til hættuástands,
jafnvel dauða, hjá fólki með ætt-
genga háa blóðfitu (hyperkólester-
ólemíu), og hjá öðru viðkvæmu fólki
gegnum ketósu, sem er ástand sem
einnig sést við svelti. Hætti fólk á kúr
sem þessum fitnar það hratt aftur,
þannig að ef ástandið á að vera við-
varandi þarf stöðugt að taka nýja og
strangari kúra. Þetta á sér fræðileg-
ar skýringar studdar reynslu þeirra
sem fengist hafa við að meðhöndla of-
fitu.
Skyndikúrar
Nauðsynlegt er einnig að nefna að
kúrar, sem stillt er upp sem glæsi-
legri lausn gegn hárri líkamsþyngd
og auðveldri leið til að halda lík-
amsþyngd niðri, eru hættulegastir
þeim sem eru uppteknastir af þyngd-
inni, það er ungum stúlkum. Fyrsta
augljósa sameiginlega skrefið sem
allir þeir stíga sem þjást af átröskun
á borð við lystarstol og lotugræðgi er
ströng megrun. Þó fullorðinn karl
telji sig hafa fundið „lausnina" á því
hvernig hann vilji megra sig, hefur
hann í raun ekki siðferðilegan rétt til
að halda þeirri „lausn“ stíft að öðrum
án þess að ráðfæra sig við þá sem
þekkingu hafa á næringu og heilsu.
Það að hafa tekið gamla úrelta kenn-
ingu að hjarta sínu og lést um nokkur
kíló, dugar ekki til að segja öllu öðru
fólki hvemig það eigi að haga sér.
Ekki veit ég hvort eða í hvaða til-
gangi menn vilja hafa slæm áhrif,
bæði á heilsu grandalauss almenn-
ings og á næringarfræðina sem fræð-
igrein. Þetta má að hluta til skýra
með dómgreindarleysi en einnig með
þvi aðstöðuleysi sem greinin býr við.
Aðstöðuleysið er í miklu ósamræmi
við áhuga og væntingar almennings
um framgang og stöðu greinarinnar.
Það eru einkennileg vísindi að reyna
að bregða fæti fyrir baráttuna fyrir
betri upplýsingum um hollustu og
auknum möguleikum til rannsókna í
næringarfræði. Hvað er ætlunin að
skemma? Manneldisráð, Háskóla ís-
lands eða líf næringarfræðinnar sem
fræði- og vísindagreinar á Islandi.
Hér er vissulega þörf á sókn til
bættrar aðstöðu næringarfræðinnar,
bæði til rannsókna og kennslu.
Manneldisráð, sem hittist um það
bil einu sinni í mánuði, er skipað
fimm mönnum með sérfræðiþekk-
ingu á næringar-, matvæla- og lækn-
isfræði. Starf á vegum ráðsins fer
fram á skrifstofu þess þar sem lengst
af hafa unnið tveir næringarfræðing-
ar í 1,8 stöðugildum að rannsóknum
og fræðslu. Þetta eru þær Hólmfríð-
ur Þorgeirsdóttir, sem einnig er mat-
vælafræðingur, og doktor Laufey
Steingrímsdóttir forstöðumaður.
Eins og fram hefur komið nýlega í
fréttum'erManneldisráð ein minnsta
ríkisstofnunin hérlendis. Það er að-
dáunarvert og ber vott um dugnað
skrifstofu ráðsins hversu vel það er
kynnt almenningi í landinu og hversu
vel afrakstur starfsemi hennar er
nýttur í umræðu í samfélaginu.
Þannig eru upplýsingarnar um
neyslu á sykri, grænmeti, ávöxtum
og öðrum matvælum og þróun
líkamsþyngdar hérlendis komnar frá
skrifstofu Manneldisráðs.
Síðastliðið vor var haldið þverfag-
legt málþing, „Manneldi á nýrri öld“ í
Háskóla íslands. Málþingið var hald-
ið vegna þess að 20 ár voru liðin frá
því að fyrstu matvælafræðingarnir
útskrifuðust frá Háskóla Islands, en
næringarfræði er kennd innan mat-
vælaíræðiskorar H.í. Á málþinginu
var meðal annars fjallað um nauðsyn
rannsókna og upplýsingar á þessu
sviði. Það sérkennilega er, að hjá
þessari þjóð, sem hefur mikinn
áhuga á hollustu og lifir auk þess á
útflutningi matvæla, er nánast engin
aðstaða ætluð næringarfræði eða
matvælafræði við asðstu mennta-
stofnun landsins. Því þarf að breyta.
Höfundur er prófessor f næringar-
fræði og formaður Manneldisráðs.