Morgunblaðið - 25.11.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.11.2000, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBE R 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Stjórnendur lánastofnana sammála gagnrýni forstjóra Fjármálaeftirlitsins á aukningu útlána ur útlánaþrýstingur frá fyrirtækjun- um, en það sé að mestu vegna fjár- festingarverkefna sem þau séu að ráðast í, eða vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar og eignabreyt- inga. Pá hafi þörf stærri fyrirtækja fyrir rekstrarfjármögnun aukist bæði vegna tímabundinna aðstæðna og aukins umfangs rekstrar í kjölfar aukins hagvaxtar hér á landi síðast liðin 5 ár. Lausafjárstaða þrengst hjá mörgum aðilum Þór Gunnarsson, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar, sagðist geta tekið undir flest það sem Páll Gunnar Pálsson sagði á ársfundi Fjármálaeftirlitsins og sagðist líta á það sem jákvætt innlegg. „Enda er það engin spurning, að mér sýnist við vera að stefna í mun erfiðara um- hverfi en við höfum verið í undanfarin ár.“ Hann sagðist geta viðurkennt að útlánaukning lánastofnana hefði ver- ið of hröð og hefði kallað ýmsa hluti yfir menn sem ekki væri búið að sjá fyrir endann á. „Menn hafa kannski farið of hratt. Það er líka vegna þess að lausafjárstaða hefur mjög þrengst hjá mörgum aðilum og þróun á verð- bréfamarkaði hefur gengið þar mjög nærri.“ Almennt séð segist Þór telja að Fjármálaeftirlitið sé á réttri leið og hafi gert marga góða hluti og að stofnunin sé að ná því takmarki að setja upp jákvæðar og virkar reglur um verðbréfamarkaðinn. „Það var þó eitt sem stakk mig í ræðu Páls, og það er að þeir ætli sér að fara að gefa stofnunum einkunna- gjöf og jafnvel að gera mismunandi eiginfjárkröfur eftir stöðu stofnana. Einhvern veginn finnst mér að það sé ekki þeirra verkefni, það sé jafnvel annarra að gera það. Þeirra verkefni er aftur á móti að halda utan um starfsrammann, að hann sé uppfyllt- ur og að menn séu ekki að fara út fyr- ir það.“ Mikið dregið úr eftirspurn eftir lánsfé PÁLL Gunnar Pálsson, for- stjóri Fjármálaeftitlitsins, gerði ýmsar athugasemdir á ársfundi stofnunarinnar við útlánaaukningu og versnandi eig- infjárhlutfall lánastofnana, og sagði hann að FME brýndi fyrir stjóm- endum lánastofnana að taka alvar- lega þau hættumerki sem í þróuninni fælust. Árleg útlánaaukning frá ár- inu 1998 hefur að jafnaði verið 25- 30% á meðan sambærileg aukning útlána 1996 og 1997 var um 12%, en á sama tíma hefur eiginfjárhlutfall lánastofnana farið lækkandi, að sögn Páls Gunnars. Þeir bankastjómendur sem Morg- unblaðið ræddi við í gær varðandi ummæli Páls Gunnars sögðust lítið hafa við þessi ummæli að bæta, og að slíkar viðvaranir hefðu heyrst áður. „Þetta átti við um fyrri hluta árs- ins og fram eftir ári, en núna hefur dregið mjög úr útlánaaukningunni,“ sagði Stefán Pálsson, aðalbanka- stjóri Búnaðarbanka Islands, um þau ummæli forstjóra Fjármálaeftirlits- ins (FME) í fyrradag að hættumerki sem felist í mikilli útlánaaukningu og lækkandi eiginfjárhlutfalli fjármála- stofnana verði að taka alvarlega. Stefán segist ekkert hafa við þessi ummæli að athuga og að þessar við- varanir hafi komið fram áður, bæði frá Seðlabanka og FME. Hann sagð- ist hins vegar telja að lánveitingar Búnaðarbankans séu mjög vel tryggðar og til traustra lántakenda. Spurður nánar um útlánaaukninguna sagði Stefán hana mjög litla nú og að mikið hefði dregið úr eftir- spum eftir lánsfé. Stefna íslandsbanka- FBA að eiginfjárstaða sé um og yfir 10% Frui, - leið ti Breytt starfsskilyrc Ráðstefna a Grand Hotei I ÞriðjtKtjginn 28. novanber2000 I M. 13:00-17:00 I Ráðstefna: nkvöðlasetur I nýsköpunar i framkvöðla og sprotafyri rtaekj a Dagskrá ráðstefnunnan eöa i síma 570 7267 13.00 13.10 ■ , i kr. 2.600 . 13.40 * OVimm*sasi þátttóMK i fyrirkl. 17:00 U 10. mánudaginn 27. nóvember Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri 14.30 14.50 « 15.10 £ Í\ 15.30- « « r 15.50 >1 *» c -13.10 Ávarp Valgerður Sverrisdóttr, iðnaðar- og viðskiptaráherra. -13.40 Frumkvöðlasetur sem tæki til nýsköpunar og atvinnuupp- byggingar- reynsla Evröpuríkja . Mr. Ben Butters, European BIC Network. -14.10 Lykillinn að árangri í rekstri frumkvöðlasetra Mr. Rohit Talwar, Fast Future Ventures 14.30 Frumkvöðlasetur Impru - árangur eftír 18 mánaða starfsemi Andrés Magnússon, forstööumaður Impru. 14.50 Kaffihtó ■ 15.10 Frumkvöðlastarfsemi meðal ungs fötks Guðjón Már Guðjónsson, for- stjóri Oz ■ f5.30 Virkjun sérfræðiþekkingar / frumkvöðlastarfí Bjarki Brynjarsson, framkvæmda- stjóri nýsköpunarsviðs Nýherja og Klaks ehf. -15.50 Reynslan afað hefja starfsemi á frvmkvöðlasetri Þorvaldurl. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Net-Albúms ehf; Þorgeir Helgason, framkvæmda- stjóri Bergspár ehf. ■ 16.10 Hlutverk frumkvöðlasetra frá sfónarhóli fjárfesta Gylfi Ambjömsson, framkvæmda- stjóri Eignarhaldsfélags Alþýðu- bankans. ióntæknistofnun 16.10-16.40 Palíborðsumræður meó þátttóku frummælenda «; *: 16.40-15.50 Samantekt og ráðstefnuslit ÓHallgrlmur Jónasson, forstjóri Iðn- tæknistofnunar. Halldór J. Kristjánsson Stefán Pálsson Valur Valsson Þór Gunnarsson nýjar reglur um verðbréfa- viðskipti og Kínamúra. Halldór sagði að Lands- bankinn hafi verið samstiga FME í þessu og að hann hafi sérstaklega fagnað yf- irlýsingu Páls Gunnars um að hér skuli gilda sambæri- legar reglur og á mörk- uðunum í kringum okkur. Þessi mál hafi verið í góðu horfi hjá allra stærstu fyrir- tækjunum hér á landi. Hins vegar geti aðgreining starfsdeilda verið erfiðari í framkvæmd fyrir minni fyrirtækin og að því þurfi að sýna einhvern skilning. „Það hefur verið mik- il velta í efnahagslífinu undanfarin misseri og því kemur ekki á óvart að útlánaaukning sé mikil á sama tíma. Nú hægir á í efnahagskerf- inu og þá munu útlán einnig minnka. Aðalat- riðið er að eiginfjár- staða sé í samræmi við umsvif og áhættudreif- ingu. Við hjá Islands- banka-FBA höfum fylgt sömu stefnu og Fjármálaeftirlitið í þeim efnum og teljum því að staðan hjá okkur sé í góðu lagi. Sama er mat erlendra lánshæf- isfyrirtækja, sem ein- mitt skoða þetta sér- staklega,“ sagði Valpr Valsson, forstjóri ís- landsbanka-FBA, um fyrrgreind ummæli for- stjóra FME. Valur sagði að stefna bankans hafi verið sú að eiginfjárstaðan sé um og yfir 10% og það sé sama og FME hafi ráðlagt stóru bönkun- um á Islandi. Valur sagði, þegar hann var spurður um gæði útlána bankans, að hann teldi þau vera hin sömu og fyrr, þó enginn vissi það fyrir víst fyrr en eftir nokkur ár. Hann sagði að ekki væri sjáanleg nein til- hneiging til þess að lánin nú væru annarrar gerðar en áður. Landsbankinn verið samstíga Fjármálaeftirlitinu „Það kemur mér ekkert á óvart í því sem Páll Gunnar Pálsson, for- stjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði á ársfundi þess í gær, þetta eru atriði sem Fjármálaeftirlitið og við erum búin að ræða mikið á liðnum 12-18 mánuðum,“ sagði Halldór J. Krist- jánsson, bankastjóri Landsbanka ís- lands. Halldór sagðist sammála áherslum FME um að það beindi sjónum sínum að heiidarmyndinni frekar en ein- stökum smærri málum sem upp kæmu. Rétt væri að leggja áherslu á áhættustýringu og innra eftirlit í öll- um fjármálafyrirtækjum, þar með talið bönkunum. „Þetta er atriði sem er viðvarandi viðfangsefni og því er mikið sinnt innan bankanna. Það er í höndum stórra starfsdeilda í stærii bönkunum sem fylgjast með heild- aráhættu og aðgerðum til að tak- marka hana,“ sagði Halldór. Hann sagði FME einnig hafa lagt áherslu á markaðsaðhald, sem sner- ist meðal annars um upplýsingagjöf og að treysta á aga markaðarins og eftirlit hans. Þá hefði forstjóri FME talað um starfshætti á fjármálamarkaði og Heldur farið að draga úr útlánaeftirspurn Loks sagði Halldór að FME hygð- ist fylgjast vel með breytingum á starfsumhverfi og leggja áherslu á öryggi í rekstri og bætt skipulag í stjórnun og vandaðri ákvarðanatöku þegar kæmi að eftirliti og hlutum eins og samruna á markaði. Með hliðsjón af þeirri vinnu sem verið væri að vinna í Landsbankanum og Búnaðar- bankanum sagði Halldór enga ástæðu til annars en taka undir að þetta væru mjög mikilvægir þættir. Hann sagði að það hefði raunar verið mjög í forgrunni í vinnu við samein- inguna að tryggja það að samruninn muni leiða til þess að fyrirtækin verði öruggari í rekstri eftir hana. Áhættu- dreifingin batni við sameiningu þann- ig að samruni og stækkun eininga sé mjög góð leið til að ná fram auknu ör- yggi í fjármálakerfi landsins. Spurður um framlög í afskriftasjóð sagði Halldór að bankinn hefði fylgt útlánaþróuninni og lagt ákveðinn hundraðshluta af heildareignum ár- lega inn á afskriftareikning og staða hans sé vel viðunandi. Halldór sagðist ennfremur telja að heldur væri farið að draga úr útlána- eftirspurn, sérstaklega hvað varðaði einstaklinga og heimili. Enn sé nokk-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.