Morgunblaðið - 25.11.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 25.11.2000, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Breski Verkamannaflokkurinn sigrar í mikilvægum aukakosningum Auknar líkur taldar á þing- kosningum í maí AP John Robertson, frambjóðandi Verkamannaflokksins í kosningainum til breska þingsins í Anniesland í Glasgow (t.v.), fagnar sigri sínum ásamt William Butler, frambjóðanda flokksins til skoska þingsins. London. Reutcrs, AFP. VERKAMANNAFLOKKURINN í Bretlandi fór með sigur af hólmi í þrennum mikilvægum aukakosning- um til breska þingsins í fyrradag. Fátt benti til þess að Ihaldsflokkur- inn væri að sækja í sig veðrið og er nú talið nánast öruggt að Tony Blair forsætisráðherra boði til þingkosn- inga í maí á næsta ári. Kosið var í þremur kjördæmum, vesturhluta West Bromwich í Mið- Englandi, Preston í norðvesturhluta Englands og Anniesland í Glasgow. Öll þessi kjördæmi eru á meðal vígja Verkamannaflokksins. Kjörsóknin var lítil og fylgi Verkamannaflokksins minnkaði en Blair veit að algengt er að sá flokk- ur sem er við völd tapi fylgi í auka- kosningum þótt hann beri síðan sig- ur úr býtum í næstu þing- kosningum. Verkamannaflokkurinn hefur aldrei beðið ósigur í auka- kosningum frá því að Blair komst til valda og engin önnur stjóm hefur náð þeim árangri í Bretlandi í hálfa öld. „Þetta eru skilaboð til stjórnar- innar, ekki um að kjósendur séu sérlega ánægðir með hana, heldur um að þeir séu ekki tilbúnir að láta forystusveit íhaldsflokksins leysa Tony Blair og ráðherra hans af hólmi,“ sagði Anthony King, pró- fessor í stjómmálafræði við Essex- háskóla. Hann bætti við að miklar líkur væru nú á þingkosningum í maí, ári áður en kjörtímabili þings- ins lýkur. íhaldsmenn stefndu að sigri í West Bromwich Þingsætið í West Bromwich losn- aði þegar Betty Boothroyd lét af störfum sem forseti neðri deildar þingsins. Frambjóðandi Verka- mannaflokksins í kjördæminu, Adri- an Bailey, sigraði með um 3.000 at- kvæða meirihluta. íhaldsmenn töldu sig eiga mesta möguleika á sigri í þessu kjördæmi og lögðu því mesta áherslu á West Bromwich í kosn- ingabaráttunni. „íhaldsflokkurinn hefði átt að ná þingsætinu í West Bromwich eða vera mjög nálægt þvi til að teljast líklegir til að sigra í næstu kosning- um,“ sagði King. „Þetta er mjög slök útkoma.“ Mark Hendrick, frambjóðandi Verkamannaflokksins, var kjörinn þingmaður Preston með 4.500 at- kvæða meirihluta. John Robertson, frambjóðandi Verkamannaflokksins í Anniesland í Skotlandi, sigraði með 6.300 at- kvæða mun. Frambjóðandi skoskra þjóðernissinna var í öðru sæti. Kosið var í Anniesland vegna andláts Donalds Dewars, forsætis- ráðherra skosku heimastjórnarinn- ar. Verkamannaflokkurinn sigraði einnig í aukakosningum til skoska þingsins í kjördæminu. Nutu ekki góðs af deilunni um evruna Bresk blöð sögðu að úrslitin hlytu að valda íhaldsmönnum vonbrigðum en leiðtogi þeirra, William Hague, var á öðru máli. Hann sagði að fylgi flokksins hefði aukist hlutfallslega, einkum í ensku kjördæmunum, og það sýndi að flokkurinn væri á réttri braut. Ihaldsmenn vonast til þess að barátta þeirra fyrir því að Bretar haldi pundinu verði helsta tromp þeirra í næstu þingkosningum. Skoðanakannanir benda til þess að 70% Breta séu andvígir því að pund- ið víki fyrir evrunni og Blair er í meginatriðum hlynntur því að Bret- land taki upp evrópsku myntina. Úrslit aukakosninganna bentu þó ekki til þess að íhaldsmenn hafi sótt í sig veðrið vegna evrumálsins. „Þeir settu deiluna um evruna á oddinn en samt fengu þeir aðeins atkvæði tíunda hvers kjósanda í West Bromwich," sagði stjóm- málaskýrandinn Matthew Taylor. Hann kvaðst einnig vera þeirrar skoðunar að Bretar stefndu „hrað- byri“ að kosningum í maí. Kjörsóknin var óvenju lítil, tæp 30%, en hún hefur verið um 70% í almennum kosningum til breska þingsins. Stephen Byers, viðskipta- og iðnaðarráðherra, viðurkenndi að þetta væri áhyggjuefni fyrir stjórn- ina. Name of Bank 98 pmLÍÞtS; .96 7 -65 4 321 -rxW\\‘ ' 1234567*90 Það tilkynnist hér með að bankar og sparisjóðir á íslandi hafa ákveðið að hætta innlausn á Euro ávísunum í íslenskum krónum frá og með 1. janúar 2001. Rétt er að benda á að bankakort sem fylgja ávísunum þessum er hægt að nota í hraðbönkum hérlendis. * SFARISJÓÐURINN -fyrirþigogþína ÍSLANDSBANKI (RRA ®BÚNAÐARBANKINN Traustur banki Eitur í Stasi-skjölum UM tuttugu manns sem vinna við að flokka skjöl úr safni gömlu austur- þýsku öryggislögreglunnar í Berlín, Stasi, hafa að sögn norska blaðsins Aftenposten veikst og eru sjúk- dómseinkcnni hin sömu hjá öllum: Mikill höfuðverkur, blóðnasir, nið- urgangur og vöðvakrampi. Mari- anne Birthler, sem er nýr yfírmaður safnsins, staðfesti í vikunni að talið væri að ástæðan væri sú að eitur- efni hefði verið komið fýrir í skjöl- unum. Fundist hafa 12 möppur með gögnum sem vætt hafa verið í eitur- efnum og sagt er að gúmmíhanskar, sem notaðir voru þegar skjölin voru handfjölluð hafil leyst upp. Blaðið segir að tæknideild Stasi hafi gert tilraunir með ýmis efni er hafi verið borin á skjöl og bækur. Hafi markmiðið verið að geta þann- ig fylgst með því hveijir hefðu blað- aðíþeim. Einnig hafi tæknideildin fengið kjarnorkuverið í Rossendorf til að gera tftuprjóna geislavirka, siðan hafi pijónunum verið stungið í fatn- að andófsmanna. Gátu starfsmenn Stasi þá fylgst með ferðum mann- anna með því að nota svonefnda geiger-teljara er mæla geislun. Þrír fyrrverandi andófsmenn hafa látist úr krabbameini og hefur andlát þeirra ýtt undir grunsemdir um að Stasi hafí beitt geislavirkni gegn andófsmönnum er sátu í fangelsi. Ekki hafa þó fundist neinar sannan- ir fyrir þessum grunsemdum. Arið 1995 var sannað að áður- nefnd eiturefni væru í Stasi- skjölunum en þýska vinnueftirlitið kannaði málið og varð niðurstaðan að þau væru ekki hættuleg. Nú krefst stofnunin þess að starfs- mennimir njóti traustari vemdar. Hjá tæknideildinni störfuðu rúm- ' lega 1.000 manns og skýrslur henn- ar fylla um 500 hillumetra. Thomas Auerbach, sem rannsakað hefur starfsemi Stasi, hefur skýrt frá þessum aðgerðum í samtali við Berliner Morgenpost. Kohl kynnir dagbók sína Berlín. AFP. HELMUT Kohl, fyrrver- andi kanzlari Þýzkalands, kynnti í gær fyrsta bindi endurminninga sinna, sem ber titilinn „Dagbókin mfn 1998-2000“. Kohl, sem mjög sjaldan hefur ávarp- að fjölmiðla frá því leyni- reikningahneykslið svo- kallaða upphófst fyrir ári, notaði þetta tækifæri til að lýsa fjölmiðla og pólitíska and- stæðinga ábyrga fyrir falli sínu af þeim stalli, sem hann telur mann meðsína afrekaskrá verðskulda. „Ég vil ekki ýfa upp nein sár með þessari bók,“ tjáði hann troð- fullnum salnum í Adcnaucr-húsinu í Berlín, höfuðstöðvum flokksins, sem liann var formaður í til 25 ára, Kristilcgra demókrata (CDU). „Pólitískir andstæðingar - og f félagi við þá sumir fjölmiðl- ar - reyndu að skapa mynd af mér sem spilltum og valdagírugum stjórnmála- manni,“ sagði hann. „Það var dreift yfirgengilegum lygasögum um mig, með að- ferðum sem ég hefði ekki getað ímyndað mér að óreyndu." Þegar spurningin um hverjir hefðu staðið að baki fjár- framlögunum, sem hann hefur við- urkennt að hafa tekið við og geymd voru á ólöglegum leyni- reikningum, var ítrekuð við hann í j gær, gaf Kohl sama staðlaða svariðj og hann hefur gefið allan tfmann frá því hneykslið hófst - að hann : hafi gefið gefendunum loforð um að láta ekki uppi hverjir þeir væru og þetta loforð brjóti hann ekki. Kohl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.